Morgunblaðið - 13.08.1986, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
29
AKUREYRI
Frakkarnir nýlagðir af stað í hlaupið. Morgunbiaaw/Hjfirtur
Frakkar hlaupa
yfir hálendið
Upphitun fyrir Reykjavíkurmaraþonið
15 FRAKKAR lögðu í gær upp frá
Akureyri, þar af um 10 hlaupandi
yfir hálendið til Reykjavíkur.
Hlaupið tengist Reykjavíkurmara-
þoninu, sem verður þann 24. þessa
mánaðar.
Frakkarnir eru alls 15 en 10 þeirra
þreyta hlaupið. Þeir fóru frá Akur-
ejrri í gær sem leið liggur um Sprengi-
sand með viðkomu í Landmannalaug-
um. Þeir munu hlaupa sem svarar
einu maraþonhlaupi á dag, rúma 40
kílómetra, til upphitunar fyrir
Reykjavíkurmaraþonið, sem verður
hápunktur ferðar þeirra hingað.
Frakkamir munu kvikmynda hlaup
sitt og markverða staði á leiðinni og
gera þannig afrekum sínum og landi
og þjóð nokkur skil.
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GRO, hefur undanfama tvo daga hjálp-
að til við uppsetningu toglyftu í Hlíðarfjalli á Akureyri. Þyrlan sótti
steypuna að skíðahótelinu í steypubila sem þar voru og flaug með 400
lítra af steypu í einu upp í fjallið.
Þyrla notuð við uppsetningu
nýrrar toglyftu í Hlíðarfjalli
í HLÍÐARFJALLI á Akureyri er nú unnið hörðum höndum að upp-
setningu nýrrar skíðalyftu, sem mun auka afkastagetu skíðalyftn-
anna þar um helming, frá 500 manns á klukkutíma upp í 1.000 manns.
Vegna bratta í fjallinu var þyrla
Landhelgisgæslunnar TF-GRO
fengin til að hjálpa til við steypu-
framkvæmdimar og byijaði hún á
því að flytja steypuna upp í fjallið
sl. mánudag. Gert var ráð fyrir að
steypuvinnan tæki tvo daga í góðu
veðri, en á mánudag spillti þoka
fyrir framkvæmdunum svo hætta
varð að fljúga upp úr hádeginu. í
gær, í blaðskaparveðri, var síðan
haldið áfram og þegar blaðamaður
var á ferð í Hlíðarfjalli í gær gerðu
menn ráð fyrir að steypuverkinu
lyki þá um kvöldið.
Alls fara 24 rúmmetrar af steypu
í fjallið að þessu sinni og tekur
þyrlan 400 lítra í hverri ferð. Steypa
þarf niður átta sökkla vegna nýju
skíðalyftunnar auk tveggja enda-
stöðva. Nýja togbrautin er 900
metra löng og hefur 280 metra
hæðarmun. Framkvæmdir hafa taf-
ist í u.þ.b. viku vegna bilunar
Landhelgisgæsluvélarinnar og eins
sumarfría starfsfólks steypustöðv-
arinnar á Akureyri.
Frá Grenivík.
Morgunblaóid/JI
„Vandræðaástand á fiskmörk-
uðum í haust ef haldið verð-
ur í núverandi kvótakerfi“
- segir Knútur Karlsson framkvæmda-
sljóri frystihússins Kaldbaks á Grenivík
„ÉG ER ákaflega hræddur um að vandræðaástand skapist á fisk-
mörkuðum okkar Islendinga erlendis í haust ef haldið verður stíft
við núverandi fiskveiðitakmarkanir,“ sagði Knútur Karlsson, fram-
kvæmdastjóri frystihússins Kaldbaks á Grenivík, í samtali við
Morgunblaðið.
