Morgunblaðið - 15.04.1987, Page 2

Morgunblaðið - 15.04.1987, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 Samþykktin hafði ekkert með atkvæða- greiðsluna að gera - segir Davíð Oddsson, borgarstjóri Vagnstjórar hjá SVR hættu akstri ígærkvöldi VAGNSTJÓRAR hjá Strætisvögnum Reykjavíkur hættu akstri kl. 21.00 í gær- kvöldi og efndu til almenns fundar vagnstjóra vegna samþykktar borgarstjórnar í gær um launahækkanir til handa kvennastéttum um- fram það sem kveðið var á um í samningi. Þá samþykktu brunaverðir í Reykjavík álytkun, þar sem skorað var á borgarstarfs- menn að fella samningana. Onnur myndin var tekin á fundi vagnstjóra í gærkvöldi í mötuneytinu á Kirkjusandi og á meðan stóðu strætisvagnar hreyfingalausir. Atkvæðagreiðsla Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar: Talningu frestað vegna vinnubragða borgarráðs Starfsmannafélaginu hefur ekki í annan tíma verið sýnd önnur eins lítilsvirðing, segir formaður Starfsmannafélagsins „SAMÞYKKT borgarráðs í gær kemur atkvæðagreiðslu Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar ekkert við. Þessi samþykkt borg- arráðs gat ekki haft áhrif á atkvæðagreiðsluna til eða frá enda þetta ekki gert af okkar hálfu til þess að skipta okkur af henni,“ sagði Davíð Oddsson, borgarstjóri, í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi. Hann sagði að borgarráð hefði verið að ganga frá samningnum að sínu leyti í gær enda hefði hann ekki komið til afgreiðslu þess fyrr. „Borgarstjóm gerði samþykkt fyrir löngu síðan um að taka bæri tillit til kvennastétta og erum við ein- faldlega að fylgja eftir þeirri samþykkt. Öll laun mega gjarnan vera hærri, en ef ætlunin er að taka tillit til kvennastétta, eins og verið er sífellt að tala um, verða menn að una því. Ef, aftur á móti, þær Hag’virki: Byggir skrif- stofu- og versl- unarhúsnæði við Hverfisgötu HAGVIRKI hf. í Hafnarfirði festi nýveríð kaup á lóðinni skáhallt á móti Þjóðleikhúsinu við Hverfis- götu, en á henni eru nú bílastæði. Hyggjast forráðamenn Hagvirkis hefja þar byggingaframkvæmdir strax í haust, en nú er unnið að hönnun og teikningum. Að sögn Jóhanns Bergþórssonar forstjóra Hagvirkis er verið að teikna um 3.400 fermetra skrifstofu og verslunarhúsnæði á lóðinni. Bíla- geymsla á að verða undir öllu húsinu ennfremur að hluta á fyrstu hæð- inni. Lóðin var í eigu Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis. Jóhann kvaðst ekki geta gefíð upp kaup- verðið. „ÞETTA bréf breytir eingu,“ sagði Þorsteinn Pálsson fjár- málaráðherra, en honum hefur boríst bréf frá Jóni Magnússyni hdl. þar sem óskað er eftir upp- lýsingum um lánveitingar úr sjóði sem fjármálaráðherra ræður yfir, til Hallvarðs Einvarðssonar ríkissaksóknara. „Ég lýsti þeirri skoðun minni í gær að ekki værí tilefni til að birta neina nafna- lista. Fjárhagsmálefni einstakl- inga eru friðhelg nema þau bijóti í bága við lög og það er ekki fyrir hendi. Þess vegna stendur þessi ákvörðun mín óhögguð." „Ég hef verið í veikindafríi þessa daganna og þekki því ekki efni þessa bréfs,“ sagði Hallvarður Einvarðs- son ríkissaksóknari þegar bréf Jóns Magnússonar hdl. til fjármálaráð- herra var borið undir hann. „Þetta erindi er stílað til fjármálaráðherra og ætli hann svari því ekki. Ég get ekki séð hvernig þessi mál tengjast nema verið sé reyna að gera störf mín