Morgunblaðið - 06.07.1986, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1986
37
Bretland:
Marðarbani
fær 467
punda sekt
- dýraverndarmenn
fagna ákaft
Lincoln, AP.
í BRETLANDI skyldi maður
varast 111. meðferðina á
dýrum, en sú lexía varð
Dennis nokkrum Tindale
dýrkeypt.
Téður Tindale, var á
fimmtudag dæmdur til þess
að greiða sem svarar 30.000
ísl. krónum, fyrir að aka yfir
frettu (Mustela putorius furo),
en það er dýr af marðarætt,
sem hægt er að temja til þess
að hafa upp á rottum og öðrum
meindýrum. Dómurinn var
kveðinn upp af áfrýjunardóm-
stóli í Lincoln í Lincolnshire.
Frettan, sem bar nafiriið
Champers, var í eigu bræðra,
sem bera nafnið Laverick. Þeir
notuðu Champers til þess að
fæla kanínur út úr holum sín-
um, en þá skutu þeir á þær úr
haglabyssu. Þeir gerðu hins
vegar þá reginskyssu að halda
til veiða á landi Tindale. Hann
vildi ekki sjá neinar kanínu-
veiðar á landi sínu, og ákvað
að flæma þá bræður á brott.
Settist hann því við stýri drátt-
arvélar sinnar og setti stefn-
una á Laverick-bræður. Þeir
náðu að forða sér út í nærliggj-
andi á. Því miður var Champ-
ers var ekki jafnheppinn og
bræðumir. Tindale ók einnig
yfír haglabyssuna góðu og
eyðilagðist hún einnig.
Tindale segist ekki hafa elt
bræðuma og Champers af
ásettu ráði, en hélt því fram
að hemlabúnaður dráttarvélar-
innar hefði bilað, þegar hann
ók „óvart" yfir haglabyssuna.
Þá hljóp skot úr byssunni. „Ég
er sárreiður yfir því að lögregl-
an skuli ekki hafa kært bræð-
uma fyrir umferð um land
mitt í heimildarleysi," sagði
Tindale að lokum.
Dýravemdarmenn á Bret-
landseyjum hafa fagnað
dómnum mjög og segja hann
merkan áfanga í sögu dýra-
vemdar.
Fjárlög
EB ógilt
Lúxemborg, AP.
Evrópudómstóllinn ógilti í gæi
fjárlög Evrópubandalagsins fyr
ir 1986 með þeim rökum, a«
Evrópuþingið hefði farið út fyrii
umboð sitt með þvi að bæta ai
eigin frumkvæði við framlöf
aðildarrikjanna tólf. Til þess a<
koma í veg fyrir vandræði, úr
skurðaði dómstóllinn hins vegai
að ekki bæri að ógilda þæi
greiðslur, sem þegar hefðu fari<
fram.
SLOKKVIBIFREID,
MED FUIIKOMNUM BUNADI
A FERD UM LANDID
Brunavarnaátak ‘86 byggist á samstarfi Brunabótafélagsins, Store-
brand í Noregi, Landssambands slökkviliðsmanna og Brunamálastofti-
unar ríkisins.
Þetta átak felst m.a. í því að slökkvibifreið með fullkomnum búnaði
verður ekið til flestra slökkviliða í landinu á tímabilinu 4. júní til 17.
júlí. Efnt verður til æfinga, sýninga og fræðslufunda víða um land.
Evrópuþingið hélt því fram á sín
um tíma, að Qárhagsáætlun sú, sen
aðildarríkin höfðu lagt fram, væi
ekki fullnægjandi vegna inngöngi
Spánar og Portúgals í bandalagi
frá og með 1. janúar sl. Þá mynd
hún ekki heldur nægja til að full
nægja eldri skuldbindingum EB.
Af þessum sökum voru fjárlögin
hækkuð um 560 millj. ECU (Evr-
ópumynteiningar), eða rúml. 22,4
milljarða ísl. kr.
V^terkurog
hagkvæmur
auglýsingamiöill!
STADREYNDIR SÝNA AD BRUNAVARNIR BORGA SIG
Gildir það jafnt um einstaklinga sem samfélagið. Þess vegna hvetjum
við hvern og einn til að vera á verði gagnvart eldsupptökum.
Fylgist með hvenær bifreiðin kemur í byggðalagið
BBunHBftnirtuic IsinnÐS
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
essemm sía