Morgunblaðið - 06.07.1986, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1986
>
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Forritari
Eitt stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins vel
staðsett í borginni vill ráða forritara til starfa
í september. Nauðsynlegt að viðkomandi
hafi þekkingu á IBM 34/36 ásamt forritunar-
málinu RPG II. Starfsreynsla er ekki nauð-
synleg en mjög æskileg.
Allt það nýjasta í tækni og tölvumálum er
fyrir hendi hjá fyrirtækinu, sem fylgist vel
með á því sviði og gerir það starf forritara
enn áhugaverðara.
Gott framtíðarstarf sem bíður upp á mikla
möguleika. Laun samningsatriði.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir
17. júlínk.
Gudntíónsson
RÁÐCjÖF b RÁÐN I NCARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK - PÓ5THÓLF 693 SÍMI 621322
Tölvuinnsláttur
Laus störf hjá fyrirtæki í miðbænum við
tölvuinnslátt. Ef þú hefur verslunar- eða stúd-
entspróf og góða vélritunarkunnáttu eða
reynslu við innslátt, getur unnið smávegis
aukavinnu, ættirðu að hafa samband.
Gudni Tónsson
RÁDCJOF y RÁÐNI NCARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Skrifstofustjóri
1. október
Sérhæft deildaskipt fyrirtæki á sviði við-
skipta, vill ráða skrifstofustjóra til starfa
frá og með 1. okt. nk.
Á skrifstofu vinna um 10 manns. Viðkomandi
er jafnframt staðgengill framkvæmdastjóra.
Leitað er að viðskiptafræðingi eða aðila með
viðskiptamenntun ásamt starfsreynslu, einn-
ig góða bókhaldskunnáttu ásamt tölvuþekk-
ingu IBM/36.
Viðkomandi þarf að vera stjórnsamur og hafa
tamið sér skipulögð vinnubrögð og hafa
þokkalega tungumálakunnáttu.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir
17. júlí nk.
GuðntTónsson
RÁDCJÖF & RÁÐN I N GARÞJÓN U5TA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI621322
Laus staða
Staða rannsóknarlögreglumanns við emb-
ætti lögreglustjórans í Keflavík, Grindavík,
Njarðvík og Gullbringusýslu er laus til um-
sóknar.
Laun samkvæmt launakerfi stafsmanna ríkis-
ins. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist undirrituðum
. fyrir 15. júlí 1986.
Keflavík, 3.júií 1986.
Lögreglustjórinn íKeflavík, Grindavík, Njarð-
vík og Gullbringusýslu.
Varahlutaverzlun
Viljum ráða starfsmann í varahlutaverzlun
okkar sem fyrst.
Nokkur reynsla æskileg. Ráðning getur verið
bundin við sumarstarf.
Upplýsingarveitirverzlunarstjóri, ekki ísíma.
Sveinn Egilsson hf.
Skeifunni 17.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Sérfræðingur (2)
í blóðmeinafræði óskast til afleysinga við
blóðmeinafræðideild Landspítalans. Um-
sóknir á umsóknareyðublöðum lækna
sendist stjórnarnefnd Ríkisspítalanna fyrir
6. ágúst nk.
Upplýsingar veitir yfirlæknir blóðmeinafræði-
deildar í síma 29000.
Sálfræðingur
óskast við Geðdeild Landspítala áfengis-
deildir. Starfsreynsla áskilin.
Sálfræðingur
óskast í námsstöðu við Geðdeild Landspít-
ala. Umsóknir um ofangreindar stöður er
greini menntun og fyrri störf sendist stjórnar-
nefnd Ríkisspítala fyrir 6. ágúst nk. Upplýs-
ingar veitir yfirsálfræðingur Geðdeildar Land-
spítalans í síma 29000.
Meinatæknir
óskast frá 1. ágúst nk. í hálft starf fyrir há-
degi við göngudeild sykursjúkra 10E. Upplýs-
ingar veitir meinatæknir á göngudeild sykur-
sjúkra fyrir hádegi í síma 92000.
