Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 t Eiginmaöur minn, sonur minn og faðir okkar, GUÐMUNDUR MAGNÚSSON, Kleppsvegi 84, Reykjavik, lést í Borgarspítalanum þriðjudaginn 14. apríl. Jaröarförin verður auglýst síöar. Margrét Tómasdóttir, Sigríður Danielsdóttir, Már Guðmundsson, Svava S. Guðmundsdóttir, Snorri Guðmundsson, Magnús Tumi Guðmundsson, Elisabet Vala Guðmundsdóttir. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HALLDÓRA GUÐLAUG KJARTANSDÓTTIR, Háagerði 77, andaðist í Borgarspítalanum 13. apríl sl. Guðmundur Már Brynjólfsson, börn, tengdabcrn og barnabörn. t Eiginmaður minn, SÍMON TEITSSON, Þórólfsgötu 12, Borgarnesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness 13. apríl sl. Jaröarförin auglýst síðar. Unnur Bergsveinsdóttir. t Eiginmaður minn, ÞÓRARINN BJARNASON frá Reyðarfirði, til heimilis á Álfaskeiði 64d, Hafnarfirði, lést í Landspítalanum að morgni 14. apríl. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Jónina ívarsdóttir. Minning: Guðmundur Sveins- son frá Góustöðum Undir hlíðum Kubbans — höfuð- prýði Skutulsfjarðar — á Góustöð- um voru bernskuslóðir Guðmundar Sveinssonar. Þar ólst hann upp til fullorðinsára og innan fjallahrings SkutulsQarðar hefir starfsvettvang- ur hans lengst af verið. Hann lézt í Landakotsspítala í Reykjavík, 9. apríl sl., á 74. afmælisdegi sínum eftir skamma sjúkralegu. Guðmundur Sveinsson fæddist á Góustöðum í Skutulsfirði 9. apríl 1913. Foreldrar hans voru hjónin Guðríður Magnúsdóttir frá Sæbóli í Aðalvík og Sveinn Guðmundsson, Oddssonar, frá Hafrafelli í Skutuls- fírði. Þau hjónin hófu búskap á Góustöðum árið 1913 og bjuggu þar öll sín búskaparár og voru jafn- an kennd við þann bæ. Þau eignuð- ust átta syni, lézt einn þeirra á fyrsta aldursári, en annar tvítugur, árið 1938. Guðmundur var elztur þeirra bræðra, en hinir eru: Vil- hjálmur f. 1919, fiskverkandi í Hafnarfirði, Sigurður f. 1921, út- gerðarmaður á ísafirði, Gunnar f. 1923, kaupfélagsstjóri í Keflavík, Þorsteinn f. 1924, kaupfélagsstjóri á Egilsstöðum, og Ólafur f. 1927, læknir á Sauðárkróki. Guðmundur kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Bjarneyju Ólafs- dóttur, Jakobssonar, skósmiðs á ísafírði, 26. febrúar 1944, og eign- uðust þau fjögur böm. Þau eru: Magni Örvar f. 1944 netagerðar- meistari á ísafírði, Anna Ólöf f. 1945, skrifstofurnaður á ísafirði, Þórdís f. 1947, skrifstofumaður á ísafírði, og Sveinn f. 1949, tækni- fræðingur í Reykjavík. Guðmundur Sveinsson stundaði sjó framan af ævi, en lærði síðan netjaraiðn hjá Pétri Njarðvík á Grænagarði og stundaði þá iðn á fímmta áratug. Hann stofnaði, ásamt fleirum, Netagerð Vestíjarða hf. og keypti það félag eignir Pét- urs Njarðvík á Grænagarði, þegar hann féll frá. Stýrði Guðmundur því fyrirtæki til dánardags af dugn- aði og fyrirhyggju, svo að það óx og efldist ár frá ári. Seinustu árin naut hann til þess dyggrar aðstoðar Magna, sonar síns. Um árabil hefir hann einnig verið þátttakandi í út- gerð með Sigurði, bróður sínum. Þegar verkefnaskortur varð í iðn- grein Guðmundar á árum fyrr, vafðist aldrei