Morgunblaðið - 17.03.1987, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1987
Minning:
Bjamleifur Bjarn-
leifsson ljósmyndari
Kveðja frá DV
Bjamleifur ljósmyndari er fallinn
í valinn. Minn gamli góði vinur
hefur kvatt þennan heim og kemur
ekki aftur. Við sem eftir lifum drúp-
um höfði og kveðjum hann með
söknuði.
Bjamleif hafði ég lengi þekkt,
fyrst sem skósmið en síðar, og
lengst af, sem síkvikan og skemmti-
legan ljósmyndara. Hvort heldur
var á gamla Melavellinum, á fund-
-^n í Sjálfstæðishúsinu eða í ys og
þys mannlífsins á götum borgarinn-
ar, alls staðar var Bjamleifur
Bjamleifsson mættur á staðinn með
vélina sína á öxlinni, tilbúinn að
ná bestu myndinni, festa fólkið og
atburðina á fílmu. Við urðum fljótt
málkunnugir, enda var auðvelt að
kynnast þessum smáa en knáa
manni sem heilsaði kumpánlega,
brosti kankvíslega og var hvers
manns hugljúfí. Það átti við um
fleiri en mig að geðjast að Bjam-
leifí ljósmjmdara, enda fór hann
ekki í manngreinarálit. Jafnt háir
sem lágir þekktu Bjamleif og hann
þekkti þá. Fyrir vikið átti Bjamleif-
ur innangengt hjá mörgum mannin-
um sem gerði honum ljósmyndara-
starfíð auðveldara og árangursrík-
ara.
Þegar Dagblaðið og Vísir vom
sameinuð gerðumst við samstarfs-
menn á DV og gamli kunningsskap-
urinn varð að vináttu og nánu
daglegu samstarfi. Á það samstarf
féll enginn blettur. Bjamleifur var
samviskusamur, traustur og hlýr
félagi, boðinn og búinn til hvers
kyns verka en þess á milli skröfuð-
um við saman þar sem Bjamleifur
miðlaði mér m.a. af langri lífs-
reynslu sinni, glöggskyggni og
gamansemi.
Bjamleifur naut sín vel í starfí
ljósmyndarans og það sem hann
skorti á í faglegri menntun bætti
hann upp með árvekni og dugnaði
og margar frábærar ljósmyndir
liggja eftir Bjamleif. En það sem
skipti þó höfuðmáli var sú gleði, sú
einstaka ánægja og fullnægja sem
Bjamleifur hafði af starfí sínu.
Hann gekk glaður til starfa og tókst
allur á loft af einskærum fögnuði
þegar honum tókst vel upp með
góðum myndum. Góð mynd var
honum sem sigur og gleðin var eft-
ir því. Bjamleifur vann líka marga
sigra um dagana.
Nú er hann horfínn af sjónarsvið-
inu og við vinnufélagar hans
söknum vinar í stað. Aðstandendum
Bjamleifs em sendar dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Ellert B. Schram
Kveðja frá Félagi
íslenska prentiðnaðarins
Kynni okkar af ljósmyndaranum
Bjamleifí Bjamleifssyni em ekki
ýkja löng. Við kynntumst fyrst á
miðju síðasta ári, er hann kom til
liðs við tímaritaútgáfu félagsins.
Bjamleifur var skrafhreifínn og
skemmtilegur og hafði frá mörgu
fróðlegu að segja enda ferill hans
orðinn afar langur. Hann átti það
til að gleyma sér við spjall yfír
kaffíbolla um landsins gagn og
nauðsynjar. Ennfremur leyndi það
sér ekki að hann hafði unun af
starfí sínu og einkum og sér í lagi
íþróttaljósmyndun og var mjög vel
heima í þeirri íþrótt.
Bjarleifur var ætíð jákvæður,
taldi sig gæfusaman mann og virt-
ist sáttur við lífshlaupið. Hann er
okkur eftirminnilegur persónuleiki.
Við þökkum fyrir ánægjuleg
kynni og sendum eiginkonu hans
og fjölskyldu einlægar samúðar-
kveðjur.
Guðrún Jónsson
Bjamleifur Bjamleifsson blaða-
ljósmyndari er látinn. Bjamleifur
starfaði í rúm þijátíu ár sem blaða-
ljósmyndari, fyrst hjá Vísi, síðan
hjá Dagblaðinu og við sameiningu
blaðanna árið 1981 varð hann ljós-
myndari DV og gegndi því starfí
til dauðadags.
íþróttamenn og áhugamenn um
fréttir og myndir frá íþróttavið-
burðum minnast þessa áhugasama
og góða ljósmyndara með söknuði.
Því Bjamleifur leitaðist sérstaklega
við að lýsa íþróttaviðburðum og
umhverfí þeirra svo og þátttöku
áhorfenda á lifandi og skemmtileg-
an hátt. Sérstaklega minnast
handknattleiksáhugamenn mynda
Bjamleifs frá Heimsmeistara-
keppninni í handknattleik í Sviss á
síðastliðnu ári, og stjóm Hand-
knattleikssambandsins hafði þar
sem ávallt gott samstarf við þennan
áhugasama blaðaljósmyndara og
minnist með þakklæti þeirra áhuga-
verðu mjmda, sem hann lét HSÍ í
té eftir þessa keppni.
