Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987
STEFNUYFIRLÝSING
Ríkisstjórnin hefur því sett fyrstu aðgeröum sínum í efnahags-
málum eftirfarandi markmið:
• Atvinnuöryggi.
• Hjöðnun verðbólgu.
• Viðunandi jafnvægi í viðskiptum við önnur lönd.
• Verndun kaupmáttar lægst'u Íauna og lífskjara þeirra, sem
þyngst framfæri hafa.
Fvrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálurh ber að
skoða sem mikilvægan þátt í efnahagsstefnu hennar sem miðar aö
því að:
• Koma sem fyrst á viðunandi jafnvægi í efnahagsmálum þjóðar-
innar.
• Beina fjárfestingu fyrst og fremst í arðbær verkefni.
• Örva framfarir og fjölbreytni f atvinnulífinu.
• Bæta skipulag stjórnkerfisins og peninga- og lánastofnana.
Hér á eftir verður nánar lýst þeim aðgerðum, sem ríkisstjórnin
hefur ákveðið, en þörfin er brýrt fyrir róttæka stefnubreytingu, til
þess að sporna við þeirri óhcillaþróun, sem fylgt hefði óheftri
verðbólgu og jafnvægisleysi í þjóðarbúskapnum, og teflt efna-
hagslegu sjálfstæði þjóðarinnar í tvísýnu.
26. maí 1983
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar 26. mai 1983.
Á mótum kjörtímabila Alþingis:
Kosningar og framtíð
Stjórnarsáttmáli: orð og efndir
Samstjórn Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks (mynduð
26. mai 1983) skilar kjörtíma-
bili sínu í almannadóm 25. þessa
mánaðar. Samkvæmt stjórnar-
sáttmála vóru meginmarkmið
rikisstjórnarinnar fjögur:
* 1) Atvinnuöryggi.
* 2) Hjöðnun verðbólgu.
* 3) Jafnvægi í viðskiptum
við önnur lönd.
* 4) Verndun kaupmáttar
lægstu launa og lífskjara.
Minnsta atvinnuleysi í
Evrópu
Fjöldi fyrirtækja, einkum í sjáv-
arútvegi, var kominn fram á
hengibrún rekstrarstöðvunar vor-
ið 1983, þegar verðbólgan var um
130% - og vaxandi, án mótað-
gerða. Atvinnuvegimir höfðu sætt
taprekstri um árabil; fyrirtækin
gengið á eignir og safnað skuid-
um, m.a. erlendis.
Rekstraröryggi fyrirtækja er
hin hliðin á atvinnuöryggi al-
mennings, ef grannt er gáð. Þetta
á ekki sízt við um sjávarútveginn,
undirstöðuatvinnuveg þjóðarinn-
ar. Fjöldastöðvun fyrirtækja, sem
blasti við 1983, gat leitt til hlið-
stæðs atvinnuleysis hér og er í
mörgum grannríkjum. Atvinnu-
leysi er víða þjóðarböl og brýtur
niður einstaklinga og heimili.
Svo vel hefur hins vegar til
tekizt að hér á landi er minnsta
atvinnuleysi í Evrópu; vinnufram-
boð á sumum sviðum umfram
eftirspum.
Hjöðnun verðbólgn
Verðbólga var 40% til 60% á
ári 1974-1982. Síðari hluta árs
1982 og í byrjun árs 1983 fór
verðbólga ört vaxandi og mældist
yfir 130% á fyrsta ársfjórðungi
1983. Án mótaðgerða stefndi í
illleysanlegan hnút.
Á árinu 1986 var verðbólga
hinsvegar komin niður í 13%, sem
var minnsta verðbólga á heilu ári
síðan viðreisnarstjómin skilaði af
sér 1971.
Allt kapp er nú lagt á að festa
þennan árangur í sessi, enda er
stöðugleiki í efnahagslífí forsenda
restraröryggis atvinnuvega og
fyrirtækja, sem og atvinnuöryggis
almennings og hagvaxtar, það er
batnandi kjara landsmanna.
Viðskiptajöfnuður
Viðskiptahalli og erlend skulda-
söfnun settu svip á íslenzkan
þjóðarbúskap á verðbólguárunum.
Þessi öfugþróun veikti efnahags-
legt sjálfstæði okkar. Gerði
þjóðarbúskapinn háðan erlendu
lánsfjármagni. Batt samfélagið í
skuldaflötra.
Viðskiptahalli var 8,4% af
landsframleiðslu 1982, minnkaði
nokkuð 1983, en jókst aftur 1984
og 1985.
Árið 1986 tókst hinsvegar að
ná hagstæðum viðskiptajöfnuði
(550 m.kr.) í fyrsta skipti síðan
1978. Á sl. ári eyddum við sum
sé heldur minna en við öfluðum
í milliríkjaviðskiptum.
Erlendar skuldir komust hæst
í 56,6% af landsframleiðslu; tóku
til sín milli fimmtungs og Qórð-
ungs útflutningstekna í greiðslu-
byrði, sem sagt hefur til sín í
lakari Iífskjömm en ella. Netto
erlendar skuldir náðust á sl. ári
niður í u.b.b. 48,8% af lands-
framleiðslu. En betur má ef duga
skal.
Jafnframt hefur spamaður
(inn-lán í banka og hliðstæðar
stofnanir), sem fór niður í 20%
af þjóðarframleiðslu 1980, náðst
upp í 30% þjóðarframleiðslu. Þetta
spamaðarhlutfall fór upp í 40% á
sjöunda áratugnum (viðreisnarár-
unum).