fyrir honum að skapa sér verkefni á öðrum sviðum, og tók hann sér þá fyrir hendur hin fjöl- breyttustu verkefni. Um tíma var hann vélgæzlumaður við rafstöðina í Engidal, tók að sér og sá um bygg- ingu sjóvarnargarðs fyrir hafnar- sjóð ísafjarðar og lagningu háspennulínu fyrir Rafmagnsveitur ríkisins frá Mjólká í Amarfirði til ísafjarðar og síðar frá Engidal yfir í Álftaljörð. Guðmundur Sveinsson verður öll- um þeim minnisstæður, sem hiifðu af honum einhver kynni. Kemur þar margt til. ísfírðingar munu minnast hans lengi fyrir hans margþættu félagsmálastörf og fjölþættu stiirf í þágu bæjarfélagsins. Guðmundar var einn þeirra manna, sem sérlega ánægjulegt var að vinna með. Kom þar tvennt til: dugnaður og ósér- hlífni samfara léttri og leikandi skapgerð, sem einkenndi allt dagfar hans. Hann átti um árabil sæti í bæjar- stjóm ísafjarðar sem fulltrúi Framsóknarflokksins og gegndi þá t Útför AÐALSTEINS JÓHANNSSONAR rennismiðs, Hverfisgötu 104b, Reykjavik, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 15. apríl kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir hönd aðstandenda, María Davíðsdóttir. t ÁRNI JÓNSSON frá Hnífsdal, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í dag kl. 1 5.00. Rakel Árnadóttir, Bragi Guðmundsson, Hörður Árnason, Sigríður Ágústsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir. Amma okkar, t INGUNN GRÍMSDÓTTIR, Stigahlíð 6, andaðist á Minni-Grund 7. apríl. Minningarathöfn fer fram í Dóm- kirkjunni þriðjudaginn 21 Fyrir hönd barnabarna. apríl kl. 10.30. Jarðsett verður í Skálholti. Laufey Kristjónsdóttir, Jón Sigurjónsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður og tengdamóður, HREFNU MATTHÍASDÓTTUR Ingvar Kjartansson, Sigríður Ingvarsdóttir, Guðmundur Jónsson, Margrét Ingvarsdóttir, Ingólfur Árnason, Matthildur Ingvarsdóttir, Jónas Sveinsson. t Útför GUÐMUNDAR SVEINSSONAR, netagerðarmeistara fró Góustöðum, fer fram frá ísafjarðarkirkju miðvikudaginn 15. apríl kl. 14.C0. Bjarney Ólafsdóttir, Magni Guðmundsson, Svanhildur Þórðardóttir, Anna Lóa Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Einarsson, Þórdis Guðmundsdóttir, Halldór Guðmundsson, Sveinn Guðmundsson, Bergljót Ása Haraldsdóttir, Anna S. Bjarnadóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR, Túngötu 30, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, miðvikudaginn 15. apríl, kl. 13.30. Gunnar Eggertsson, Valdfs Halldórsdóttir, Kristjana G. Eggertsdóttir, Magnús Ingimundarson, Aðalsteinn Eggertsson, Jónfna S. Snorradóttir, Edda Ingibjörg Eggertsdóttir, Gísli V. Einarsson, Guðrún Edda Gunnarsdóttir, Einar Sigurbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okk3r, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR GUÐBJARTSDÓTTUR, Guðríður Guðmundsdóttir, Heiðar B. Marteinsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Halldór Sigurðsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Einar Gunnarsson, Guðmundur S. Guðmundsson, Fríða Björg Aðalsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Skrifstofa okkar verður lokuð frá kl. 13.00-15.00 