Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 Rógnrinn um Albert eftir Skarphéðin Bjarnason Ég hefi um langan aldur fylgst með umræðum og blaðaskrifum um pólitík hér á landi og lesið mikið um það efni, allt frá aldamótum til vorra daga. Oft hefur umræðan verið hörð og óvægin. Ég held að öldurnar hafí risið einna hæst í borgarstjóra- kosningunum 1920, þegar Knud Zimsen náði kosningu í annað sinn. Þá voru rógskrifín og svívirðingam- ar á þann mæta mann svo yfír- gengilegar, að séra Friðrik í KFUM, sem aldrei hafði skipt sér af pólitík, gat ekki á sér setið að rita „Fáein orð um bæjarstjórnarkosning- una“ og birtist greinin í Vísi daginn fyrir kosninguna. Grein séra Friðriks „Væri ég nýkomin inn í bæjarfé- lagið og þekkti ekki Zimsen í sjón hvað þá meira, held ég, að ég kysi hann samt upp á meðmæli mót- stöðumanna hans, sem skína svo augljóslega í gegnum hinar „yfír- drifnu" skammir, að það dylst mér ekki, að hér væri um mikilhæfan mann að ræða. Ég hef að minnsta kosti ekki séð éins glöggt og áður, hvílíkt starf Zimsen hefur leyst af hendi, sem borgarstjóri, eins og ég sé nu, eftir að hafa lesið greinamar á móti honum." Aðf örin að Albert Ég rifla þessa sögu upp hér af því að mér sýnist að augljóst sé, að metið frá 1920 hafí verið slegið svo rækilega með rógsaðförinni að Albert undanfama daga, að ekki megi þetta í þagnargildi liggja. Það sorglega í þessum efnum er, að það em samherjar hans til skamms tíma hjá Morgunblaðinu og þingbræður, sem standa fyrir þessari ódrengilegu aðför. Svo rúm- frek em þessi skrif í Morgunblaðinu að síðustu fy'óra daga hefur ekki verið hægt að birta glansmyndir af Jóni Baldvin Hannibalssyni né hólgreinar um hann, sem annars hafa verið daglegt brauð á síðum blaðsins mánuðum saman. Ýmsir „mætir menn“ em fengnir til að rita um Albert, til að mynda Jón Sigurðsson, forstjóri á Gmnd- artanga, og þá bregður svo við að Jón sýnir á sér nýja hlið: ritsóði. Jóni Sigurðssyni er vorkunn, því í sömu mund og níð grein hans um Albert birtist er greint frá aðal- fundi verksmiðju hans á Gmndar- tanga. í Morgunblaðinu er haft eftir honum: „Reksturinn síðastliðið ár einkenndist af mikilli og tæknilega vel heppnaðri framleiðslu og mikilli sölu... 212 milljóna króna tap varð á rekstrinum." Sem sé eins og læknirinn sagði forðum: „Op- erationin heppnaðist, en sjúklingur- inn dó.“ Hver borgar þetta tap? íslenskir skattborgarar 55%. TAP ÍSIclmka járnblendifélags- ins hf á Grundartanga síðastliðið ár nam 212 rniHjónum króna sam- kvœmt íslenska efnahagsreikn- ingi fyrirtækisins, en 26 milljónum norskra króna sam- kvæmt norska reikningnum. Tapið samkvæmt íslenska reikn- ingnum reyndist vera 17,5% af veltu, sem var liðlega 1200 milþ'- ónir íslenskra króna. Tapið samkvæmt norska efnahags- reikningnum reynist hins vegar ekki vera nema um 10% af veltu. Aðalfundur félagsins var haldinn 31. mars sl. og í ársskýrslu fyrir- tækisins sem lögð var fram á fundinum kemur fram að rekstur- inn síðastliðjð ár einkenndist af mikilli og tæknilega vel heppnaðri framleiðslu og mikilii sölu. Það sem gerir það að verkum að afkoma fyrirtækisins varð ekki betri en raun | „Svo rúmfrek eru þessi skrif í Morgunblaðinu að síðustu fjóra daga hefur ekki verið hægt að birta glansmyndir af Jóni Baldvin Hanni- balssyni né hólgreinar um hann, sem annars hafa verið daglegt brauð á síðum blaðsins mánuðum saman.