Morgunblaðið - 17.03.1987, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 17.03.1987, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1987 25 Hljómleikar í Háskóla- bíói til styrktar Krýsu- víkursamtökunum HLJÓMLEIKAR tU styrktar Krýsuvíkursamtökunum verða í Háskólabíói þriðjudaginn 17. mars nk. kl. 20.30. Á hljómleikun- um munu koma fram og gefa vinnu sína Rauðir fletir, Gypsy, Grafík, Centaur og Greifarnir. Forsala aðgöngumiða verður í Fálkanum Laugavegi og í Kama- bæ Austurstræti. Auk hljómleikanna verður fjár- söfnun á vegum Krýsuvíkursam- takanna sunnudaginn 22. mars og munu framhaldsskólanemar víðs vegar að hjálpa til við hana. Islenskur dúett, sem nefnir sig Takk, hefur gert hljómplötu með íslenskum lögum og enskum text- um, og mun ásamt bandaríska útgáfufyrirtækinu Refuge Records gefa hana út samtímis hérlendis og víðsvegar erlendis. Bauð dúettinn Krýsuvíkursamtökunum allan ágóðann af sölu hljómplötunnar innanlands. Hljómplatan frá Takk ber nafnið „Mirrored Image“. Krýsuvíkursamtökin hafa að Félag íslenskra leikara: Viðurkenning tengd nafni Lárusar Pálssonar AÐALFUNDUR félags íslenskra leikara var haldinn mánudaginn 23. febrúar sl. Á fundinum var samþykkt eftir- farandi tillaga: „Aðalfundur Félags íslenskra leikara, haldinn 23. febrú- ar 1987, samþykkir að veita við hveija útskrift úr Leiklistarskóla íslands einum leiklistarnema viður- kenningu fyrir vandaða framsögn og meðferð íslensks máls. Viður- kenning þessi verði tengd nafni og minningu Lárusar Pálssonar leik- ara.“ í þriggja manna dómnefnd fyrir þessa viðurkenningu kaus aðal- fundurinn þau Rúrik Haraldsson, sem formann, Kristbjörgu Kjeld og Sigurð Karlsson. Þá var á aðalfundinum samþykkt svohljóðandi ályktun: „Aðalfundur Félags íslenskra leikara, haldinn 23. febrúar 1987, samþykkir að beina því til menntamálaráðherra að hann skipi nefnd til að vinna að frumvarpi til laga um leiklistar- háskóla." í Félagi íslenskra leikara eru nú 270 meðlimir, þ.e. leikarar, óperu- söngvarar, listdansarar og leik- mynda- og búningateiknarar. Stjóm félagsins er nú þannig skip- uð: Arnór Benónýsson formaður, Sigríður Þorvaldsdóttir varafor- maður, Kristbjörg Kjeld gjaldkeri, Katrín Sigurðardóttir ritari og Ásdís Magnúsdóttir meðstjómandi. í varastjóm em Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir, Helga E. Jónsdóttir og Jakob Þór Einarsson. HRINGDU og fáðu áakriftargjöldin skuidfærð á greiðslukorta- reikning pinn manaoariega. [1 SÍMINN ER 691140 691141 markmiði að koma upp meðferðar- heimili fyrir unga vímuefnaneyt- endur og að vera með fræðslunám- skeið fyrir foreldra og áhugafólk um málefnið í húsnæði samtakanna við Þverholt 20 í Reykjavík. Skólabyggingin í Krýsuvík. . Nvja eirnnerniingstölvan frá IBM er sannkölluð hamhleypa! IBM PC XT286 er ný, geysidugleg einmenningstölva. Vinnslusnerpuna fær hún úr örgjörvanum Intel 80286 sem gerir hana allt að þrefalt fljótvirkari en fyrri gerðir PC XT tölva. Nýja tölvan er til mikils léttis við flókinn rekstur nútímafyrirtækja. Segja má að hún njóti sín best þegar mest ríður á að vinna fljótt og vel eftir margslungnum forsendum. Vinnsluminni er allt geymt á aðalborði tölvunnar. Það er ríflegt, alls 640 KB. Svo má auðvitað nýta tengiraufar undir minni ef þörfin stóreykst. Um er að ræða fimm 16-bita raufar og þrjár átta-bita. Með tölvunni kemur 20 MB fastur seguldiskur og disklingastöð fyrir 5,25 þumlunga, l,2ja MBdisklinga. Af öðrum fylgieiningum PC XT286 má nefna stóran aflgjafa (157 vött); spjald fyrir rað- og samsíðatengingu; og rafhlöðudrifna klukku fyrir tíma og dagsetningu. Ymis viðbótarbúnaður er fáanlegur. Þar er vert að nefna aukið vinnsluminni í 8,6 MB. Einnig er mikilvægt að völ er á þrenns konar disklingastöðvum til viðbótar: 5,25 þumlunga fyrir 1,2 MB disklinga, 5,25 þumlunga fyrir 360 KB disklinga eða 3,5 þumlunga fyrir 720 KB disklinga. PC XT286 er að sjálfsögðu samhæfð öðrum IBM PC XT og AT tölvum. Hún er alltaf vanda sínum vaxin og gildir þá einu hvort hún er notuð sem stök einmenningstölva eða tengd öðrum vélum. Láttu einhvern af söluaðilum okkar kynna þér þessa bráðsnjöllu tölvu! Söluaðilar: VANDVIRKNI í HVIVETNA Gísli J. Johnsen Skrifstofubúnaður sf. Nýbýlavegi 16. Sími 641222 Örtölvutækni hf. Ármúla 38. Sími 687220 Skrifstofuvélar hf. Ottó A. Michelsen Hverfisgötu 33.Sími 20560
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.