Morgunblaðið - 13.08.1986, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, sótti Berlin heim í júní
1963, tæpum tveimur árum eftír að múrinn var reistur. Þá flutti
hann fræga ræðu, þar sem hann sagði meðal annars: „Ég er Berlínar-
búi“ og vildi þannig undirstrika samstöðu hins fijálsa heims með
Berlínarbúum. Með honum á myndinni eru Konrad Adenauer kan?1-
ari, Willy Brandt þáverandi borgarstjóri Berlínar og Rainer Barzel.
Ekki hugsað í 2000 ár
Ummerki valdsins eru greinileg
fyrir austan, lögregla og vopnaðir
hermenn. Sé gengið inn í bókabúð
má komast að raun um það að
hugmyndasaga Vesturlanda ein-
skorðast við marxísk fræði. Ein-
_ staka bók eftir Hegel er í
bókahillunum, en svo er eins og
ekki hafi verið hugsað á Vestur-
löndum í tvö þúsund ár eða frá því
Fom-Grikkir voru og hétu.
Það eru engin sjáanleg merki
þess að múrinn hverfi í náinni
framtíð. Þvert á móti eru austur-
þýsk yfirvöld þeirrar skoðunar að
„hættan í vestri" sé ennþá fyrir
hendi og múrinn verði því að vera.
Erich Honecker, núverandi leiðtogi
austur-þýska kommúnistaflokksins,
hafði yfirumsjón með byggingu
múrsins á sínum tíma, en hann var
þá yfirmaður öryggislögreglunnar
í landinu. 10. janúar í ár sagði hann
við bandaríska þingmenn, sem
heimsóttu Austur-Þýskaland:
„Múrinn mun standa jafn lengi og
þau skilyrði sem leiddu til bygging-
ar hans era fyrir hendi." Hann
bætti við að ástandið hefði batnað
frá árinu 1961 er múrinn var reist-
ur, en ekki nóg til þess að hann
yrði rifínn niður.
Múrínn bjargaði
fríðnum
Á 24 ára afmæli austur-þýska
kommúnistaflokksins stóð í mál-
gagni flokksins, Nýju Þýskalandi,
eftirfarandi: „Aðgerðimar 13.
ágúst 1961 bundu enda á að farið
væri ránshendi um Þýska alþýðu-
lýðveldið og það mergsogið af
efnislegum gæðum og hæfíleika-
fólki. Það er Evrópu í hag að 13.
ágúst var friðnum bjargað."
Afstaða fólks, einkum þar sem
persónufreisi er af skomum
skammti, kemur iðulega skýrt fram
í þeim skrýtlum sem ganga þess á
meðal. Sagan segir að sundkona
nokkur, sem getið hafði sér mikla
frægð fyrir sundafrek sín, hafi ver-
ið í miklu uppáhaldi hjá fyrmefnd-
um Honecker. Gekk það svo langt
að þar kom að hann hét því að
uppfylla hveija þá ósk sem hún
baeði hann um. Auðvitað bað stúlk-
an Honecker um að rífa múrinn
niður. Það kom á Honecker og hann
þagði hugsandi, uns það birti
skyndilega yfir honum og hann
sagði: „Aha, nú skil ég. Þig langar
til þess að fá að vera með mér í
einrúmi."
Hugmyndafræði mann-
fyrirlitningar
Kjami máisins er sá að sú hug-
myndafræði sem kennd er við
kommúnisma er hugmyndafræði
mannfyrirlitningar. í löndum sem
lúta þessu kerfi þykir stjómvöldum
sjálfsagt að þau hafi yfir þegnunum
að segja í einu og öllu. Manneskja
er ekki raunveraleg manneskja
nema hún hafi ákvörðunarrétt um
þá hluti, sem snerta hana sjálfa.
