Morgunblaðið - 15.04.1987, Side 78
78
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRIL 1987
• Það var röskleg tekið á í hiaupinu, jafnt hjá þeim yngri sem þeim eldri. Morgunblaðið/SigurðurJonsson
Víðavangshlaup íslands:
Már Hermannsson og
Hulda B. Pálsdóttir unnu
Setfossi.
MÁR Hermannsson frá Keflavík
og Hulda Björk Pálsdóttir, Ár-
manni, sigruðu i Víðavangshlaupi
íslands sem fram fór á Brautar-
-^►holti á Skeiðum á sunnudag.
Skráðir keppendur voru 230, af
þeim hlupu 170. Már hafði um-
talsverða yfirburði í hlaupinu og
var langt á undan næsta manni,
Ágústi Þorsteinssyni, UMSB.
Huida Björk þurfti að hafa meira
fyrir sínum sigri því Steinunn
Jónsdóttir, Ármanni, veitti henni
harða keppni og leiddi hlaupið
þar til í lokin að Hulda Björk náði
yfirhöndinni. HSK sigraði í sveita-
keppni í 5 flokkum af sjö, ÍR i
einum flokki og USVH í einum.
Brautin í hlaupinu var mjög erfið
og er þá vægt til orða tekið. Hlaup-
ararnir óðu blautt túnið, sem
hlaupið var eftir, í ökkla og þar sem
mesta vilpan var komust þeir í
kálfa í drullu. Már, sigurvegari í
karlaflokki, hafði þau orð að þetta
hefði ekki reynt neitt á lungun,
meira á fæturna.
Keppni í yngri flokkunum var
ekki síðri en keppni þeirra eldri.
Krakkarnir létu það ekkert á sig fá
þótt túnið væri blautt og þungt,
það var bara látið vaða í pollana
og gusurnar gengu yfir næstu
hlaupara. Einn keppendanna, Orri
Pétursson, Aftureldingu, var svo
" >óheppinn að missa af sér annan
skóinn í miðju hlaupi. Hann lét það
ekki á sig fá heldur hljóp áfram á
sokknum og náði öðru sæti í sínum
flokki. Áhorfendur, sem sáu hvað
gerðist, tóku skóinní sína vörslu
og skiluðu til Orra í lokin.
í kvennaflokki leiddi Steinunn
Jónsdóttir, Ármanni, hlaupið mest-
alla leiðina, en Hulda Björk Páls-
dóttir úr sama félagi fylgdi henni
eftir og sigraði með öflugum enda-
spretti. Þessar tvær höfðu yfir-
burði. Guðrún Erla Gísladóttir,
HSK, varð þriðja og hljóp vel. Hún
hélt þriðja sætinu allt hlaupið þrátt
fyrir að sótt væri að henni.
Þeir Ágúst Þorsteinsson,
UMSB, og Jóhann Ingibergsson,
FH, háðu harða keppni um annað
sætið í karlaflokki, en Ágúst var
sterkari þegar leið á hlaupið og
náði að tryggja sér annað sætið.
Hlaupið var heldur tilþrifalítið
vegna færðar nema þegar kepp-
endur óðu elginn forugir upp á
mið læri. Nokkuð var um að menn
hreinlega gæfust upp í brautinni
og voru sumir býsna framlágir i
lokin.
— Sig. Jóns.
KR stúkan rís hratt
STÚKAN á KR-svæðinu er langt
komin. í siðustu viku voru veg-
geiningar reistar og þverbitar
lagðir og að sögn Guðmundar
Péturssonar, formanns hús-
stjórnar og bygginganefndar KR,
gengur byggingin samkvæmt
áætlun, en stefnt er að því að
stúkan verði tilbúin fyrir fyrsta
heimaleik KR í 1. deild í lok maí.
Eftir á að leggja gólfeiningar í
stúkuna og síðan verður salernis-
aðstöðu komið upp. „Þetta er
fjárfrekt fyrirtæki og fyrst verðum
við að ná endum saman varðandi
fyrsta hlutann áður en við hugum
að öðru,“ sagði Guðmundur.
