Morgunblaðið - 17.03.1987, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1987
9
TÓNUSMRSKÓU
KÓPNOGS
Frá
Tónlistarskóla
Kópavogs
Fyrstu vortónleikarnir verða haldnir í sal skólans
Hamraborg 11,3. hæð, miðvikudaginn 18. mars
kl. 20.30.
Skólastjóri.
Léttur, Ijúfur og þéttur
Þú eyðir u.þ.b. 1/3 hluta œvi þinnar í svefn og hvíld.
Þv( skiptir það máli að þú veljir góðan kodda, - kodda
sem veitir höfði og hálsi nákvœmlega réttan stuðning.
Latex koddinn er hannaður til þess að mœta ítrustu
kröfum vandlátra notenda og er pr/ddur fjölmörgum
kostum:
• Hann er gerður úr hreinu náttúrugúmmíi, - sérstaklega
hreinlegu efni sem hrindirfrá sér ryki og óhreinindum og
þolir þvott. Hann er því einnig mjög hepþilegur fyrir þá
sem þjást af ofnœmi, asma og heymœði.
• 3000 rörlaga loftgöt sjá um að loftið leikur um koddann
að innanverðu, - einstakt loftrœstikerfi sem tryggir
jafnframt að koddinn heldur ávallt lögun sinni, er mjúkur
og fjaðurmagnaður.
Við erum með tvœr gerðir af Latex koddum:
Þynnri gerð á kr.873,-. Þykkari gerð á kr.1 036
......... \£?s-
6> Dtinlopíllo
Haltu þér fast! - Verðið kemur á óvart!
Við erum með tvœr gerðir af Latex koddum
Þynnri gerð i
Útsölustaðir:
Hagkaupsbúðirnar
Reykjavík, Njarðvík og Akureyri
Dugguvogi 8-10
Síml 84655
Flýja konur Alþýðubandalagið?
Samtök um kvennalista hafa yfirhöfuð svipaða afstöðu til þing-
mála og Alþýðubandalagið. Skoðanakannanir sýna og að
Alþýðubandalag og Samtök um kvennalista sækja á svipuð ef
ekki sömu. kosningamið. Flóttinn frá Alþýðubandalaginu hefur
einkum orðið yfirtil Kvennalistans. í reynd hefur meint „kvenna-
pólitík" Samtakanna birzt sem eitt afbrigðið enn af róttækri
vinstri stefnu. Af þessum sökum er meginþátturinn í „varnarbar-
áttu Alþýðubandalagsins" fyrir komandi kosningar að gera hosur
sínar grænar fyrir konum með vinstri viðhorf. Staksteinar staldra
við þessa „varnarbaráttu" í dag“.
Meinið: „Upp-
hafning
húsmóður-
starfsins“!
Sálarkreppa Alþýðu-
bandalagsins, sem vex
með viku hverri, kemur
ekki sizt fram í ótta um
atkvæðaflótta kvenna
frá Alþýðubandalaginu. í
helgarblaði Þjóðvijjans
er heil opna þar sem
svara er leitað við spurn-
ingum um þetta efni,
þótt umræðuefnið sé í
orði kveðnu „kvennabar-
átta“. Fyrirsögnin er
hvorki meira né minna
en 7 dálkæ „Kvennabar-
átta í lægð.“
Niðurstaða Birnu
Þórðardóttur, sem er
einn viðmælenda grein-
arhöfundar, er i raun
atlaga að húsmóðurhlut-
verkinu. Hún segir
orðrétt:
„Það að baráttan inni
á heimilunum skuli lítáð
vera til umræðu er
kannski ekki nema eðli-
legt þegar stór hluti
þeirra, sem eru í kvenna-
baráttunni, er farinn að
upphefja hið göfunga
starf húsmóðurinnar"!
Að hugsa sér annað
eins. Það er ekki von að
vel gangi hjá vinstri só-
síalistum þegar slik villa
svífur yfir vötnum
„kvennabaráttunnar“.
Þessi ummæli Bimu
Þórðardóttur eru íhug-
unarefni fyrir húsmæður
vitt og breitt um landið.
Sama hver
vinstri flokk-
urinner!
ÁS [Asmundur Stef-
ánssonfj segir í fylgiblaði
með Þjóðviljanum:
„Alþýðubandalagið
hefur lýst vilja til sam-
starfs við Alþýðuflokk og
Kvennalista. Þýðir það
að sama sé hver flokkur-
inn er kosinn? Þeim
spuringum verður hver
og einn að svara fyrir
sig.“
Hér veltir höfundur
þvi fyrir sér, hvort þessir
þrír flokkar, þessir þrír
vegir að vinstri stjóm
[Jafnaðarstjóm“j, líti
eins út i augum kjósenda.
