Morgunblaðið - 13.08.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
43
Frumsýnir grínmyndina
VILLIKETTIR
Splunkuný og hreint frábær grinmynd sem alls staðar hefur fengið góða
umfjöllun og aðsókn, enda ekki að spyrja með GOLDIE HAWN við stýrið.
WILDCATS ER AÐ NÁ HINNI GEYSIVINSÆLU MYND GOLDIE HAWN,
„PRIVATE BENJAMIN", HVAÐ VINSÆLDIR SNERTIR. GRINMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA.
Aðalhlutverk: Goldie Hawn, James Keach, Swooshl Kurtz, Brandy Gold.
Leikstjóri: Michael Ritchie.
MYNDIN ER í DOLBY STEREO OG SÝND ( 4RA RÁSA STARSCOPE. „
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Hækkað verð.
LÖGREGLUSKÓLINN 3:
AFTUR í ÞJÁLFUN
Blaðaummæli: „ÖFUGT VIÐ FLESTAR
FRAMHALDSMYNDIR ER L-3 BETRI
SKEMMTUN EN FYRIRRENNARARN-
IR“. S.V. Morgunblaðið.
„SÚ BESTA OG HEILSTEYPTASTA
TIL ÞESSA“. Ó.Á. Helgarpósturinn.
Aðalhlutverk: Steve Guttenberg,
Bubba Smith.
Leikstjóri: Jerry Paris.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
-YmamBLmm
Sýnd kl. 5og7.
972 VIKA
Sýnd kl.9og11.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
SKOTMARKIÐ
★ * Mbl.
ALLTÍHÖNK
Her dream was to coach high school football.
Her nightmare was Central High.
Sýnd kl. 5,9og 11.
ÚTOGSUÐURÍ
BEVERLY HILLS
*** Morgunblaðlð ★ ★ * D.V.
Sýndkl. 5,7,9og 11.
Sýnd kl. 7.
Metsölublað á hverjum degi!
Háskólabíó:
Frumsýnir
„Martröð
áþjóð-
veginum“
HÁSKÓLABÍÓ frumsýndi nýver-
ið kvikmyndina „Hitcher", eða
Martröð á þjóðveginum. Leik-
stjóri er Robert Harmon. I
aðalhlutverkum eru Rog-er Hau-
er, C. Thomas Howell og Jenni-
fer Jason Leight.
Í fréttatilkynningu frá kvik-
myndahúsinu segir að myndin fjalli
um dreng að nafni Jim sem tekur
að sér að ferja bíl frá Chicago til
vesturstrandar Bandaríkjanna.
Þegar hann álpast til að veita
ókunnum puttaferðalangi far með
bílnum, hefst ógnþrungin atburða-
rás. Ókunni maðurinn hefur í
hótunum og segist hafa myrt fólk
á förnum vegi. Jim tekst að losa
sig við farþegann, en viðskiptum
þeirra er ekki lokið.
Arkitektafélag íslands:
Nemar sýna í
Ásmundarsal
ARKITEKTAFÉLAG Islands
heldur um þessar mundur sýn-
mgu á verkum arkitektanema í
Ásmundarsal við Freyjugötu.
I fréttatilkynningu frá félaginu
segir að 11 nemar eigi verk á sýn-
ingunni. Henni lýkur 17. ágúst.
Sýningin er opin virka daga kl.
9.00-16.00, og 17.00-21.00. Um
helgarer húnopin kl. 14.00-21.00.
Jón Olgeirsson
Magni Kristjánsson
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu í vinnslu Morgun-
blaðsins í gær að nafn misritaðist
í myndartexta. Magni Kristjánsson
var sagður Jón Olgeirsson ræðis-
maður í Grimsby. Hér eru þeir báðir
og með réttum myndartexta.
Stórbrotin og spennandi mynd um fjárhirðinn unga sem sigraöi risann Goli-
at, vann stórsigra í orrustum og gerðist mestur konunga.
