Morgunblaðið - 06.07.1986, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1986
59
Morgunblaðifi/VIP
9 Rakel Birgisdóttir og Bergiind Guðnadóttir hvíla lúin bein í grasinu
eftir erfiðan malarleik gegn Þór Ak.
Mikið félagslíf
hjá Stjörnunni
ÍSLANDSMEISTARAR í 2. flokki stúlkna í knattspyrnu eru Stjömu-
stelpurnar úr Garðabæ og hafa þser byrjað titilvörn sína ágætlega í
sumar. Þœr hafa leikið þrjá leiki, unnið tvo en tapað einum. Um
seinustu helgi lóku þær við Þór frá Akureyri og báru sigur úr býtum,
2:0. Bæði mörkin voru sjálfsmörk sem komu eftir ágætar sóknir Stjöm-
ustúlknanna. Sigur Stjörnunnar f leiknum var sanngjarn, þær sóttu
mun meira en voru þó full æstar og náðu ekki að sýna eins áferðar-
fallega knattspyrnu og þær hafa oft sýnt áður.
Eftir leikinn við Þór voru Rakel
Birgisdóttir og Berglind Guðna-
dóttir teknar tali og voru þær fyrst
spurðar út í hinn nýliðna leik við
Akureyringana. „Þessi leikur var
erfiður á köflum sérstaklega þegar
þær náðu að pressa fram. Annars
kom það niður á gæðum leiksins
að við fengum ekki að spila á
grasinu. Á mölinni verður maður
alltaf hræddari því þaö er óþægi-
legt aö detta þar.
Rakel og Berglind voru mjög
ánægðar með félagslífið í Stjörn-
unni en um 16 stelpur æfa með
2. flokki og sögðust þær stundum
halda böll auk þess að hitttast oft
í veislum hver hjá annarri. „Svo
er náttúrlega líka gaman að æfa
og keppa í fótbolta," bættu þær
við til að fyrirbyggja að blaðamaður
héldi að það væru bara veislurnar
sem fengju þær til að leggja stund
á fótbolta.
Lára Eymundsdóttir og
Borghildur Sigurðardóttir
Ollum leikjum lokið íjúní
BÆÐI Akureyrarliðin KA og Þór eiga lið í keppni 2. flokks stúlkna á
íslandsmótinu f knattspyrnu f ár og er það vel. Þórsstelpurnar hafa
leikið alla sína leiki f sfnum riðli en keppni er ekki enn lokið þar
þannig að hver staða þeirra verður f riðlinum er ekki Ijóst ennþá.
Blaðamaður spurði þær Láru Eymundsdóttur og Borghildi Sigurðar-
dóttur hvernig það leggðist í þær að vera búnar með sína leiki í
riðlakeppninni svona snemma sumars.
„Þetta eru náttúrlega alltof fáir
leikir, liðin ættu frekar að vera í
einum riðli þannig að hvert lið fengi
fleiri leiki. Ef við komumst ekki í
úrslit er Akureyrarmótið það eina
sem við eigum eftir að keppa af
alvöruleikjum í surnar."
Viðtalið við Þórsstelpurnar var
tekið eftir tapleik þeirra gegn
Stjörnunni en það var fyrsti tapleik-
ur þeirra í mótinu. Daginn eftir áttu
þær að leika gegn KR. „Ef við
vinnum KR-ingana eigum við
möguleika á að lenda í efsta sæt-
inu í riðlinum og komast í úrslit,"
sögðu Lára og Jóna um möguleika
þeirra á íslandsmeistaratitli.
Um 20 stelpur æfa fótbolta í 2.
flokki Þórs og er þetta 3. sumarið
sem þær taka þátt í íslandsmótinu
og sögðu þær stöllur að fótbolti
væri frábær íþrótt, jafnvel
MorgunblaðiðA'IP
• Lára Eymundsdóttir og Borghlldur Sigurðardóttir virðast ekkert
niðurdregnar á þessari mynd þrátt fyrir að þær hafi verið nýbúnar
að bfða ósigur gegn Stjörnunni.
skemmtilegri en handboltinn sem
þær leggja líka stund.
Lengur var ekki stætt á að tefja
Akureyrarstelpurnar, daginn eftir
var erfiður leikur sem gat ráðið
úrslitum um hvort þær kæmust í
úrslit eða ekki auk þess sem þetta
verður sennilega eina keppnisferð
þeirra suður í sumar og margt
annað að gera en rabba við for-
vitna blaðamenn.
