Morgunblaðið - 17.06.1986, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 1986
45
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guómundsson
íslenska lýöveldið
í tilefni dagsins ætla ég að
fjalla um stjömukort lýðveldis-
ins íslands. Til er sú tegund
stjömuspeki sem fjallar um
þjóðfélög. Gerð eru stjömukort
t.d. fyrir þá stund þegar lýst
er yfír sjálfstæði þjóða og útfrá
því reynt að ráða í eðli þjóð-
félagsins og þróun mála á
hverjum tímabili.
StjörnukortiÖ
Staða pláneta, 17. júní 1944
kl. 14 á Þingvöllum, var þannig
að Sól, Merkúr, Venus, Satúm-
us og Úranus vom í Tvíbura,
Tungl var í Nauti, Mars, Júpít-
er og Plútó í Ljóni, Neptúnus
og Rísandi í Vog og að lokum
Krabbi á Miðhimni.
Menntakerfi
Það sem fyrst vekur athygli
við kortið eru fímm plánetur í
Tvíbura í 9. húsi. Tvíburi er
merki hugsunar, og 9. er hús
æðri menntunar og ferðalaga.
Undirritaður telur útfrá því að
einn helsti styrkur lýðveldisins
Islands sé fólginn í sterku
menntakerfí. Margir álíta að
siíkt sé sjálfsagt en staðreynd-
in er hins vegar sú að þegar
litið er til jarðarkringlunnar í
heild telst almenn menntun á
slíku stigi sem hér er til undan-
tekninga.
FerÖamál
9. hús tengist einnig ferðamál-
um. Það vísar ekki einungis til
þess að ferðamannaiðnaður
geti blómstrað hér á landi,
heldur einnig til þess að á
undanfömum 40 árum hafa
ferðalög alls þorra landsmanna
verið tíð og sjóndeildarhringur
íslendinga sem þjóðar hefur
víkkað til stórra muna. Það
heyrir einnig til undantekninga
að annar hver þegn þjóðlands
hafí ferðast hálfa veröldina á
enda. Varasamar hliðar á Tvl-
bura og 9. húsi eru eirðarleysi,
skortur á festu og stefnuleysi.
Stórhugur
Mars og Júpíter í samstöðu við
Ljón er táknrænt fyrir stórhug
og þá miklu uppbyggingu sem
átt hefur sér stað á liðnum
áratugum. í íslensku þjóðlífi
hefur rikt bjartsýni og kraftur.
íslendingar dagsins í dag eru
duglegir og vinnusamir. Þjóðin
er stoit, kappsfull og metnað-
argjöm. Neikvæðar hliðar á
þessu em of mikið kapp og
flottræfilsháttur, of mikil
bjartsýni og útþensla.
HúsnœÖis
uppbygging
Staða Tunglsins í Nauti er
táknrænt fyrir ráðandi efnis-
hyggju, en jafnframt m.a. vold-
uga húsnæðisuppbyggingu.
Sennilega hugsa margir lítt út
í það að við höfum byggt yfir
heila þjóð á fáeinum áratugum.
Það er ekki svo lítið afrek.
Neikvæð hlið er staða Tungls-
ins í 8. húsi, hætta á skulda-
söfnun, erlendri sem innlendri.
VelferÖarríki
Vog Rísandi og Neptúnus em
táknræn fyrir velferðarhug-
sjónina sem ríkir á íslandi. Þó
kannski sé víða pottur brotinn
ríkir hér samtrygging og þegn-
ar landsins búa við öflugt heil-
brigðiskerfí, öfugt við það sem
er víðast annars staðar. Þegar
á heildina er litið er kort lýð-
veldisins íslands kraftmikið og
stórhuga. Undirritaður vill
óska íslendingum til hamingju
með daginn.
X-9
DYRAGLENS
Kvöldmatur!
Ef þig skyldi langa til að
vita það
þá var þessi máltíð fram-
lag frá einkaaðilum.
Ég sendi einkaaðilum
kveðjur mínar!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það þykir fallegt í skák þegar
mönnum er fómað til að ná fram
kóngsókn sem leiðir að lokum
til máts. Þegar allt kemur til
alls er það markmið íþróttarinn-
ar að máta andstæðinginn og
skiptir þá engu máli hvor hefur
meiri liðsafla á borðinu. Hið
sama er oft uppi á teningnum í
brids: það getur verið nauðsyn-
legt að fóma kóngafólki í þeim
tilgangi að vinna sögnina. Lítum
á tiltölulega einfalt dæmi.
Austur gefur; A/V á hættu.
Vestur
♦ 42
♦ D10976
♦ 765
♦ G92
Norður
♦ 53
♦ 854
♦ ÁG9842
♦ 83
Austur
♦ KDG10
♦ KG32
♦ D103
♦ KIO
Suður
♦ Á9876
¥Á
♦ K
♦ ÁD7654
Vestur Norður Austur Suður
— — 1lauf 2lauf
Pasa 2tíglar Dobl 3 spaðar
4 hjörtu Pass Pass 4 spaðar
Pass Pass Dobl Pass
Pass Pass
Mjög fjörugar sagnir. Opnuu
austurs á laufí var gervisögn,
sýndi aðeins opnun en lofað
ekki endilega laufí. Og dobl hant,
á tveimur tíglum var úttektai-
dobl fyrir hálitina. Eigi að síður
keyrði suður spilið upp I fjóra
spaða, enda væri lítilmannlegt
að gefa upp með svo falleg spil.
Austur doblaði með bókina I
trompinu og hugsaði sér gott til
glóðarinnar.
En sagnhafi sá til þess að
austur yljaði sér ekki við eldinn
I þessu spili. Hann fékk fyrsta
slaginn á hjartaás, fómaði síðan
tígulkóngnum á altari innkom-
unnar með því að yfirdrepa með
ás og svínaði laufdrottningunni.
Tók svo laufásinn og stakk lauf.
Austur henti viturlega tígli, en
það dugði ekki til. Sagnhafi
spilaði næst litlu trompi frá báð-
um höndum, trompaði svo hjarta
austurs, tók spaðaásinn og spil-
aði siðan frílaufunum. Hann
hafði nú fulit vald á spilinu og
austur fékk aðeins þtjá slagi á
tromp.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Moskvu í
vor kom þessi staða upp í B-flokki,
í viðureign sovézku stórmeistar-
anna Vasjukov, sem hafði hvitt
og átti leik, og Cehov. Svörtum
hefur fatast vömin illilega, því
síðasti leikur hans var 24. — He8
— e6?
25. Dxe6! og svartur gafst upp,
því 25. — Bxe6? er auðvitað svar-
að með 26. Hf8+ og mátar. Va-
sjukov sigraði f B-flokknum ásamt
2 ungum löndum sínum Azmapar-
ashvili með 7l/t v. af 11 möguleg-
um. Þrír Sovétmenn urðu í 4.-6.
sæti með 6Vt v., þeir Kaidanov,
Kuzmin og Makarichev. Fjórir
útlendingar voru með á mótinu
og urðu þeir í fjórum neðstu
sætunum.