Morgunblaðið - 13.08.1986, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
5
Sumarstemmning við Grímsá í Borgarfirði, lengst til hægri má
sjá hringi eftir lax sem lyfti sér og veiðimaður beinir löngum
fluguköstum á staðinn.
Glæðist í Þverá
„Þetta var orðið ansi dauft
þessa 10-15 daga sem sólin skein
í heiði, áin orðin vatnslaus að
kalla og laxinn tregur. Það reytt-
ist alltaf eitthvað á land, en það
var lítið. Eftir rigninguna að und-
anfömu hefur veiði glæðst og áin
er orðin eðlileg að vatnsmagni á
ný,“ sagði Halldór Vilhjálmsson
kokkur í veiðihúsinu við Þverá í
samtali við Morgunblaðið í gær-
dag, en þá var hópur að fara úr
ánni með 54 laxa eftir þrjá daga.
„Þeir sem hættu á Fjallinu fengu
62 laxa og þar er sagður mikill
lax,“ bætti Halldór við.
Fyrstu Islendingamir sem
veiddu í Kjarránni eftir útlend-
ingatímann fengu 105 laxa á
þremur dögum og var sú veiði
bæði tekin á flugu og maðk. Alls
eru nú komnir 952 laxar á land
úr Kjarrá og 890 úr Þverá, eða
samtals 1842 úr ánni í heild, hún
er því í öðru sæti á eftir Laxá í
Aðaldal sem gefið hefur um 2.300
laxa. Um stórgöngur er ekki að
ræða þessa dagana, það reytast
upp nokkrir lúsugir fískar annað
veifið, þrír í fyrradag t.d., aflinn
er því aðallega tekinn úr þeim
laxatorfum sem gengu upp fyrr í
sumar. Það er þó mál manna, að
af nógu sé að taka og það sé
sýnu meira af honum í efri ánni,
Kjarránni, heldur en í neðri ánni,
Þveránni. Stærsti laxinn til þessa
var „aðeins" 19,5 pund og væri
það saga til næsta bæjar ef
Þverá/Kjarrá næði ekki að skila
svo mikið sem einum 20-pundara
á þessu mesta stórlaxaári seinni
ára. Stórboltar, 20 punda og upp
úr, hafa veiðst í ótrúlegustu ám,
en ekki í Þverá/Kjarrá, sem löng-
um hefur þótt vera með einn
stærsta og fallegasta laxastofn
landsins.
Líflegt í Laxá
í Dölum ...
Geysigóð veiði hefur verið í
Laxá í Dölum í sumar og þar eru
nú komnir um 1.170 laxar á land,
en í fyrra veiddust 1.600 og þótti
með ólíkindum gott. Ætti aflinn
að geta orðið enn meiri í sumar,
sérstaklega ef vætuveður af og
til tryggir nægilegt vatnsmagn.
Mikill lax er sagður í ánni, bæði
stór og smár, og enn bólar á ný-
runnum göngufiskum. Þeir
stærstu til þessa vógu 22 pund,
en menn telja sig hafa séð stærri
dreka í ánni og vonast til að ein-
hverjir þeirra missi þolinmæðina
á næstu dögum og bíti banabit-
ann.
Hrútan stefnir í met
Hrútafjarðará er nú alveg við
það að fara fram úr metveiði sinni
frá síðasta sumri, er 345 laxar
veiddust þar á tvær stangir. Síðast
er Morgunblaðið hafði spurnir af
aflabrögðum, höfðu veiðst þar um
320 laxar og mikill fiskur var í
ánni, eitthvað í flestum hyljum
og mjög mikið víða. Stærstu lax-
amir í Hrútunni í sumar hafa
vegið 20-22 pund.
Djúpvegur á Stein-
grímsfjarðarheiði:
Lægsta
tilboðið
kom frá
Hetti sf.
SJO verktakafyrirtæki gerðu til-
boð í lagningu 5,6 km vegarkafla
af Djúpvegi um Steingrímsfjarð-
arheiði. Lægsta tilboðið var frá
Hetti sf. og Kristjáni Guðmunds-
syni og var aðeins um 64% af
kostnaðaráæthm Vegagerðar-
innar.
Tilboð Hattar var 11.975 þúsund
kr., en kostnaðaráætlun Vegagerð-
arinnar 18.692 þúsund. Tvö önnur
tilboð vom undir áætlun en þijú
yfir kostnaðaráætlun, það hæsta
22,3 milljónir en nærri helmingi
hærra en tilboð Hattar.
Sjö tilboð bárust einnig í lagn-
ingu 2,2 km af Barðastrandarvegi
um Ósafjörð í Patreksfírði. Lægsta
tilboðið var frá Úlfari Önundarsyni,
6.296 þúsund kr. sem er 81,7% af
kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar.
Kostnaðaráætlunin hljóðaði upp á
7.708 þúsund krónur og voru tvö
tilboðanna yfir henni, það hæsta
8,6 milljónir kr.
Heimsmeistaramót
unglinga í skák:
Þröstur með
4V2 vinning
ÞRÖSTUR Þórhallsson gerði í
ga*r jafntefli við Danann Lars
Bo Hansen á heimsmeistaramóti
unglinga sem fram fer í Gaus-
dal í Noregi. Þröstur hefur
því 4>/2 vinning að afloknum 8
umferðum en alls verða tefldar
13 umferðir.
Efstir og jafnir eru Zuniga frá
Perú og Bareev frá Sovétríkjunum,
báðir með 6V2 vinning. Hellers frá
Svíþjóð er í þriðja sæti með 6 vinn-
inga.
Alþjóðlegu móti unglinga yngri
en 16 ára í Gausdal lauk í gær og
hlaut Sigurður Daði Sigfússon 5
vinninga í þeim 7 umferðum sem
tefldar voru og lenti hann í öðru
til sjötta sæti, en sigurvegarinn var
frá Finnlandi, Joose Norri að nafni,
og fékk hann hálfum vinningi
meira en Sigurður Daði.
*«»£$**
SUZUKI
SVEINN EGILSSON HF.
Skeifan 17 - Sími 685100
Swiftinn er til afgreiðslu strax:
Suzuki Swift
Suzuki Swift
Suzuki Swift
Suzuki Swift
3d.5gíra Kr. 319.000.
3d.Sjálfsk.Kr. 351.000.
5d.5gíra Kr. 343.000.
5d.Sjálfsk.Kr. 371.000.
Opið virka daga frá kl. 9-18
laugardaga f rá kl. 10 -17
Suzuki Swift er lipur, snöggur og
snar í snúningum. Er það ekki það
sem skiptir máli í erfiðari borgarum-
ferð? Svo er hann líka ótrúlega rúm-
góður. Komdu og reynsluaktu Suzuki
Swift og við ábyrgjumst að þú verður
ekki fyrir vonbrigðum.