Kaupmáttur
Kaupmáttur heildarlauna á mann
eykst um 8,7% á ári að meðaltali
1985, 1986 og 1987.
Kaupmáttur lægstu launa er
nú hærri en nokkri sinni fyrr að
undanskildu einu ári, 1982.
Kaupmáttur tímakaups nálgast
nú að vera sá sem hann var mest-
ur. Þar með hefur langleiðina
tekizt að vinna upp þá kaup-
máttarskerðingu, sem varð á
árunum 1982, 1983 og 1984 - og
var að stærstum hluta (2/3.) kom-
in fram fyrir tíma núverandi
ríkisstjórnar.
Kaupmáttarskerðing hefði efa-
lítið haldið áfram ef ekki hefði
tekizt að slá verðbólguna niður.
Hagvöxtur, sem er forsenda
raunhæfs kaupmáttar (kjarabóta
án verðbólgu), er nú meiri en yer-
ið hefur um langt árabil. Árið
1987 verður heildarframleiðsla
17% meiri í landinu en árið 1983.
Þetta jafngildir 4% aukningu til
jafnaðar á ári.
Hagvöxturinn er að hluta til
ávöxtur hagstæðra ytri skilyrða,
en á ekki síður rætur í stöðugleika
og jafnvægi í þjóðarbúskapnum.
Hönnun framtíðar
Stjómarflokkarnir tveir leggja
störf sín á kjörtímabilinu, sem að
framan eru rakin, í almannadóm
25. þessa mánaðar. Nefna má og
skattkerfisbreytingu (skattalækk-
anir og staðgreiðslu), aukið fijáls-
ræði í íjölmiðlun og efnahagsmál-
um, félagslegar framfarir, lengt
fæðingarorlof o.m.fl.
Atkvæði hugsandi kjósenda
byggjast á tvennu:
I fyrsta lagi mati þeirra á
frammistöðu stjómarflokkanna á
líðandi kjörtímabili.
I annan stað er atkvæði þeirra
hönnun framtíðar, ávísun á stjóm-
arstefnu næsta kjörtímabil.
Niðurstaða kosninganna ræður
því hvort hér ríkir stefnufesta og
stöóugleiki í Stjómarráði íslands
- og þjóðarbúskap - næstu árin.
Eða fjölflokkaglundroði og nýir
verðbólgutímar. í þeirri niður-
stöðu verður þjóðin sinnar gæfu
(eða ógæfu) smiður.
^ raöauglýsingar — raöauglýsingar — iraöaugjýsingar j
Kosningamiðstöð
D-listans íValhöll
í dag miðvikudaginn 15. apríl verða frambjóðendurnir Ragnhildur
Helgadóttir, Sigurlaug Sveinbjörnsdótir og Jón Magnússon í kosn-
ingamiðstöð D-listans í Valhöll. Litið inn og ræðið málin. Leikaðstaða
fyrir börnin og heitt kaffi á könnunni. . ...... ■
Sjalfstæðisflokkunnn.
IIFIMDAL1.UR
( F - U ' S
Kosningaskrifstofa ungs
fólks í Reykjavík
Kosningaskrifstofa ungs fólks í Reykjavík verður opin alla daga fram
yfir kosningar frá kl. 17.00 og fram eftir kvöldi. Skrifstofan er staðsett
í kjallara Valhallar, Háaleitisbraut 1.
Allt ungt fólk velkomið.
Nýir félagar eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Heimdallur.
Kópavogur
— kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi er í Sjálfstæðis-
húsinu, Hamraborg 1, 3. hæð. Skrifstofan verður opin alla virka
daga frá kl. 9.00-22.00. 16. apríl, skirdag, verður opið frá kl. 15.00-
19.00.17. apríl, föstudaginn langa, verður lokað. 18. apríl, laugardag,
opið frá kl. 10.00-19.00. 19. apríl, páskadag, verður lokað. 20. april,
annan páskadag verður opið frá kl. 15.00-19.00, 23. apríl, sumardag-
inn fyrsta, verður opið frá kl. 15.00-22.00. Símsvari er opinn allan
sólarhringinn, simi 40708. Kosningarsímar eru 44017,44018, 44143,
44173, 44183, 44263, 44283, 44753, 44773, 45153 og 45183.
Sjálfstæðisflokkurinn.
X-D X-D
Kosningamiðstöð
D-listans íValhöll
Heitt á könnunni allan daglnn frá kl. 10.00.
Leikaðstaða fyrir börn.
Lftið inn og ræðið málin.
Herðum sóknina sjálfstæðismenn.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Háaleitishverfi
Fundur með umdæmafulltrúum og stuðningsmönnum i dag, miðviku-
daginn 15. apríl kl. 18.00 í Valhöll, kjallara. Frambjóðendur mæta.
Stjórnin.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboðinn í Hafnarfirði
50 ÁRA
Afmælisfagnaður sjálfstæðiskvennafólagsins Vorboðans i Hafnarfirði
verður haldinn 23. apríl nk. (sumardaginn fyrsta) í Skútunni, Dals-
hrauni 15. Hófið hefst kl. 18.30 stundvíslega. Sala aðgöngumiða er
i versluninni Emblu, Strandgötu 29, simi 51055, versluninni Úrval,
Strandgötu 17, sími 54930 og Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu.
Mætið vel og takiö með ykkur maka. Stiórnin
Grindvíkingar
Kosningaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
i Grindavík er að
Litluvöllum
2, opið frá kl.
17.00-22.00. Síminn
er 92-8151. Stuðn-
ingsmenn eru
hvattir til að líta inn
og ræða málin.