tortryggileg í einhveijum óljós- um samböndum." Þorsteinn Geirsson ráðuneytis- stjóri í dómsmálaráðuneytinu sagði að Hallvarður Einvarðsson hefði hækkanir sem kvennastéttirnar fá, eiga að ganga yfir alla, þá sitja allir við sama borð eftir sem áður,“ sagði Davíð. Borgarráð: Fóstrur og þroskaþjálfar hækkaumtvo launaflokka BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær tillögu Davíðs Odds- sonar borgarstjóra um að hækka laun fóstra og þroskaþjálfa um tvo launaflokka frá 1. maí næst- komandi og að hækka laun gæslukvenna á leikvöllum um einn launaflokk frá sama tíma. Tillagan var borin upp með hlið- sjón af samþykkt borgarstjórnar um að sérstakt tillit verði tekið til kvennastarfa við samningagerð við Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar. Samþykkt tillögunnar er bundin við, að heildarsamningur við Starfsmannafélagið verði sam- þykktur. í framhaldi af samþykkt tillögu borgarstjóra lagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fram eftirfarandi bókun: „Svo virðist sem sjálfstæðismenn hafi séð að sér frá því nýgerður kjarasamningur var undirritaður og séu nú tilbúnir til að koma til móts við fóstrur og aðrar kvennastéttir. Það er full ástæða til að fagna þess- um sinnaskiptum sem síður en svo voru fyrirsjáanleg á síðasta fundi borgarráðs. Þó ég hafði kosið að borgaryfirvöld stæðu þannig að málum að þau ræddu við fulltrúa fóstra um stöðuna í kjaramálum þeirra, þá dreg ég tillögu mína til baka meðan fóstrur flalla um þá nýju stöðu sem upp er komin.“ fengið lán frá Alberti Guðmundssyni þáverandi íjármálaráðherra löngu áður en Hafskipsmálið kom upp. „Það er því úr lausu lofti gripið að það geti spilað nokkuð inn á hans hæfí eða vanhæfi sem saksóknara í málinu," sagði Þorsteinn. „Enda sjá menn það þegar málið er hug- leitt að það er heilt embætti sem verður undan að láta því Hallvarður er ekki einn að vinn að þessu máli og alveg út í hött að hann eða aðr- ir lögfræðingar sem vinna að því séu með einhveija greiðasemi. Þetta liggur allt á borðinu og fer fyrir dómstóla og mér fínnst því lítilsvert að menn séu að velta fyrir sér hvort Hallvarður eigi að víkja sæti eða ekki. Það verður dómstólanna að skera úr um.“ í bréfí Jóns Magnússonar til Þor- steins Pálssonar fjármálaráðherra segir: „Meðfylgjandi er bréf dags. 21. janúar 1987 sem sent var ríkis- saksóknara og dómsmálaráðherra, þar sem farið var fram á, að ríkis- saksóknari viki sæti í málu umbjóð- anda míns, Ragnars Kjartanssonar, sem lýtur að meintu broti hans tengt svonefndu Hafskipsmáli. Þeirri kröfu var hafnað. ÁKVEÐIÐ hefur verið að fresta um óákveðin tima talningu í at- kvæðagreiðslu Starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar um nýjan kjarasamning, vegna Nú hefur ríkissaksóknari gefið út ákæru á hendur umbjóðanda mínum og fleirum vegna málsins. Við meðferð málsins fyrir Saka- dómi Reykjavíkur mun ég krefjast frávísunar málsins. Vegna þeirrar frávísunarkröfu er nauðsynlegt að fá sem bestar upplýsingar fyrirfram um tengsl ríkissaksóknara við alla aðila sem málinu tengjast. Þetta er nauðsynlegt vegna kröfu um opin- bera rannsókn á meðferð málsins í heild, sem sett veður fram innan skamms. Um hríð hefur verið í gangi þrá- látur orðrómur þess efnis, að árin 1984 eða 1985 hafi Hallvarður Ein- varðsson ríkissaksóknari fengið lán úr hendi þáverandi fjármálaráð- herra, úr sérstökum sjóði, sem íjármálaráðherra, hefur með að gera. Hér með fer ég fram á það við yður, herra fjármálaráðherra, að þér upplýsið eftirfarandi af framan- greindum ástæðum: 1. Fékk Hall- varður Einvarðsson ríkissaksóknari lán úr sjóði, sem fjármálaráðherra ræður yfir á árunum 1984 eða 1985 ? 