í dag vegna jarðarfarar GUÐRÚNAR ÞÓRÐARDÓTTUR. Bananar hf. Lokað Skrifstofa okkar verður lokuð frá kl. 13.00-15.00 í dag vegna jarðarfarar GUÐRÚNAR ÞÓRÐARDÓTTUR. Bananasalan hf. bæði formennsku í bæjarráði og forsetastörfum. Á yngri árum starf- aði hann í Ungmenna- og málfunda- félaginu Ármanni í Skutulsfirði og átti sæti í fyrstu stjórn íþrótta- bandalags ísfirðinga. Formaður Skíðafélags ísafjarðar var hann í Qölda ára og minnast mega ísfirð- ingar þess nú í upphafi dymbilviku, að hann átti drýgstan þátt í að byggðar voru tvær skíðalyftur á Seljalandsdal, sem gjörbreyttu allri aðstöðu bæjarbúa og annarra þeirra, sem sækja Seljalandsdal heim á vetrum, til skíðaferða. Á engan er hallað, þó að staðhæft sé, að þar hafí hann haft afgerandi forystu og virkjað samborgara sína til átaka. Kom þar til hin iétta skaji- gerð hans og einstæður hæfileiki hans til að virkja aðra til sjálf- boðastarfa. Tókst honum að koma fyrri lyftunni upp skuldlausri, ef frá eru talin lán, sem stóðu á móti ógreiddum framlögum. Guðmundur var víðlesinn og sögnfróður og kunni vel að segja frá. Hann var einnig mikill áhuga- maður um varðveizlu sögulegra minja. Árið 1976 var hann kosinn í stjórn Sögufélags ísfirðinga og starfaði þar af dugnaði alla tíð. Árið áður hafði bæjarstjórn ísa- fjarðar samþykkt tillögu hans um friðlýsingu verzlunarhúsanna í Nes- kaupstað og faktorshússins í Hæsta. Tilnefndi stjórn félagsins hann æ síðan sem fulltrúa félags- ins. Við félagar hans í stjórn Sögufélagsins og húsafriðunar- nefnd munum ekki sízt sakna ánægjulegra samfunda með honum og þeirrar glaðværðar, sem hvar- vetna fylgdi nærveru hans. Á seinasta ári gerðist hann félagi í Rótarýklúbbi ísafjarðar og lagði þar gott til mála eins og annars staðar, þar sem hann tók til hendi. Áhugamál Guðmundar voru svo fjölþætt, að þeim verða ekki gerð skil í stuttri minningargrein. Eitt af áhugamálum hans var að kynn- ast framandi þjóðum, cðli þeirra og lífsviðhorfum, og hafði hann víða ferðast erlendis. Það var þó öði-um fremur granninn í vestri og þau margvíslegu vandamál, sem hann á við að stríða, sem kveiktu áhuga hans seinustu árin. Hann var mik- ill Grænlandsvinur og ótrauður talsmaður aukinna samskijita ís- lendinga og Grænlendinga og lagði sig mjög fram um að auka sam- skipti þessara þjóða á allan hátt. Þegar hann heimsóttj syðstu byggð- ir Grænlands fyrir nokkrum árum, rann honum til rifja að sjá ungt fólk ganga þar atvinnulaust í stór- um hópum. Það var háttur hans að reyna að bæta úr því, sem hann taldi að betur mætti fara, láta verk- in tala. Það vejtti honum lífsfyll- ingu. Eftir heimkomuna vann hann ötullega að því að útvega þessu unga fólki atvinnu hér. á landi og leiðsögn, scm það síðar gæti hag- nýtt sér til uppbyggingar í heima- landi sínu. Greiddi hann götu þess á allan hátt. Nú, þegar dagur Guðmundar Sveinssonar er allur, þökkum við Hulda honum langa vináttu og sendum eiginkonu hans, börnum, bræði-um, aldraðri tengdamóður og aðstandendum öllum einlægar sam- úðarkveðjur. Jón Páll Halldórsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.