Morgunblaðið - 06.07.1986, Side 60

Morgunblaðið - 06.07.1986, Side 60
Akureyri: Skurðgrafa rauf vatnsæð Akureyri í FYRRINÓTT fór í sundur vatns- æð við Norðurgötu með þeim af- leiðingum að mannhæðardjúpur skurður við suðurenda götunnar fylltist af vatni. Talsvert vatn rann inn í kjallara þriggja húsa við götuna og meðal annars flæddi upp um skólprör. Aðspurður um hvemig á þessu hefði staðið, sagði Hilmar Gíslason, bæjarverkstjóri, að þama hefði grafa verið að störfum á föstudag því skipta ætti um jarðveg í þessum hluta götunnar, og hefði hún líklega komið við vatnsæðina og rofíð hana. Afleið- ingamar hefðu síðan ekki komið fram fyrr en um nóttina. Hafbeitar- laxinn skil- ar sér vel HEIMTUR hjá hafbeitarstöðvum á landinu hafa verið góðar að undanfömu. 1.600 til 1.700 laxar höfðu skilað sér f stöðina í Kolla- fírði á miðvikudag og að sögn veiðimálastjóra munu heimtur hjá öðrum stöðvum vera góðar líka. Smálaxinn virðist snemma á ferð- inni. Slátrun er ekki hafin í nein- um mæli, þar sem menn huga að útflutningi á laxinum ferskum og bíða því þess, að meira af honum skili sér. Ámi ísaksson, veiðimálastjóri, sagði aðspurður í samtali við Morg- unblaðið, að hafbeitarstöðvamar ættu ekki að þurfa að óttast rýmun af völdum laxveiði í sjó hér við land, þar sem hún væri bönnuð. Nokkrar undantekningar væru þó frá bann- inu, en frá árinu 1932 hefðu nokkrir landeigendur leyfí til netaveiða í sjó, þar sem þær væru skráðar sem hlunnindi. Leyfum þessum hefði farið fækkandi að undanfomu enda hefðu þau sums staðar verið keypt upp við ár, þar sem laxveiði og seiða- sleppingar em stundaðar. Ámi sagði, að engin leyfi til netaveiða væru í grennd við hafbeitarstöðvam- ar. Heimsókn Danadrottningar: Sólrík ferð um Suðurland MARGRÉT Danadrottning og eiginmaður hennar, Henrik prins, heimsóttu Vestmanna- eyjar og Skaftafell í gær í fylgd Vigdísar Finnbogadóttur, for- seta, og fylgdarliði og gistu á Egilsstöðum í nótt. 1 dag var áætlað að heimsækja Borgar- fjörð eystri áður en haldið yrði til Reykjavíkur. Ef veður haml- ar þeirri ferð, var fyrirhugað að heimsækja Höfn í Hornafirði þess í stað. Veður var bjart og fagurt í gær, en nokkur vindstrekkingur af norðri. í Vestmannaeyjum tóku meðal annarra á móti hinum tignu gestum starfandi bæjarfógeti, Þorgeir Örlygsson, Ragnar Óskarsson, forseti bæjarstjómar SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Tekið á móti tignum gestum í Vestmannaeyjum. Morgunbiaðií/Sigurgeir og Páll Zophoníasson, bæjarstjóri. Síðan var farið í skoðunarferð um Heimaey. Að loknum hádegisverði var síðan flogið til Fagurhólsmýr- ar, en þar tók Páll Bjömsson, sýslumaður, á móti gestunum sem síðan skoðuðu þjóðgarðinn í Skaftafelii. Síðdegis var haldið til Egilsstaða þar sem Bogi Nilsson, sýslumaður, tók á móti fólkinu og að lokum var kvöldverður snæddur í Valaskjálf og gist þar um nóttina. Að lokinni heimsókninni á Austfírði verður í dag haldið til Reykjavíkur og í kvöld bjóða Matthías Á. Mathiesen, utanríkis- ráðherra, og kona hans, Sigrún Þ. Mathiesen, til kvöldverðar. Á mánudag er áætlað að Henrik prins renni fyrir lax í Elliðaám ásamt Davíð Oddssyni, borgar- stjóra, en drottningin mun skoða Þjóðminjasafnið. Loks verður há- degisverður snæddur í boði borg- arstjóra, en síðdegis halda gest- imiraflandibrott. Siglufirði: Snjór nið- ur undir si'ó Siglufírði. ÞEGAR Siglfirðingar litu út í gærmorgun hafði snjóað um nóttina og var alhvítt yfir að Hta niður undir sjó. Þarna sannaðist enn, að skjótt skipast veður norður undir heimskautsbaug, því um síðustu helgi komst hitinn í 25 gráður á Sigluf irði. Norðmenn vilja kaupa 60 tonn af kjúklingakjöti FÉLAGI kjúklingabænda og Framleiðsluráði hefur borist fyrirspurn frá Noregi um sölu á 50 til 60 tonnum af kjúklinga- kjöti á markað þar. Málið er nú til athugunar í norska Land- búnaðarráðuneytinu varðandi innflutningsleyfi en öll tilskilin útflutningsleyfi af hálfu ís- lenskra yfirvalda eru fyrir hendi. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins mun umrætt magn af kjúklingakjöti vera til hjá fyrir- tækinu Hreiður hf., sem framleiðir undir vörumerkinu Isfugl. Morg- unblaðið hafði samband við Jón Guðmundsson, bónda á Reykjum og varaformann stjómar Hreiðurs hf., og staðfesti hann að viðræður hefðu átt sér stað við forráðamenn fyrirtækisins varðandi þessi við- skipti en ekki hefði verið gengið frá samningum. Jón sagði enn- fremur að nokkur óvissa væri um verð á kjúklingakjötinu og taldi að til að geta boðið verð sem Norðmenn sættu sig við, þyrfti að koma til niðurfelling á inn- flutningstollum og fóðurbætis- gjaldi á fóðri. „En það er rétt, að við eigum til þetta magn í frystihúsinu og getum því flutt kjötið út undir einu vörumerki," sagði Jón. „Norðmenn hafa fram til þessa keypt talsvert af kjúklingakjöti frá Svíum, en vegna skorts á þessari vöru þar nú hafa þeir snúið sér til okkar. Ég hef trú á þessum viðskiptum og held áð þau gætu orðið til góðs fyrir alla aðila og ef af þessari sölu verður mun það létta á kjötmarkaðinum hér heima."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.