Morgunblaðið - 13.08.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
Þessir hringdu .
Óboðinn ffestur við
Langholtsveg
Garðeigandi hringdi:
„Ég get ekki lengur orða bund-
ist yfir óskammfeilni manns sem
hefur iðkað það í sumar að stel-
ast inn í garða á nætumar tii að
leita að ánamöðkum.
Maðurinn leggst á garða við
Langholtsveg og hliðargötur en
virðist hafa sérstakt dálæti á
garðinum mínum.
Garðurinn er mjög viðkvæmur
og hefur maðurinn hvað eftir ann-
að valdið skemmdum á gróðri og
öðru. Síðan iðkar hann það að
halla sér upp að hvítmáluðu hús-
inu allur útataður í mold og drullu
svo að það fyrsta sem bíður manns
á morgnana er að þvo skítinn af.
Ég hef reynt að vaka á nætum-
ar þegar ég hef átt von á þessum
óboðna gesti en hann hefur slopp-
ið hingað til.
Skora ég á íbúa við Langholts-
veg og hliðargötur að vera vel á
verði gagnvart dónanum svo hægt
verði að stöðva hann.“
Leðurjakki hvarf
úr fatahenginu
Vala hringdi:
„Síðastliðinn laugardag brá ég
mér á ball í Búðardal og skildi
leðurjakka eftir í fatahenginu.
Þegar ég ætlaði að vitja jakkans
að ballinu loknu var hann horfínn.
Þetta kemur sér afar illa fyrir
mig því að ég átti jakkann ekki,
var með hann í láni hjá vini
mínum. Vil ég því beina þeim til-
mælum til þess sem tók jakkann,
annaðhvort í misgripum eða
ófrjálsri hendi að hann hringi í
síma 10222 og láti vita hvar jakk-
inn er niðurkominn."
Ógeðfelldar
auglýsingar
Sjónvarpsglápendur hringdu:
„Okkur, nokkrum sjónvarps-
glápendum, finnast ógeðfelldar
þessar sífelldu auglýsingamyndir
í sjónvarpinu af blóðlituðum
líkamsleifum dýra. Skildu ekki
flestir vilja minnast yndislegu,
litlu fjallalambanna á annan hátt?
Svo em það myndimar af
hvaladrápi og þeim aðforam öllum
sem mikið hafa verið í fjölmiðlum
og vakið viðbjóð allra nema hvala-
drápsunnenda. Eiga sjónvarps-
áhorfendur næst von á að fá að
sjá á skjánum framsóknarráð-
herrana nagandi hvalspik ásamt
áróðursmeistara frá sjónvarpinu
með hvalkjötsflall í baksýn?"
Hve margir muna
Reykjavík sem
þorp?
Hulda hringdi:
„Mig langar að varpa fram
spumingu í tilefni af 200 ára af-
mæli Reykjavíkur.
Hvað skyldu vera margir borg-
arbúar á lífi sem em eldri en 70
ára og ólust upp í Reykjavík?
Þeir ættu að muna hana sem
þorp. Það ætti að vera verðugt
verkefni að hafa upp á þeim og
vita hveiju þeir geta sagt frá.“
„Gvendur á undan
Gústa er ..
Gestur hringdi:
„Góðtemplarar vom mikið í fé-
lagsmálum hér áður fyrr, höfðu
samkomuhús, sjónleiki og jafnvel
matsölu sums staðar á landinu.
Hér í Reykjavík vom þeir mjög
Qölmennir og fóm stundum í
skrúðgöngur með fána og félags-
einkenni niður Laugaveginn. Eg
man eftir vísu sem átti við eina
af þessum skrúðgöngum:
Gvendur á undan Gústa er
gekk og bar sinn klafa
af því að hann á eftir sér
enginn vildi hafa.
Gaman væri að vita hvort ein-
hveijir gamlir góðtemplarar
kannast við þessa vísu."
Rautt veski tap-
aðist á Lauga-
veginum
Áslaug hringdi:
„Á miðvikudaginn varð ég fyrir
því óláni að tapa rauðu veski með
tveimur fíðrildum á. Þetta hefur
gerst einhvers staðar á Laugaveg-
inum. I veskinu vom um það bil
átta eða níu hundmð krónur og
happdrættismiði.
Finnandi vinsamlega hringi i
síma 10971.“
Sorgarsaga af Gelli hf.
Guðbjörg Ólafía Glsladóttir skrif-
ar:
„Hvort sem mér þykir það ljúft
eða leitt þá verð ég að skamma þá
hjá Gelli hf.
Við skötuhjúin fengum okkur
hræódýran isskáp hjá Gelli fyrir
tveimur ámm. Þessi tegund heitir
Snowcap og skilst mér að þeir hafí
selst fljótt og vel.