“ Albertþarf ekki að örvænta Albert Guðmundsson hefur um dagana marga hildi háð. Hann er fæddur undir heillastjömu. Fólkið í landinu, litli maðurinn skjólstæð- ingur hans, og borgaramir almennt hafa risið upp og slá skjaldborg um hann og flokk hans. Skoðanakann- anir sýna það augljóslega, að 25. Jón Sigurðsson Séra Friðrik Friðriksson apríl verður sigurdagur Borgara- flokksins. Nú er síðasta hálmstrá rógberanna fokið út í veður og vind. Albert verður ekki ákærður og hef- ur ekki „stöðu gmnaðs manns", eins og þeir hafa látið það heita. Við Albert vil ég að lokum segja: Láttu ekki deigan síga og haltu Þegar hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri gerir eftir Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur Þann 12. apríl sl. skrifar Ragn- hildur Helgadóttir, núverandi heilbrigðis- og tryggingaráðherra; grein í Morgunblaðið og nefnir 1 þágu barna. í greininni fjallar Ragnhildur um það sem hún nefnir framfaraspor Sjálfstæðisflokksins í málefnum bama og notar jafnframt tækifærið til að vega heldur ómak- lega að kynsystrum sínum í stjóm- málum. Barnabætur og mæðralaun Lítum fyrst á framfarasporin. Samkvæmt grein Ragnhildar hafa þau verið þrjú á umliðnum fjórum ámm, þ.e. ný lög um fæðingaror- lof, hækkun mæðralauna og hækkun bamabóta. Hvað mæðra- launin og bamabætumar varðar tiltekur hún hækkun þeirra í pró- sentum en sleppir að geta um hverjar upphæðir þessara bóta em í krónum talið, sem vitaskuld skipt- ir öllu fyrir þá sem í hlut eiga. Því miður em upphæðimar lágar þrátt fyrir ríflega prósentuhækkun. Mæðralaun með 1 bami á ári em í dag 33.948 kr. og bamabætur með 1 bami em nú á bilinu 12.625 til 37.875 kr. á ári. Gefur auga leið að þegar framfærslukostnaður vísitölufjölskyldunnar nálgast 1.100.000 kr. á ári ná þessar bætur skammt til að létta þeim byrðina sem böm hafa á framfæri sínu. Fæðingarorlofið Veigamest þessara þriggja fram- faraspora er því tvímælalaust fæðingarorlofíð. Þegar fmmvarp til laga um leng- Sigríður Dúna Kristmundsdóttir „Þótt fæðingarorlofs- greiðslur til heimavinn- andi kvenna hækki við þetta um 50% eins og Ragnhildur tiltekur í grein sinni, er stað- reyndin eftir sem áður sú að enn bera heima- vinnandi konur stór- lega skertan hlut frá borði, þær fá áf ram miklu Lægri greiðslur í fæðingarorlofi en aðr- ar konur.“ ingu fæðingarorlofs birtist á verkefnalista ríkisstjómarinnar sl. haust fögnuðu kvennalistakonur því innilega, enda búnar að flytja slíkt fmmvarp þijú þing í röð án þess að fá það nokkum tíma afgreitt úr heilbrigðis- og trygginganefnd efri deildar Alþingis, sem eins og aðrar þingneftidir var að meirihluta skip- uð sjálfstæðis- og framsóknar- mönnum. Þegar boðað stjómarfrumvarp um lengingu fæðingarorlofs birtist svo loks á síðustu dögum þingsins og var haskað þar í gegn án viðun- andi umfjöllunar, kom í ljós að gallar vora á gjöf Njarðar. I fyrsta lagi var gert ráð fyrir að lenging fæðingarorlofs úr 3 mánuðum í 6 tæki þijú ár í stað þess að taka gildi í einum áfanga eins og Kvennalistinn hafði lagt til og sem nauðsynlegt er m.a. í ljósi þess að nú vinna yfír 80% kvenna utan heimilis og eiga flestar í fá hús að venda með ungböm sín. í öðm lagi fylgdi fmmvarpinu ekkert tekjuöflunarfmmvarp til að standa straum af kostnaði vegna lengingar fæðingarorlofs en slíkt fmmvarp hafa kvennalistakonur jafnan lagt fram með fæðingaror- lofsfmmvarpi sínu. Ragnhildur leggur það því á herðar næstu ríkis- stjómar að standa straum af þeim kostnaði sem hin nýju lög hafa í för með sér. Og í þriðja lagi var gallinn sá að í því greiðsluframvarpi, sem fylgdi fmmvarpi heilbrigðisráðherra um fæðingarorlof, var gert ráð fyrir mjög mismunandi greiðslum til kvenna í fæðingarorlofi. Konum mismunað Konur em fyrirvinnur engu síður en karlar og því hefur Kvennalistinn jafnan lagt til að konur héldu laun- um sínum óskertum í fæðingaror- lofí, en að engin kona, hvorki heimavinnandi né útivinnandi, fengi þó minna en fulla viðmiðunar- greiðslu eða