Morgunblaðið - 17.06.1986, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sendill óskast
Viljum ráða sendil til starfa strax til sendi-
ferða í banka, toll o.fl. Þarf að hafa vélhjól
til umráða.
Sanitas hf.
Símavarsla
Starfskraft vantar til afleysinga við síma-
vörslu. Vaktavinna. Þarf að geta hafið störf
strax.
Umsóknir merktar: „H — 2615“ sendist
augldeild Mbl. sem fyrst.
Sveitarstjóri
Hreppsnefnd Stöðvarhrepps auglýsir starf
sveitarstjóra lausttil umsóknar.
Uppl. gefa Björn Hafþór Guðmundsson í
síma 97 5890/5851 og Sólmundur Jónsson
í síma 97 5859. Skriflegar umsóknir berist
skrifstofu Stöðvarhrepps fyrir 30. júní 1986.
Hreppsnefnd Stöövarhrepps.
Sveitarstjórastaða
Starf sveitarstjóra Vatnsleysustrandarhrepps
er laust til umsóknar.
Umsóknum með uppl. um aldur, menntun
og fyrri störf skal skilað á skrifstofu hrepps-
ins, Vogagerði 2, Vogum, fyrir 28. júní 1986.
Uppl. veita sveitarstjóri, Kristján Einarsson, í
síma 92 6541 eða 6529 og oddviti hrepps-
nefndar, Ómar Jónsson, í síma 92 6637.
Framreiðslumaður
Vantarvananframreiðslumann nú þegar.
Uppl. gefur Birgir Jónsson í síma 34780.
gullni mmm
LAUQAVEQI178
- BISTRÓ Á BESTA STAÐ í BÆHUM -
Kennarar
Við Hafnarskóla Höfn, Hornafirði, eru lausar
eftirfarandi kennarastöður:
Almenn kennsla (yngri barna),
íþróttakennsla,
stuðningskennsla.
í Hafnarskóla eru 200 nemendur á aldrinum
6—12 ára.
Ennfremur er laus enskukennarastaða við
Heppuskóla (7.-9. bekkur) á sama stað.
Ódýrt húsnæði til staðar. Flutningsstyrkur
greiddur.
Upplýsingarveita:
Skólastjóri Hafnarskóla, sími 97-8148,
yfirkennari Hafnarskóla, sími 97-8595,
skólastjóri Heppuskóla, sími 97-8321.
Skóianefnd.
Areiðanleg kona
óskast strax til þess að búa hjá og annast
aldraða konu.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 12133
og 28878.
Skrifstofustjóri
Síldarverksmiðjan í Krossanesi óskar að ráða
skrifstofustjóra. Æskilegt er að umsækjend-
ur séu viðskiptafræðingar eða hafi sambæri-
lega menntun en menn með góða starfs-
reynslu koma þó til greina.
Uppl. um starfið eru veittar á skrifstofu fyrir-
tækisins á Glerárgötu 30, Akureyri, og
umsóknir sendist þangað fyrir 24. þessa
mánaðar.
Lagerstörf
Óskum eftir að ráða traustan og áreiðanleg-
an mann til lager- og afgreiðslustarfa. Þarf
að geta hafið störf strax eða fljótlega.
Upplýsingar gefnar á skrifstofunni,
Skúlagötu 51, í síma 12200.
66PN SEXTÍU OG SEX NORDUR í V,
Sjóklæðagerðin hf.,
Skúlagötu 51, - v/Skúlatorg, Reykjavik.
Grunnskólinn
Ólafsvík
Okkur vantar kennara í eftirtaldar greinar:
Stærðfræði, raungreinar, sérkennslu, tón-
mennt, almenna kennslu, íþróttir og á skóla-
bókasafn. Gott skólabókasafn fyrir hendi.
Við búum í 1200 manna athafnabæ í örum
vexti. Við sjáum um að útvega húsnæði.
Skólinn okkar er vel útbúinn tækjum. Vinnu-
aðstaða er góð í góðu skólahúsi. Samgöngur
við Reykjavík eru mjög góðar. Félagslíf er
bæði líflegt og gott. Og eitt enn skólinn okkar
verður 100 ára á næsta ári.
Allar nánari upplýsingar gefur Gunnar Hjartar-
son í síma 93-6293 og Margrét Vigfúsdóttir
í síma 93-6276.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
Norðurlandi eystra
VistheimUið Sóiborg, Akureyri
Þroskaþjálfar
Staða yfirmanns á skóladagheimili er laus
frá 1. september. Staða deildarstjóra laus
frá 1. september. Einnig vantar í stöður
þroskaþjálfa.
Afleysingar
Kokk/matreiðslumann vantar til afleysinga í
eldhús í júlí og ágúst.