Hvað um það. Það óhapp varð í
mars á þessu ári að frystihólfslokið
brotnaði vegna mikils íss. í byijun
apríl fór ég niður eftir í verslunina
til að athuga hvort ég gæti fengið
nýtt lok.
Það var ekki til hjá þeim en af-
greiðslumaðurinn var mjög hjálp-
legur og pantaði fyrir mig lokið og
lofaði að hringja í mig strax og það
kæmi. Síðan þá hef ég gerst óró-
Ekkert hrátt
kjöt á Kefla-
víkurflugvöll
Velvakanda hefur borist bréf frá
Helgu Magnúsdóttur, þar sem kem-
ur fram að henni finnst ástæða til
að íslendingar banni Bandaríkja-
mönnum að flytja inn til Keflavík-
urflugvallar allt hrátt kjöt.
legri og hef hringt nokkmm sinnum
til að athuga málið. Nú síðast
hringdi ég 27. júlí og þá var þetta
fast í tollinum.
Mér finnst óhæft að bíða á
fímmta mánuð og kannski lengur
Vegfarandi skrifan
„Laugardagskvöldið 26. júlí á
milli kl. 7 og 8 var ég að koma að
norðan og fór rólega, var á þetta
60 til 70 km hraða. Mér lá ekki
neitt á, ég var að komast heim.
Rétt fyrir ofan vegamótin að
Munaðamesi gerðist það. Allt í einu
var komin geysistór gulleit rúta
með regnbogaröndum steinþegjandi
upp að hliðinni á mér. Þegar hún
var komin það nærri að hún braut
hliðarspegilinn flautaði hún í gríð
og erg.
Ég ætlaði að víkja betur en það
var ekki hægt nema um nokkra
sentimetra.
Svo fór rútan fram úr mér,
beygði þvert fyrir mig og síðan út
í kantinn og nam þar staðar.
Út kom bílstjórinn, sýnilega
taugaveiklaður yfír því að hafa ekki
getað þrælað mér út af veginum
og valdið slysi.
eftir plastloki á frystihólf.
Það er öruggt að við kaupum
ekki aftur vörur hjá Gelli hf.
Með von um að þetta komi nú
fyrir áramót og að þeir bæti þjón-
ustuna, blessaðir, kveð ég.“
Ég varð svo undrandi að ég varð
orðlaus. Vissi hann ekki að það er
bannað að aka fram úr án þess að
gefa merki um að það standi til?
Hafði hann kannski sérhæft sig í
að valda slysum á þjóðvegum? Eg
var svo undrandi að ég gleymdi að
spyija hann hvort bifreiðastjórar á
rútum með A-númerum hafí það
fyrir venju að haga sér svona í
öðrum landshlutum. Reyndar þurfti
ég ekki að spyija því að ég veit að
þessi maður er ekki dæmigerður
bílstjóri á bíl að norðan. Það eina
sem ég tók eftir var að rútan var
með A-númeri, ég náði ekki númer-
inu.
Ég hef gert tilraun til að komast
að því hver þetta var en sú tilraun
tókst ekki. En ég kemst að því. Á
mínum 30 árum hef ég aldrei
kynnst svona bílstjóra. Gaman væri
að komast að því hvort til eru fleiri
eintök af þessu fyrirbrigði."
Úr umferðinni
ÚTSALA
ÚTSALA
Mikil verðlækkun
Elízubúðin
SKIPHOLTI 5
Islenska svæða-
sjónvarpið tilkynnir:
Stjóm íslensks svæðasjónvarps (ÍSS) býður áhuga-
mönnum um stofnun og rekstur sjónvarpsstöðva um
land allt að sækja um aðild að samtökunum.
THgangur samtakanna er:
1. að dreifa sjónvarpsefni um land allt,
2. að annast eða hafa milligöngu um kaup á tækja-
búnaði fyrir þá sem aðild eiga að samtökunum,
3. að vinna að sameiginlegum hagsmunum þeirra
sem aðild eiga að samtökunum og koma fram fyr-
ir þeirra hönd gagnvart öðrum aðilum þ.á.m.
almenningi og stjórnvöldum,
4. að vinna að öðrum málum samkvæmt ákvörðun
aðalfundar eða stjórnar samtakanna.
Þegar hefur verið ákveðið að útsendingar hefjist í haust
á eftirtöldum stöðum:
Sv-homi landsins
Akureyri
Ólafsfirði
l/insamlegast hafið samband við skrifstofu íslenska
sjónvarpsfélagsins, Húsi verslunarinnar, 108 Reykjavik,
simi 687076.
Bladburóarfólk
óskast!
ÚTHVERFI
Kleppsvegur 3-38
Selvogsgrunnur
Melbaer
VESTURBÆR
Ásvallargata
|NYTT SIMANUMER
-11-
Auglýsingar 22480 • Afgreiðsla 83033