Morgunblaðið - 17.06.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ 1986
23
Tilraunasportbíllinn frá Subaru sem er til sýnis næstu daga hjá
umboðinu í tilefni af 10 ára innflutningi Subaru-bíla.
Tilraunabíll til sýnis
biðja ferðaskrifstofur um að nota
VISA- greiðsluseðla. VISA-
greiðsluseðlamir eru ekki einungis
ætlaðir til greiðslu fyrir gistingu,
heldur einnig fyrir bflaleigu og
fleira sem tengist sérstakri ferða-
mannaþjónustu.
Öm var spurður hvort hann ætti
ekki von á andstöðu ferðaskrif-
stofumanna við notkun á þessum
VISA greiðsluseðlum, því hún hefði
í för með sér að ferðaskrifstofumar
þyrftu að gera upp við hótelin fyrr
en ella, og gætu þar af leiðandi
haft greiðslumar fyrir hótelgisting-
una skemmri tíma en ella í veltunni
hjá sér.
„Ferðaskrifstofumar geta haft
greiðslufrest í allt að 30 daga, og
aðalkosturinn sem við sjáum í notk-
un þeirra á þessum greiðsluseðlum
er að þá geta þær gefið út greiðslu-
seðil á nánast hvaða hótel sem er
í heiminum. Auðvitað gemm við ráð
fyrir því að þær noti áfram eigin
greiðsluseðla, ásamt VISA-seðlun-
um, en við bendum á trygginguna
sem í notkun VISA seðlanna er
fólgin, einkum og sér í lagi þegar
um einstaklingsferðir er að ræða,
t.d. á framandi slóðir. Það er rétt
að benda á að ferðaskrifstofumar
verða ekki fyrir tekjutapi þótt þær
taki upp notkun VISA-seðlanna, en
hótelin verða hins vegar fyrir út-
gjaldaauka, því þóknun þeirra til
VISA verður um 2,5%. Það virðist
hins vegar ekki ætla að koma í veg
fyrir að notkun á þessari þjónustu
breiðist út, því hótelin spara sér þar
með fyrirhöfnina sem fylgir inn-
heimtu, auk þess sem greiðslan til
þeirra er algjörlega tryggð með
notkun VISA.“
Öm upplýsir jafnframt að í
tengslum við þessa þjónustu bjóði
VISA nú upp á ákveðna bókunar-
þjónustu hjá hótelum innanlands
sem utan og hjá innanlandsflugi
Flugleiða. Hún verður í því fólgin
að ferðamaður, sem bókar sig inn
á hótel með VISA-þjónustunni með
því að gefa upp kortnúmer sitt við
bókun, á hótelherbergi sitt víst,
hversu seint sem hann kemur á
áfangastð. Hann greiðir líka fyrir
gistingu, fyrstu nóttina sem bókuð
er, þó svo að áætlun hans fari úr-
skeiðis og hann nái ekki að koma
á hótelið á fyrirhuguðum tíma.
Afpanti hann hinsvegar fyrir kl. 18
daginn sem hann pantaði, sleppur
hann við borgun. Öm segir að þar
með standi ferðamaðurinn ekki
frammi fyrir því að búið sé að láta
öðmm eftir hótelherbergi hans, ef
hann er seinn fyrir. Sami háttur
verður hafður á hjá innanlandsflugi
Flugleiða, þannig að ferðamaður
sem nýtir sér þennan bókunar-
möguleika getur treyst því að bið-
listafarþegar hafa ekki fengið sæti
hans, ef hann einhverra hluta vegna
nær ekki út á flugvöll fyrr en á
síðustu mínútum fyrir brottför.
Sami háttur er hafður á hvað
greiðslu snertir - þ.e. ef ferðamað-
urinn missir af vélinni, verður hann
samt sem áður að greiða farseðil-
inn.
Loks nefndi Örri nýjung sem
VISA tekur nú upp að erlendri
fyrirmynd, en það er svokölluð
forgangsafgreiðsla eða hraðaf-
greiðsla við brottför af hótelum
hérlendis sem erlendis. Hafi kort-
hafi í upphafi gefið upp kortnúmer
sitt við skráningu inn á hótelið og
sagst mundu vilja njóta hraðaf-
greiðslunnar, ef svo ber undir, getur
hann með engum fyrirvara horfið
af hótelinu, þar sem hann hefur
þegar lýst sig ábyrgan fyrir úttekt
á hótelinu. Þetta sagði Öm að kæmi
sér iðulega vel fyrir menn á við-
skiptaferðalögum, sem þyrftu að
skipuleggja tíma sinn vel og hefðu
takmarkaðan tíma til þess að bíða
í móttökum hótela eftir lokaupp-
gjöri.
í tilefni af þvi að 10 ár eru
liðin frá þvi að innflutningur
hófst á Subaru-bílum til landsins,
var umboðið með bílasýningu um
helgina og stendur hún næstu
daga.
Aðal-sýningargripurinn er
tilraunabíll sem sérstaklega var
fenginn til landsins af þessu til-
efni.
SAMNORRÆNT samstarfsverk-
efni er að fara af stað á sviði
iðnaðarrannsókna. Það eru
Norræni iðnaðarsjóðurinn
(Nordisk Industrifond) og
danska Tækniakademían (Aka-
demiet for de Tekniske Viden-
skaper) sem hafa undirbúið það.