Hafið samband um nánari upplýsingar í síma
96-21755 virka daga frá kl. 10.00-16.00.
Auglýsingateiknari
Lærður auglýsingateiknari með starfsreynslu
óskar eftir vinnu í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 15901 eða 92-4727 milli
kl. 10.00 og 17.00.
Atvinnuauglýsing
Góð kona óskast til að sjá um heimili í Ár-
bæjarhverfi og passa 4 og 6 ára stelpur allan
daginn virka daga, nema á föstudögum til
kl. 14.00.
Upplýsingar í síma 681829.
Dómarafulltrúa-
staða
Staða dómarafulltrúa við embætti sýslu-
manns í Barðastrandarsýslu er laust til um-
sóknar. Húsnæði verður útvegað. Laun
samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna. Umsóknir berist skrifstofu embættis-
ins fyrir 30. júní 1986.
Sýslumaður Barðastrandarsýslu.
Sveitarstjóri
Staða sveitarstjóra á Höfn í Hornafirði er laus
til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist undirrituð-
um fyrir fimmtudaginn 19. júní 1986.
Undirritaðir veita frekari upplýsingar.
Stefán Ólafsson, Silfurbraut 13, 780 Höfn,
sími 97-8479,
Sturlaugur Þorsteinsson, Fiskhól7, 780Höfn,
sími97-8706 og 97-8709.
Bókhald - Góð laun
Öflugt þjónustufyrirtæki nálægt miðbæn-
um, vill ráða starfsmann til framtíðarstarfa
sem fyrst.
Viðkomandi færi bókhald fyrirtækisins
ásamt þvi að sjá um allar greiðslur fyrirtæk-
isinstil viðskiptavina þess. Allt tölvuunnið.
Við leitum að aðila með góða viðskipta-
menntun og krafist er góðrar kunnáttu og
reynslu í bókhaldsstörfum, t.d. að viðkom-
andi hafi unnið á endurskoðunárskrifstofu,
hafi tamið sér skipulögð vinnubrögð og hafi
öruggaframkomu.
Gott tækifæri fyrir aðila, sem hefur gaman
af bókhaldi og er að leita að góðu ábyrgðar-
starfi hjá traustu fyrirtæki.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og
fyrri störf, sendist skrifstofu okkar fyrir 26.
júní nk. þar sem nánari upplýsingar eru veittar.
GuðntTónsson
RÁDCJÖF &RÁÐNINCARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVlK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Kveðja, forstöðumaður.
Sakadómur Reykjavíkur:
Þorgeir dæmdur fyrir
ærumeiðandi ummæli
í SAKADÓMI Reykjavíkur hefur verið kveðinn upp dómur í máli
ákæruvaldsins gegn Þorgeiri Þorgeirssyni, rithöfundi, fyrir „æru-
meiðandi aðdróttanir í garð lögreglumanna í tveimur greinum í
Morgunblaðinu,“ eins og segir í ákærunni.
Tildrög málsins eru þau, að í desember 1983 ritaði Þorgeir tvær
greinar í Morgunblaðið og kallaði
lögreglumenn þar m.a. „einkennis-
klædd villidýr" og „lögregluhrotta".
Þóttu ummæli Þorgeirs varða við
108. grein almennra hegningarlaga
nr. 19 frá 1940. í greininni segir:
„Hver, sem hefur í frammi skamm-
aryrði, aðrar móðganir í orðum eða
athöfnum eða ærumeiðandi að-
dróttanir við opinberan starfsmann,
þegar hann er að gegna skyldu-
starfi sínu, eða við hann eða um
hann út af því, skal sæta sektum,
varðhaldi eða fangelsi allt að 3
árum. Aðdróttun, þótt sönnuð sé,
varðar sektum, ef hún er borin fram
á ótilhlýðilegan hátt.“
Af hálfu ákærða var því haldið
fram að ummæli þau, sem saksótt
var fyrir, séu slitin úr samhengi í
ákæru málsins. Dómurinn vísaði
því frá og einnig þeirri staðhæfingu
ákærða að hann hafi starfað í skjóli
72. greinar stjómarskrárinnar þar
sem segir, að ritskoðun og aðrar
takmarkanir fyrir prentfrelsi megi
aldrei í lög leiða.
Þorgeir Þorgeirsson var dæmdur
til greiðslu sektar að upphæð 10
þúsund krónur og til að greiða allan
sakarkostnað. Þá var vetjandi hans,
Tómas Gunnarsson, víttur harðlega
fyrir tilefnislausar málsýfingar.
Dómurinn var kveðinn upp af Pétri
Guðgeirssyni sakadómara.