Þótt mannfyrirlitningu sé víða að
finna og ekki síst hjá þeim sem
halda um stjómvölinn í löndum
þriðja heimsins, þá er þar ekki um
að ræða kerfisbundna og viður-
kennda hugmyndafræði, sem
traðkar á þeim helgasta rétti
mannsins, að fá að ráða sér sjálf-
ur. Það er hægt að skilja mann-
fyrirlitningu sem grandvallast á
grimmd eða vanþekkingu, þó ekki
megi sætta sig við hana. Það er
hins vegar óskiljanlegt að ríkisvald
skuli svipta þegnana grandvallar-
mannréttindum áratugum saman
og veija með því að það sé í þágu
þeirra sjálfra. Það er hláleg stað-
reynd að sú hugmyndafræði sem
átti að afnema mannfyrirlitningu
og veita manneskjunni langþráð
„frelsi", skuli vera svartasta gríma
hennar. Um þetta er Berlínarmúr-
inn minnisvarði; minnisvarði um
mannfyrirlitningu.
HJ
Peningamarkaðiiriiiii
GENGIS-
SKRANING
Nr. 149 - 12.ágúst 1986
Kr. Kr. Toll-
Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 40,640 40,760 41,220
St.pund 60,350 60,529 60,676
Kan.dollari 29,270 29,356 29,719
Dönskkr. 5,2461 5,2616 5,1347
Norsk kr. 5,5154 5,5317 5,4978
Sænskkr. 5,8597 5,8770 5,8356
Fi.mark 8,2694 8,2938 8,1254
Fr. franki 6,0481 6,0659 5,9709
Belg.franki 0,9491 0,9519 0,9351
Sv.franki 24,3791 24,4511 23,9373
Holl.gyllini 17,4316 17,4831 17,1265
V-þ.mark 19,6423 19,7003 19,3023
ÍLIira 0,02856 0,02864 0,02812
Austurr. sch. 2,7911 2,7994 2,7434
PorL escudo 0,2774 0,2782 0,2776
Sp.pesetí 0,3026 0,3035 0,3008
Jap.yen 0,26342 0,26420 0,26280
Irskt pund 54,559 54,720 57,337
SDR(Sérst. 49,1371 49,2823 48,9973
ECU, Evrópum. 41,4386 41,5609 40,6301
Belg.fr.Fin. 0,9402 0,9430
INNLÁNSVEXTIR:
Sparisjóðsbækur
Landsbankinn....... ....... 9,00%
Útvegsbankinn............... 8,00%
Búnaðarbankinn...... ...... 8,50%
Iðnaðarbankinn..... ........ 8,00%
Verzlunarbankinn.... ......8,50%
Samvinnubankinn............. 8,00%
Alþýðubankinn............... 8,50%
Sparisjóðir................. 8,00%
Sparísjóðsreikningar
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýðubankinn.............. 10,00%
Búnaðarbankinn.............. 9,00%
Iðnaðarbankinn.............. 8,50%
Landsbankinn............... 10,00%
Samvinnubankinn..... ....... 8,50%
Sparisjóðir..................9,00%
Útvegsbankinn............... 9,00%
Verzlunarbankinn.... ...... 10,00%
með 6 mánaða uppsögn
é Alþýöubankinn................... 12,50%
Búnaðarbankinn.............. 9,50%
Iðnaöarbankinn............. 11,00%
Samvinnubankinn............ 10,00%
Sparisjóðir................ 10,00%
Útvegsbankinn.............. 10,00%
Verzlunarbankinn........... 12,50%
með 12 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn.............. 14,00%
Landsbankinn............... 11,00%
Útvegsbankinn.............. 13,60%
með 18 mánaða uppsögn
Búnaöarbanki............... 15,50%
Iðnaðarbankinn............. 14,50%
Verðtryggðir reikningar
miðað við lánskjaravísitölu
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýðubankinn............... 1,00%
Búnaðarbankinn...... ..... 1,00%
Iðnaðarbankinn..... ........ 1,00%
Landsbankinn....... ...... 1,00%
Samvinnubankinn...... ...... 1,00%
Sparisjóðir................. 1,00%
Útvegsbankinn............... 1,00%
Verzlunarbankinn............ 1,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn............... 3,00%
Búnaðarbankinn.............. 2,50%
Iðnaðarbankinn............... 2,50%
Landsbankinn....... ......... 3,50%
Samvinnubankinn.............. 2,50%
Sparisjóðir.................. 3,00%
Útvegsbankinn................ 3,00%
Verzlunarbankinn..... ....... 3,00%
með 18 mánaða uppsögn:
Samvinnubankinn...... ....... 7,50%
með 24 mánaða uppsögn:
Samvinnubankinn...... ..... 8,00%
Að loknum binditíma 18 mánaða og
24 mánaða verötryggðra reikninga
Samvinnubankans er innstæða laus
tvisvar á ári eins og á 6 mánaða reikn-
ingum.
