Morgunblaðið - 06.07.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLf 1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Rafvirkjar —
Rafeindavirkjar
Óskum eftir að ráða sem fyrst rafvirkja/
rafeindavirkja til að sinna uppsetningu, við-
haldi og eftirliti með vélum, sem fyrirtækið
hefur umboðssölu á. Um er að ræða ýmiss
konar pökkunarvélar fyrir plastpökkun.
Viðkomandi þarf að vera liðtækur við „mek-
aniskar" viðgerðir auk þess sem hann þarf
að sýna og kenna viðskiptavinum notkun
vélanna.
Umsækjendur verða að hafa staðgóða þekk-
ingu á ensku og helst einu Norðurlandamáli.
Starfinu mun einnig fylgja nokkur vinna innan
fyrirtækisins.
Umsóknum skal skilað til augldeildar Mbl.
fyrir kl. 12.00 föstudaginn 11. júlí merkt:
„P — 3001 “.
Plastprent hf.
Höfðabakka 9, S. 685600.
Staða reynds
aðstoðarlæknis
við lyflækningadeild Borgarspítalans er laus
frá 1. september nk. Umsóknarfrestur er til
1. ágúst.
Umsóknir sendist yfirlækni deildarinnar, sem
jafnframt veitir allar upplýsingar, sími
696600.
BORGARSPÍTALINN
ö696600
Atvinna íboði
Viljum gjarnan ráða til okkar nú þegar hresst
fólk í hin fjölbreytilegustu störf m.a.:
- við afgreiðslu í kjötdeild,
- almenna afgreiðslu,
- lagervinnu,
- á búðarkassa.
Um er að ræða heilsdagsstörf og hlutastörf.
Uppl. veitir starfsmannastjóri Miklagarðs,
Holtagörðum, sími 83811.
e' ST. JÓSEFSSPÍTALI,
LANDAKOTI
Lausar stöður
Sjúkraliða vantar á eftirtaldar deildir:
- Handlækningadeildir l-B, ll-B og lll-B
- Lyflækningadeildir l-A og ll-A
- Barnadeild
Einnig vantar sjúkraliða í Hafnarbúðir,
dagdeild til sumarafleysinga í júlí og ágúst.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf sendist hjúkrunarforstjóra sem
veitir nánari upplýsingar í síma 19600-300
kl. 11.00-12.00 og 13.00-14.00. alla virka
daga. y
Reykjavík 2/7 1986.
Hjúkrunarstjórn.
Stjórnun — sjúkra-
þjálfun
Sjálfsbjörg Akureyri óskar að ráða stjórnanda
yfir endurhæfingastöð félagsins. Starfssvið:
Stjórnun daglegs rekstrar endurhæfingar-
stöðvar. Stjórnun og skipulag almennrar lík-
amsræktarstöðvar. Við óskum eftir sjúkra-
þjálfara með starfsreynslu og hæfni til að
vinna sjálfstætt. Nánari upplýsingar veitir
framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar í síma 96-
26888.
Sjálfsbjörg,
_ félag fatladra áAkureyri og nángrenni.
AMERIGAN
STYLE
GKIPHOLTI 70 SlMI 686838
Kannt þú að brosa
Óskum eftir að ráða hresst og ábyggilegt
starfsfólk til framtíðarstarfa. Stundvísi og
reglusemi áskilin.
Upplýsingar gefur Bjarni í síma 686838.
Verkfræðingar/
tæknifræðingar
Vegna aukinna verkefna óskum við eftir að
ráða tæknifræðing eða verkfræðing til eftir-
litsstarfa strax.
Skriflegar umsóknir sendist undirrituðum
fyrir 14. júlí 1986. Upplýsingum verður ekki
svarað í síma.
Verkfræðistofa Stanleys Pálssonar hf.
> Skúlatúni 4, 105 Reykjavík - Simi 29922
Hárgreiðslufólk
Óska eftir hárgreiðslusveini eða meistara.
Einnig óskast hjálparstúlka.
Um er að ræða heilsdagsstarf. Góð laun í
boði fyrir góðan starfskraft.
