Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 1986
47
Heilsuskokk
Abyrgðar og IR
Tryggingarfélagið Ábyrgð og
íþróttafélag Reykjavíkur hafa
ákveðið að gangast fyrir heilsu-
skokki í sumar með því að bjóða
upp á þijár æfíngar í viku undir
eftirliti íþróttakennara. Verður
fólki boðið upp á léttar æfíngar
þrisvar í viku á skokkbrautunum
við Laugardalslaugina á tímabil-
inu kl. 16.30 til 18.30 mánudaga,
miðvikudaga og fímmtudaga.
Ifyrsti tíminn verður á morgun,
miðvikudaginn 18. júní.
Æfíngataflan fyrstu vikuna er
sem hér segir:
Upphitun: Sérhver æfíng hefst á
því að þú gengur í 2-3 mínútur
og breytilegum hraða áður en þú
hefur hina eiginlegu æfíngu.
1. dagur: Upphitun. Skokka 50 m
+ ganga 50 m - 4 sinnum. Skokka
100 m + ganga 100 m - 4 sinnum.
Skokka 50 m + ganga 50 m - 4
sinnum. Teygjur.
2. dagur: Upphitun. 1500 m skokk
og ganga til skiptis, 100 metrar
í einu. Teygjur.
3. dagur: Upphitun. Skokk 50 m
+ ganga 50 m - 2 sinnum. Skokk
100 m + ganga 100 m - 6 sinnum.
Skokk 50 m + ganga 50 m - 2
sinnum. Teygjur.
Þá fara hér á eftir nokkrar
ábendingar frá Guðmundi Þórar-
inssyni íþróttakennara:
Hvað þurfum við, sem lítið sem
ekkert höfum hugsað um líkama
okkar að gera þegar við viljum
breyta því og byija að skokka?
Fyrst þurfum við að fínna okkur
tíma og ákveða að mæta f þá.
Þar lcemur Heilsuskokk Ábyrgðar
og ÍR til móts við okkur. Við
þurfum að líta örlítið í eigin barm.
Höfum við ekki verið svona bæri-
lega frísk og ekkert amað að? Þá
er ekkert til fyrirstöðu því að
mæta og fara í gegnum upp-
bygginguna.
Ef við höfum hins vegar ekki
verið frísk, en viljum þó rejma að
bæta líkama okkar, förum við til
læknis og tölum við hann um
málið.
Þarf ekki feikna útbúnað til að
skokka? Nei, í raun ekki. Við
þurfum að eiga góða, stöðuga
skó, sem fara okkur vel, og eru
ekki slitnir. Skómir eru mikilvæg-
astir. Að öðru leyti má vera í svo
til hveiju sem er, meðan það er
ekki of þröngt og lítið, og á meðan
það miðast við veður dagsins.
Heilsuskokk Ábyrgðar og ÍR
býður alla, sem áhuga hafa, vel-
komna í Laugardalinn til ánægju-
legrar samveru og heilsusamlegr-
ar áreynslu.
Æfíngar verða reglulega á
mánudögum, miðvikudögum og
fímmtudögum milli kl. 16.30 og
18.30.
Nýkjömir borgarfulltrúar vígðu
pinu-golfvöUinn á laugardag.
Hér má sjá Pál Gíslason borgar-
fulltrúa spreyta sig á einni braut-
inni.
Pínu-golf
í Öskjuhlíð
KEILUSALURINN í Öskjuhlíð
hefur bætt nýjung við starfsemi
sína. í skjólgóðum garði hefur
verið opnaður niu brauta pínu-
goIfvöUur en pinu-golf er vinsæl
íþrótt fyrir alla fjölskylduna.
Fram af klettunum í garðinum
steypist faUegur foss sem nefnd-
ur hefur verið Reykjavikurfoss
og er ætlunin að færa borginni
að gjöf í tUefni 200 ára afmælis-
ins.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!