Morgunblaðið - 06.07.1986, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1986
Meö því ao sprauta eterblöndu
gegnum þunna píþu inn í gall-
blööruna geta læknar nú leyst
upp kólesteról gallsteina án
meiriháttar skuröaögeröar.
Blöörugön.
Gallsteinar
Gallrás
Gallsteinar verða hættulegir ef
þeir berast frá gallblöðrunni og
festast i blöðrugöngunum eða
gallrásinni og stífla þau.
Gallsteínum eytt
án skurðaðgerðar
illjónir Bandaríkja-
manna þjást af gall-
steinum, og fram til þessa
hafa sjúklingarnir oftast
þurft að gangast undir meiri-
háttar skurðaðgerðir til að
losna við steinana, eða þá að
reyna að eyða steinunum með
lyfjatöku, sem getur tekið eitt
til þrjú ár. En nú hafa læknar
við Mayo Clinic-stofnunina í
Rochester, Minnesota, fund-
ið upp nýja aðferð til að leysa
upp sum afbrigði gallsteina á
örskömmum tíma.
Aðferð þessi er á algjöru til-
raunastigi, en með henni hefur
tekizt að leysa upp jafnvel stóra
gallsteina á aðeins þremur dög-
um. Til þess er notaður vökvi er
nefnist metýl tert-bútýl eter,
MTBE, skyldur díetýl eter, sem
notaður hefur verið í meira en
eina öld sem svæfingarlyf við
skurðlækningar.
Eterblöndunni er sprautað inn
í gallblöðruna gegnum þunnt rör
sem stungið er í gegnum lifrina
og inn í gallblöðruna. Steinarnir,
sem þarna myndast og hrjá upp
undir 20 milljónir Bandaríkja-
manna, eru af ýmsum stærðum
og gerðum og efnasamsetning
þeirra er margvísleg. Eterbland-
an getur leyst upp kólesteról
gallsteina, en það eru algengustu
gallsteinarnir.
Sá sem fann upp þessa aðferð
og hefur þróað hana með tilraun-
um er dr. Johnson L. Thistle
meltingarfærafræðingur hjá
Mayo Clinic, og segir hann að svo
virðist sem hér sé kominn val-
kostur fyrir sjúklinga með al-
gengustu gerð gallsteina til að
losna við meiriháttar skurðað-
gerð.
MTBE-vökvinn hefur lengi
verið notaður sem leysiefni í
rannsóknastofum og til að auka
oktanhlutfall í bensíni. Matvæla-
og lyfjaeftirlitið í Bandaríkjun-
um hefur heimilað dr. Thistle og
læknum við fimm eða sex önnur
sjúkrahús þar í landi að nota
MTBE í tilraunaskyni við eyð-
ingu gallsteina. Að vanda hefur
eftirlitið ekki látið uppi nöfn
læknanna eða stofnananna, sem
heimildina hafa fengið.
Dr. Thistle sagði nýlega í
blaðaviðtali að undanfarið hálft
annað ár hefði hann notað eter-
blönduna til að fjarlægja gall-
steina úr 16 sjúklingum. Að feng-
inni þeirri reynslu og þjálfun
sagðist hann nú hugsa sér að
taka fyrir einn til tvo sjúklinga
í viku hverri eftir því sem önnur
störf hans hjá Mayo Clinic
leyfðu.
Það mun þó taka fleiri ár að
safna nægum upplýsingum úr
hundruðum tilfella til að ganga
úr skugga um notagildi og öryggi
etersins, og sannreyna hjá hve
mörgum sjúklinganna gallstein-
ar myndast á ný eftir svona
aðgerð.