Upplýsingar í síma 17840 eða á staðnum.
SALON Á PARIS
Nýja húsinu við Lækjartorg,
Hafnarstræti 20, sími 17840.
Hjúkrunarfræðingar
Þarft þú á tilbreytingu að halda frá ys og
þys í borg og bæ? Ert þú orðin(n) leið(ur) á
að fara langa leið til og frá vinnu? Samræm-
ist vinnutími illa fjölskyldulífi og áhugamál-
um? Langar þig til að vinna á stað þar sem
er dugmikið starfsfólk og góður starfsandi?
Ef svarið er já við einni eða fleiri ofangreindra
spurninga þá höfum við lausnina. Komið og
starfið á Kristnesspítala. íbúðarhúsnæði og
barnaheimili á staðnum, skólabíll ekur börn-
unum til og frá skóla.
Ef þú býrð á Akureyri eða í nágrenni og
hefur áhuga á eihstökum vöktum eða hluta-
vinnu, þá höfum við uppá það að bjóða og
sjáum um flutning á allar vaktir.
Því ekki að hafa samband við Huldu Gunn-
laugsdóttur, hjúkrunarforstjóra í síma 96-
31100 og fá nánari uppl. eða koma og skoða
og heyra hvað við höfum að bjóða.
Kristnesspítali.
/WKLIG4RÐUR
MARKAÐUR VIOSUND
Seltjarnarnessbær
Fóstrur
Óskum að ráða fóstru til starfa á dagheimil-
is- og leikskóladeildum barnaheimilisins Sól-
brekku. Ráðningartímifrá miðjum ágúst.
Starfsfólk
á barnaheimili
Ennfremur eru laus störf aðstoðarfólks á
barnaheimilum bæjarins. Um er að ræða
heils- og hálfsdagsstörf. Laun skv. kjara-
samningi Seltjarnarnessbæjar.
Nánari upplýsingar um störfin gefur for-
stöðumaður Sólbrekku í síma 611961 og
félagsmálastjóri, bæjarskrifstofum, í síma
612100.
Viðskiptafræðingur-
Framhaldsnám
MBA
Við erum að leita að framtíðarstarfsmanni
sem lokið hefur framhaldsnámi MBA eða
sambærilegu, helstfrá USA.
* Starfið er stjórnunarstarf á sviði fjármála
hjá traustu fyrirtæki með mikla erlenda
fjárumsýslu.
* Ókkar maður þarf að vera fær um að
starfa sjálfstætt - í nánum tengslum við
viðskiptaaðila, erlenda sem innlenda.
* Við teljum starfið vera eitt af þýðingar-
meiri störfum í fyrirtækinu og gerum
kröfur í samræmi við það.
* Við viljum helst skýra starfssviðið út í
samtali og biðjum þá sem áhuga kunna
að hafa að hafa samband.
Vinsamlegast leggið upplýsingar um nafn,
menntun og fyrri störf inn á augld. Mbl.
merkt: „Fjármál-100" fyrir 11. ágúst 1986.
Allar íyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem
algjört trúnaðarmál og öllum svarað.
Félag íslenskra
ferðaskrifstofa
auglýsir eftir starfsmanni við mótun á sam-
eiginlegum verkefnum ferðaskrifstofanna.
Verkefnið er hugsað tímabundið hlutastarf í
3-6 mánuði.
Leitað er sérstaklega eftir aðila með við-
skiptafræðimenntun.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
félagsins á Laugavegi 97,3. hæð, Reykjavík.
Skrifstofustarf —
Launaútreikningur
Fyrirtæki í Reykjavík með fjölbreytta starfsemi
óskar eftir starfsmanni til framtíðarstarfa.
Starfsvið hans er vinna við launaútreikninga.
Leitað er að traustum og ábyggilegum
manni, helst með reynslu í bókhaldsstarfi
og vinnu við tölvuskjá.
Þeir sem áhuga hafa eru vinsamlega beðnir
að leggja umsókn með uppl. um menntun
og fyrri störf á augldeild Mbl. eigi síðar en
15. júlí nk. merkt: „Launaútreikningur- 093".
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.