Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 74
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1987
74
HANN ER ORE>|NN LEie>OR’A
pESSO/M GÖ/MLU TÍ/MARlTO/H."
ást er...
. . . páskaegg með
saári fyl/ingu.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
° 1987 Los Angeles Times Syndicate
Mér finnst kominn tími
til að ég eignist bróður.
Ég get hjálpað, því það
var um þetta í skólanum
í dag!
Með
morgnnkaffinu
sé um það!
HÖGNI HREKKVlSI
„ mcamma-þ'in cxb þú gsetir búiá
•kiL kjarnorkuvél
Nú er tækifærið að
sýna vilja sinn í verki
Til Velvakanda
Góðir Akurnesingar. Leggjum
þeim lið, sem lífsorku eyddu í að
gera ísland að einu mesta velferðar-
ríki veraldar. Dvalarheimilið Höfði
er hálfunnið verk. Þar vantar að
sjálfsögð nútímaþægindi; eldhús,
borðsal, dagvistun, þjónustuaðstöðu
fyrir heilsurækt, föndur, samkomu-
sal og margt fleira. Þá er einnig
brýn þörf fyrir aukið vistrými. Um
70 manns bíða eftir plássi á Höfða,
margir með brýna þörf, svo ekki
verður á horft án aðgerða. Allt er
þetta mikið alvörumál, sem ætti að
hafa forgang annarra verkefna.
Gamla fólkið er ekki kröfugerðar
fólk og hefur mátt þola margt súrt
og sætt í gegnum tíðina. Nú er öld-
in önnur, hrein gullöld á Islandi,
samanborið við það sem gamla fólk-
ið ólst upp við. Það væri smánar-
blettur á nútímamenningarþjóð-
félagi að hygla ekki vel áum sínum
í ellinni. Nú er tækifærið, kæru
Akurnesingar, til að sýna vilja sinn
í verki. Þann 25. apríl nk., þegar
við göngum í kjörklefa, verður í
leiðinni spurt: „Vilt þú leggja upp-
byggingu II áfanga Höfða lið með
því að leggja nokkrar krónur af
hendi, einu sinni á ári í 4 ár. Gjald-
ið verður miðað við upphæð útsvars.
Sem dæmi: Sá sem greiðir 30 þús-
und krónur í útsvar greiddi til II
áfanga 1.500 krónur, líkt og ein
máltíð fyrir einn kostar á hóteli í
dag, svo hóflegt er þetta. Hlutfallið
breytist vissulega eftir tekjum og
útsvari. Verði allir gjaldendur á
Akranesi með er þrautin leyst í eitt
skipti fyrir öll. Núlifandi fólk hefur
þar með reist sér óbrotlegan minni-
svarða, með drengskap og dáð, sem
verður þeim til sóma, svo vekur
þjóðar athygli, munum það. Akur-
nesingar, allir sem einn, gerum
stórátak með lítilli fórn. Við vorum
mörg saman á fundi í gærkvöldi
með byggingar- og fjáröflunar-
nefnd II áfanga Höfða. Þar kom
fram einhugur fólks um að leggja
þessu máli allt það lið, sem í þess
valdi stæði. Við trúum því ekki, að
Þessir hringdu . .
/3 Vo\»A 1 \
Valdaníðsla?
Árni Valur Vigfússon hringdi:
„Mig langar til að koma eftirfar-
andi fyrirspurn á framfæri: Hvar
var siðgæði Sjálfstæðisflokksins
þegar að Sverrir Hermannsson
framkvæmdi valdníðslu sína með
því að flæma Sturlu Kristjánsson
fræðslustjóra úr embætti?"
Brúnt veski
nokkur sómakær Akumesingur,
eða aðrir velunnarar þessa máls,
segi ekki já á atkvæðaseðlinum og
leggi málinu þar með lið. Ég heiti
á ykkur öll að gera það góðverk.
Réttum öldnum holla hönd
hugsjón megi dafna.
Reisum hús við sólarströnd
síst má áum hafna.
að lit með tveimur höldum. í því
em m.a. persónuskilríki og lyklar.
Finnandi er beðinn að skila vesk-
inu á Lögreglustöðina i Reykjavík.
Blágrár ullarfrakki
Hinn 28. mars var blágrár ull-
arfrakki tekinn á Fógetanum í
misgripum fyrir ljósgráan frakka
með bíllyklum og svörtum hönsk-
um í vösum. Sá sem frakkann tók
er vinsamlegast beðinn að hafa
samband í síma 2 41 01 eða 61
13 56.
Ákeyrsla
Laugardaginn 4. apríl varð það
óhapp við Fákshesthúsið við Bú-
staðaveg að bakkað var á bíl. Er
ökumaðurinn beðinn að hafa sam-
band við Sigrúnu í síma 62 38 79.
Svart karlmannsúr
Veski tapaðiðst á „Hrafninum" Fundist hefur svart karlmanns-
eða í grennd við staðinn fimmtu- úr í Álfheimum. Eigandi þess
daginn 2. apríl. Veskið er brúnt getur hringt í síma 2 20 83.