Gallsteinar eru mjög algengur
sjúkdómur, sem hrjáir þrisvar
sinnum fleiri konur en karla. Um
ein milljón Bandaríkjamanna
fær gallsteina í ár, og áætlað er
að um 500.000 gangist undir
skurðaðgerð til að láta fjarlægja
gallblöðru og gallsteina, en heild-
arkostnaður við þá uppskurði er
áætlaður um einn milljarður
dollara.
geta lýst sér á margan hátt, eins
og með ropa, flökurleika, upp-
köstum og sárum verk, sem
venjulega kemur fram í kviðar-
holinu rétt undir bringubeininu.
Stundum færist verkurinn yfir í
hægri hliðina efst í kviðarholinu,
eða yfir í bakið og upp undir
öxl, eða þá sem stingur gegnum
líkamann út í bakið ofarlega.
Gallsteinar geta verið hættu-
legir ef þeir sleppa út ur gall-
blöðrunni og festast í blöðru-
göngunum eða gallrásinni. Þann-
ig getur steinn stíflað gall-
streymið frá gallblöðrunni út í
smáþarma. Gallsteinar geta haft
hliðarverkanir, til dæmis valdið
brisbólgu, sem getur verið ban-
væn, en briskirtillinn framleiðir
ýmis meltingarensím.
Þar sem gallsteinaköst geta
Gallsteinar fyrir
meðferð, til vinstri, og
eftir upplausn með
MTBE.
lyfið veldur oft niðurgangi. En
þótt sjúklingurinn losni við
steinana á þennan hátt, þarf það
ekki að vera nein endanleg lækn-
ing, því hjá 25-50% sjúklinganna
myndast galisteinar á ný eftir
fimm til tíu ár.
Dr. Thistle var einn af frum-
kvöðlum þróunar lyfjatöku til að
leysa upp gallsteina, en vegna
hliðarverkana hóf hann rann-
sóknir á öðrum leiðum. Hann
kynnti sér tilraunir sem aðrir
læknar höfðu unnið að með
uppleysandi efni. Læknar hafa
lengi vitað að eter leysir upp
kólesteról gallsteina, en er hins-
vegar ónothæfur vegna þess að
við líkamshita gufar eter upp og
Gallblaðran er belgur sem
tengdur er neðra borði lifrarinn-
ar ofarlega hægra megin í kvið-
arholinu rétt undir brjóstkassan-
um. Þessi belgur geymir gallið
sem myndast í lifrinni þar til
líkaminn þarf á því að halda til
að hj álpa til við meltingu.
Gallsteinar erta oft innra borð
gallblöðrunnar og valda þá bólgu
og sársauka, sem getur staðið í
fleiri klukkustundir. Gallsteinar
gripið sjúklinginn fyrirvaralaust
og hvenær sem er, auk þess sem
gallsteinar geta verið banvænir
vegna aukaverkana, er algeng-
asta lækningin skurðaðgerð. Á
síðari árum hafa hinsvegar
margir sjúklingar frekar kosið
að reyna að eyða steinunum með
lyfjatöku. Það tekst þó ekki alltaf
að leysa steinana upp á þennan
hátt, og þegar það tekst, tekur
það venjulega eitt til þrjú ár, og
þenst út, og getur þessvegna
verið sjúklingnum hættulegur.
Fljótlega komst dr. Thistle að
því að MTBE helst í fljótandi
formi í líkamanum. Hann reyndi
vökvann fyrst við að leysa upp
gallsteina í tilraunaglösum. Síð-
ar græddi hann gallsteina úr
manni í gallblöðru á hundi og
fylgdist með því hve hratt stein-
arnir leystust upp.
Hann komst að því að MTBE
leysti steinana upp fljótar en
díetýl eter, og að vökvinn hafði
engin ertandi áhrif á slímhúðina.
Á síðari árum hafa röntgenlækn-
ar mikið notað örfínar nálar við
að rannsaka og sjúkdómsgreina
ýmsa líkamshluta. Dr. Thistle
fékk því til liðs við sig geisla-
lækninn dr. Gerald R. May hjá
Mayo Clinic þegar hann gerði
fyrstu tilraun sína á manni í
marz 1983. Sjúklingurinn var 64
ára kona, sem neitaði að láta
skera sig upp. Við tilraunina með
MTBE leystust gallsteinar henn-
ar upp á sjö klukkustundum.
