Morgunblaðið - 17.06.1986, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 1986
63
Morgunblaðið/Skapti.
James Hancocock ásamt Jóhanni Sigurðssyni umboðsmanni Flugleiða
í London.
Heimsfrægur fuglafræðingur
heldur fyrirlestur:
Skoðaði fugla-
lífið við Mývatn
AkurevrL
HÉR A landi er nú staddur James Hancock, forseti Hins breska
fuglaf ræðingaf élags — heimsfrægur fuglafræðingur og rithöfundur.
Hann heldur í dag, 17. júní, fyrirlestur um vatnafugla í offisera-
klúbbnum á Keflavíkurflugvelli kl. 19.30, en undanfama daga hefur
hann dvalist við Mývatn þar sem hann var að skoða fuglalífið.
„Þetta er í fýrsta skipti sem ég
kem til íslands — ég er ekki vanur
að starfa svo norðarlega í heimin-
um, ég hef mikið verið í Indlandi,
Afríku, Kína, Indónesíu og Ástral-
íu,“ sagði Hancock f samtali við
blaðamann Morgunblaðsins á Akur-
eyrarflugvelli fyrir heigina — en
Hancock var þá á leið til Mývatns
ásamt Jóhanni Sigurðssyni, yfir-
manni Flugleiða í London, sem kom
með honum til landsins.
„Ég hlakka mikið til að sjá fugla-
lífið við Mývatn — sérstaklega
hlakka ég til að sjá endumar og
sjávarfuglana og ég vonast til að
geta tekið mikið af góðum mynd-
um,“ sagði hann.
Hancock er heimsfrægur rit-
höfundur eins og áður sagði. Fræg-
astur er hann fyrir bókina Hegrar
heimsins (“Herons of the World")
og nýlega gaf hann út aðra bók
um þessa fuglategund — handbók
um hegra. Þá liggur eftir hann bók
um efnið sem hann flytur fyrirlestur
í dag — Vatnafuglar.
James Hancock er nú með bók í
smíðum, í samvinnu við dr. Jamus
Kush, um líf á vatnasvæðum. „Bók-
in er vísindalegs eðlis — um það
hvemig vatnasvæði í heiminum
starfa. Það getur vel verið að við
tökum vatnasvæðin hér á íslandi
með í bókina," sagði Hancock. Þess
má geta að hann kom hingað til
lands í boði Flugleiða, Ferðamála-
ráðs, Hótels Reynihlíðar og Bfla-
leigu Akureyrar.
Norræn menningar-
kynning í V-Þýskalandi
I RÍNARHÉRUÐUM Vestur-
Þýskalands verður í lok þessa
árs haldin norræn menningar-
kynning með svipuðu sniði og
Scandinavia Today, sem haldin
var í Bandaríkjunum fyrir
nokkrum árum. í þýskalandi
nefnist hún Nordische Wochen.
Kynningin verður aðallega í
Diisseldorf. Þar verður sérstök ís-
lensk menningarkynning í nóvem-
ber í Orangerie, Benrath-höll. Þar
verður Vilhjálmur Bergsson með
sýningu á teikningum, vatnslita-
myndum og olíumálverkum, alls
45-50 myndum. Sýningin ber nafn-
iðLífrænarvíddir.
Á sama stað verða íslenskar bók-
menntir kynntar. Dr. Ulrich Gro-
enke, prófessor í norrænum fræðum
við Kölnar-háskóla, flytur þar fyrir-
lestur um íslenskar fombókmenntir,
sem hann nefnir Heimsbókmenntir
á heimsenda, hámenning íslands á
miðöldum.
Martin Bergsson ætlar að kynna
íslenska nútímaljóðlist undir nafn-
inu Tíminn og vatnið, íslensk ljóðlist
á 20. öld. Sérstök áhersla verður
lögð á að kynna Stein Steinarr og
Snorra Hjartarson.
Ennfremur verður í Orangerie,
Benrath-höll, íslenskt þjóðlaga- og
vísnakvöld. Um það sjá þau Eiður
Gunnarsson, óperusöngvari, og
Agnes Baldursdóttir, píanóleikari.
Þijár úrvals myndir frá CIC Video á öllum
betri myndbandaleigum landsins.
Dreifing Laugarásbíó. Sími 38150.
Firestone S-211
radial hjólbarðarnir
tryggja öryggi þitt
og annarra
FIRESTONE S-211 radial hjólbardarnir eru framleiddir undir ströngu
gæðaeftirliti sem tryggir öryggi þitt og fjölskyldu þinnar.
Sérstæð lögun og mynstur gefa frábært grip og mýkt bæði á
malarvegum og malbiki, sem veitir hámarks öryggi og þægindi í
akstri, innanbæjar sem utan.
FIRESTONE S-211 eru einu radial hjólbarðarnir sem eru sérhannaðir
jafnt til aksturs á malarvegum og malbiki.
Og þeir eru úr níðsterkri gúmmíblöndu sem endist og endist
og endist...
UMBOÐSMENN UM
LAND ALLT!
JOFUR HF'
NÝBVLAVECI 2 • SÍMI 42600
yt
á JiM'1
Vantl þig eldhóainnréttlngn, Innréttlngn á baðið, hreinlætiatseki, blöndnnartseki, fUenr eða
kannskl þetta allt. Líttu þá vlð hjá okkur. Vlð komurn, tökum mál og gerum tllboð þér að kostnaðarlausu.
Opiðvirkadagafrá9—19. laugardaga frá 13—17.