Morgunblaðið - 06.07.1986, Side 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1986
Eureka:
Veitir tæki-
færi til að
fylgjast með á
sviði hátækni
- segir Vilhjálmur
Lúðvíksson
Skelltu þér á nýja
PHILIPS-ÞVOTTAVÉL
VIÐ TÖKUM ÞÁ GÖMLU
„AÐILDIN að EUREKA veitir ís-
lendingum gott tækifæri til að
fylgjast með á sviði hátækni og
iðnaðar," sagði Vilhjálmur Lúð-
víksson framkvæmdastjóri Rann-
sóknaráðs ríkisins í samtali við
Morgunblaðið.
Vilhjálmur, sem átti sæti í nefnd
sem menntamálaráðherra setti á
laggimar til að meta hvort sækjast
ætti eftir aðild að EUREKA, sam-
tökum um samvinnu Evrópuríkja á
sviði hátækni og rannsókna, sagði
að gildi aðildarinnar væri margþætt
fyrir íslendinga.
A vegum stofnunarinnar væri
unnið að ýmsum verkefnum sem
hlytu að teljast áhugaverð frá sjón-
arhóli Islendinga. Stungið hefði verið
upp á samstarfi um þróun á „fiski-
skipi 10. áratugarins" og þar kæmi
til álita að nota íslenskar tölvuvogir,
lausfrystitæki, vinnslulínur í togara
og fleira.
Aðild að EUREKA myndi auk
þess auðvelda íslenskum fyrirtækj-
um að komast í samband við önnur
evrópsk fyrirtæki á sviði hátækni
og iðnaðar og koma þannig vöru
sinni á markað.
Aðildin sem slík kostaði Islend-
inga ekkert og enginn sjóður yrði
stofnaður á íslandi til að styrkja
verkefni í tengslum við EUREKA,
fjármagn yrði að koma frá starfandi
sjóðum.
Auk íslands eiga 18 ríki aðild að
EUREKA, öll Evrópubandalagsrík-
in, Austurriki, Finnland, Noregur,
Sviss, Svíþjóð og Tyrkland.
Bíræfnir
„frímerkjasalar“
TVEIR menn, er brutust inn á
heimili { Reykjavík fyrir tæpu
ári, og stálu þaðan m.a. all-
verðmætu frímerkjasafni,
höfðu samband við eiganda
safnsins fyrir skömmu og
buðu honum það til kaups.
Þegar innbrotið var framið, í
ágúst í fyrra, beindust böndin
strax að tveimur mönnum og
sátu þeir í gæsluvarðhaldi um
tíma. Ekki tókst þó að sanna á
þá brotið og varð við það að
sitja. Hins vegar barst lögregl-
unni óvænt hjálp fyrir skömmu,
því þá höfðu þessir sömu menn
samband við fómarlamb sitt og
kváðust reiðubúnir til að selja
honum safnið. Þar með komst
lögreglan að nýju í málið og nú
þýddi lítið fyrir mennina að
þræta fyrir þennan næstum árs-
gamla glæp.
UPP í Á KR. 3000.-
Philips-þvottavélar hafa
verið ófáanlegar um alllangt
skeið, mörgum til mikils
ama. En nú færum við
viðskiptavinum okkar þá
gleðifregn að þær eru
fáanlegar á ný.
Til þess að auðvelda
fólki að endurnýja þá
tökum við gömlu
þvottavélina uppí á kr
3000.-
Reynsla og þekking er
undirstaða framleiðslu
Philips-þvottavéla. Þæreru
sérhannaðar til að standast
öll gæðapróf og bjóða
aðeins það besta eins og
Philips er þekkt fyrir.
NOKKRAR UPPLÝSINGAR UM NÝIU VÉLARNAR:
• Tekur inn á sig heitt eða kalt vatn • Með því að nota nýtni-stillinguna
sparast um 30% af orku • Allt að 1000 snúninga vinda • Sérstakur „stuttur"
þvottur fyrir föt sem eru aðeins lítils háttar óhrein • 9 stillingar fyrir viðkvæman
þvott • Tekur 4.5 kg af þvotti
PHILIPS
ERUM SVEIGJANLEGIR
Heimilistæki hf í SAMNINGUM
TÖLVUDEILD - SÆTÚNI8 - SÍMI27500
Stórkostlegasti fjölskylduviðburður ársins 1986
Njálssaga í Rauðhólum
Sýningar:
Miðvikudaga og fimmtudaga klukkan 21.00. Laugardaga og sunnu-
daga klukkan 14.30 og 17.00.
Miðasala og pantanir:
Söguleikarnir: Sími 622666
Ferðaskrifstofan Farandi: Sími 622420
Kynnisferðir — Gimli: Sími 28025.
Blaðatilvitnanir:
Eitt skemmtilegasta leikhús landsins. Túlkun hverrar persónu gengur alveg
Árni Gunnarsson, Alþýðublaðið. upp
Árni Bergmann, Þjóðviljinn.