Morgunblaðið - 18.02.1987, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVHOJDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
25
SjálfstæðismennNorðurlandi--eystra:
Ráðstefna um kjördæm-
ið o g landsbyggðina
KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálf-
stæðisflokksins i Norður-
landi eystra heldur
ráðstefnu dagana 21. og 22.
febrúar nk. um málefni
kjördæmisins og lands-
byggðarinnar. Ráðstefnan
verður haldin í húsakynnum
flokksins í Kaupangi við
Mýrarveg, Akureyri, til
undirbúnings landsfundar
Sjálfstæðisflokksins og
kosningabaráttunnar.
Á laugardaginn kl. 16.00
verður almennur opinn stjóm-
málafundur þar sem Þorsteinn
Pálsson formaður Sjálfstæðis-
flokksins verður aðalræðumað-
ur.
Ráðstefnustjórar verða Sig-
urður Hannesson formaður
kjördæmisráðs og Bárður
Halldórsson menntaskólakenn-
ari.
Laugardaginn 21. febrúar kl.
10.00 verður ráðstefnan sett
af Halldóri Blöndal alþingis-
manni og kl. 10.15 verður
fjallað um iðnað, þjónustu og
verslun. Framsöguerindi flytja
Sigurður Ringsteð yfírverk-
fræðingur, Guðmundur Sig-
urðsson framkvæmdastjóri,
Ingi Bjömsson iðnráðgjafí og
Stefán Sigtryggsson viðskipta-
fræðingur. Kl. 13.00-14.00
verður landbúnaður á dagskrá.
Framsöguerindi flytja Vigfús
Jónsson bóndi, Benjamín Bald-
ursson bóndi og Guðmundur
Stefánsson framkvæmdastjóri.
kl. 14.00-15.45 verða umræður
og ályktanir.
Sunnudaginn 22. febrúar kl.
10.00-11.15 verður sjávarút-
vegur á dagskrá. Framsöguer-
indi flytja Bjöm Dagbjartsson
alþingismaður, Sverrir Leosson
útgerðarmaður, Þorbjöm Sig-
urðsson skipstjóri, Þorsteinn
Már Baldvinsson verkfræðingur
og Knútur Karlsson fram-
kvæmdastjóri. Kl. 13.00-14.00
verða skóla- og menntamál á
dagskrá. Framsöguerindi flytja
Tómas Ingi Olrich mennta-
skólakennari, Trausti Þor-
steinsson skólastjóri, Katrín
Eymundsdóttir . kennari og
Davíð Stefánsson stud. jur. Kl.
15.30-16.30 verður styrking
byggðar rædd. Framsöguerindi
flytja Sigurður J. Sigurðsson
framkvæmdastjóri, Margrét
Kristinsdóttir kennari, Her-
mann Sigtryggsson íþróttafull-
trúi og Gauti Amþórsson
yfírlæknir. Kl. 16.30-17.45
verða umræður og ályktanir og
kl. 17.45 verða lokaorð og nið-
urstöður.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Emil Páll Jónsson og Páll Ketilsson, ritstjórar Víkur-frétta.
Víkur-fréttir munu nú
koma út tvisvar í viku
Keflavfk.
VÍKUR-FRÉTTIR munu frá og
með þessari viku koma út tvisvar
í viku, á þriðjudögum og fimmtu-
dögum. Til þessa hefur blaðið
komið út einu sinni í viku, á
fimmtudögum. Því er dreift
ókeypis á hvert heimili i
Keflavík, Njarðvík og í Höfnum
og liggur frammi á dreifingar-
stöðum í Grindavík, Sandgerði
og Garði.
Tveir einstaklingar í Keflavík,
Páll Ketilsson og Emil Páll Jónsson
standa að útgáfunni og er eingöngu
fjallað um málefni Suðumesja í
blaðinu, sem gefíð er út í 4.800
eintökum. „Þetta hefur staðið til í
nokkum tíma hjá okkur að koma
með tvö blöð í viku,“ sagði Páll
Ketilsson og kvaðst bjartsýnn með
áframhaldið.
Að sögn Emils Páls Jónssonar,
hafa þeir Víkur-fréttamenn verið
með samning við Póst og síma sem
hefur borið blaðið út í Keflavík og
Njarðvík. En með þessari aukningu
væri það nú úr sögunni og nú yrði
blaðburðarfólk ráðið til að sjá um
dreifínguna.
- BB
Þórólfur Stefánsson
Gítartón-
leikar í Bú-
staðakirkju
TÓNSKÓLI Sigursveins D. Krist-
inssonar heldur tónleika mið-
vikudagskvöldið 18. febrúar.
Tónleikarnir verða í Bústaða-
kirkju og hefjast kl. 20.30.
A efnisskránni verður m.a. kon-
sert í D-dúr fyrir gítar og hljómsveit
eftir M. Castelnuovo-Tedesco. Ein-
leikari á gftar er Þórólfur Stefáns-
son, og er þetta liður í lokaprófi
hans frá skólanum.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir meðan húsrúm leyfír.
Húsavík:
Tónlistar-
viðburðir
Húsavík.
Tónlistarmenn hafa heimsótt
Húsavík undanfarnar tvær helg-
ar. Hrifning áhorfcnda á báðum
tónleikunum var mikil, en aðsókn
ekki sem skyldi þar sem hér var
um „frábært listafólk" á ferð.
Sunnudaginn 8. febrúar voru tón-
leikar I Húsavíkurkirkju þar sem
pólskir listamenn létu til sín heyra,
þau Wazlaw Lazarz flautuleikari og
Dorota Maczyk pfanóleikari. Sl.
sunnudag héldu sfðan þær Laufey
Sigurðardóttir fiðluleikari og Selma
Guðmundsdóttir píanóleikari hljóm-
leika f bamaskólahúsinu.
Fréttaritari
M
Nú eru komnar nýjar vor- og sumarvörur í
Vogue-búðimar.
Röndótt, einlit, mynstruö og áprentuð jerseyefni
Jerseyefnin eru áberandi í vor- og sumartískunni.
Bómullarsafaríefni
Röndótt bómullarefni
Almynstruð bómullar- og vattefni
í teppi,- gardínur og bútasaum
Smárósótt bómullar- og vattefni
í barnaföt o.fl.
Röndótt velúrefni
í barnaföt, náttsloppa o.fl.
Bómullarefni
í eldhúsgardínur, dúka, diskamottur o.fl.
Polyesterefni
og margt fleira
Aldrei annað eins úrval!
Athugið! næg bílastæði í Mjóddinni.