Knattspyrna:
Staðaní
yngri
flokkum
kvenna
3.fiokkur
IA 3 300 9:0 6
ÍBK4301 18:3 6
UBK6 302 45:5 6
Afturelding 4 20212:18 4
KR4103 6:28 2
FH 3 003 0:20 0
Stjaman 3 003 1:41 0
2.flokkur B-riðill:
ÞórA.5311 8:57
Stjaman 2 200 6:2 4
IA2101 3:12
KR 310211:8 2
FBK 3 021 2:5 2
KA 3 012 3:12 1
2.flokkur A-riðill:
UBK 440018:1 8
Týr 2 200 6:0 4
Valur 3 20112:54
Afturelding 4 20214:7 4
ÞórV.2101 1:22
FH 2 002 0:180
Fylklr 4 0041:26 0
• Bjöm Knútsson lók mjög vel,
fór fyrsta hringinn á 76 höggum,
naastu tvo á 72 höggum og þann
sfðasta á 74 höggum.
Björn Knútsson:
Sigraði í
drengja-
flokki
BJÖRN Knútsson GK er 14 ára
og hafði töluverða yfirburði f
drengjaflokki.
„Ég hef æft golf í 4 ár og spilað
víða en þetta er í fyrsta skipti sem
ég keppi í Vestmannaeyjum. Völl-
urinn hérna er mjög góður og sá
besti sem ég hef spilað á á fslandi.
Mér gekk eins og óg bjóst við og
er ánægður með árangurinn. Það
er alltaf gaman að keppa f golfi
og svo kynnist maður krökkunum
vel,“ sagði Björn.
Ragnhildur
Sigurðardóttir:
Sigraði
í stúlkna-
flokki
RAGNHILDUR Sigurðardóttir GR
hefur staðið sig vel á golfmótum
og sigraði örugglega f stúlkna-
flokki.
„Þetta er æðislegur völlur, alveg
meiriháttar. Ungu krakkarnir sem
eru að byrja stóðu sig mjög vel.
Þeir eru með faliegar sveiflur og
upphafshöggin hjá þeim eru svo
lótt og nett. Verst hvað fáar stelpur
voru með og ég hvet allar ungar
stúlkur til að fara í golf því þetta
er svo gaman," sagði Ragnhildur.
Morgunblaöið/Sfgurgeir
• Ragnhildur Slgurðardóttlr var
íslandsmeistari f fyrra og sigraðl
örugglega f stúlknaflokki á Ungl-
ingameistaramótinu f Eyjum.
• Karen Sævarsdóttir sigraði örugglega í telpnaflokki.
Sigraði í telpnaf lokki
KAREN Sævarsdóttir GS sigraði
f telpnaflokki með miklum yfir-
burðum. Hún er 13 ára og segist
alttaf hafa verið í golfi, byrjað
með eina kylfu og elt foreldrana
út á völl.
„Þetta er ofsalega skemmtileg-
ur völlur og það er gaman að spila
í hólum og hæðum. En ég er ekki
ánægð með árangurinn því óg
spilaði frekar illa. Samt er búið að
vera mjög gaman og maður kynn-
ist öðrum krökkum á svona mót-
um," sagði Karen.
Morgunblaðið/Sigurgeir
• Á unglingameistaramótinu voru ekki aldurstakmörk burðarsveina.
Húnbogi Jóhannsson gengur á undan afa sfnum, Húnboga Þorkels-
syni.
Best að spila í Eyjum
HÚNBOGI Jóhannsson GA er
13 ára og byrjaði 9 ára að leika
golf. „Herjólfsvöllur er besti
golfvöllur sem ég hef leikið á
og ég kem hingað á hverju
sumri f golf enda ættaður héð-
an.
Mór hefur gengið vel á mótum
í sumar en árangur minn hérna
var svipaður og ég bjóst við. En
ég ætla að standa mig enn betur
á Akureyrarmótinu," sagði Hún-
bogi.
Aðstoðarmaður Húnboga var
afi hans og nafni Þorkelsson.
Húnbogi eldri er 70 ára og hóf
að æfa golf fyrir 5 árum.
SigurðurJónsson:
Yngsti
keppandinn
SIGURÐUR Jónsson, Golfklúbbi
Grindavíkur, var yngsti keppand-
inn á mótinu, aðeins 10 ára
gamail. Hann sagðist hafa ákveð-
ið að fara á mótið þvf svo fáir
ætluðu frá Grindavfk „og ég sé
alls ekkl eftlr þvf.
Ég byrjaði í golfi 7 ára og fékk
strax mikinn áhuga og er bara í
þessu og engu ööru. En ég bjóst
við að falla úr keppni og við, ég,
mamma og pabbi, vorum búin að
panta okkur far heim, en svo
•Sigurður Jónsson er einbeittur
ásvip.
komst ég áfram og þá sagði ég
við mömmu að hún gæti farið heim
en ég færi ekki neitt."