Ávísana- og hlaupareíkningar:
Alþýðubankinn
- ávisanareikningar............7,00%
- hlaupareikningar............ 3,00%
Búnaðarbankinn............. 3, 00%
Iðnaðarbankinn............. 3,00%
Landsbankinn.................. 4,00%
Samvinnubankinn...... ..... 4,00%
Sparisjóðir................ 3,00%
Útvegsbankinn.............. 3,00%
Verzlunarbankinn' )........ 3,00%
Eigendur ávísanareikninga í Verzlun-
arbankanum geta samið um ákveðna
lágmarksinnstæðu á reikningi sínum og
af henni eru reiknaðir almennir spari-
sjóðsvextir auk uppbótar.
Stjörnureikningar:
Alþýðubankinn')............ 8-9,00%
Alþýðubankinn býður þrjár tegundir
Stjörnureikninga og eru allir verð-
tryggðir. í fyrsta lagi eru reikningar fyrir
ungmenni yngri en 16 ára, með 8%
vöxtum. Reikningurinn er bundinn þar
til eigandinn hefur náð 16 ára aldri. í
öðru lagi eru reikningar fyrir aldraða —
lífeyrisþega — með 8% vöxtum. Upp-
sagnarfrestur er mismunandi eftir aldri
eiganda, 3 til 9 mánuðir. Vextir og verð-
bætur eru lausar til útborgunar í eitt
ár. Þá eru þriggja Stjörnureikningar
með 9% vöxtum. Hver innborgun er
bundin í tvö ár. Vextir og verðbætur
eru lausar til útborgunar í eitt ár.
Afmælisreikningur
Landsbankinn................ 7,25%
Afmselisreikningur Landsbankans er
bundinn i 15 mánuði og ber 7,25%
vexti og er verðtryggður. Innstæða er
laus í tvo mánuði eftir að binditíma lýk-
ur. Heimilt er að leggja inn áreikninginn
til 31. desember 1986.
Safnlán - heimilislán - IB-ián - piúslán
með 3ja til 5 mánaða bindingu
Alþýðubankinn................ 10-13%
Iðnaöarbankinn....... ........ 8,50%
Landsbankinn................. 10,00%
Sparisjóðir................... 9,00%
Samvinnubankinn............... 8,00%
Útvegsbankinn................. 9,00%
Verzlunarbankinn............. 10,00%
6 mánaða bindingu eða lengur
Alþýðubankinn................ 13,00%
Iðnaðarbankinn...... ......... 9,00%
Landsbankinn................. 11,00%
Sparisjóðir.................. 10,00%
Útvegsbankinn................ 10,00%
Innlendir gjaldeyrisreikningar:
Bandaríkjadollar
Alþýðubankinn................. 7,50%
Búnaðarbankinn....... ........ 6,00%
Iðnaöarbankinn....... ........ 6,00%
Landsbankinn.................. 6,00%
Samvinnubankinn............... 6,50%
Sparisjóðir................... 6,00%
Útvegsbankinn................. 6,00%
Verzlunarbankinn...... ..... 6,50%
Sterfingspund
Alþýðubankinn................ 11,50%
Búnaðarbankinn....... ........ 9,00%
Iðnaðarbankinn...... ....... 9,00%
Landsbankinn....... ........ 9,00%
Samvinnubankinn............. 10,00%
Sparisjóðir.................. 9,00%
Útvegsbankinn................ 9,00%
Verzlunarbankinn............ 10,50%
Vestur-þýsk mörk
