Morgunblaðið - 06.07.1986, Page 33

Morgunblaðið - 06.07.1986, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1986 33 honum sem rithöfundi, en viðhorf hans eru ólík mínum, hann hefur hitann annars staðar úr. Hann er áreiðanlega einn af virtustu rit- höfundum Kanada í dag og kunn- átta hans er ótvíræð. Valgardson var við nám í Suðurríkjum Banda- ríkjanna og bjó þar í mörg ár. Mér finnst hann helst eiga samleið með rithöfundum Suðurríkjanna eins og Flannery O’Connor, Shirley Jackson eða Eudora Welty. Flest verka hans gerast í Nýja íslandi, en hann sér persónur sínar frá sérstöku sjónar- homi. Við getum kallað það utan- garðsfólk, og þó, tilvera þess er ekki alveg utangarðs heldur við útjaðar þjóðfélagsins, þar sem það kemst naumlega af. Trúin er afar ríkur þáttur í lífi þessa fólks. Þetta er sá grunnur sem Valgardson vinnur út frá.“ Þú skrifar sjálfur oft um utan- garðsfólk — hver er munurinn á ykkur? „Ég skrifa nokkuð eins og ég skynjaði þetta fólk norður í Nýja íslandi sem lifði talsvert í löndum hetjusagna, því hetjumar voru því nálægar. Imyndunarafl þess var á stundum hamslaust og gróskumik- ið. Bygging nýs lands hefur líka í för með sér sköpun nýrrar mýtólóg- íu. Hetjur verða til, slíkar aðstæður geta ávallt af sér trú eða trúar- brögð. Alþýðan raðar mýtunum í kerfi, og um sögupersónuna mynd- ast nokkurs konar helgisögn, og að lokum verður sú hin sama per- sóna að goðmagni. Ég skrifaði einu sinni smásöguna Sofandi Jesús og skransafnar- arnir, og aðalsögupersónan, skran- safnarinn, var eins_ konar forsögu- legur jarðarguð. Ég nefndi hann Sofandi Jesús. En sagan hefur ekki trúarlega merkingu, heldur birtist í henni fjöldi af minni háttar atrið- um. Nafn skransafnarans er t.d. Marteinn Elíasson, og að vissu leyti er hann afskræmd mynd af Mar- teini Lúter. Hann hefur haft bæki- stöð sína í turni, sem í sögunni er í raun og veru gamli flugtuminn á herflugvellinum á Gimli, sem nú er búið að loka, frekar en hinn tuminn. Nafnið Elíasson og hróp Krists á krossinum minnir á Elia — Elia eða „Guð minn Guð minn, því hefur þú yfirgefið mig?“ Elíasson er þannig sonur Guðs. En þessi guð _er einnig guð einkaframtaksins. Á einum stað í sögunni þegar gera á aðsúg að Sofandi Jesús þar sem hann er að safna msli á haugunum segir hann: „Þetta er einkaeign, þeir hafa engan rétt.“ Öðmm þræði er Sofandi Jesús í sögunni bara venju- legur maður sam safnar msli en í hina röndina er eitthvað í honum af fólki sem ég kynntist á Gimli, fólki sem lifði þessu hamslausa gróskumikla lífí. í vitund minni hefur þetta fólk orðið að einhvers konar fmmguðum sem ég reyni að fella inn í söguna. Ef það heppnast, og ef vondur munnsöfnuður sem þessi persóna lætur út úr sér er í ætt við aur, ringlulreið og einstakl- ingshyggju, þá em hér á ferðinni fmmdrög að guðunum Hefestusi, Vulcan eða Pluto, guðum undir- heimanna, sem gera sér ívemstað í mslaveröld.“ Nú var sú bók sem þessi smásaga birtist í bönnuð til kennslu við Gagnfræðaskólann á Gimli. „Já, þetta smásagnasafn, sem ég neftii Fimmtíu sögur og ein ráð- legging, var bannað á þeim for- sendum að einn meðlimur skóla- nefndarinnar sagðist hafa fengið nafnlaust kvörtunarbréf sem hann sýndi engum öðmm nefndarmanna. Það er því ekki auðvelt að gera sér grein fyrir á hvaða forsendum nefndin byggði þá ákvörðun sína að banna bókina. Sérstaklega ef við lítum á það að athyglin beindist að þeim hluta bókarinnar sem ekki var tekinn til meðferðar í kennslustund- um. Sum orð þóttu Ijót og ekki við hæfí unglinga. Mér þótti sjálfum undarlegt að sjá ljósrit af smásögu minni þar sem hringur var dreginn um „ljótu“ orðin. Annars er ég viss um að þetta var ekki raunvemlega ástæðan — annað lá að baki. Eg held að vegna þess að sumar smá- sögumar em greinilega úr umhverfí Gimli, hafí fólk talið sig þekkja þar tilteknar persónur og ekki fallið í geð. Ég hafði ekki sérstakar per- sónur í huga heldur miklu fremur aðstæður eða atvik í mjög víð- tækum skilningi. Ég hef átt tal við margt fólk sem segir. „Ah-ha, ég veit um hvem þú ert að hugsa." En ég get aðeins svarað því til að svo sé ekki. Aftur á móti kannist það við svipaðar kringumstæður. Þess vegna er ég viss um að vont orðbragð var ekki það sem áhyggj- unni olli, heldur hitt að sumum fannst of nærri sér gengið. Annars kvarta ég ekki undan sveitungum mínum, þeir hafa tekið mér vel. Allir búnir að gleyma þessu núna.