Verkefnið felst í því að menn sem
lokið hafa háskólaprófi og hafa
sérstakan áhuga á iðnþróun, geta
sótt um 2-3 ára nám í iðnaðar-
rannsóknum í samvinnu við
stofnun eða skóia í einu landi og
fyrirtæki í öðru.
Námið er að hluta til flármagnað
af Norræna iðnaðarsjóðnum, sem
Bíllinn var á sýningu í Evrópu
og fer héðan til Japan. Ekki er
hann komin á það stig að vera
settur í framleiðslu, heldur er hann
enn í þróun. Einnig eru til sýnis
sportlegri bfltegundimar frá Su-
baru, Coupé og XT turbo.
Frá því að innflutningur hófst
fyrir 10 árum hafa á fimmta þúsund
Subaru bflar selst hérlendis.
greiðir hluta af launa- og ferða-
kostnaði o.fl. Vonast er til að nám
af þessu tagi leiði til áþreifanlegrar
samvinnu í iðnaðarrannsóknum
milli Norðurlandanna, umsækjend-
ur öðlist reynslu og þekkingu á
atvinnulífi, atvinnulífið fái dugandi
rannsóknarmenn sem skili þeim í
fremstu röð í ýmsum þáttum tækni-
þróunar og að rannsóknarstofnanir
og skólar fái betra samband við
atvinnulífið og önnur Norðurlönd.
Upplýsingar um verkefni þessi
og viðmiðunarreglur um styrkveit-
ingu fást hér á landi hjá Hermanni
Sveinbjömssyni í iðnaðarráðuneyt-
inu.
Norrænt samstarf
um iðnaðarrannsóknir
GEGN
STEYPU
SKEMMDUM
STEINVARI 2000
hefur þá einstöku eiginleika aö
vera þétt gegn vatni i fljótandi
ástandi, en hleypa raka i
loftkenndu ástandi auðveldlega i
gegnum sig, tvöfalt betur en
hefðbundin plastmálning.
Viljir þú verja hús þitt skemmdum
skaltu mála meö
STEINVARA 2000.
ÓSA/SIA
VJterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
ASEA CYLINDA
Þvottavélar og þurrkarar
...eins og hlutirnir gerast bestir
Árangur náinnar samvinnu sænsku neytendastofnunarinnar KONSUMENTVERKET,
textilrannsóknastofnunarinnar TEFO og tæknirisans ASEA. Nýsköpun sem fær hæstu
einkunnir á upplýstasta og kröfuharðasta markaði heims fyrir árangur, taumeðferð
og rekstrarhagkvæmni.
ASEA CYLINDA tauþurrkari
Skynjar sjálfur hvenær tauið er þurrt, en
þú getur líka stillt á tíma.
114 lítra tromla, sú stærsta á markaðin-
um. Það þarf nefnilega 2,5 sinnum stærri
tromlu til að þurrka í en til að þvo í.
Tekur því úr þvottavélinni í einu lagi.
Mikið tromlurými og kröftugt útsog í
stað innblásturs stytta þurrktíma, spara
rafmagn og leyfa allt að 8m barka.
Neytendarannsóknir sýna að tauið slitnar
ekki né hleypur í þurrkaranum, heldur
losnar aðeins um lóna af notkunarslitinu.
Það er kostur, ekki síst fyrir ofnæmisfólk.
Sparar tíma, snúrupláss og strauningu.
Tauið verður mjúkt, þjált og slétt, og æ
fleiri efni eru gerð fyrir þurrkara.
Getur staðið á gólfi eða ofan á þvottavél-
ASEA CYLINDA þvottavélar
Þvo best, skola best, vinda best, fara best
með tauið, nota minnst rafmagn.
Vottorð upp á það.
Gerðar til að endast, og í búðinni bjóðum
við þér að skyggnast undir glæsilegt
yfirborðið, því þar er ekki síður að finna
muninn sem máli skiptir: trausta og
stöðuga undirstöðu, vöggu á dempurum
í stað gormaupphengju, ekta sænskt
ryðfrítt krómnikkelstál, SKF-kúlulegur á
35 mm öxli, jafnvægisklossa úr járni í
stað sandpoka eða brothætts steins o.fl.
Athyglisverð er lika 5-laga ryð-og rispu-
vörn, hosulaus taulúga, hreinsilúga,
grófsía, sápusparnaðarkerfi með lyktar-
og hljóðgildru, stjórnkerf: með framtíð-
arsýn og fjölhraða lotuvinding upp í
1100 snúninga.
ASEA CYLINDA er nú eini framleiðandi heimilisþvottavéla á Norðurlöndum.
Með stóraukinni framleiðslu og tollalækkun er verðið hagstætt. Og vist er,
að gæðin borga sig, STRAX vegna betri og ódýrari þvottar, SlÐAR vegna
betri endingar.
/Fonix
HÁTÚNI 6A SlMI (91)24420
Bobby
furusettið sem svo margir
hafa beðið eftir er loksins komið
-og verðiðereins ogáður
framúrskarandi gott.
Slitþofs-
prófun
áklaeða
Bobby sófasett 3+2+1 kostar
aðeins 19.840.
4.980.- út og 2.500 á mánuði.
Veistu aö hjá okkur fœröu massiva veggskápa úrfuru
264 cm breiöa og 184 cm mm
háa á aöeins kr. O O ■ 9 O w
húsgagna höllin
BÍLDSHÖFÐA 20 — 112 REYKJAVÍK — 91-681199 og 681410
HUSCÖCIM