Stjóm Handknattleikssambands
Islands og landsliðsmenn fljdja frú
Maríu Jóhannesdóttur, bömum
þeirra hjóna svo og ættingjum
þeirra og vinum innilegustu samúð-
arkveðjur.
Jón Hjaltalín Magnússon
+
Maðurinn minn,
EINAR ERLENDSSON,
frá Vflc (Mýrdal,
andaöist í Borgarspítalanum 13. mars.
Þorgerður Jónsdóttir.
Maðurinn minn og faðir minn,
FRfMANN FRÍMANNSSON,
andaðist 14. mars sl. á Elliheimilinu Grund.
María Antonsdóttir.
Páll Anton Frímannsson.
BARNASKÓR
Strigaskór
m/frönskum rennilás.
Verð 790.-
Litur: Blátt, hvítt,
bleikt og gult.
^31| Stærðir: 22-34.
§| Strígaskór
m/frönskum rennilás
Verð 490.-
Stærðir: 21-27.
:tir: Blátt, bleikt
og gult.
Skríðskór
Verð 890.-
Stærðir: 18-21.
Efni: Leður.
Litur: Hvítt, svart.
20
TOPF
5% staðgreiðsluafsláttur. ~á&Á veltusundi2,
21212
raðauglýsingar
raðauglýsingar
ÍÉIll®i
Að skrifa skýrslu
Námskeið ætlað öllum sem í starfi þurfa
að skrifa skýrslu.
Megintilgangur námskeiðsins er að þátttak-
endur temji sér skipuleg vinnubrögð við
skýrslugerð og tileinki sér að skila auðlæsi-
legum og hnitmiðuðum skýrslum.
Markmið: Að loknu námskeiði skulu þátttak-
endur vera nokkru nær og því að geta:
★ Skilgreint markmið skýrslu og skipulagt
byggingu hennar út frá þeim,
★ skipulagt efnistök í skýrslu,
★ samið úrdrátt úr skýrslu,
★ skrifað skýrt og vandað mál,
★ gengið frá skýrslu til útgáfu,
★ beitt skipulegum vinnubrögðum við
skýrslugerð.
Margvísleg verkefni eru unnin á námskeiðinu.
Námskeiðið verður haldið í Borgartúni 6,
dagana 30. mars t.o.m. 2. apríl kl. 13.00-17.
00 alla dagana.
Kennari er Baldur Sigurðsson lektor.
Þátttökugjald er kr. 8.000. Vönduð náms-
gögn og kaffi innifalið.
Upplýsingar og innritun:
Fræðslumiðstöð iðnaðarins,
símar 687440 og 687000.
Lausafjáruppboð
eftir kröfu Ævars Guðmundssonar hdl., Ró-
berts Árna Hreiðarssonar hdl., sjávarútvegs-
ráðuneytisins og innheimtu ríkissjóðs verða
eftirtaldar bifreiðar seldar á opinberu upp-
boði sem haldið verður á skrifstofu embætt-
isins Aðalgötu 7, Stykkishólmi mánudaginn
23. mars 1987 kl. 14.00 eða annars staðar
þar sem bifreiðar þessar kunna að finnast:
P-1156 Volvo árgerð 1978, P-2214 Datsun
Laurel árgerð 1982, P-1337 Bedford vörubif-
reið árgerð 1974, P-2247 Volvo árgerð 1974.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaður Snæfellsness-
og Hnappadalssýslu.
Otí'cð
Einkasímstöð fyrir
ríkisspítala
Óskað er tilboða í stafræna einkasímstöð (PABX) fyrir rikisspítala.
Stærð:
900 númer, stækkanleg í a.m.k. 2000.
60 línur meö beinu innvali, stækkanleg i a.m.k. 100.
60 úthringingarlínur, stækkanleg i a.m.k. 100.
4 skiptiborð, stækkanleg I a.m.k. 8.
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, á kr. 1.000,
frá og með þriðjudeginum 17. mars 1987.
Tilboð verða opnuö á sama stað, föstudaginn 22. maí 1987 kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
HORGAi’.IUNI 7 SiMI 7u844
IH ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir
hönd Gatnamálastjórans í Reykjavík, óskar
eftir tilboðum í viðgerðir á steyptum gang-
stéttum víðsvegar í Reykjavík. Aætlað magn
u.þ.b. 10.000 m2. Útboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 5000 skilatryggingu. Tilboðin verða
opnuð á sama stað þriðjudaginn 31. mars
1987, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 Sínii 25800
Kópavogur — spilakvöld
Spilakvöld sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi verður í Sjálfstæðishús-
inu, Hamraborg 1, 3. hæð, þriðjudaginn 17. mars kl. 21.00 stundvis-
lega. Mætum öll.
Stjórnin.