Valgarður L. Jónsson
Víkverji skrifar
Eina stóra auglýsingin, sem
Víkveiji hefur séð utandyra í
tilefni af kosningunum 25. apríl
næstkomandi, er á vegum Alþýðu-
bandalagsins á Reykjanesi. Nafn
annars mannsins á lista flokksins
þar hefur verið fest á aðra brúna
yfir Hafnarfjarðarveginn í Kópa-
vogi. Annars hefur kosningabarátt-
an að verulegu leyti verið háð með
aðstoð auglýsingamanna. Einnig að
þessu leyti höfum við tekið upp siði
nágrannaþjóðanna. Athyglisvert er,
að þeir stjómmálaflokkar, Alþýðu-
bandalagið og Framsóknarflokkur-
inn, sem vöruðu hvað mest við því,
að afnám ríkiseinokunar á útvarps-
rekstri myndi leiða til þess að
„peningaöflin" legðu nýju stöðvarn-
ar undir áróður sin, til dæmis í
kosningum, hafa rutt brautina með
því að auglýsa í hinum nýju stöðv-
um, Alþýðubandalagið í Bylgjunni
og Framsóknarflokkurinn í Stöð 2.
Þeir, sem dvalist hafa í útlöndum
fyrir kosningar, vita, að þar verða
menn helst varir við baráttu fram-
bjóðenda á risastórum veggspjöld-
um, sem fest eru á hús eða
auglýsingapalla. Auglýsing Al-
þýðubandalagsins á Kópavogs-
brúnni er kannski fyrirboði þess,
sem koma skal í þessum efnum.
Miðað við almennt neikvætt tal um
auglýsingar í hópi þeirra, sem skipa
sér undir merki Alþýðubandalags-
ins, er forysta flokksins í auglýs-
ingamennsku fyrir kosningar enn
ein staðfestingin á því, að oft er
langt bil milli orða og athafna á
þeim bæ.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur
nú verið vígð og tekin í notk-
un. Af því tilefni finnst Víkverja
við hæfi að minna á hugmynd, sem
hann hefur hreyft áður, að á ein-
hveijum vegg í hinni nýju stöð verði
þeirra minnst, sem voru andvigir
því að í smíði hennar yrði ráðist eða
fundu framkvæmdinni allt til for-
áttu. Skammsýni og fordómar
þeirra manna eru ekki síður hluti
af sögu hinnar glæsilegu byggingar
en hlutur þeirra, sem létu úrtölu-
mennina ekki ráða ferðinni. Mætti
minnast andstæðinga hússins með
því að hafa myndir af þeim ein-
hvers staðar á veggjum þess og
birta við myndirnar orðréttar til-
vitnanir í orð þeirra.
Helgi Ágústsson, sem var for-
stöðumaður varnarmáladeildar á
þeim tíma, þegar lokaskrefin í form-
legum undirbúningi undir fram-
kvæmdina, voru stigin, sagði meðal
annars í Morgunblaðinu síðastliðinn
sunnudag: „Þetta var sem sagt
hörð rimma og það voru miklar
umræður um málið í fjölmiðlum.
Þar beittu nokkrir alþýðubanda-
lagsmenn sér mjög gegn þessum
áformum, menn eins og til dæmis
Ólafur Ragnar Grímsson. Ólafur
Ragnar hélt mjög þeim skoðunum
sínum á lofti að byggingin væri
alltof stór og íburðarmikil."
í tíð ríkisstjórnar Gunnars Thor-
oddsen 1980 til 1983 hafði Al-
þýðubandalagið neitunarvald
varðandi framkvæmdir við hina
nýju flugstöð. Beitti það þessu valdi
og taldi allt annað brýnna í íslensk-
um flugmálum en þessa fram-
kvæmd við Keflavíkurflugvöll.
A
Aþessari fjölmiðlaöld gætir þess
æ meira, að fréttamenn reyna
að segja fréttirnar áður en þær
gerast. í hádeginu á sunnudaginn
var til dæmis viðtal við Svan Kristj-
ánsson, stjómmálafræðing, í frétt-
atíma Bylgjunnar um það, hver
ætti að fá ymboð til stjórnarmynd-
unar að kosningum loknum. Velti
fræðingurinn vöngum yfir þessu á
grundvelli skoðanakannana. Að
mati Víkvetja eiga vangaveltur af
þessu tagi ekkert skylt við fréttir.
Þær setja nú allt of mikinn svip á
fréttatíma ljósvakamiðlanna. Telji
þessir miðlar sér ekki annað fært
en hafa uppi getspár um framvindu
stjórnmála eða annarra þjóðfélags-
mála ættu þeir að sjá sóma sinn í
því, að senda þær út á öðrum tímum
en þeim, þegar fólk stendur í þeirri
trú, að það sé að hlusta á fréttir.
Til þessa hefur það verið í verka-
hring lögfræðinga og þeirra, sem
hafa lagt stund á stjórnlagafræði
og gjörþekkja stjórnarskrána og
þær lögfræðilegu röksemdir, sem
hún byggist á, að leggja mat á
embættisverk forseta Islands til
dæmis við stjórnarmyndanir. Ef
marka má fyrrgreinda „frétt“ í
Bylgjunni, sýnast fréttamenn líta
þanning á, að stjórnmálafræðingar
eigi að leggja mat á þennan þátt í
starfi forseta íslands. Ef til vill er
eðlilegt að stjórnmálafræðingar
taki við af lögfræðingum við að
skilgreina hlutverk forseta íslands.
Á hinn bóginn telur Víkveiji betra
til lengdar að halda sér við lögfræði-
legar forsendur í þessu efni en
niðurstöður skoðanakannana og
sviptingar í stjórnmálaheiminum.