Morgunblaðið - 06.07.1986, Qupperneq 1
96SIÐUR B
148. tbl. 72. árg.
Nicaragua:
Biskup
gerður
útlægur
Managua, Nicaragua, AP.
BISKUPNUM Pablo Antonio
Vega, sem ríkisstjórn Nicaragna
gerði landrækan á föstudag fyrir
aðild að sprengjutilræði i strætis-
vagni þar sem 12 manns létu líf-
ið, hefur verið veitt pólitískt
hæli í Honduras, að sögn embætt-
ismanna þar.
Vega kom til höfuðborgar Hond-
uras, Tegucigalpa, seint á föstu-
dagskvöldið. Hann er sagður við
góða heilsu, en vildi hins vegar
ekkert láta hafa eftir sér um útlegð-
ardóminn. Vega er annar klerkur-
inn, sem ríkisstjóm sandinista í
Nicaragua gerir landrækan, en átök
milli ríkisstjómarinnar og róm-
versk-katólsku kirkjunnar í landinu
hafa farið harðnandi. Þá hefur rík-
isstjómin einnig rekið úr landi
nokkra presta af erlendum uppmna.
Auk aðildar að sprengjutilræðinu
ásakar ríkisstjómin Vega fyrir að
hafa opinberlega stutt baráttu
Ronalds Reagans, forseta Banda-
ríkjanna, fyrir að skæmliðum, sem
beijast gegn stjómvöldum í Nic-
aragua, verði veitt hemaðaraðstoð.
Gengis-
lækkun
í Kína
Peking, AP.
KÍNVERJAR felldu gengi
gjaldmiðils síns, yuan, um
rúmlega 13% gagnvart
Bandaríkjadollar og öðrum
helztu gjaldmiðlum i gær.
Tilgangurinn með þessu er
að stemma stigu við streymi
gjaldeyris úr landinu.
Gengislækkuninni er ætlað að
örva útflutning og koma á meiri
jöfnuði í utanríkisviðskiptum, sem
verið hafa Kínveijum mjög óhag-
stæð. Hefur innflutningur á ýms-
um neytendavömm verið takmark-
aður í þessu skyni. Ennfremur
hafa Kínveijar hvatt helztu við-
skiptalönd sín til að auka innflutn-
ing frá Kína í þeim tilgangi að
bæta stöðu gjaldeyrisvarasjóðs
landsins, sem hefur rýmað alvar-
lega.
Þrátt fyrir innflutningshöft
minnkaði gjaldeyrisforði Kínveija
á fyrsta ársfjórðungi 1986 úr 11,91
milljarði dollara í 10,35 milljarða.
I lok ársins 1984 var gjaldeyris-
forðinn 14,42 milljarðar dollara.
í fyrra „leiðréttu" Kínveijar
gengi yuansins 12 sinnum gagn-
vart Bandaríkjadollar og nam
lækkunin rúmlega 20%. Gengis-
lækkunin nú er talin munu draga
úr innflutningi, en auka fjárfest-
ingar útlendinga og örva ferða-
mannastraum.
STOFNAÐ 1913
Barátta í anda
náungakærleika
er boðskapur páfans til fátækrar alþýðu Kólombíu
Cali, Kólombiu. AP.
„HVERNIG getur maður borið traust til fólks eða sam-
taka, sem reyna að innprenta kerfi eða hugmyndafræði,
sem hefur ofbeldi að leiðarljósi; sem með niðurrifsstarf-
semi reyna að setja félagslegt jafnvægi úr skorðum og
sem reyna að stytta sér leið að markinu með hryðjuverkum
og skæruliðastarfsemi,“ sagði Jóhannes Páll II páfi á
fjöldafundi með hundruðum þúsunda fagnandi íbúum
Kólombíu í bænum Calí, sem er um 290 kílómetra í suð-
vestur frá höfuðborginni Bógóta.
Skæruliðahreyfingin 19. apríl
dreifði á fundinum skjali með mynd
af páfanum og svohljóðandi tilvitn-
un eignaðri honum: „Við hljótum
að bera þá fyrst og fremst fyrir
SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1986
bijósti, sem hafa hvorki til hnífs
og skeiðar, né klæði og skjól, eða
aðgang að menningarverðmæt-
um“. A bakhlið blaðsins var tákn
hreyfingarinnar og vígorð: „Með
fólkinu, með vopnum til valda".
Páfinn er í vikulangri heimsókn
í Kólombíu, sem lýkur á þriðjudag.
Hann er nú á ferðalagi um sveitir
landsins og hefur meðal annars
heimsótt fátæka fiskimenn og
indíána, afkomendur frumbyggja
landsins, í hreysum sínum. A ferð
sinni hefur páfinn harðlega for-
dæmt ofbeldi og stéttastríð, en
sagt að hann styðji kröfur bænda
til eignar á því landi sem þeir búa
á. „Megi barátta ykkar ávallt vera
í anda trúarinnar um náungakær-
leik í samræmi við kristilegt sið-
ferði," sagði hann meðal annars.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Chile:
Stjórnar-
andstaða
fagnar
Santiago, AP.
Stjórnarandstaðan í Chile lýsti
tveggja daga verkföll og mót-
mælaaðgerðir gegn stjórn Au-
gustos Pinochet, forseta, vel
heppnuð. Verið er að undirbúa
frekari aðgerðir af þessu tagi,
en tilgangurinn með þeim er að
knýja á um lýðræðislegar kosn-
ingar í Chile.
A sama tíma og leiðtogar þeirra
samtaka, sem stóðu að mótmæla-
verkföllum, fögnuðu, sakaði Pino-
chet forsprakka þeirra um að stuðla
að upplausn og ala á sundrungu í
þjóðfélaginu. „Nicaragua er þeirra
fyrirmynd; þeir vilja sama ástand
hér,“ sagði forsetinn.
Verkföllin tókust mun betur en
•skipuleggjendur þeirra gerðu ráð
fyrir og ollu þau meiri röskun en
nokkrar aðrar aðgerðir stjómarand-
stæðinga frá því Pinochet rændi
völdum af Salvador Allende í bylt-
ingu hersins árið 1973.
Jarðarbúar
nær fimm
milljarðar
Washington, AP.
FLESTIR svokallaðir
mannfjöldafræðingar telja,
að jarðarbúar verði fimm
milljarðar í byijun næsta
árs. Erfitt er þó að slá þessu
föstu vegna ófullkominna
upplýsinga frá mörgum
löndum.
A sínum tíma töldu fræðing-
amir, að ^ögurra milljarða
markinu hefði verið náð 1976,
en síðari rannsóknir bentu til
þess, að þau tímamót hefðu
orðið tveim árum fyrr.
Um það bil 90% allra ný-
fæddra koma nú í heiminn í
fátækum löndum þriðja heims-
ins, þar sem hungur og sjúk-
dómar valda hárri dánartölu
ungbama.
Búist er við, að mannkynið
telji sex milljarða einstaklinga
um næstu aldamót.
Spánverjar
varaðir við
BeirútjJLÍbanon, AP.
SAMTÓK sem hafa klofið sig út
úr skæruliðahreyfingu Palestínu-
arba, PLO, hafa varað spænsku
ríkisstjórnina við þvi að skaða
Palestínumann, sem er i haldi á
Spáni vegna sprengjutilræðis á
flugvellinum í Madrid.
Sýrlendingar styðja þennan hóp
Palestínuskæruliða, sem er undir
stjóm Abu Moussa. Palestinumaður-
inn hefur viðurkennt að þessi hópur
hafi staðið á bak við sprengjutilræðið
sem særði 13 manns.