Morgunblaðið - 15.04.1987, Page 77
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1987
77
Morgunblaöiö/Einar Falur
• „Hér kemur hann, maður mótsins, stigahæstur, hrikalegur, hrikalegur....*1 Setningar á borð við þess-
ar heyrðust ósjaldan á kraftlyftingamótinu þegar Magnús Ver Magnússon var á sviðinu.
íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum:
íslandsmet
Körfubolti:
Þau eru
best
Á lokahófi körfuknattleiks-
manna sem haldið var um
helgina voru veitt mörg verð-
laun eins og við sögðum frá í
gær. Hér á eftir fer listi yfir
þá körfuboltamenn sem urðu
í þremur efstu sætunum í því
sem veitt voru verlaun fyrir.
Úrvalsdeild
Besti leikmaður:
1. Pálmar Sigurðsson, Haukum
2. Guðni Guðnason, KR
3. Valur Ingimundarson, UMFN
Besti nýliði:
1. Falur Harðarsson, ÍBK
2. Svali Björgvinsson, ÍBK
3. Tryggvi Jónsson, Haukum
Besti varnarmaður:
1. Tómas Holton, Val
2. ísak Tómasson, UMFN
3. Henning Henningss, Haukum
Prúðasti leikmaður:
1. Guðni Guðnason, KR
2. Tómas Holton, Val
3. Auðunn Elíasson, Fram
Stigahæsti leikmaður:
1. Pálmar Sigurðsson, 499
2. Guðni Guðnason, 453
3. Valur Ingimundarson, 414
Besta vítahittni:
1. Pálmar Sigurðsson, Haukum
99/82, 82.83%
2. Gylfi Þorkelsson, ÍBK
57/44, 77.19%
3. Kristinn Einarsson, UMFN
48/36, 75,00%
Flestar 3-stiga körfur:
1. Pálmar Sigurðsson, 77
2. Guðjón Skúlason, 36
3. Valur Ingimundarson, 27
Besti dómarinn:
1. Kristbjörn Albertsson.
2. Kristinn Albertsson.
3. Jón Otti Ólafsson
Mestar framfarir hjá dómara:
1. Ómar Scheving
2-3 Kristinn Albertsson
2-3 Kristbjörn Albertsson.
1. deild kvenna:
Besti leikmaður:
1. Linda Jónsdóttir, KR
2. Anna M. Sveinsdóttir, ÍBK
3. Marta Guömundsd., UMFG
Stigahæsti leikmaður:
1. Linda Jónsdóttir, 404
2. Anna M. Sveinsdóttir, 251
3. Marta Guðmundsdóttir, 236
Besta vítahittni:
1. Anna M. Sveinsdóttir, ÍBK
62/39, 62.90%
2. Linda Jónsdóttir, KR
79/49, 62.03%
3. Sóley Indriöadóttir, Haukum
139/86, 61.67%
Firma-
keppni
í tennis
TENNISDEILD ÍK gengst fyrir
firmakeppni í tennis um páskana.
Keppt verður í einliða- og tvíliða-
leik og leikið verður með forgjöf
þannig að búast má við jafnri og
spennandi keppni.
Leikið verður í Digranesi og
hefst mótið á morgun, því verður
siðan fram haldið á laugardaginn
og klárað á mánudaginn.
Spörtumótið:
KR-ingar
sigursælir
KR-INGAR voru sigursælir á
Spörtumótinu í borðtennis sem
fram fór um helgina. Keppt var í
meistaraflokkum karla og
kvenna, 1. flokki karla og kvenna
og 2. flokki karla. KR-ingar unnu
í öllum flokkum.
I meistaraflokki karla vann Jó-
hannes Hauksson Tómas Sölva-
son 21:17 og 21:16 og þeir Hilmar
Konráðsson úr Vikingi og Örn
Fransson úr KR urðu jafnir í þriðja
sæti.
Hjá konunum vann Elísabet Ól-
afsdóttir úr KR Fjólu Lárusdóttur
úr UMSB 21:16 í tveimur lotum
og Elín Eva Grímsdóttir varð þriðja.
Valdimar Hannesson vann 1.
flokk karla eftir mikla baráttu við
Davíð Pálsson úr Erninum. Valdi-
mar vann 27:25 og 21:15. Anna
Þórðardóttir vann 1. flokk kvenna,
sigraði Ásdisi Smáradóttur úr
Víkingi í úrslitaleik 21:14 og 21:17.
Snorri Briem vann Sigurð Bolla-
son í úrlsitaleiknum í 2. flokki karla.
