Morgunblaðið - 06.07.1986, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
m LAUSAR STÖÐUR HJÁ
'V REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk
til eftirtalinna starfa:
Starfsfólk óskast til eftirtalinna starfa við
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Hjúkrunardeildarstjóra við húð- og kynsjúk-
dómadeild. Fullt starf.
Hjúkrunarfræðinga við heimahjúkrun á dag-
og næturvaktir. Bæði er um fullt starf og
hlutastörf að ræða.
Hjúkrunarfræðinga við heilsugæslu í skól-
um. Bæði er um fullt starf og hlutastörf að
ræða.
Sjúkraliða við heimahjúkrun. Kvöldvaktir,
hlutastarf.
Ljósmóður til sumarafleysinga.
Deildarmeinatæknií fullt starfá rannsóknar-
stofu Heilsuverndarstöðvarinnar. Hlutastörf
koma til greina.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
22400.
Umsóknum berað skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð,
fyrir kl. 16.00 mánudaginn 28. júlí.
Sænska sendiráðið
óskar að ráða starfsmann til ræstinga á
skrifstofu sendiráðsins tvo tíma tvisvar í viku.
Umsóknir sendist augldeild Mbl. fyrir 14.
júlí merktar: „Sænska — 2621 “.
Sveitarstjórastaða
Hreppsnefnd Nesjahrepps Austur-Skafta-
fellssýslu auglýsir starf sveitarstjóra laust til
umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf
óskast send Ragnari Jónssyni oddvita Nesja-
hrepps fyrir 17. júlí nk.
Upplýsingar veitir oddviti í síma 97-8441 og
sveitarstjóri í síma 97-8500.
Oddviti Nesjahrepps.
Vöruafgreiðsla
Maður óskast til vöruafgreiðslustarfa.
Þarf að geta unnið sjálfstætt. Nánari upplýs-
ingar á skrifstofunni (ekki í síma).
Sjóleiðir hf.,
Grófinni 1.
Meinatæknar
Á rannsóknadeild Landakotsspítala verða
tvær stöður lausar í haust (í sept. eða okt.).
Umsóknarf restur er til 6. ágúst nk.
Nánari uppl. gefa yfirlæknir og deildarmeina-
tæknar.
Offsetprentari í
boði
Fjölhæfur offsetprentari óskar eftir atvinnu.
Gæti hafið störf mjög fljótlega.
Tilboð sendist augldeild Mbl. merkt: „1474"
fyrir 10. júlínk.
Barngóð mann-
eskja óskast
til að sjá um 2 börn, eins og tveggja ára,
(annað barnið er í pössun allan daginn) í
mánaðartíma frá 14. júií, í stórum kaupstað
úti á landi. Góð laun fyrir góða manneskju.
Ef þú hefur áhuga þá leggðu nafn og síma-
númer inn á augld. Mbl. merkt:„B — 096".
Hlutabréf
Til sölu hlutabréf í Sæplasti hf. á Dalvík.
Fyrirtækið er í örum vexti.
Tilboð sendist augldeild Mbl. fyrir 12. júlí
merkt: „Hlutabréf — 2623".
Dans- og
leikfimikennarar
— Sjálfstætt starf —
Höfum til leigu 50 fm sal þar sem á staðnum
er fullkomin Ijósastofa, nudd- og gufubaðs-
stofa. Tilvalið fyrir einn til tvo að starfa sjálf-
stætt með t.d. danskennslu ýmiskonar og/
eða leikfimikennslu.
Mjög góðirtekjumöguleikar.
Þeir sem hafa áhuga vinsamlegast leggi inn
nöfn og símanúmer á augldeild Mbl. merkt:
„Dans — 2622".
Afgreiðslustarf
Rótgróið járniðnaðarfyrirtæki í Reykjavík
óskar eftir starfskrafti á besta aldri til af-
greiðslu- og lagerstarfa í versluninni. Fjöl-
breytt og krefjandi starf með framtíðarmögu-
leika.
Þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Umsókn með helstu upplýsingum skal skila
á augld. Mbl. fyrir 12. júlí 1986 merkt:„212
— 20". Öllum umsóknum verður svarað.
Starfsfólk
óskast til starfa í kjötiðnaðarstöð. Nánari
upplýsingar hjá verkstjóra.