Aðalhlutverk: Richard Gere, Edward Woodward, Alice Krige.
Lelkstjóri: Beuce Beresford.
Sýnd kl. 3,6.20,9 og 11.16.
Bönnuð innan 12 ára.
INÁVÍGI
★ ★ ★ 'h Weekend Plus.
★ ★ ★ Mbl. A.I.
★ ★ ★ HP. S.E.R.
Aöalhlutverk: Sean Penn (Fálkinn og
snjómaðurinn) og
Christopher Walken (Hjartarbaninn).
Leikstjóri: James Foley.
Sýndkl.3,5,7,9 og 11.15.
Bönnuð innan 16 ára.
□□ I DOLBY STERÍÖ1
2Í6T-
Myxidin cn cvii»w.
hlaut 6 Mynd sem kemur öllum í gott skap...
Ott-óskara. Aðalhlutverk: Ottó Waalkes.
Leikstjóri: Xaver Schwaezenberger.
Afbragðsgóður farsi ★ ★ ★ HP.
Sýnd kl. 3.10,5.10,7.10,9.10 og
11.10.
★ ★ ’/> Ágæt spennumynd Mbl.
A.I.
Sýnd kl. 3.05,5.05,7.05,9.05 og
11.05.
Bönnuö innan 14 ára.
ELSKUHUGAR LAFÐI
Y
hinni frægu sögu D.H. Lawrence.
Aðalhlutverkið leikur hin fræga kyn-
bomba Silvia Kristel ásamt Nicholas
Clay.
Endursýnd kl. 3.15,5.15,7.16,9.15
og 11.15.
Bönnuö innan 16 ára.
MORÐBRELLUR
Hæðarbreytingar við Kröflu
Hallabreytingar komu fram á
tveimur hallamælum við Kröflu
sl. sunnudag, sem bentu til hæð-
arbreytinga á landi. Breyting-
anna varð vart i skamma stund
og voru ekki ýkja miklar að sögn
Axels Björnssonar jarðeðlisfræð-
ings.
Annar mælirinn er við Kröflu-
virkjun en hinn við Litla Leirhnjúk
og er hér um að ræða síritandi
hallamæla sem Norræna eldfjalla-
stöðin rekur á þessum slóðum.
Erfitt var að greina óróa af skjálfta-
mælum og varð ekki vart við
jarðskjálfta. „Yfirleitt kemur fram
greinilegur órói á mælum þegar
einhver kvika er á hreyfingu en
þama var ekki um slíkt að ræða,“
sagði Axel. Hann taldi ekki ástæðu
til að ætla að þama hafi verið um
fyrirboða að stærri viðburði að
ræða. „Þegar um jarðskjálftahryn-
ur er að ræða hefur það ekki farið
á milli mála. Síðustu tíu árin hefur
verið hægt að sjá fýrir öll eldgos á
Kröflusvæðinu með nokkurra
klukkutíma fyrirvara með því að
fylgjast með mælum," sagði Axel.
Námskeið um þrauta-
lausnir í raungreinum
NÚ í ágúst er væntanlegur hing-
að til lands, prófessor Moshe
Rubinstein frá University of Ca-
lifornia í Los Angeles. Hann
kemur hingað á vegnm endur-
menntunarnefndar Háskólans,
Félags raungreinakennara og
Menningarstofnunar Banda-
ríkjanna. Erindi hans er að halda
námskeið um aðferðir sem hann
hefur þróað við þrautalausnir,
einkum í raimgreinum, og hag-
nýtingu þeirra við kennslu.
Námskeiðið verður haldið í hús-
næði Háskólans dagana 19.-29.
ágúst og er það einkum ætlað kenn- ^
urum í raungreinum, en er einnig
opið öllum þeim sem vilja kynna sér
nýjustu aðferðir við þrautalausnir.
Skráning þátttakenda fer fram á
aðalskrifstofu Háskólans í síma
25088. Nánari upplýsingar veitir
endurmenntunarstjóri í síma 23712.