Morgunblaðið - 13.08.1986, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
3
Unnið að
vegagerð
í Ólafs-
fjarðar-
múlanum
UNNIÐ er af kappi að vega-
gerð í Ólafsfjarðarmúla gegnt
Látraströnd austan Eyjafjarð-
ar.
Vegurinn fyrir Múlann er talinn
með hættulegustu vegum landsins
og er í hópi svonefndra O-vega.
Vegurinn fyrir Ólafsvíkurenni
hefur verið lagfærður en vegimir
fyrir ÓlafsQarðarmúla og Öshlíð
við Bolungarvík eru enn í hópi
hættulegustu vega, fyrst og
fremst vegna hruns og snjóflóða-
hættu.
Á langtímaáætlun Vegagerðar-
innar er gert ráð fyrir þriggja
kílómetra löngum göngum í gegn-
um Ólafsfjarðarmúlann. Fram-
kvæmdir eru ekki hafnar við þau
göng enda hefur ekkert fjármagn
fengist enn til þess verks.
Þær framkvæmdir sem nú er
unnið að í Múlanum eru einungis
nauðsynlegar viðhaldsfram-
kvæmdir. Hér er verið að byggja
upp veginn og leggja ræsi. Notað-
ar eru stórvirkar vélar til verksins.
Morgunblaðið/Snom' Snorrasson
Öræfin:
Austurlands-
veg’urinn opnað-
ur í gærmorgun
Austurlandsvegur í Öræfa-
sveit opnaðist á ný um klukkan
átta í gærmorgun. Hann hafði
þá verið ófær á kafla vegna
vatnavaxta í réttan sólarhring.
Að sögn Sigurðar Hauksonar, vega-
eftirlitsmanns, unnu þrír litlir vinnu-
flokkar sleitulaust að lagfæringunum
frá því á mánudag og fram á þriðju-
dagsmorgun. Erfiðast reyndist að
hemja Kotána sem braut af sér varnar-
garða og rauf stórt skarð í veginn.
Það getur orðið tímafrekt og kostn-
aðarsamt að koma veginum í samt
horf. Sigurður sagði að mikið verk
væri fyrir höndum, því viðgerðin í gær
er aðeins til bráðabirgða.
Nýbygging Alþingis:
Þrenn verðlaun
veitt og fimm
tillögur keyptar
DÓMNEFND í samkeppni um
gerð og skipulag nýbyggingar
fyrir starfsemi Alþingis hefur
nú lokið störfum. Akveðið er að
veita þrenn verðlaun og auk þess
kaupa fimm tillögur.
Samkeppnin var auglýst í febrúar
síðastliðnum og var skilafrestur til 12.
júní sl. Alls bárust 25 tillögur. Sýning
á tillögum um nýbygginguna verður
haldin í Listasafni Háskóla íslands í
Odda. Verðlaunaafhendingin ogopnun
sýningarinnar verður í dag, miðviku-
dag, klukkan 17.00. Samdægurs
verður sýningin opin almenningi frá
klukkan 20.00 til 22.00. Sýningin mun
síðan standa yfir til 20. ágúst daglega
frá klukkan 14.00 til klukkan 22.00.
Tómas Guðmundsson,
Þín er borgin björt af gleði./ Borgin heit af vori og sól./ Strætin syngja. Gatan glóir./ Grasið vex á Arnarhól. úr kvæðinu Hanna litla.