„ÉG átt allt eins von á að bæta
mig þetta mikið, var búinn að
setja stefnuna á það takmark,"
sagði Magnús Ver Magnússon,
kraftlyftingamaðurinn frá Seyðis-
firði, sem á mótinu skipaði sér i
hóp stigahæstu íslensku lyftinga-
manna með 3. besta árangur
íslendings frá upphafi. Magnús,
sem nú er búsettur í Reykjavík,
byrjaði að æfa lyftingar á heima-
slóðunum 19 ára gamall, þá 88
kg að þyngd. Nú, um sex árum
Ellefu
ÞAÐ voru lítil 12.782,5 kíló sem
27 keppendur á íslandsmeistara-
mótinu í kraftlyftingum lyftu á
sviðinu í Bæjarbíói i Hafnarfirði á
laugardag og voru 11 íslandsmet
sett, auk tveggja íslandsmeta í
unglingaflokki. Maður mótsins var
að samdóma áliti viðstaddra
Magnús Ver Magnússon. Hann
keppti í 125 kg flokki og bætti sig
um 100 kg samanlagt frá síöasta
móti, með 915 kg nú, en hann lyfti
síðar mætti hann til leiks 120,7
kg að þyngd og sigraði eftirminni-
lega í 125 kg flokki.
„Mér þykir mjög vænt um þenn-
an árangur, því þetta var fremur
erfitt mót, sérstaklega af því að
það gekk mjög hratt fyrir sig og
lítill tími gafst til að hita upp á
milli greina," sagði Magnús. Hann
kvaðst ekki ætla að lofa 100 kg
árangri í hverju móti, en hann
stefnir á að keppa næst í desem-
ber hér og taka þátt í Víkingaleik-
unum í millitíðinni.
215 kg í bekkpressu, 335 í rétt-
stöðulyftu og 365,5 i hnébeygju.
Tók þar með íslandsmetið af Jóni
Páli Sigmarssyni og bætti það um
hálft kíló. Þess má geta að heims-
meistarinn í kraftlyftingum ungl-
inga, Torfi Ólafsson tók ekki þátt
i mótinu.
Auk Magnúsar sigruðu í sínum
flokkum á mótinu þeir, Aðalsteinn
Kjartansson í 67,5 kg flokki með
395 kg samanlagt, þar af 145 í
hnébeygju, 65 í bekkpressu og 185
í réttstöðulyftu. í 75 kg flokki sigr-
aði Már Óskarsson með 530
samanlagt, þar af 200 kg í hné-
beygju, 110 í bekkpressu og 220
í réttstöðulyftu. Jón Gunnarsson
sigraði í 82 kg flokki, lyfti 730 kg
samanlagt, 295 í hnébeygju, 155
í bekkpressu og 280 í réttstöðu-
lyftu, en annar í sama flokki varð
Bárður Ólsen, sem einnig setti tvö
íslandsmet unglinga, lyfti 260 kg
í réttstööulyftu og setti einnig met
í samanlögðu, með 627,5 kg.
. Halidór Eyþórsson sigraði svo í
90 kg flokki með 750 kg sa-
malagt, 310,5 kg í hnébeygju sem
er nýtt íslandsmet, 157,5 í bekk-
pressu og 282,2 í réttstöðulyftu. i
100 kg flokki sigraði svo Gunnar
Hreinsson, lyfti 730 kg samanlagt,
þar af 280 í hnébeygju, 160 í bekk-
pressu og 290 í réttstöðulyftu.
I kvennaflokki sigraði Sjöfn Jóns-
dóttir í 52 kg flokki, lyfti 100 kg í
hnébeygju, sem er íslandsmet,
47.5 kg í bekkpressu og 105 i rétt-
stöðulyftu. Samanlagt lyfti hún
257.5 kg og bætti þar með eigið
íslandsmet. Unnur Sigurjónsdóttir
sigraði í 56 kg flokki með 230 kg
samanlagt, lyfti 80 kg í hnébeygju,
50 í bekkpressu, sem er íslands-
met og 100 í réttstöðulyftu. Nína
Óskarsdóttir sigraði í 60 kg flokki,
lyfti 100 kg í hnébeygju, 60 í bekk-
pressu, sem er íslandsmet og 140
í réttstöðulyftu, sem er einnig ís-
landsmet, samanlagt 300 kg. I
67.5 kg flokki sigraði Sigurbjörg
Kjartansdóttir með 367 kg saman-
lagt. Hún bætti eigið íslandsmet í
hnébeygju, lyfti 135 kg, setti ís-
landsmet í bekkpressu með 85 kg
og lyfti 145 i réttstöðulyftu, sem
er jöfnun á íslandsmeti
Elín Ragnarsdóttir sigraði svo í 75
kg flokki, lyfti 360 kg samanlagt,^
130 í hnébeygju, 70 í bekkpressu'
og 160 í réttstööulyftu, sem er enn
eitt íslandsmet kraftlyftingakvenn-
anna.
Magnús Ver Magnússon:
Maður mótsins
Skíðamót íslands 1987
Dagskrá mótsins:
Miðvikudagur 15. apríl
Kl. 18.00 fararstjórafundur.
Kl. 21.00 mótið sett.
Fimmtudagur 16. apríl
Kl. 11.00 stórsvig karla fyrri ferð.