Fóstrur
óskast á dagheimili Ríkisspítala, Sunnuhlíð
við Klepp. Upplýsingar veitir forstöðumaður
dagheimilisins í síma 38160.
Ritari
óskast til starfa í birgðastöð Ríkisspítala við
tölvuvinnslu. Upplýsingar veitir birgðastjóri í
síma 671362.
Hjúkrunar-
fræðingur
óskast til næturvakta við Geðdeild Land-
spítalans.
Hjúkrunar-
fræðingur
óskast á Geðdeild Landspítalans deild 33a
(móttökudeild fyrir vímugjafaneytendur).
Sjúkraliðar
óskast í fastar stöður við Geðdeild Land-
spítalans deild 32c og deild 14.
Upplýsingar um ofangreindar stöður veita
hjúkrunarframkvæmdastjórar.
Reykjavík 6. júlí 1986.
Afgreiðsla— Lager
Óskum að ráða duglegt og áreiðanlegt
starfsfólk til framtíðarstarfa í eftirfarandi
1. á kassa störf.
2. á lager við verðmerkingar og önnur störf.
Við leitum að fólki sem hefur góða og örugga
framkomu, er vant nákvæmum vinnubrögð-
um og getur hafið störf hið allra fyrsta.
Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri
(ekki í síma) mánudag og þriðjudag frá kl.
16.00-18.00 báða dagana.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á staðnum.
HAGKAUP
Skeifunni 15.— Starfsmannahald.
Kerfisfræðingur
Tölvudeild Kristjáns Ó. Skagfjörð hf. óskar
að ráða kerfisfræðing til starfa. Starfssvið
kerfisfræðingsins verður í notendaþjónustu
fyrir VAX- og PDP-tölvukerfi. Nánari upplýs-
ingar veitir Vigfús Ásgeirsson mánudaginn
7. júlíísíma 24120.
KRISTJÁN Ó.
SKAGFJÖRÐ HF
Hólmspata 4- pósthólf 906- sími 24120 -121 ReykiovíF
Fósturheimili íReykjavík
eða nágrenni
Fósturforeldrar óskast fyrir 11 ára gamlan
dreng sem á við félagslega erfiðleika að etja.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í
uppeldisstörfum og séu reiðubúnirtil náinnar
samvinnu við foreldra drengsins.
Uppl. veitir Áshildur Emilsdóttir í síma 25500
fyrir hádegi næstu daga.
tH Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
V i • Vonarstræti 4 sími 25500
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk
til eftirtalinna starfa.
Læknafulltrúa í 100% starf við Fleilsugæslu-
stöð Hlíðasvæðis, Drápuhlíð 14-16, frá 1.
ágúst nk. Stúdentspróf eða sambærileg
menntun áskilin, ásamt góðri vélritunar- og
íslenskukunnáttu.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri heilsu-
gæslustöðvar í síma 22400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð
fyrir kl. 16.00 mánudaginn 28. júlí.
Rækjuveiðar
Skipstjóra, stýrimann og háseta vantar sem
fyrst á 250 tonna bát sem fer á rækjuveiðar
fyrir Norðurlandi í tvo mánuði.
Upplýsingar gefur Heimir í síma 95-4789 eða
95-4899 (heima).
Rækjuvinnslan hf,
Skagaströnd.
JL-húsið auglýsir í
eftirtalin störf
1. Stúlku við símavörslu og fleira.
2. Stúlkur í matvörumarkað.
3. Starfsmann á húsgagnalager.
Jli
Jón Loftsson hf.
/A A A A A A
Hringbraut 121
CTT
n
' i-TT
i ii i i
' 111
TmnM
Bifvélavirki
óskar eftir atvinnu, helst úti á landi. Hefur
meirapróf. Margt kemurtil greina.
Upplýsingar í síma 96-71543 og eftir kl.
18.000 í síma 96-71648. Arnar.
Atvinna óskast
Kona yfir fertugu óskar eftir atvinnu, ýmislegt
kemur til greina. Hef unnið ýmis störf hjá
sama fyrirtækinu síðustu árin. Vaktavinna
kemurtil greina.
Upplýsingar í síma 15233.