rúmlega 32 þús. kr. á mánuði nú. Greiðslutilhögun Ragnhildar fel- ur hins vegar í sér að einungis opinberir starfsmenn og banka- menn njóta fullra launa í fæðingar- orlofí, enda er þeim það tryggt í kjarasamningum. Kona sem er op- inber starfsmaður og hefur t.d. 50 þús. kr. í mánaðarlaun fær því sínar 50 þús. kr. í fæðingarorlofi. Kona sem vinnur fulla vinnu annars stað- ar á vinnumarkaðnum fær hins vegar rúmar 33 þús. kr. á mánuði í fæðingarorlofí samkvæmt hinum nýju lögum, kona í hálfu starfí fær um 24 þús. kr. og minnst fá heima- vinnandi konur eða aðeins um 15 þús. kr. á mánuði í sínu fæðingaror- lofí. Þótt fæðingarorlofsgreiðslur til heimavinnandi kvenna hækki við þetta um 50% eins og Ragnhildur tiltekur í grein sinni, er staðreyndin eftir sem áður sú að enn bera heimavinnandi konur stórlega skertan hlut frá borði, þær fá áfram miklu lægri greiðslur í fæðingaror- lofí en aðrar konur. Virðing ráðherra Þessa tilhögun fæðingarorlofs- greiðslna gátu Kvennalistakonur með engu móti samþykkt. Þing- konur Kvennalistans bæði í efri og neðri deild Alþingis sátu því hjá í atkvæðagreiðslu um greiðslufmm- varp Ragnhildar. Hins vegar greiddu þær allar fæðingarorlofs- fmmvarpinu sjálfu atkvæði sitt og því hallar Ragnhildur Helgadóttir réttu máli þegar hún skrifar: „Allir þingmenn efri deildar Al- þingis nema einn greiddu þó atkvæði með nú. Var það þing- maður Kvennalistans. Minnir það óneitanlega á yfirlýsingu refsins um að berin væm súr, þegar hann náði þeim ekki sjálfur." Albert Guðmundsson ótrauður áfram baráttunni. Mundu það sem Hannes Hafstein kvað: Taktu ekki níðróginn nærri þér. Það næsta gömul er saga, að lakasti gróðurinn ekki það er, sem ormamir helst vilja naga. Vitaskuld er það fyrir neðan virð- ingu ráðherra að haga orðum sínum á þann veg meðan staðreyndir máls- ins em þær sem að ofan greinir. Dæmisagan um refinn og súm ber- in hefði því betur verið ósögð í þessu samhengi — því bæði refurinn og súm berin era hér á skökkum stað. Hin hliðin á stjórnar- stefnunni í lofgrein Ragnhildar um fram- faraspor Sjálfstæðisflokksins í þágu bama er vitaskuld ekki aukatekið orð að fínna um þá hlið stjómar- stefnunnar sem beinlínis hefur bitnað á bömum. Það mætti halda að Ragnhildur vissi ekki að lág- launastefna ríkisstjómarinnar hefur gert það að verkum að for- eldrar ungra bama verða flestir að vinna fulla vinnu utan heimilis og að fjölmörg böm eiga þess því eng- an kost að hafa annað hvort foreldri sitt heima. Veit hún ekki að á með- an báðir foreldrar verða að vinna utan heimilis er aðeins rúm fyrir 10% bama á aldrinum 0—6 ára á dagvistarheimilum, sem þýðir að mörg börn em á þvælingi á milli leikskóla, dagmæðra og ættingja dag hvem? Veit hún ekki að ríkis- stjómin hefur á hverju ári skorið niður framlög til dagvistarmála bama og fellt allar tillögur Kvenna- listakvenna og annarra um hækkun á framlögum til þessara mála? Veit hún ekki að nýju skattalögin, sem stjómarflokkamir samþykktu ný- lega á Alþingi, þyngja skattbyrði bamafjölskyldna með meðaltekjur á meðan þau létta skattbyrði þeirra sem. barnlausir em? Og veit hún ekki að sjálfstæðis- og framsóknar- menn felldu tillögur Kvennalistans um að nota þær 1.750 milljónir, sem áætlað er að fari í samsköttun hjóna, til þess að hækka bamabæt- ur um 100% frá því sem kveðið er á um í nýju skattalögunum? Það er eins og höndin sem skrif- aði greinina í þágu barna viti ekki hvað hin höndin hefur verið að gera í ríkisstjómarsamstarfi Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks undanfarin fjögur ár. Höfundur var einn af alþingis- mönnum Kvennalista á því kjörtímabili, sem eraðþúka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.