Kl. 12.00 stórsvig kvenna fyrri ferð.
Kl. 13.00 stórsvig karla seinni ferð.
Kl. 14.00 stórsvig kvenna seinni ferð.
Kl. 11.00 5 km ganga stúlkna 16 ára og eldri. Frjáls aðferð.
Kl. 11.00 10 km ganga pilta 17—19 ára. Frjáls aðferð.
Kl. 12.00 15 km ganga karla 20 ára og eldri. Frjáls aöferð
Föstudagur 17. aprí)
Kl. 11.00 boðganga kvenna 3x5 km. Frjáls aðferð.
Kl. 11.00 boöganga karla 3x10 km. Frjáls aðferð.
Laugardagur 18. apríl
Kl. 11.00 svig kvenna, fyrri ferð.
Kl. 12.00 svig karla, fyrri ferð.
Kl. 13.30 svig kvenna, seinni ferð.
Kl. 14.30 svig karla, seinni ferð.
Kl. 11.00 skíðastökk.
Kl. 14.00 10 km ganga, norræn tvíkeppni (frjáls aðferð)
Sunnudagur19. aprfl
Kl. 11.00 samhliðasvig kvenna.
Kl. 13.00 samhliðasvig karla.
Kl. 11.00 7,5 km ganga, stúlkur 16 ára og eldri. Hefðbundin aðferð.
Kl. 11.00 15 km ganga, piltar 17—19 ára. Heföbundin aðferð.
Kl. 12.30 30 km ganga, karlar 20 ára og eldri. Hefðbundin aðferð.
Fararstjórafundir verða alla mótsdagana kl. 18.00. Skíðaþing verð-
ur haldið föstudaginn 17. aþríl.
Skíðamót Islands
sett í kvöld
Frá Val Jónatanssynl, blaöamanni á isafirði
SKÍÐAMÓT íslands verður sett
með viðhöfn á ísafirði f kvöld.
Keppni hefst síðan á Seljalands-
dal á morgun og lýkur á páska-
dag. Um þúsund gestir eru
komnir til ísafjarðar annaðhvort
til að fylgjast með mótinu eða til
að heimsækja vini og vandamenn
og eyða páskleyfinu á skíðum í
faðmi fjalla biárra.
Skíðamót íslands veröur sett
með lúðrablæstri, söng og flug-
eldasýningu í miðbæ ísafjarðar,
Silfurtorgi, í kvöld kl. 21. Þar mun
lúðrasveit Tónlistarskólans leika,
Óli M. Lúðvíksson, mótsstjóri, flyt-
ur ávarp, Karlakór ísafjarðar og
Karlakórinn Ægir úr Bolungarvík
syngja. Forseti bæjarstjórnar,
Kristján Jónasson, setur mótið og
síðan verður flugeldasýning.
Keppendur eru um 70 og eru frá
Akureyri, Dalvik, Ólafsfirði,
Reykjavík, Siglufirði og ísafirði.
Síðast var Skíðamót íslands haldið
á ísafirði fyrir fjórum árum.
Undirbúningur heimamanna
hefur staðið síðan í ncvember. Um
sjötíu manna starfslið mun sjá um
að ekkert bregði útaf á Seljalands-
dal mótsdagana. Mjög góð að-
staða er fyrir keppendur og
áhorfendur á „Dalnum" og ekki
mun væsa um þá sem vilja fylgjast
með mótinu.
Allt okkar besta skíðafólk mætir
til leiks. Þar á meðal verða göngu-
mennirnir Einar Ólafsson, sem
dvalið hefur í Svíþjóð í vetur, og
Haukur Eiriksson frá Akureyri sem
einnig hefur dvalið erlendis.
Spennandi verður að fylgjast með
keppni þessara göngumanna því
þeir hafa ekki mæst í keppni fyrr
í vetur.
í alpagreinum verða þeir Daníel
Hilmarsson, Dalvík, Akureyring-
arnir Guðmundur Sigurjónsson og
Valdimar Valdimarsson, Guð-
mundur Jóhannsson, ísafirði, og
Örnólfur Valdimarsson, Reykjavík,
að teljast sigurstranglegastir.
Ungu mennirnir, Ólafur Sigurðs-
son, ísafirði, og Vilhelm Þorsteins-
son, Akureyri, gætu einnig
blandað sér í baráttuna.
í kvennaflokki eru landsliðskon-
urnar Guðrún H. Kristjánsdóttir,
Bryndís Ýr Viggósdóttir og Anna
María Malmqvist sigurstrangleg-
astar. Ingigerður Júlíusdóttir,
Dalvík, og Ásta Halldórsdóttir,
ísafirði, gætu veitt þeim harða
keppni.
Mótsstjórn Skíðalandsmótsins
skipa Óli M. Lúövíksson, sem jafn-
framt er mótsstjóri, Arnór Jóna-
tansson, Björn Helgason, Gylfi
Guðmundsson og Halldór Mar-
geirsson.