Morgunblaðið - 06.07.1986, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1986
51
HEILSUSKOKK
Mikið hefur verið ritað og rætt að undanförnu um íþróttaiðkun
og útiveni, og er það vel. í dag ætlar Dyngjan að koma með
nokkrar ábendingar varðandi skokk. Má vera að sumum finnist
það að bera i bakkafullan lækinn, en eins og segir í gömlu mál-
tæki er gömul vísa aldrei of oft kveðin, og það er aldrei að vita
nema þessar ábendingar geti komið einhverjum til góða. Þá
væri tilganginum náð.
Farið í hjartaskoðun
Þeir sem komnir eru á miðjan
aldur — eru um fimmtugt — og
hafa áhuga á að fara að stunda
skokk gerðu rétt í því að fara í
læknisskoðun og láta taka af sér
hjartalínurit áður en þjálfunin
hefst. Þetta verða sérstaklega
þeir að hafa í huga sem reykja
eða eru með háan blóðþrýsting.
Hjartakvillar geta leynt á sér.
Danski læknirinn Peter
Schnohr segir í grein sem birtist
í tímariti dönsku hjartavemdar-
samtakanna að öflug líkamsþjálf-
un geti ein út af fyrir sig eða
samfara óhetugri veðráttu (hita,
kulda eða roki) eða sýkingu verið
hættuleg heilsunni, og jafnvel
valdið dauða hjá þeim sem haldnir
eru leyndum eða ljósum hjarta-
sjúkdómum. Ekki er unnt að segja
fyrir hveijir þoli illa líkamsþjálfun,
segir læknirinn, en ítarleg læknis-
skoðun getur haft mikið að segja.
Og nauðsynlegt er að forðast
reykingar fyrir lfkamlega
áreynslu og meðan á henni stend-
ur.
í bandaríska tímaritinu „Life and
Health" er einnig sagt frá rann-
sóknum, sem gerðar voru á vegum
Stanford-háskóla í Kalifomíu á
skyndilegum dauða 18 hlaupara.
Stjómandi rannsóknanna var dr.
Paul D. Thompson, og bendir
hann á að ógleði geti verið merki
um hjartakvilla. Sex af þessum
18 látnu hlaupurum höfðu þjáðst
af ógleði, vindgangi og maga-
verkjum. En enginn þeirra hafði
fundið til bijóstverkja, sem annars
eru taldir algengasta vísbendingin
um hjartakvilla.
Rannsóknimar leiddu einnig í
ljós að 13 hlauparanna vom með
þrengdar kransæðar, einn hafði
þjáðst af hjartabólgu, og einn lést
úr hitaslagi. Um banamein hinna
þriggja er ekki vitað. Flestir þess-
ara hlaupara höfðu stundað lík-
amsþjálfun um margra ára skeið,
og hafa þeir eflaust álitið að sú
þjálfun væri þeim næg trygging
gegn hjartakvillum.
Skokk og g'eirvörtur
Það er ekki víst að konur, sem
stunda skokk eða hlaup, geri sér
grein fyrir því að þessar líkamsæf-
ingar get átt sök á rauðum og
þrútnum eða sprungnum geirvört-
um. En þarna getur verið sam-
band á milli, og stafar það af
núningnum þegar íþróttabúning-
urinn verður rakur eða blautur
af svita.
Til að koma í veg fyrir þetta
nudd er bezta lausnin að vera í
bijóstahaldara á skokkinu.
Einnig getur verið gott að
smytja geirvörtumar með vaselíni
áður en lagt er af stað.
• •
Qryggismál sjómanna í brennidepli:
„Vinnuálag um borð í
vöruflutningaskipum hefur ,
stuðlað að slysum“
— Víðtækar alþjóðasamþykktir um öryggismál
sjómanna tóku gildi 1. júlí síðastliðinn
Á TÍMABILINU frá 1. júlí 1984
til 30. júní 1985 voru 49 íslensk
skip stoppuð í erlendum höfnum
og reyndist einhverju áfátt í 29
af þeim.
Þetta kemur fram í tölum frá
Siglingamálastofnun ríkisins. Oftar
en ekki var þó látið sitja við áminn-
ingar og loforð um bót og betran.
