Morgunblaðið - 13.08.1986, Qupperneq 1
56 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
178. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 13. AGUST 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Persaflóastríðið:
Olíuhöfnin á Sirri-
eyj u í ljósum logum
Manama, Bahrain, AP.
FLUGSVEITIR frá írak gerðu
loftárásir á olíuhöfn írana á
Sirri-eyju. Talið er að 12 sjó-
menn hafi farist. Þetta er í
fyrsta skipti sem Irakar gera
árás á Sirri-eyju frá því Persa-
flóastríðið hófst fyrir tæpum
sex árum. Fáeinum klukkstund-
um áður skutu íranir öflugu
flugskeyti á Bagdad, höfuðborg
íraks, en að sögn íraka oili það
litlum skemmdum.
Með þessari árás hafa írakar
sýnt að flugvélar þeirra geta ráðist
á hvaða skotmark sem er á strand-
lengju Irana við Persaflóa.
Miklir eldar kviknuðu í þremur
risaolíuskipum frá íran, Grikklandi
og Hong Kong og olíumannvirki
stóðu í björtu báli.
Árið 1984 hófu írakar að gera
Tveir tamílanna ganga frá borði í St. John’s á Nýfundnalandi en
þangað flutti skip kanadísku strandgæsiunnar fólkið.
Tamílar finnast á reki við Nýfundnaland:
Bátafólkið við
góða heilsu
St. John’s, Nýfundnalandi, AP.
152 TAMÍLAR frá Sri Lanka
fundust á reki í tveimur björg-
unarbátum undan ströndum
Nýfundnalands í fyrrinótt. Hver
um sig hafði borgað indversku
fyrirtæki allt að 5 þúsund
Bandaríkjadali, um 200 þúsund
íslenskar krónur, fyrir að vera
smyglað til Kanada. Þeir sögð-
ust vera að flýja ofsóknir á Sri
Lanka en þar hafa lengi geisað
heiftarlegir bardagar svo sem
kunnugt er af fréttum.
Nafn skipsins hafði verið skrap-
að af björgunarbátunum þannig
að ekki er vitað hveijir tóku að sér
að flytja flóttafólkið inn í landhelgi
Kanada. Mikil þoka er nú á þessum
slóðum en að sögn talsmanna
kanadíska flughersins verður leit
hafin að skipinu strax og henni
léttir.
Að sögn kanadísku lögreglunnar
yfirgáfu tamílarnir Indland 7. júlí.
Ekki er vitað hvemig fólkið komst
frá Sri Lanka til Indlands. Fólkið
sagðist hafa verið fimm sólar-
hringa í björgunarbátunum en
lögreglan telur það ákaflega ótrú-
legt.
I fyrri fréttum af atburði þessum
var sagt að fólkið væri blautt og
hrakið en talsmenn lögreglunnar
sögðu að fólkið hefði þvert á móti
verið vel klætt og að það hefði
greinilega ekki þurft að þola vos-
búð.
Engir flóttamannanna höfðu
vegabréf meðferðis en nokkrir
þeirra voru með kanadíska dollara.
Eftir læknisskoðun vom átta
fluttir í sjúkrahús en sagt var að
líðan fólksins væri yfir höfuð góð.
árásir á Kharg-eyju, mikilvægustu
olíuhöfn írana. Iranir breyttu þá
Sirri-eyju í olíuhöfn og era loft-
varnir þar mjög öflugar.
Á síðasta ári beitti Perez de
Cuellar, aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna, sér fyrir samkomulagi á
milli hinna stríðandi nágrannaríkja
þar sem þau skuldbundu sig til að
ráðast ekki gegn borgum eða öðr-
um skotmörkum sem ekki teldust
hemaðarlega mikilvæg.
Arabískir og vestrænir sendi-
menn sögðust vænta þess að Iranir
myndu nú taka upp harðar eld-
flaugaárásir á borgir í írak.
Afganistan:
Eldflaugaárásir
á höfuðborgina
Islamabad, Pakistan, AP.
AFGANSKIR skæruliðar gerðu eldflaugaárás á sendiráð Póllands
og Sovétríkjanna í Kabúl, höfuðborg Afganistans, að því er vestræn-
ir sendimenn sögðu í gær. Ennfremur var sagt að skæruliðar hefðu
fellt 400 sljórnarhermenn í hörðum bardögum norður af Kabúl
síðasta mánuðinn.
