Morgunblaðið - 06.07.1986, Side 28

Morgunblaðið - 06.07.1986, Side 28
28 Jón ásamt Bjarna syni sínum. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1986 „Allt hefur faríð í önn lífsins“ SEGIR JÓN BJARNASON í AUÐSHOLTI Það er til lítils að spyrja Jón í Auðsholti hvort börn hafi verið látin vinna mikið í hans ungdæmi. Hann er af þeirri kynslóð sem fór að vinna um leið og vettlingi varð valdið og enn er hann vinnandi þótt kominn sé fast að áttræðuog eigi erfitt með að komast um sakir fötlunar. í Auðsholti annast hann heimili sitt, tveggja sona sinna og bróður síns, og innanstokks eru næg verkefni. Spurningu um það hvort hann gæti ekki hugsað sér að eiga náðugri daga á elliheimilinu á Flúðum svarar hann eiginlega ekki, en svipurinn gefur til kynna að það sé ekki til umræðu. Eg hef unnið alla mína ævi og geri það á meðan ég get. Ég missti kon- una mína árið 1973 og síðan hef ég séð um heimilið. Hún hét Borghildur Hann- esdóttir og var úr Hraunhreppi í Mýrasýslu. Þegar ég var tíu ára missti ég móður mína og um sama leyti fékk faðir minn slæma liðagigt svo hann var ekki vinnufær. Auk hans var þá ekki annað fullorðið á heimilinu en gömul kona. Ég sá einn um sauðburð það vor. Það var ekki um annað að ræða. Á öllum heimilum í grenndinni átti fólk nóg með sig og meir en það víðast hvar. Það var mikið haft fyrir lífínu og brýnustu nauðsynjum og það þótti ekki tiltökumál þótt ábyrgð og mikil vinna legðust á herðar börnum og unglingum ef verkast vildi. Ég man líka eftir stúlku á bæ einum hér í nágrenninu. Hún missti móður sína þegar hún var nýfermd og átti þá þijú yngri systkini. Þessi stúlka tók við móðurhlutverkinu á heimili sínu og sá upp frá því alveg um uppeldi yngri systkinanna auk allra annarra starfa sem hún hafði á hendi. Um annað var ekki að ræða og ég held að enginn hafi býsnast jrfír því. Það er sjálfsagt ekki auðvelt, ef það er þá yfirleitt mögulegt, fyrir þá kyn- slóð sem nú er ríkjandi í þessu landi að gera sér í hugarlund aðstæður og lifnaðarhætti alþýðufólks í upp- hafí þessarar aldar. Svo frábrugðið var mannlífíð og dagsins önn því sem nú tíðkast. Allt var unnið með handafli því engar voru vélamar til að létta stritið. Þó held ég helst að samgönguerfiðleikar hafí öðru fremur háð athöfnum manna og áreiðanlega voru þær helsti tálminn hér um slóðir, eins og þeir eru að vissu leyti enn því að í vetrarflóðum er Auðsholt umflotið vatni og verð- ur þá eins og eyja í flatneskjunni hér í kring," segir Jón Bjamason. Til glöggvunar á staðháttum skal þess getið að Auðsholt er austan Hvítár, gegnt Skálholti. Á meðan vegleysur voru á þessum slóðum fóru flutningar að og frá bænum þannig fram að nánast allt þurfti að feija yfír Hvítá. „Það er til marks um erfiðar samgöngur hér um slóðir að mjólk- urbíll kom í fyrsta sinn í Auðsholt 10. desember 1958, en þá var loks komin brú á Litlu-Laxá hér skammt austur af. Þangað til var allt feijað yfír Hvítá eða farið með það á sleða þegar áin var ísi lögð. Þetta voru erfiðir flutningar og eitt sinn varð ég fyrir því að fara niður um ís með hest sem dró sleða. Ég fór á undan og teymdi hann en ísinn var veikur. Það stóð í taglmarki að klár- inn botnaði og var þetta þó gríðar- lega stór hestur. Eina fímm menn þurfti til að draga hann upp en það tókst. Þetta var árið 1957, rétt áður en brúin kom. En erfiðast var þó þegar Auðsholt einangraðist í vetr- arflóðum. Þá getur hæglega orðið tveggja metra dýpi hér úti á mýrun- um. Þessi vetrarflóð eru ekki árviss viðburður hér en algeng eru þau á útmánuðum. Þau eru misjafnlega mikil. Ifyrir nokkrum árum kom mikið flóð en í ár hefur það ékki orðið. Stærstu flóð sem ég man eftir komu 1930 og 1948. Þá höfðu orðið gífurlegar leysingar til fjalla." — Er samt gott að búa hér? „Það er svona meðalgott. Þetta var mikil slægjujörð. Erfíðar sam- göngur hafa ævinlega háð búskap á þessari jörð. Það var alltaf siður hér og reyndar óhjákvæmilegt að fara með sláturfé til Reykjavíkur þar til sláturhús kom á Selfoss árið 1948. Ég tók þátt í því í meir en tuttugu ára að flytja sláturfé á bát hér yfír ána. í Auðsholti voru Ijórir bændur sem stóðu saman að þess- um flutningum. Við vorum með þijá báta og flutti hver þeirra átta til tíu kindur í einu. Þegar yfír ána kom var féð sett í aðhald sem kallað var. Það var svona lausleg rétt. í Landmannahreppi og Holtunum var það bara kallað „haldið". í aðhald- inu voru kindumar þar til allt var komið yfír ána og þá hófst sjálf ferðin til Reykjavíkur en hún tók 4—5 daga. Ifyrsta daginn var farið að Efra-Apavatni í Laugadal. Á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.