Undanfarin ár hefur mjög verið
hert á öllu eftirliti með skipum og
sæfarendum, sagði Hálfdan Hen-
rysson hjá Siglingamálastofnun í
viðtali við Morgunblaðið. Alþjóða-
siglingamálastofnunin hefur haft
fmmkvæði að setningu laga um
aðskildar siglingaleiðir, að gerð
alþjóðasamþykktar um menntun og
þjálfun, skilríki og vaktstöður sjó-
manna (STCW) og í þriðja lagi
samþykkt um öryggismál á sjó
(SOLAS) komið frá stofnuninni.
Sum áðumefndra 29 skipa voru
stöðvuð vegna brota á þessum
samþykktum. En markmiðið með
þessum stjómunaraðgerðum öllum
er aðeins eitt, að tryggja sem best
öryggi sjómanna.
Lög um aðskildar
siglingaleiðir
Inn á borð Siglingamálastofnun-
ar ríkisins hefur borist fjöldinn allur
af kæmm vegna brota íslenskra
skipa á alþjóðalögum um aðskildar
siglingaleiðir, sagð Hálfdan. Rætur
þessara laga liggja aftur á 19. öld
en þá komu skipafélögin, sem áttu
farþegaskip í fömm yfir Atlants-
hafið, sér saman um ákveðnar leiðir
sem skipin skyldu sigla fram og til
baka milli álfanna tveggja. í dag
er þetta „leiðakerfi" skipa orðið
mjög umfangsmikið en lög um það
vom samþykkt 1977.
Kvað Hálfdan brot á lögum þess-
um stundum mega rekja til tungu-
málaörðugleika, en Alþjóðasigl-
ingamálastofnunin hefur gefið út
handbók yfir orð og orðasambönd
sem algengt er að sjómenn þurfi
að nota í samskiptum sínum við
land, hafnsögumenn og aðra. I Sjó-
kortasölunni, í Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu, er hægt að fá öll
kort yfir þær lögbundnu siglinga-
leiðir sem lögin taka til.
STCW-78
Samþykktin um menntun og
þjálfun, skilríki og vaktstöður sjó-
manna, var gerð 1978 en hún tók
gildi í júlí 1984. Hún nær til sjó-
manna í farmennsku en ekki hinna
sem em á fiskiskipum. Að sögn
Hálfdans er gefínn fímm ára aðlög-
unartími að samþykktinni en að
þeim tíma liðnum, árið 1989, mega
þær þjóðir sem að henni standa
gera sömu kröfur til erlendra skipa
og gerðar em til innlendra. Raunar
er þegar byijað að stoppa okkar
skip erlendis til að fá staðfestingu
á réttindum áhafna þeirra, sagði
Hálfdan.
í samþykktinni em menntun-
arkröfur til sjómanna tilteknar
mjög nákvæmlega. Þar er t.d.
kveðið á um lögskipaðar lágmarks-
kröfur sem gera ber til skipstjóra
og stýrimanna, yfírmanns siglinga-
vaktar, endurmenntunar skipstjóra
og yfirmanna á þilfari og háseta
sem standa siglingavaktir. Þá er
fjallað um margvíslegar vinnuregl-
ur, s.s. í sambandi við vaktaskipti,
viðbrögð við neyðarköllum og sigl-
ingu í takmörkuðu skyggni.
Hálfdan sagði STCW-78 vera
mikið áhugamál íslenskra sjó-
manna. Nú em um 49 ríki fullgildir
aðilar að samþykktinni en ísland
er ekki enn komið í þann hóp og
er þannig eitt Norðurlanda fyrir
utan. Að sögn Hálfdans stendur til
að gera á þessu bragarbót. Nýbúið
er að þýða alþjóðasamþykktina um
menntun og þjálfun, skilríki og
vaktstöðu sjómanna, á íslensku og
verður hún lögð fyrir alþingi íslend-
inga á komandi vetri, sagði Hálf-
dan. Er þá loks von til þess að Is-
lendingar eignist heildarlög um
mönnun íslenskra skipa, því í sam-
þykktinnni felst áskomn á ríkis-
stjómir landa að þær hafí forgöngu
að setningu slíkra heildarlaga. Að
sögn Hálfdans hefur þannig laga-
setningu skort sárlega hér á landi
og þess em dæmi, sagði hann, að
skipsströnd hefur að einhveiju leyti
mátt rekja til vinnuálags um borð.