Alþýðubankinn................ 4,00%
Búnaðarbankinn...... ........ 3,50%
Iðnaðarbankinn............. 3, 50%
Landsbankinn....... ....... 3,50%
Samvinnubankinn.............. 3,50%
Sparisjóðir.................. 3,50%
Útvegsbankinn................ 3,50%
Verzlunarbankinn..... ....... 3,50%
Danskar krónur
Alþýðubankinn................ 8,00%
Búnaöarbankinn............... 6,50%
Iðnaðarbankinn............. 7, 00%
Landsbankinn....... ......... 7,50%
Samvinnubankinn.............. 7,50%
Sparisjóðir.................. 7,00%
Útvegsbankinn................ 7,00%
Verzlunarbankinn..... ....... 7,00%
ÚTLÁNSVEXTIR:
Almennirvíxlar(forvextir).. 15,25%
Skuldabréf, almenn............... 15,50%
Afurða- og rekstrarlán
í íslenskum krónum.......... 15,00%
í bandarikjadollurum......... 8,25%
i sterlingspundum........... 11,25%
í vestur-þýskum mörkum..... 6,00%
iSDR......................... 8,00%
Verðtryggð lán miðað við
lánskjaravísitölu
ialltað2'/zár................... 4%
Ienguren2'/2ár.................. 5%
Vanskilavextir................. 27%
Överðtryggð skuldabréf
útgefin fyrir 11.08. '84.. 15,50%
Skýringar við sérboð
innlánsstofnana
Landsbankinn: Ársvextir af Kjörbók eru
14,0% — ávöxtun hækkar eftir því sem inn-
stæða er lengur óhreyfð. Á þriggja mánaða
fresti er ávöxtun Kjörbókar borin saman við
ávöxtun á sex mánaða verötryggðum reikning-
um og sú ávöxtun valin sem reynist hærri.
Vextir eru reiknaðir tvisvar á ári á höfuðstól.
Kjörbók er óbundinn reikningur, en frá út-
borgaöri fjárhaeð dregst 0,7% gjald en þó
ekki af vöxtum liðins árs.
Útvegsbankinn: Ábót er óbundinn reikning-
ur. Borin er saman ávöxtun á óverðtryggðum
reikningum og þriggja mánaða verðtryggðum
reikningum og hærri ávöxtunin valin. Ef inn-
stæða hefur verið hreyfð, reiknast almennir
sparisjóðsvextirá reikninginn. Vextireru færð-
ir einu sinni á ári á höfuðstól, en verðbætur
bætast við höfuðstól ef ávöxtun þriggja mán-
aða reikninga er valin.
Búnaðarbankinn: Gullbók ber 14,0% vexti
á ári — ávöxtun fer hækkandi eftir þvi sem
innstæða er lengur óhreyfð. Gerður er saman-
burður við ávöxtun þriggja mánaða verð-
tryggðra reikninga og ef hún er betri er hún
valin. Vextir eru færðir tvisvar á ári á höfuð-
stól. Ef tekið er út af reikningnum er reiknað
0,75% úttektargjald og er það dregið frá áunn-
um vöxtum.
Metbók Búnaðarbankans er bundinn reikning-
ur til 18 mánaða. Hverju innleggi er hægt að
segja upp með 18 mánaða fyrirvara. Vextir
eru lausir til útborgunar í 6 mánuði. Nafn-
vextir eru 14.50% og höfuðstólsfærslur vaxta
tvisvar á ári. Gerður er samanburður á ávöxt-
un 6 mánaða verðtryggðra reikninga og
Metbókar. Ávöxtun Metbókar er aldrei lakari
en ávöxtun 6 mánaða reikninga.
