Morgunblaðið - 17.06.1986, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ 1986
35
Séð yfir mannfjöldann og tjaldbúðirnar á ÞingvöUum 17. júni 1944.
- Viltu skýra nánar við
hvað var átt, þegar þú sagðir,
að tíminn ynni málinu í marg-
földum skilningi?
- Þá er átt við í senn breytta
þjóðhætti, tækni og stöðu þjóðar-
innar. Borið hefir verið við fjarlægð-
inni milli Reykjavíkur og Þingvalla.
Þá er haft í huga að þingið yrði
að heyja þar sem ríkisstjóm, stjóm-
arskrifstofur og yfirstjóm stjórn-
sýslunnar er til staðar. Þá er reikn-
að með að endurreisn hins foma
Samvinnutryggingar:
Erlendur
áfram
formaður
AÐALPUNDUR Samvinnutrygg-
inga og Andvöku var haldinn á
Hótel KEA á Akureyri á föstu-
daginn.
Samþykkt var að veita Iþrótta-
bandalagi Akureyrar og Ung-
mennasambandi Eyjafjarðar
250.000 kr. styrk, hvom félagi. Þá
var stjóm félagsins einróma endur-
kjörin, og Erlendur Einarsson, for-
stjóri Sambandsins, gegnir því
stjómarformennsku í félaginu
næstu tvö árin, en hann mun sem
kunnugt er láta af störfum sem
forstjóri SIS í haust.
Hækkun fram-
færsluvísitölu
0,66% síðast-
liðinn mánuð
VÍSITALA framfærslukostnaðar
hækkaði um 0,66% frá byxjun
maímánaðar á þessu árí fram í
júnímánuð. Mestur hluti þessarar
hækkunar stafar af hækkun á
verði matvöru, einkum á eggjum
og mjólkurafurðum ýmiskonar,
en að öðru leyti á verðhækkun
ýmissa vöru og þjónustuliða þátt
í hækkun framfærsluvísitölunn-
ar.
í frétt frá Kauplagsnefnd kemur
fram að síðastliðna tólf mánuði
hafi vísitala framfærslu hækkað um
23,9% og að hækkun vísitölunnar
{ síðasta mánuði samsvari 8,2%
árshækkun. Þá kemur einnig fram
að á síðustu þremur mánuðum
hefur vísitalan hækkað um 3%, en
sú hækkun jafngildir 12,6% verð-
bólgu á einu ári.
þingstaðar þýddi óhjákvæmilega að
flytja höfuðborgina frá Reykjavík
til Þingvalla eða jafngildi þess
meðan þinghaldið stæði yfir. Þykir
mönnum þá í of mikið ráðist. Kemur
þar hvorutveggja til óhagkvæmni
og kostnaður.
En tímamir breytast. Jafnvel
1923 gerði Björn Þórðarson síðar
forsætisráðherra lítið úr vandanum
af vegalengdinni frá Reykjavík til
Þingvalla. Hann sagði þá í gagn-
merkri ritgerð um gildi Þingvalla,
sem birtist í Eimreiðinni: „Fyrir
höfuðstaðarbúa er vegurinn til
Þingvalla ekki nema góð stekkjar-
gata...“ Hvað mætti þá segja í
dag miðað við þær framfarir sem
orðið hafa í samgöngumálum síðan?
Þegar svarað er spurningunni
hvort Alþingi skuli flytja til Þing-
valla ber að hafa í huga að tækni-
þróun í samgöngum og fjarskiptum
gjörbreytir öllum viðhorfum í þess-
um efnum. Á næstu öld, hvað þá
heldur á síðari öldum, getur tækni-
þróunin hafa rutt úr vegi hindrun-
um svo að ekki verði vandkvæði á
því að Reykjavík verði áfram höfuð-
borgin þótt Alþingi verði á Þingvöll-
um við Öxará. Þegar að því kemur
verður þjóðinni svo vaxinn fiskur
um hrygg að fólksfjölda og efnum
að hún verður þess umkomin að
sýna það þrek sem þarf til að endur-
reisa hinn forna þingstað.
- En verður Reykjavík
ekki vangert með þessu og
Þingvöllum ofgert?
- Hér er gert ráð fyrir að
Reykjavík verði eftir sem áður
höfuðborgin þótt Alþingi verði á
Þingvöllum. Áþekk skipan þekkist
annars staðar. Þannig er t.d. Amst-
erdam höfuðborg Hollands þó að
Haag sé aðsetur ríkisstjómarinnar
og þjóðhöfðingjasetrið sé í Soestdijk
í Utrecht-héraði. Er þetta áþekkt
því sem hér væri Alþingi á Þingvöll-
um, ríkisstjórnin í Reykjavík og
forseti íslands að Bessastöðum í
Gullbringu- og Kjósarsýslu. Eftir
sem áður væra þau öll æðstu stjórn-
völd ríkisins staðsett í hinu foma
landnámi Ingólfs Amarsonar á
höfuðborgarsvæðinu og útjaðri
þess.
Þá er gert ráð fyrir að frambúð-
arskipan Þingvalla verði ekki ein-
ungis í samræmi við sögu staðarins
heldur og náttúra svo að helgi hins
foma þingstaðar verði ósnortin.
Mannvirkjum mætti og koma fyrir
vestan Almannagjár. En hafa ber
í huga að fegursta verndun Þing-
valla er fólgin í því að þjóðin njóti
helgi þeirra og náttúru til sam-
funda, þjóðhátíða og þinghalds svo
sem var í árdaga.
- Hver eru meginatriði
þess sem þú vildir sagt hafa
um staðsetningu Alþingis?
Ljósm. Kaldal. Kópía Ljósmyndasafnið.
- Ég legg megináherzlu á:
1. Elsta þing heims á heima á
hinum foma þingstað.
2. Ákvörðunin um að Aiþingi skyldi
háð í Reykjavík var ekki gerð
til allrar framtíðar.
3. Ákvörðunin miðaðist við þeirrar
tíðar aðstæður.
4. Þegar aðstæður leyfa og „þjóð-
arandi og þjóðarkjarkur" gera
mögulegt verður Alþingi flutt á
sinn forna þingstað.
5. Flutningur Alþingis er ekki nú
til ákvörðunar.
- Aðlokum?
- Mikilvægast nú er að halda
áttum. Það verður svo helst gert
að menn hafi í heiðri hollráð Magn-
úsar Jónssonar, sem hann gaf við
umræðu í neðri deild Alþingis 1926
um þingsályktunartillöguna um
þjóðaratkvæði um þinghald á Þing-
völlum. Hann komst svo að orði:
„Það má ekki flana að neinu í svona
tilfinningamáli, sem svo kynni að
valda óánægju á eftir. Það er í þágu
málsins sjálfs að fara varlega."
VERÐLÆKKUN
VEGNA NYRRA SAMNINGA VIÐ"
VERKSMIÐJURNAR, TÓKST OKKUR'
AÐ L/EKKA VERÐIÐ Á HEIMILIST/EKJUM:
DÆMIUMVERÐ:
KERAMIK ELDAVÉL
SEM KOSTAÐI ÁÐUR stgr.kr. 57632,-
KOSTAR NÚ stgr kr. 44,384,-
Suöurlandsbfaut 16 SirrK 9t 35200
ÞETTAER
PEX fargjald,
kr. 13.940
FlogiÖ alladaga vikunnar
FLUGLEIÐIR
□ Pöbbar og diskótek i London hafa
dýrlegt aðdráttarafl. Taktu þátt í götu-
leikhúsi London. . . þú þarft hvorki
að hafa kúluhatta né broddaklipp-
ingu.