Nokkrir farmenn sem blaðamaður
tók tali vom allir á einu máli um
það að vinnuþrælkun um borð í
vöruflutningaskipum væri alltof
algeng. STWC-samþykktin ætti að
taka fyrir þetta en meðal sjómann-
anna bólaði á áhyggjum um að hún
yrði hundsuð af íslenskum yfírvöld-
um.
SOLAS-samþykktin
SOLAS er skammstöfun fyrir
Safety of Life at Sea, öryggi á sjón-
um. Ólíkt STCW-78 þá emm við
íslendingar aðilar að þessum al-
þjóðalögum en þriðji kafli þeirra tók
gildi 1. júlí síðastliðinn. Þessi þriðji
hluti samþykktarinnar fjallar um
björgunarbúnað og fyrirkomulag
björgunarmála. Eins og STCW-78
þá nær SOLAS ekki yfir fískiskip.
Hálfdan sagði að þrátt fyrir að
það væri ekki fyrr en nú í öndverð-
um júlí, að samþykktin tæki gildi,
þá væri nokkuð umliðið síðan byijað
var að stoppa skip í erlendum höfn-
um vegna þess að þau uppfylltu
ekki skilyrði SOLAS, og það jafnvel
þó lögin ættu ekki að taka til ann-
arra skipa en þeirra sem byggð em
eftir 1. júll 1986 nema annað sé
skýrt tekið fram. T.d. hefðu fslensk
skip lent í töfum vegna þess að í
búnað þeirra vantaði uppdrátt af
staðsetningu öryggistælcja í skipun-
um og vottorð um að allur björgun-
arbúnaður þeirra væri í lagi. Slík
skírteini sagði Hálfdan að Siglinga-
málastofnun ríkisins léti í té.
Hálfdan sagði að íslendingar
væm þegar búnir að taka upp ýmis
ákvæði SOLAS og lögleiða. T.d.
hefur það verið skylda síðan um
áramót að björgunarbátar á vöm-
flutningaskipum, sem hingað hafa
verið keypt frá því þá, væm yfír-
byggðir. Gildistöku sumra annarra
ákvæða þarf að fresta eins og þess
er kveður á um að björgunarbúning-
ar af hentugri stærð skuli vera um
borð fyrir alla þá sem ætlað er að
irianna léttbátinn. Sagði Hálfdan
þetta vera vegna þess að nú væri
í smíðum reglugerð, sem taka ætti í.
til allra íslenskra skipa, og gerði
það að skyldu að um borð væm
björgunarbúningar fyrir alla áhöfn-
ina.
I SOLAS em skýr ákvæði um
björgunaræfíngar og f STCW er að
fínna „lögskipaðar lágmarkskröfur
til löggildingar á leikni í meðferð
björgunarbáta og fleka." Sagði
Hálfdan að Islendingar væm frem-
ur vel í stakk búnir til að uppfylla
þessi ákvæði. Munar þar mest um
Sæbjörgu, skip Slysavamarfélags
Islands, sem áður var varðskipið
Þór. Sagði Hannes Þórður fram-
kvæmdastjóri félagsins að skipið
væri þegar orðinn afskaplega góður
björgunarskóli. Þar sem fer fram ,
bæði bókleg fræðsla og verkleg
þjálfun fyrir sjómenn.
Þá em til hjá Fræðslusafni sjó-
manna 18 myndbönd um öryggis-
mál sjómanna, s.s. eldvamir og
þyrlubjörgun. Vildi Hálfdan ein-
dregið hvetja skipsáhafnir til að fá
þessar myndir lánaðar en þær hafa
verið fjölfaldaðar og fást hjá Sigl-
ingamálastofnun og umboðsmönn-
um hennar út um allt land. Mynd-
böndin standa sjómönnum til boða
án endurgjalds.
Þaðer
alltaf
gaman á
Hlíðarenda
VALUR
ÞÓR
íkvöld
kl. 20.00.
VALUR