Kjötiönaðarstöð
Sambandsins
KÍRKJUSANDl SÍMI 686366
System/36
Fjölhæfur maður með háskólapróf í raun-
greinum óskar eftir áhugaverðu starfi. Hefur
góða þekkingu og reynslu á IBM-system 36
og einnig á einkatölvum, m.a. sem tölvustjóri
og fyrrverandi kennari. Góð forritunarkunn-
átta. Áhugasamir leggi inn nafn og símanúm-
er á augld. Mbl. merkt: „G — 098".
Afgreiðslustarf
Óskað er eftir afgreiðslufólki til starfa allan
daginn. Æskilegt er að umsækjendur séu
vanir afgreiðslustörfum og ekki yngri en 30
ára. Uppl. í versluninni frá kl. 10.00-12.00
ekki í síma.
Ljós og orka,
Suðurlandsbraut 12,
S. 84488.
Trésmiðir
Trésmiðir óskast. Næg vinna framundan.
Uppl. í síma 82204 milli kl. 13-17.
Álftárós hf.
Staða fulltrúa
hjá Veðurstofu íslands er laus til umsóknar.
Góð vélritunar- og íslenskukunnátta nauð-
synleg. Kunnátta í ensku og einu Norður-
landamáli æskileg.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rík-
isins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist samgöngu-
ráðuneytinu fyrir 21. júlí 1986.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Veðurstofu íslands.
Veðurstofa íslands.
Blönduvirkjun
2 trésmiðir óskast í Blönduvirkjun.
Upplýsingar í síma 46241.
Viðgerðir
Viljum ráða mann til að annast viðhald á
sérhæfðum tækjum. Umsækjandi þarf að
hafa reynslu í viðgerðum (t.d. rafvirkjun, vél-
virkjun o.fl.) og bíl til umráða. Umsóknir
sendist augld. Mbl. fyrir fimmtudagskvöld
merktar: „Viðgerðir —097".
Skrifstofustarf
Ríkisféhirðir vill ráða starfsmann strax til
skrifstofu og afgreiðslustarfa. Launakjör
samkvæmt kjarasamningi BSRB og fjármála-
ráðherra.
Umsóknir sendist til ríkisféhirðis, Arnarhvoli,
101 Reykjavík.
Gagnasafnsstjóri
Óskum að ráða mann sem hefði með hönd-
um umsjón með gagnasafnskerfi, veitti ráð-
gjöf og stæði fyrir námskeiðum í sambandi
við notkun þess.
Leitað er eftir manni sem hefur reynslu af
tölvunotkun og gagnasafnskerfum, en til
greina kemur að ráða áhugasaman mann
sem er reiðubúinn að leggja að sér til að
öðlast vald á tölvutækni.
Umsóknir sendist augld. Mbl. fyrir 10. júlí
merktar: „Gagnasafnsstjóri — 099“.
LAUSAR STÖÐURHJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk
til eftirtalinna starfa. Starfskjör
samkvæmt kjarasamningum.
Fóstra eða aðrir með sambærilega menntun
óskast frá og með 13. ágúst að skóladag-
heimilinu Breiðagerðisskóla.
Starfsmaður óskast einnig á sama stað frá
sama tíma.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
84558.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð,
fyrir kl. 16.00 mánudaginn 28. júlí.
Innheimtufólk
óskast
Óskum eftir harðduglegu fólki til innheimtu
á áskriftargjöldum að tímaritinu Hús og híbýli
á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík
540 Blönduós.
221 Álftanes
230 Keflavík
310 Borgarnes
340 Stykkishólmur
350 Ólafsvík
360 Hellissandur- Rif
400 ísafjörður
415 Bolungarvík
465 Bíldudalur
470 Þingeyri
510 Hólmavík
Póstnr. 101-104-108
545 Skagaströnd.
565 Hofsós.
620 Dalvík.
625 Ólafsfjörður.
680 Þórshöfn.
690 Vopnafjörður.
700 Egilsstaðir.
710 Seyðisfjörður.
730 Reyðarfjörður.
735 Eskifjörður.
740 Neskaupstaður.
760 Breiðdalsvík.
Upplýsingar veitir Sigurður Fossan í síma
91-83122 þriðjudaginn 8. og miðvikudaginn
9. júlí milli kl. 13.00 og 15.00.
Sam-útgáfan s/f.