Verzlunarbankinn: Kaskóreikningur. Meg-
inreglan er að innistæða sem er óhreyfð i
heilan ársfjórðung nýtur kjara 6 mánaða bund-
ins óverðtryggðs reiknings eða 6 mánaða
verðtryggð reiknings, eftir því hvor gefur
hærri ávöxtun fyrir þann ársfjórðung. Vextir
og verðbætur færast á höfuðstól í lok hvers
ársfjórðungs, hafi reikningur notið þessara
„kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör þótt
teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar
hafa verið á undangengnu og líðandi ári. Út-
tektir umfram það breyta kjörum sem hér
segir: Við eina úttekt i fjórðungi reiknast al-
mennir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð,
en kaskókjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttekt-
ir fær öll innistæöa reikningssins sparisjóðs-
bókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða
annan virkan dag ársfjórðungs fær innistæðan
hlutfallslegar verðbætur m.v. dagafjölda í inn-
leggsmánuði, en ber síðan kaskókjör út
fjórðunginn. Reikningur sem stofnaður er
síðar fær til bráðabirgða almenna sparisjóðs-
vexti en getur áunnið sér kaskókjör frá
stofndegi að uppfylltum skilyrðum.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur. Eftir
því sem innstæða er lengur óhreyfð reiknast
hærri vextir. Fyrstu tvo mánuði 8% vextir,
eftir tvö mánuði 8,25%, eftir þrjá mánuði 8,5%
o.s.frv. uns innstæða hefur verið óhreyfð i 6
mánuði þá reiknast 12% vextir. Frá og með
12 mánuðum eru vextir 12,5% og frá og með
18 mánuðum 13%. Aunnar vaxtahækkanir
reiknast alltaf frá þvi að lagt var inn. Vaxta-
færsla á höfuðstól er einu sinni á ári.
Alþýðubankinn: Sérbók ber allt að 16%
vexti en vextir hækka eftir þvi sem innstæða
er lengur. Hver innstaeða er meðhöndluð sér-
staklega. Höfuðstólsfærslur vaxta eru fjórum
sinnum á ári. Þá er einnig gerður saman-
burður á ávöxtun Sérbókar og þriggja mánaða
verðtryggðra reikninga og sú hagstæðari val-
in.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og ber auk þess grunvexti 6 mánaða
verðtryggs reiknings. Vextir eru færöir á höf-
uðstól tvisvar á ári. Hreyfingar innan mánaðar
bera sérstaka T rompvexti 12,5% ef innistæða
hefur verið án útborgunar í þrjá mánuði eða
lengur, en annars almenna sparisjóðsbókar-
vexti. Ársfjórðungslega er ávöxtun lægstu
innistæðu á liðnum þremur mánuðum borin
saman við sérstaka Tropmvexti og ef þeir
gefa hærri ávöxtun er mismun bætt við vaxta-
stöðu Tropmreiknings.
Sparisjóður Vélstjóra ert með Sparibók,
sem er bundin í 12 mánuði og eru vextir 15,
5%, eru þeir færðir á höfuðstól einu sinni á
ári. Þegar útborgun hefur staðið í stað í 12
mánuði er hún laus til útborgunar næstu 30
daga, eftir það binst hún á ný næstu 11 mán-
uði. Eiganda sparibókar er tryggt að bókin
gefi aldrei lægri ávöxtun á ári en sex mánaða
bundinn verðtryggður reikningur.
Sparisjóður Reykjavikur og nágrennis,
Sparisjóður Kópavogs, Sparisjóður Hafnar-
fjarðar, Sparisjóðurinn í Keflavík, Sparisjóður
Mýrarsýslu og Sparisjóður Akureyrar eru með
Topp-bók, sem er bundin í 18 mánuði og eru
vextir 14,5%, eru þeir færðir á höfuðstól tvi-
svar á ári. Þegar innborgun hefur staðið i 18
mánuði er hún laus til útborgunar næstu 30
daga, eftir það binst hún á ný og er laus til
útborgunar í 30 daga á sex mánaða fresti.
Eiganda Topp-bókar er tryggt að bókin gefi
aldrei lægri ávöxtun á ári en sex mánaða
bundinn verötryggður reikningur.