„Tækifærin virðast nú fyrir hendi
til að koma afla okkar inn erlendis
og jafnvel að vinna nýja markaði,
en í sumar hafa söluaðilarnir hreins-
að upp allar birgðir okkar jafnóðum
og sent út. Undanfarin ár hafa hins
vegar birgðir safnast og salan ekki
byrjað fyrir alvöru fyrr en með
haustmánuðum. Því er ljóst að held-
ur verður tómlegt um að litast hjá
fiskframleiðendum hér á landi þeg-
ar á meiri fiski þarf að halda. Sumir
markaða okkar em mjög viðkvæm-
ir fyrir miklum sveiflum í innflutn-
ingi, sérstaklega öll merkjavara,
eins og til dæmis Long John Silver
í Bandarfkjunum. Það virðist vera
sókn í sölu í Bandaríkjunum og því
slæmt að geta ekki fylgt henni eft-
ir,“ sagði Knútur.
Knútur sagði að útlitið væri ekki
bjart með hráefnisöflun frystihúss-
ins í haust því skip frystihússins,
Núpur, ætti ekki eftir nema um 200
tonn af kvóta sínum. „Við vonumst
til að geta haldið uppi dagvinnu
starfsfólksins í frystihúsinu með því
að fá aðra báta til að landa hjá
okkur, til dæmis landaði Hákon ÞH
250 fyrir helgi 116 tonnum. Við
ætlum að geyma þau 200 tonn sem
Núpur á eftir um tíma og reyna
við grálúðuna næstu daga, en hing-
að til hefur lítil grálúða veiðst í
sumar. Við reyndum hana bæði í
júní og júlímánuði, en afli var treg-
ur.“
Hjá Kaldbaki starfa nú milli 50
og 60 manns og sagðist Knútur nú
vera mun varkárari í ráðningum en
endranær. Flest hefði verið ráðið
hátt í 100 manns yfir sumarmán-
uði. Fi-ystihúsið keypti Núp síðla
árs árið 1983, áður en kvótakerfið
var tekið upp. „Við teljum að Núp-
ur afli ekki nú nema milli 60-70%
af því hráefni sem hann gæti skilað
vegna takmarkananna, sem gerir
okkur illkleift að vinna okkur út
úr þeim skuldum sem meðal annars
var stofnað til við skipakaupin og
eins stækkun frystihússins vegna
mikils afla á árunum 1977-1983.
Við höfum mjög verið sveltir við-
víkjandi kvótakerfinu. Árin 1977-
1983 var vinnsla frystihússins rúm-
Knútur Karlsson, framkvæmda-
stjóri á Grenivík.
lega 3.600 tonn á ári, en var á
árunum 1984 og 1985 rúmlega
2.700 tonn árlega, þrátt fyrir að
við fengum Núp í byijun árs 1984.
Ef skipið hefði ekki verið til staðar
hefði afli aðeins verið 1.640 tonn,
sem er aðeins 45% af vinnslu áranna
áður,“ sagði Knútur Karlsson að
lokum.
raðauglýsingar — raöauglýsingar —- raðauglýsingar
húsnæói i boöi | tilboö — útboö | t@if' VRYGGINGf
Nýr danssalur til leigu fyrir djassballett, aerobic eða dans- kennslu. 200 fm dansgólf, setustofa, eldhús og böð. Við Sigtún í Reykjavík. Upplýsingar í síma 71314 eða 686741 eftir kl. 18. i~S:. Skólaakstur Trygging hf. óskar eftir tilboðum í neðan- greind flugvélaflök: Cessna 152, Maule M5, Piperaztic. Flökin verða til sýnis í flugskýli nr. 28a í Flug- görðum milli kl. 13.00 og 16.00 fimmtudaginn 14. þ. m. Tilboð óskast send til skrifstofu okkar, Laugavegi 178, fyrir kl. 16.00 föstu- rianinn 1 h m
Húsnæði til leigu Falleg, stór efri sérhæð í tvíbýlishúsi nálægt Mjóddinni til langtímaleigu fyrir heimili og/eða starfsemi. Upplýsingar um fyrirhugaða notkun sendist augld. Mbl. merkt: „Útsýni — 05526“. Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í skólaakstur. Upplýsingar um aksturstíma, daglega viðveru, vegalengdir o.fl. eru gefnar á fræðsluskrifstofu Hafnarfjarðar í síma 53444. Frestur til að skila inn tilboðum er til 22. ágúst nk. Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar. TBYGGINGI LAUGAVEG1178, SÍMI621110.