Á föstudag gerðu skæraliðar
eldflaugaárás á pólska sendiráðið
í Kabúl og varð fjarskiptaherbergi
þess fyrir miklum skemmdum.
Sama kvöld var gerð eldflaugaárás
á sovéska sendiráðið, sem hefur
aðsetur í stórri byggingu í borg-
inni.
Skæraliðar hafa skotið a.m.k.
30 eldflaugum að Kabúl síðustu
vikuna. Að sögn hinna vestrænu
sendimanna hæfðu eldflaugar
þeirra háskóla borgarinnar, hem-
aðarmannvirki og íbúðarhús.þar
sem sovéskir embættismenn
bjuggu.og ollu miklum skemmd-
um.
Sendimennimir sögðu skæraliða
að undanfömu hafa gert árásir á
höfuðborgina á hveiju kvöldi og
að þeir beittu nú nýjum 122 m.m.
eldflaugum sem væru mun öflugri
en þær sem þeir hefðu áður ráðið
yfír.
BERLINARMURINN I ALDARFJORÐUNG
Bcrlin, AP.
Berlínarmúrinn, eitthvert
kunnasta og illræmdasta mann-
virki í heimi, er 25 ára í dag.
Hefur þess verið minnst víða um
heim og í dag munu þeir Hel-
mut Kohl, kanslari V-Þýska-
lands, og Willy Brandt,
formaður Jafnaðarmanna-
flokksins, flytja ræður í þýska
rikisdeginum af þessu tilefni.
Kommúnistastjórnin í Austur-
Þýskalandi ætlar líka að
minnast tímamótanna og hefur
skorað á fólk að ganga um Aust-
ur-Berlín „til stuðnings við
múrinn“.
Það var að morgni dags 13.
ágúst árið 1961 sem a-þýskir her-
menn girtu Austur-Berlín af með
múrvegg og gaddavírsgirðingu til
að koma í veg fyrir stórkostlegan
flóttamannastraum til vesturhluta
borgarinnar. Síðan hafa 74 menn
látið lífið við flóttatilraunir, orðið
fórnarlömb drápsgildranna eða
verið skotnir til bana af a-þýskum
hermönnum. Nærri 5.000 manns
hefur þó tekist að ná heilu og
höldnu vestur yfir.
I austur-þýskum fjölmiðlum var
í gær skorað á Austur-Berlínarbúa
að taka í dag þátt í göngu „til
stuðnings við múrinn . . . þetta
vamarvirki gegn fasismanum".
Erich Honecker, leiðtogi a-þýskra
kommúnista, ætlar að ávarpa
göngumenn en göngunni lýkur
með hersýningu á Karl-Marx-
stræti.
Horst Schumm, frammámaður
í mannréttindasamtökum í
V-Berlín, sagði um gönguna fyrir-
huguðu í A-Berlín, að hún væri
„óhugnanleg". „Frá sjónarhóli
a-þýskra kommúnista hlýtur hún
hins vegar að vera ofur eðlileg,"
sagði hann.
Sjá ennfremur grein:
„Minnisvarði mannfyrir-
litningar" á bls. 24—26.
Líbanon:
Friðar-
gæslumenn
særast
í átökum
Beirút, París, AP.
FRANSKA varnarmálaráðu-
neytið lýsti yfir því í gær að
þrettán franskir hermenn,
sem eru í friðargæslusveit-
um Sameinuðu þjóðanna í
Líbanon, hefðu særst í skot-
bardaga við þjóðvarðliða
amal-shíta. Talsmenn Sam-
einuðu þjóðanna segja að
sautján Frakkar hafi særst
og þrír shítar beðið bana í
átökunum í suðurhluta
Líbanon.
Timur Goksel, talsmaður Sam-
einuðu þjóðanna í Líbanon, sagði
að þetta væra alvarlegustu átök,
sem friðargæslusveitirnar hefðu
lent í síðan Israelar kölluðu megn-
ið af hersetuliði sínu heim frá
Suður-Líbanon 6. júní, 1985.
Vopnahléi var lýst yfir skömmu
eftir að Nabih Berri, dómsmála-
ráðherra og leiðtogi amal-shíta,
sem er í opinberri heimsókn í
Damaskus, gaf út yfirlýsingu um
að skotbardaganum við frönsku
friðargæslumennina yrði hætt, að
því er sagði í fréttum útvarps-
stöðva múhameðstrúarmanna í
Beirút.