Iðnaðarbankinn Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur og ber 11% vexti. Óverð
tryggð Bónuskjör eru 2,5%. Á sex mánaða
fresti eru borin saman verðtryggð og óverö-
tryggð bónuskjör og ávöxtun miðuð við þau
kjör sem eru hærri á hverjum tíma. Vextir eru
færðir á höfuðstól tvisvar á ári.
Samanburðartí-
mabil eru þau sömu og vaxtatimabil. Heimilt
er að taka út tvisvar á hverju sex mánaða tíma-
bili.
Sparisjóðsreikningur með 18 mánaða upp-
sögn. Hægt er að velja um bókarlausan
reikning eða reikning tengdan sparisjóðsbók.
Reikningurinn er bundinn til 18 mánaða og
er laus einn mánuð í senn eftir 18 mánuði eða
síðar, eftir vali reikningseigenda. Innstæða
er laus til útborgunar eftir það einn mánuð í
senn á 12 mánaða fresti. Vextir eru reiknaðir
eftir á og eru lagðir við innstæðu 31. desemb-
er ár hvert og eru lausir til útborgunar næstu
12 mánuði eftir það.
Líf eyrissjóðslán:
Lrfeyrissjóður starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæð er nú 500 þúsund krónur og er
lániö vísitölubundið með lánskjaravisitölu, en
ársvextir eru 5%. Lánstími er allt að 25 ár,
en getur verið skemmri, óski lántakandi þess,
og eins ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörleg,
þá getur sjóðurinn stytt lánstimann.
Greiðandi sjóðsfélagar geta sótt um lán úr
lifeyrissjóðnum ef þeir hafa greitt iðgjöld til
sjóðsins í tvö ár og tvo mánuöi, miðað við
fullt starf. Biðtimi eftir láni er fjórir mánuðir
frá því umsókn berst sjóðnum.
Lrfeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú, eftir a.m.k. 3ja ára aðild
aö lífeyrissjóðnum og fimm árum eftir siðustu
lántöku, 150.000 krónur.
Höfuðstóll lánsins er tryggður með láns-
kjaravis'itölu, en lánsupphæðin ber nú 5%
ársvexti. Lánstíminn er 3 til 5 ár að vali lántak-
anda.
Lánskjaravísitala fyrir ágúst 1986 er 1472
stig en var 1463 stig fyrir júli 1986. Hækkun
milli mánaðanna er 0,62%. Miðað er við vísi-
töluna 100 í júní 1979.
Byggingavisitala fyrir júli til september
1986 er 270 stig og er þá miðað við 100 í
janúar 1983.
Handhafaskuldabréf í fasteignaviðskipt-
um. Algengustu ársvextir eru nú 18-20%.
Sérboð Nafnvoxtir m.v. óverdtr. verðtr. Verðtrygg. Höfuöstóls fœrsl.
Óbundiðfé kjör kjör tímabll vaxta á ári
Landsbanki, Kjörbók: 1) Útvegsbanki, Abót: ?—14,0 3.5 3mán. 2
8-14,1 1,0 1 mán. 1
Búnaðarb., Gullbók 1) ?—14,0 1,0 3mán. 2
Verzlunarb., Kaskóreikn: 8,5-12,5 3,0 3mán. 4
Samvinnub., Hávaxtareikn: 8-13,0 1-2,5 3mán. 1
Alþýðub., Sérvaxtabók: 10-16,0 1,0 4
Iðnaðarbanki, Bónus: 11,0 2,5 6mán. 2
Sparisjóðir, Trompreikn: Bundið fé: 12,5 3,0 1 mán. 2
Búnaðarb., Metbók: 15,50 3,5 6mán. 2
Sparisj. vélstj: 15,5 3,0 6mán. 1
Iðnaðarb. 18 mán: 14,5 1
1) Vaxtaleiörétting (úttektargjald) er 0,75% í Búnaðaörbanka og 0,7% í Landsbanka.