“ Þú hefur gefið út nokkrar ljóðabækur. Ég gaf fyrir nokkmm ámm út ljóðabókina Sinubruni, sem er nokkuð langur ljóðabálkur. Aðal- persónan í Sinubmna hefur Þór, Freyju og Frey að viðmælendum sínum. Ég reyndi í þessu ljóði að skapa persónu sem komin er á efri ár og fínnur dauðann nálgast. Mér fannst goðafræðin falla hér vel að með Yggdrasil sem hina miðlægu líkingu. Þetta lífsins tré eyðist frá krónu jafnt sem rótum, auk þess sem það rotnar innan frá, sem leiðir til óumflýjanlegs hmns. Persóna mín, sem hefur nú loks horfst í augu við þann vemleika að hann muni sjálfur mæta dauðanum, sér samsvarandi hmn eða eyðingu allt í kringum sig. Hann sér krabbamein allsstaðar, brýr og byggingar að falli komnar og svo framvegis. Hann sér dulræn tákn á himni, dverga og afskræmdar mannvemr á stjái í kringum sig. Ragnarök em framundan. Og hvemig skilur hann þetta? Hann reynir fyrst að kryfja hlutina til mergjar með mýtólógíuna sem hjálpargagn. Um það fjallar fyrsti hluti ljóðsins. En þetta bregst honum. Þú byggir ekki líf þitt á norrænni goðafræði hér í Manitóba. I öðmm hluta leitar hann svara í vísindinum, en sú leit er einnig án árangurs. Hann leitar áfram svara í persónulegri reynslu sinni sem bam, en svörin er þar ekki heldur að fínna. Leitin heldur áfram innan þess samfélags sem hann ólst up í, og hann ígmndar upphaf þeirrar sögu. Fólk þessa samfélags em ekki þeir íslensku landnemar sem settust hér að heldur sú kynslóð sem á eftir þeim kom. Og það er fyrst þegar hans eigin rödd rennur saman við raddir þessara forfeðra sem hann finnur einhvers konar sam- svömn — og þó — jafnvel að lokum er hann ekki viss, myndin er brota- kennd, en lífið sjálft er brotakennt og við verðum að gera okkur grein fyrir því. III. Ef við snúum talinu að kanadísk- um bókmenntum almennt. Er til að mynda einhver umtalsverður munur á því sem skrifað er í frönskumælandi Kanada eða Que- bec og svo í hinum enskumælandi hluta landsins? „Já, Quebec byggir mjög á franskri og evrópskri hefð. Annars hafa bókmenntir okkar hér í Kan- ada til margra ára goldið þess að vera nokkurs konar nýlendubók- menntir Breta. Fyrr á ámm sóttu skáldin efnivið til Evrópu, aðallega til Englands og vom dæmd eftir enskum mælikvarða, og borin saman við stóm bresku rithöfund- ana. Á fímmta áratug þessarar aldar höfðu bandarískir rithöfundar yfirþyrmandi áhrif hér, og við lent- um í samanburði við þá. En þar sem Bretar byggja á sinni eigin reynslu og Bandaríkjamenn á sinni, urðum við augljóslega utangátta, því við getum hvorki verið góðir Bretar né góðir Bandaríkjamenn, aðeins góðir Kanadamenn. Mér virðist að á síð- ustu þrjátíu ámm hafi orðið þær breytingar á kanadískum bók- menntum að þær beinast nú orðið að þeim vemleika sem hér er og verkefnin séu sótt í þann reynslu- heim. Bresku og bandarísku módel- in era því að íjarlægjast. í dag er það eftirtektarverðasta sem skrifað ■ . — David verður í þessu spjalli tíðrætt um Michael Olito. Meðfylgjandi myndir em teknar við uppákomu i Mani- toba Art Gallery í febrúar. er hér annars vegar byggt á upp- mnalegri reynslu í þessu landi eða þá að leitað er fanga til ólíkra þjóða, sem hafa þó átt svipaða sögu. Einn okkar bestu rithöftmda, Margaret Laurence, á t.d. margt sammerkt með þeim sem fást við skáldsagna- gerð í Afríku, t.d. í Nígeríu. Þar er reynsla nýlendunnar af sama toga og hér. Laurence hefur aldrei verið bundin af breskum eða banda- rískum módelum. Að öðm leyti em margir rithöfundar í dag, og þá sérstaklega í Vestur Kanada, á svipaðri línu og ýmis skáld Suður Ameríku. Tökum sem dæmi Robert