Morgunblaðið - 13.08.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
17
Hallgrímur Sveinsson
nefnilega miklu einfaldari en menn
gætu ætlað að óreyndu.
Svo vill til, að heimamenn og
alþingismenn Vestfjarða hafa horft
á það aðgerðalitlir næstliðin ár að
Héraðsskólinn á Núpi hefur drabb-
ast niður og varð nánast sjálfdauður
í vor. Sagt er að nota eigi næsta
vetur til að dytta þar að húsum og
var í sjálfu sér ekki vanþörf á. Grun-
ur margra er þó sá, að leggja eigi
staðinn alfarið niður sem slíkan og
væri það illa farið. Núpur er forn-
frægur staður. Þar var til skamms
tíma miðstöð fræðiiðkana á Vest-
fjörðum. Þar hafa margir góðir
skólamenn gert garðinn frægan og
mikil uppbygging húsakosts átt sér
stað. En enginn lifir á fornri frægð
einni saman og heldur ekki Núpur
nema eitthvað annað komi þar einn-
ig til.
Nú er það tillaga mín, að Vest-
firðingar slái tvær flugur í einu
höggi í þessu máli eins og stiuidum
áður. Næsti vetur verði not\aður,
ekki bara til að dytta að húsum á
Núpi, heldur verði húsakostur stað-
arins tekinn rækilega í gegn og
innbú endumýjað. Síðan verði þegar
næsta sumar sett á stofn Eddu
hótel í húsakynnum skólans, en þar
má með hægu móti taka á móti
allt að hundrað manns í gistingu
og mun fleiri í mat og drykk í
matsal sem til skamms tíma var
talinn hinn besti á Vestfjörðum og
handtekinn þann 5. júlí 1985 ásamt
ijölda annarra sem reynt höfðu að
taka þátt í hátíðahöldum í tilefni
af stofnun lýðveldisins. Margir
þeirra sem handteknir voru til-
heyrðu samtökunum Assoeiation
des fils de chouada, sem eru sögð
vinna að því að hjálpa íjölskyldum
þeirra sem urðu fómarlömb frels-
isstríðsins, en samtök þessi hvöttu
mjög til þátttöku í hátíðahöldunum.
Margir meðlima Mannréttindasam-
taka Alsír voru einnig handteknir,
og fleiri af meðlimum þessara
tveggja samtaka vom handteknir
síðar í mánuðinum og seinna um
haustið. 15.—19. desember voru
Fennoune Rachid og 22 aðrir
ákærðir fyrir öryggisréttinum í
Medea um aðild að samtökum sem
ekki hafa hlotið tilskilið leyfi, þátt-
töku í ólöglegum samkomum, og
fyrir að dreifa flugritum. Enginn
var sakaður um að beita eða hvetja
til ofbeldis. Fennoune Rachid hlaut
2 ára dóm, og er í Blida-fangelsinu.
AI hefur tekið að sér mál allra fang-
anna, og telur þá vera í fangelsi
fyrir það eitt að notfæra sér sjálf-
sögð mannréttindi.
Þeir sem vilja leggja málum þess-
ara fanga lið, og þá um leið
mannréttindabaráttu almennt, eru
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við skrifstofu Islandsdeildar
Amnesty, Hafnarstræti 15,
Reykjavík. Þar fást nánari upplýs-
ingar sem og heimilisföng þeirra
aðila sem skrifa skal til. Einnig er
veitt aðstoð við bréfaskriftir ef ósk-
að er.
þótt víðar væri leitað. Eddu hótelið
á Núpi myndi þjóna miðhluta Vest-
fjarða og taka á móti langdvalar-
gestum. Auðvitað yrði þetta allt
myndarlega úr garði gert og þó án
íburðar líkt og tíðkast með sam-
bærilegar stofnanir vítt og breitt
um ísland. Haustið 1987 verði svo
aftur hafið skólahald á staðnum af
endurnýjuðum krafti í betrumbætt-
um húsakynnum.
Til að þetta megi takast, verða
heimamenn sjálfir að hafa forystu
og frumkvæði. Fyrir nokkrum miss-
erum var skólinn í Reykjanesi að
veslast upp fyrir augum manna.
Þar var vöm snúið í sókn og er nú
flest þar í blóma. Líkt og í Reykja-
nesi þarf nú einnig að snúa vöm
og undanhaldi í sókn á Núpi. Verð-
ur ekki öðm trúað en Vestfirðingur-
inn Sverrir Hermannsson og
ráðuneyti hans leggi hönd á þennan
plóg undir skynsamlegri forystu
heimamanna.
Höfundurbýrá Hrafnseyri við
Arnarfjörð.
4 4 /\/%Auglýsingar 22480
| 1 "OO 83033
ERTU AÐ FARAST
ÚR ÞORSTA?
BJARGAÐU ÞÉR!
.... AHHHHHH!