Morgunblaðið - 06.07.1986, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1986
21
Álafosskórinn á förum
til Bandaríkjanna
Álafosskórinn.
Álafosskórinn leggnr þann 12.
júlí nk. upp í söngferð til Banda-
ríkjanna og hefst dagskráin í
Washington D.C.
Álafosskórinn er félagsskapur
starfsfólks ullarverksmiðjunnar á
Álafossi og hefur það markmið,
ásamt söng, að auka samheldni og
kynningu á þessum stóra vinnustað.
Auk þess er annað aðalatriðið að
kynna framleiðsluvörur fyrirtækis-
ins með ýmsum hætti, svo sem með
tískusýningum bæði heima fyrir og
ekki síður erlendis.
Páll Helgason söngstjóri.
Kórinn hefur farið nokkrar ferðir
til útlanda og nú síðast fyrir tveimur
árum til Rússlands.
í Washington mun íslendingafé-
lagið sjá um móttökur en formaður
þess er Guðrún Martynys og Sigríð:
ur Presker er stjómarmaður. í
Washington verður svo söng-
skemmtun í West Park-hótelinu þar
íborg.
Þann 14. júlí verður svo haldið
til Coldwater-verksmiðjunnar í
Maryland og er m.a. erindið að taka
upp betra samband við þetta fyrir-
tæki og starfsfólk þess. Verk-
smiðjustjórinn, Alan Owen, hefur
undirbúið móttökumar þama og er
þetta í fyrsta skipti að því að talið
er að starfsfólk í íslensku iðnfyrir-
tæki kemur í heimsókn til þeirra
hjá Coldwater. Stefnt er að því í
framtíðinni að taka upp nánara
samstarf milli þessara fyrirtækja
og starfsfólksins á félagslegum
gmnni með gagnkvæmum heim-
sóknum o.fl.
Næst verður haldið til Princeton
N.J. en þar er verslun Roberts
Landau, en það fyrirtæki er mjög
þekkt fyrir kynningu á islenskum
fatnaði m.a. frá Álafossi. Landau
hefur undirbúið væntanlegar upp-
ákomur kórsins þama, t.d. í versl-
uninni og víðar um borgina.
í Princeton er þekktur drengja-
kór sem starfar við American Boy-
choir School en drengjakór skólans
heimsótti ísland fyrir tveim ámm
við góðan orðstír. Skólastjórinn og
stjómandi drengjakórsins er mikill
áhugamaður um íslensk málefni og
mun skipuleggja söngskemmtanir
og sýna hópnum Princeton-háskóla
og annað er merkilegt getur talist
á þessum slóðum.
Að endingu mun íslendingafélag-
ið í New York taka á móti hópnum
þar undir forystu þeirra Péturs G.
Thorsteinssonar og Jóhanns Schev-
ing, en Jóhann starfar hjá dóttur-
fyrirtæki Álafoss í New York.
í New York em fyrirhugaðar
ýmiskonar uppákomur en að lokum
verður samkoma á vegum íslend-
ingafélagsins með dansi, söng o.fl.,
og þar mun kórinn hitta margan
landann í útlegðinni.
Tískusýningarhópur er starfandi
í kómum og mun reyna að koma
við sýningum sem víðast i ferðinni
og er þetta liður í starfseminni.
Söngstjórinn lagði mikla áherslu á
að af öðrum þræði væri aðalerindið
að kynna íslenska framleiðslu og
þá einkum og sér í lagi framleiðslu
Álafossverksmiðjunnar og fyrir-
tækið í heild.
Söngstjóri kórsins er Páll Helga-
son frá Akureyri og hefur hann
starfað við Álafossverksmiðjuna
sem innkaupastjóri í nokkur ár en
hann hefur lagt stund á tónlist frá
bamæsku. Kórinn er ekki síður
vinsæll meðal heimafólks og leggur
fyrir sig verkefni af léttara taginu.
Kómum var boðið til Keflavíkur-
flugvallar fyrir nokkm en það þótti
hvergi nærri nóg og var hann beð-
inn um að koma aftur. Undirtektir
þar vom feikna góðar og framlag
þeirra virtist falla þessum aðilum
vel í geð en það lofar góðu um
ferðina vestur.
Eins og áður sagði er Páll Helga-
son söngstjóri og stofnandi kórsins
en einsöngvari með kómum er
Helgi Einarsson, þar að auki er
fímm manna hljómsveit sem leikur
undir.
Það þarf víst ekki að nefna það
hversu mikil og góð landkynning
það er að kórinn fer slíka ferð því
aldrei er of mikið gert af því að
kynna landið okkar, fólkið og
menninguna. — Jón
ITOLSKU ALPARNIR, MEÐ SIGURÐIDEMETZ
Einstaklega áhugaverð 2ja vikna ferð 28. ágúst til Suður-Tyról í ítölsku Ölpunum. Leíðsögumaður í ferðinni er Sigurður
Demetz Franzson, kunnur söngvari og gleðimaður sem gjörþekkir Týról. Verð kr. 55.666.- (miðað við gengí 26/6).
INNIFALIÐ f VERÐI: Gisting með morgun- og kvöldverði á góðu hóteli í Bolzen, 11 nætur og Groeden, 3 naetur.
Þaegilegur og nýtískulegur rútubfll í 7 daga. Allar skoðunarferðir, þjóðdansakvöld og vínkjallaraheimsókn.
FERÐATILHÖGUN:
28. ágúst. Beínt flug til Salzburg, þaðan er ekið til Bolz-
en yfir Brennerskarð.
29. ágúst. Eftir hádegí er farið (skoðunarferð um Bolzen
og Runkelsteinhöllin heimsótt, með leiðsögn.
30. ágúst. Eftir morgunverð er haldið til Eggental. ekið
yfir Karerskarðíð til Canazei, Cortina, Toblach um Puster-
dalinn til Bolzen.
Þessi hringur er kallaður Dolomitahringurinn.
31. ágúst. Eftir morgunverð er haldið í skoðunarferð til
Meran og þorpsins Týról með gönguferð um Tappein-
stfginn til Meran og skoðunarferð í Týrólhöllina með
leíðsögn.
1. sept. Frjáls dagur.
2. sept. Dagsferð upp á Tschoggelberg, toglyftuferð til
Vilpian, Moelten, gönguferð um Salten til Jenesien og
því næst farið í toglyftu til Bolzen.
3. sept. Eftir hádegi er farið til Kaltem þar sem boðið er
uppá vínprófun og heimsókn til hallarinnar Sigmunds-
kron.
4. sept. Dagsferð til Ritten með toglyftuferð til Unter-
rittnerhof og þaðan gengið tii Bolzen.
5. sept. Dagsferð til Sterzing, Penserjoch, Samtheim.
6. sept. Dagsferð til Feneyja og Murano.
7. sept. Frjáls dagur.
8. sept. Dagsferð til Seiseralm, stutt gönguferð og tog-
lyftuferð niður til St. Ulrich. Kvöldverður og gisting f
Groeden, uns haldið verður heim.
9. sept. Eftir morgunverð er heildagsgönguferð um
Groeden og þjóðdansakvöld.
10. sept. Frjáls dagur.
11. sept. Ekið til baka til Salzburg og beint flug heim.
Víð lánum þér VHS-myndband mcð stuttri
kynníngarmynd frá Suður-Týról og veitum
allar nánarí upplýsíngar á skrifstofunní.
BFERÐA Ce+itcat
MIOSTOÐIIM Tcauei
AOALSTRÆTI 9-REYKJAVlK - S. 2 8 1 3 3