Eftir það gáfu stjórnendur Mayo
Clinic leyfi til að nota þessa
lækningaaðferð í tilraunaskyni.
Þótt dr. Thistle dragi í efa að
MTBE-lækningin geti komið öll-
um sjúklingum með kólesteról
gallsteina að notum, kveðst hann
álita að hún eigi eftir að firra
þúsundir sjúklinga hættunni á
meiriháttar skurðaðgerð. Hann
bendir þó á að skurðaðgerðin sé
árangursrík og örugg lækning
fyrir þá gallsteinasjúklinga sem
að öðru leyti eru heilsuhraustir.
Næsta skrefið telur hann vera
fyrir sig og samstarfsmenn sína
að reyna að eyða kalkmynduðum
gallsteinum, sem mun erfiðara
er að leysa upp.
Takist þessar tilraunir geta
þær haft mjög mikla þýðingu,
því um 80% allra gallsteina eru
kalk- eða kólesterólsteinar. Þau
20% sem eftir eru myndast úr
litarefnum í gallinu og leysast
ekki upp í MTBE eða með lyfja-
töku.
Ekki er ljóst hve hátt hlutfall
sjúklinga fær gallsteina á ný
eftir MTBE-meðferð, aðallega
vegna þess hve mikill munur er
á því hve algengur sjúkdómurinn
er hjá kynþáttum, ættflokkum
ogþjóðum.
Um 70% allra kvenna í sumum
Indíánaættflokkum fá gallsteina
fyrir 30 ára aldur, en aðeins um
10% bandarískra blökkukvenna
fá sjúkdóminn. Hjá Masai-þjóð-
inni í Austur-Afríku eru gall-
steinar svo til óþekktir, og þeir
eru algengari hjá Svíum eða
Finnum en hjá Bandarikjamönn-
um.
Hjá einum sjúklinganna sem
gekkst undir MTBE-aðgerð hjá
Mayo Clinic hafa nýir gallsteinar
myndast, og sá sjúklingur gekkst
undir venjulegan gallblöðruupp-
skurð.
(Hcimild: The New York Times.)
Haf narfj ör ður:
Grillað fyrir vistmenn Hrafnistu
VISTMENN Hrafnistu í Hafnar-
firði fengu óvæntan glaðning á
fimmtudaginn þegar efnt var til
grillveislu við dvalarheimilið.
Það voru um 70 vistmenn af
rúmlega 200 sem nutu veðurblíð-
unnar, aðallega fólk sem á erfitt
með að ferðast. Þeim var boðið upp
á kartöflusalat, kók og pylsur sem
grillaðar voru á útigrilli sem Þorlák-
ur Þórarinsson yfirsmiður Hrafn-
istu smíðaði í fyrra en vegna rign-
ingar var það ekki vígt fyrr en nú.
Að sögn Sigríðar Jónsdóttur for-
stöðumanns Hranistu var þetta sér-
staklega hugsað til að gleðja þá
vistmenn sem ekki geta farið í
ferðalög með öðrum vistmönnum
og hafi þeir verið mjög þakklátir
en einnig hafi það glatt starfsfólkið
að geta stytt fólkinu stundir með
einhverjum hætti.
Mikið er gert af þvl að ferðast
með vistmenn Hrafnistu og er til
dæmis ætlunin að skoða sjóminja-
safnið í Hafnarfírði á þriðjudaginn.
Vegna þess hve vel tókst til er
ætlunin að endurtaka þetta og hafa
þá jafnvel eitthvað fleira til
skemmtunar, harmonikkuleik og
því um líkt.
Frá veislunni á fimmtudaginn Morgnnblaðið/Emiiía