2. Hver var fjárhæð lánsins og greiðslukjör ?“ vinnubragða borgarráðs, sem ákvað á fundi sinum í gær að breyta einliliða kjarasamningn- um á þann veg að veita fóstrum og þroskaþjálfum tveggja launa- flokka hækkun og gæslukonum eins flokks hækkun umfram það, sem kveðið er á um í samningn- um. Síðari dagur atkvæða- greiðslunnar var í gær og lauk henni klukkan 21. Þá höfðu 1.504 greitt atkvæði af um 2.750 fé- lagsmönnum. „Ég kann engar skýringar á þessari íhlutun borgarráðs. Ég held að þetta sé algert einsdæmi og ákaflega slysalega að verki verið. Menn eru sammála um það hér að Starfsmannafélaginu hafi ekki í annan tíma verið sýnd önnur eins lítilsvirðing, eins og gert er með þessu," sagði Haraldur Hannesson, formaður Starfsmannafélagsins í samtali við Morgunblaðið í gær- kveldi. Stjóm félagsins ályktaði um málið í gær, þar sem mótmælt er harðlega þeim vinnubrögðum borg- arráðs að breyta einhliða undirrit- uðum en óstaðfestum kjarasamn- ingi milli Starfsmannafélagsins og borgarinnar. Síðan segir: „Einkum er vakin athygli á þeirri smekkleysu að framkvæma slíka breytingu á síðari degi allsheijaratkvæða- greiðslu um kjarasamninginn. Jafnframt ályktar stjómin að fresta beri talningu atkvæða, meðan kannað er hvort borgarráð óski frekari breytinga á kjarasamningn- um“. Haraldur sagði að stjómin teldi rétt að athuga það áður en lengra væri haldið hvort borgarráð væri tilbúið til þess að gera frekari breyt- ingar á samningnum og það færi eftir undirtektum borgarráðs hvort sest yrði aftur að samningaborðinu. Hins vegar væri úmögulegt að segja hver þróun málsins yrði, en ákveðið hefði verið að kalla saman fulltrúa- ráð félagsins í dag, miðvikudag, og skýra því frá stöðu mála. Hann sagði að í samningaviðræðum við Reykjavíkurborg hefu margoft ver- ið settar fram kröfur um leiðrétt- ingu til handa fóstrum og öðrum hópum í félaginu. Afmælisdag- skrá til heið- urs Halldóri Laxness Á SUMARDAGINN fyrsta, 23. apríl nk., efnir menntamálaráð- herra til afmælisdagskrár « Þjóðleikhúsinu í tilefni af 85 ára afmæli Halldórs Laxness. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, flytur þar ávarp, Matthías Johannessen ávarpar af- mælisbamið og loks flytur Sigurður Pálsson afmæliskveðju frá Rithöf- undasambandi Islands. Sigrún Hjálmtýsdóttir og Krist- inn Sigmundsson flytja lög við ljóð Halldórs við undirleik Önnu Guðnýj- ar Guðmundsdóttur og Jónasar Ingimundarsonar, Herdís Þorvalds- dóttir les kafla úr íslandsklukkunni og loks verður leikið atriði úr Kristnihaldi undir Jökli og eru flytj- endur þeir Gísli Halldórsson, Jón Sigurbjömsson og Jakob Þór Ein- arsson. Umsjón með dagskránni hefur Sveinn Einarsson. Halldór Laxness og frú Auður verða viðstödd afmælisdagskrána, sem hefst kl. 14.00, og er öllum heimil ókeypis aðgangur meðan húsrúm leyfir. Þorsteinn Pálsson um bréf Jóns Magnússonar: Fjárhagsmál einstakl- inga eru friðhelg Nema þau brjóti í bága við lög og það er ekki fyrir hendi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.