Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 68

Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987 fclk f fréttum Leyniþjónusta sett á laggirnar Splunkuný hljómsveit hefur nú litið dagsins ljós og heitir hún Leyniþjónustan. Liðsmenn sveit- arinnar eru þau Ragnhildur Gísladóttir, Jakob Magnússon og Jón Kjell, er mynda svokallaðan kjarna, en síðan er ætlunin að fá gestaspilara til að koma fram með sveitinni við sérstök tækifæri. Fyrstur i röð gestaspilara er Stef- án Hilmarsson, sem er einn af höfuðpaurum Sniglanna, auk þess að vera forsöngvari Vormanna íslands. Á dagskrá Leyniþjón- ustunnar eru aðallega ný lög, en einnig er þar að finna nokkur eldri lög Ragnhildar og Jakobs í nýjum búningi. Mun Leyniþjónustan gera víðreist á næstunni og sækja heim m.a. Akureyri, Keflavík, Selfoss, Akranes og Borgarnes, auk Reykjavíkur. Árshátíð Andakílsskóla ARSHÁTÍÐ Andakílsskóla var haldin að Brún í Bæjar- sveit laugardaginn 28. mars sl og var hin ágætasta skemmtun, — að vanda. Nemendur skemmtu gestum með söng, spiluðu á hljóðfæri og fóru með leikþætti og sjáum við á þessari mynd atriði úr einum þeirra. Foreldra- félag skólans hélt síðan hluta- veltu og fer allur ágóði hennar til tækjakaupa fyrir skólann. Að lokum þáðu allir veitingar í boði Kvenfélagsins 19. júní. D.P. Morgunblaðið/Davíð Pétursson Kaupmannahöf n: Haukur Morthens skemmtir í Vin o g ölgod Jónshúsi, Kaunmannaböfn. VIN og ölgod í Skindergade er dansstaður, sem íslenzkir ferðamenn hér í borg þekkja vel. Er hann í húsi, sem byggt er á rústum kjallara fyrsta ráð- húss Kaupmannahafnar, en það var á 12. öld. Svo segir forstjóri staðarins, Orla Höyer, í söng- heftinu góða, sem þar liggur frammi á borðum. íslendingum hlýnar um hjartarætur, er ljóð nr. 9 í heftinu er valið til al- menns söngs, en það er: Fyrr var oft í koti kátt. Undanfama tvo mánuði hefur hið vinsæla íslenzka ljóð og lag haldið hátíðlegt 2. marz sl. og var þá mikið um dýrðir, söngur og gleði. Þá átti hljómsveit Johnny Campell 10 ára starfsafmæli á staðnum, en í henni leikur einnig bróðir hljómsveitarstjórans, Jimmy Campell. Ágætir vinnufélagar og góður starfsandi þarna, segir Hauk- ur. Þegar komið er niður í salar- kynni Vin og ölgod, blasir við stytta af stofnanda staðarins, föður núver- andi eiganda, Oral Höyer, sem er íslandsvinur og fagnar íslenzkum gestum vel. Ekki hafa landar lengi setið við borð, áður en íslenzki hljómað sérstaklega hátt og snjallt í sölum Vin og ölgod. Haukur Mort- hens hefur nefnilega verið söngvari og skemmtikraftur hinna vinsælu danskvölda í gamla Ráðhúskjallar- anum og laðað að gesti með sinni alkunnu smekkvísi og fjöri. Hauki þykir líka vænt um þetta lag Frið- riks Bjarnasonar, sem hann söng ungur í drengjakór, undir stjórn Jóns ísleifssonar, líklega 1939. Haukur Morthens og Ragnheiður Magnúsdóttir kona hans munu verða á ferðalagi um Evrópu í nokkra mánuði. Héðan fara þau eftir tveggja mánaða dvöl til Mall- orka á Spáni og síðan mun leiðin liggja til Noregs. í júli er ákveðið, að Haukur skemmti aftur á Vin og ölgod og þá með 7 manna hljóm- sveit sinni að heiman og munu þeir félagar leika þar og skemmta allan mánuðinn. Er þetta mikill og góður árangur fyrir íslenzkan söngvara, því að það er erfitt að fá vinnu hér í Danmörku, hvað þá með heila hljómsveit. En Haukur er líka þekktur skemmtikraftur hér, hann söng á Vin og ölgod 1982 og líka í fyrrasumar og ekki má gleyma söng hans á Exalon fyrir tuttugu árum, enda á hann marga góða kunningja hér í skemmtanabrans- anum, sem virða hann vel. 20 ára afmæli Vin og ölgod var fáninn er kominn á borðið og er sama að segja um fána hinna Norð- urlandaþjóðanna, enda setja norrænir ferðamenn svip á skemmt- unina og taka hressilega undir almennan söng standandi uppi á bekkjunum eins og venjan er. Haukur kunni sannarlega tökin á gestum sínum bæði í tali og tón- um og var skemmtiiegt að hlusta á hann syngja á þessum fjölsótta stað. Notalegt að heyra hann kynna lögin fyrst á íslenzku, svo á dönsku og ensku, og rifja upp indælar minningar með því að syngja Til eru fræ og fleiri hugljúf lög frá ungu árunum. Ekki var síður þægi- legt að rabba við hann. Haukur biður strax fyrir kveðjur til allra þeirra ágætu íslendinga, sem hafa komið og heilsað upp á hann og fagnað honum þessar vikur. Ekki þykir honum síðra að hitta unga fólkið en hið eldra, en á þessum fjöruga stað er ekkert kynslóðabil. Unga fólkið umgengst hann eins og góðan föður eða frænda, segir Haukur. Við óskum Hauki Morthens og Ragnheiði Magnúsdóttur góðrar ferðar og hlökkum ásamt íjölmenn- um hópi landa til endurfunda í sumar. G.L. Ásg. COSPER — Leyfðu mér að veiða litlu sætu músina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.