Hann gerir sér hinsvegar
grein fyrir þvi að hann
er, sem frambjóðandi
Alþýðubandalags, á
sömu kjósendamiðum og
Samtök um kvennalista.
Þessvegna beinir hann
brandi sinum þangað og
heldur áfram:
„Kvennalistinn heldur
uppi góðum málflutningi
á mörgum sviðum, en ég
hefi einhvem veginn á
tilfinninguimi að þær
vilji frekar tala um málin
en leita þeirra málamiðl-
ana raunveruleikans,
sem í boði gætu verið.
Það sækir að mér nokkur
óvissa um það hvort
Kvennalistimi myndi
nota atkvæði til mikils
annars en orðræðna,
enda á hann erfitt með
! annað sem þverpólitískur
flokkur . . .“
Það er eðlilegt að höf-
undur velti því fyrir sér,
hvort þessi þijú framboð
líti eins út í augum kjós-
enda; hvort þessir þrír
vegir, sem um er að velja
á vinstri vægnum, liggi
allir að sama markinu.
Þegar almenningur tók
umbúðimar utan af
kosningasigri A-flokka
1983 blasti við innihaldið:
vinstri stjóm. Afrakstur-
inn af stjómaraðild Al-
þýðubandalagsins
1978-1983, sem skekur
þjóðarbúið enn i dag, er
fólki í fersku minni.
• •
Orkinog
Alþýðu-
bandalagið
Arfsögnin um synda-
flóðið og örkina lifír enn
í bókmenntum og sagna-
þekkingu fólks. Þjóðvilj-
inn, sem horfir upp á það
að fylgið rignir af Al-
þýðubandalaginu, hefur
undanfarið hugað mjög
að Hótel Örk i Hvera-
gerði. Af þvi tilefni segir
Helgi Þór Jónsson, eig-
andi Arkar, i viðtali við
Þjóðviljaim:
„Ég ætla að minna á
það að ég hreinsaði hús
Þjóðviljans árið 1973 og
þurfti að koma þrisvar
til þess að rukka af því
að eigendur hússins gátu
ekki komið sér saman
um, hvaða nafn ætti að
hafa á reikningnum. Svo
var ég að lokum beðinn
að fella niður söluskatt-
inn. Er þetta einhver
hefnd núna fyrir það?“
Beðinn að fella niður
söluskattinn í húsi Þjóð-
viljans, segir maðurinn.
Hér er ástæða til að
staldra við staðhæfíngu.
Hún kafnar ekki undir
nafni, „barátta" Alþýðu-
bandalagsins og Þjóðvilj-
3118 gegn skattsvikum.
V^terkurog
k J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
TSíframalkadiilinn
íti*11
<&i&ttisgötu 12-18
Honda Prelude EX 1985
Lblásans, sóllúga, vökvastýri, ABS
bremsur, sjálfskiptur. Athi skipti á ódýr-
ari. Verð 620 þús.
Ford Bronco II ’85
Biár, sjálfsk., litað gler o.fl. V. 880 þ.
Toyota Tercel 4x4 ’83
Grásans, Ameríkutípa með vökvastýri,
sportsætum, álfelgum o.m.fl. V. 450 þ.
BMW 318i '82
Steingrár, útvarp + kasettut. V. 380 þ.
Honda Civic Sport 1.5 '84
35 þ.km. Gulls., beinsk. 5 gira. V. 370 þ.
M. Benz 280 E '77
Sjálfsk., m/öllu. Gott eintak. V. 380 þ.
BMW 316 '84
26 þ.km. Sem nýr. V. 500 þ.
Subaru 1800 st. '86
16 þ.km. Afmaelisbflinn. Læst drif, sport-
felgur, rafm. I rúðum o.fl. V. 650 þ.
Lada Samara '87
5 þ.km. Útvarp + kasettut. V. 260 þ.
Opel Ascona '84
Rauöur, ekinn 65 þ.km. V. 410 þ.
10-20 mán. greiðslukjör.
Skoda Rapid '85 V. 190 þ.
Cirtoen GSA '81 V. 130 þ.
MMC Galant '80 V. 190 þ.
Fiat Mirafiori '79 V. 125 þ.
Citroen Cx 2400 *78 V. 265 þ.
Allt bílar í góður standi!
Komið og kíkið.
MMC Lancer GLX 1985
Silfurgrár, ekinn 38 jxjs. Útvarp + kasettut.
Sumar- og snjódekk. Skipti á Lada Sport.
^... >'
Ford Granada 1981
Rauður og grár. Ekinn 83 þús. Sumar og
vetradekk. Útvarp + kasettut. Verð 450 þús.
Peugot 505 st.
Drapplitaður með öllu. Verð 560 þús.
Citroen CX Athena 1981
Ekinn 92 þ.km. 5 gíra, aflstýri, rafm. í
rúöum, rafm.sóllúga o.fl. Verö 385 þús.