Kroetsch, sem hefur orðið fyrir sterkum áhrifum af Gabriel García Márquez." Ert þú bundinn af einhveijum slíkum fyrirmyndum? í í iT „Það held ég ekki — en á ekki svo gott með að svara því sjálfur. En ef ég ætti að svara því hvaða rithöfundar hefðu haft mest áhrif á mig, get ég nefnt Rabelais og Cervantes. Og ég hef lesið mikið af suður-amerískum bókmenntum, hef lesið allar þær skáldsögur sem ég hef komið höndum yfír og hef miklu meiri áhuga á því sem skrifað er þar heldur en því sem skrifað er á Bretlandi og í Bandaríkjunum. í rauninni þykja mér breskar bók- menntir dauðleiðinlegar og þær bandarísku em lítið skárri. Bók- menntir nýlenduþjóða heilla mig mest því þar er svo oft fjallað um fólk sem lifir ekki þessu hefðbundna millistéttarlífi. Við lifum okkar lífi á barminum. Þess vegna em módel miðjunnar mér engin stoð.“ IV. Hefur þú lesið eitthvað eftir ís- lenska höfunda þessarar aldar? „Það verður að segjast eins og er að ég les ekki íslensku þó ég skilji talmálið að einhverju leyti. Þegar ég var bam, talaði fullorðna fólkið allt íslensku en við krakkamir ekki. Það komst einhvem veginn inn í hausinn á mér að fslenskan væri mál fullorðna fólksins og yrði því ekki mín eigin fyrr en með fullorðinsámnum. En af skiljanleg- um ástæðum brást það. En ég hef lesið enskar þýðingar og man hér helst að greina frá hvað Sjálfstætt fólk hafði mögnuð áhrif á mig þegar ég fyrst las hana og geri raunar enn því ég lít oft í þá bók. Ég held að hún sé einhver merkileg- asta bók sem skrifuð hefur verið á þessari öld, og það sem mér sjálfum fínnst sérstaklega athyglisvert er hvað Laxness minnir mig oft á þá Márquez og Jorge Amado í Suður- Ameríku." Hvað um bókmenntir síðustu ára? „Þar lendum við í vanda sem ég gæti trúað að eigi sér rætur í þýð- ingum. í rauninni á ensk tunga sér tvenns konar rætur, germanskar og rómanskar, og em óhlutstæð hugmyndaheiti oftast dregin úr hinum latneska geira. Þýðendur virðast oft verða fyrir áhrifum af þessum óhlutstæða þætti, svo að í þýðingunni hygg ég að glatist stundum hið persónulega sem byggir á reynslu einstaklingsins og fyrirbæmm sem ef til vill eiga sér einföld íslensk heiti. Þýðing á nú- tímaljóðum íslenskum virðist mér því oft vera ótrúlega latínuskotin, og þetta fínnst mér að þýðendum beri einmitt að forðast. Með öðmm orðum dregur latínuþátturinn oft íslenska þýðandann á tálar, þannig að honum sést yfír hinn engilsaxn- eska þátt málsins eða fínnst hann blátt áfram of hversdagslegur." V. Dr. David Amason er, eins og fyrr segir, mikill sagnamaður. Afí hans, sem hann vitnar til í framan- greindu spjalli, Guðjón Ámason, hafði einnig gaman af að segja sögur. Því má bæta við að iangafi Davíðs var Baldvin Anderson kaft- einn á Winnipegvatni. Baldi, eða kafteinn Anderson, eins og hann var oft nefndur, bjó lengi á lítilli ^ jörð í Mikley og var lítt efnum bú- inn, en meðal fólks í Nýja íslandi varð hann þekktur fyrir sögur sínar, sem oft þóttu blandnar talsverðum ýkjum. Kafteinn Anderson átti frábær- lega góð hundaeyki, sem hann notaði við flutning á físki. Eitt sinn fór hann með hunda sína til keppni suður til Bandaríkjanna og unnu þeir fyrstu verðlaun. Af því tilefni birti bandarískt stórblað viðtal við kaftein Anderson, sem hafði að yfírskrift, „Stórbóndi frá Kanada". Kom þar fram að kapteinninn hafði um 10 þúsund ekmr til ræktunar á jörð sinni, og gerði hann grein fyrir því hvemig hann skipti landi « sínu, þannig að hver uppskera hafði sinn sérstaka reit. Undir lok við- talsins spurði bandaríski blaðamað- urinn kaftein Anderson hvort grein- argerð hans um þessa skiptingu væri lokið, og játaði kafteinninn því. „Þú átt nú samt enn eftir að gera grein fyrir þijú þúsund ekr- um,“ sagði blaðamaður. „Já, stend- ur heima," sagði kafteininn, „það er einmitt blómagarður konunnar minnar.“ Og lauk þar viðtalinu. Þessi saga af Balda Anderson var fyrsta sagan sem ég heyrði David segja. Texti: Margrét Björgvinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.