Fjáröflun hefur annars gengið
vel. Velviljuð fyrirtæki hafa lagt sitt
af mörkum, félagsmenn greiða
reglulega í sjóðinn og auk þess
fékk KR styrk frá Reykjavíkurborg.
En herslumuninn vantar og því
ætla KR-ingar að halda sérstakan
stúkufund síðasta vetrardag, mið-
vikudaginn 22. apríl, og hefst hann
á Hótel Sögu klukkan 20 og eru
allir velkomnir.
1X2 •o iö (0 -Q c 3 O) O 5 > o Timinn c c 1 'a Dagur Ríkisútvarpið Bylgjan Sunday Mirror Sunday People News of the World Sunday Express Sunday Telegraph SAMTALS
1 X 2
Aston Villa — Everton 2 2 2 2 2 X 2 2 2 2 2 — 0 1 10
Leicester — West Ham X 1 1 1 2 2 1 1 X 1 X — 6 3 2
Liverpool — Nott'm Forest 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 — 11 0 0
Luton — Coventry 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 — n 0 0
Man. City — Watford X X X 1 2 1 X 2 1 X 2 ■ 3 5 3
Newcastle — Man. United X X X 1 2 X 2 X X X 2 — 1 7 3
Norwich — Sheff. Wed. 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 — 11 0 0
QPR — Chelsea 2 1 1 X 1 1 1 2 X 2 X — 5 3 3
Wimbledon — Arsenal 2 X 1 2 2 X 2 X X 2 X — 1 5 5
Leeds — Ip&wich 1 1 1 1 X 1 1 1 X 1 X — 8 3 0
Reading — Portsmouth 2 2 1 2 1 2 2 X 2 2 X — 2 2 7
Sheff. United — Oidham X 1 X 2 X 1 1 X X X X — 3 7 1
Þorvaldur varð
í þriðja sæti
ÞORVALDUR B. Rögnvaldsson
varð í þriðja sæti á Norðurlanda-
mótinu í ólympískum lyftingum
sem fram fór í Svíðþjóð um helg-
ina. Þrfr íslendingar tóku þátt í
mótinu og náði Þorvaldur bestum
árangri.
í 67,5 kg flokki snaraði Þorvald-
ur 80 kílóum og jafnhattaði 110
og lyfti því samanlagt 190 kílóum
sem dugði honum í þriðja sætið.
Haraldur Ólafsson varð fimmti
í 82,5 kg flokki, snaraði 125 kg og
jafnhattaði 162,5 og fékk því sam-
anlagt 287,5 kg. Haraldur var
óheppinn því keppa átti í þessum
flokki á sunnudaginn en móts-
haldarar færðu keppnina fram um
einn dag án þess að Haraldur fengi
nokkuð um það að vita. Hann kom
því á hlaupum til keppninnar og
náði ekki að sýna sitt besta.
Birgir Þór Borgþórsson keppti í
110 kg flokki og varð fjórði þar.
Snaraði 140 kíló og jafnhattaði
182,5, eða samtals 322,5. Hann
reyndi við 190 kg í jafnhöttun en
mistóks og varð því að sætta sig
við fjórða sætið.
• Það er keppt í ýmsu á Tommahamborgarmótinu í Eyjum. Fót-
boltinn er auðvitað efstur á blaði en einnig er keppt í að snæða
hamborgara eins hratt og hægt er og mörgu fleiru.
Styttist í
Tommamótið
í Eyjum
STÓRMÓT Knattspyrnufélagsins
Týs í Vestmannaeyjum og
Tommaborgara fyrir 6.flokk verð-
ur haldið i Vestmannaeyjum 24.
til 29. júní í sumar. Þetta verður
fjórða árið í röð sem Tommamót-
ið er haldið og hefur það notið
gífurlegra vinsælda meðal yngstu
knattspyrnumannanna og hefur
orðið að takmarka þátttöku liða.
Mótið í sumar verður með svip-
uðu sniði og undanfarin ár. Knatt-
spyrnumót úti og inni, skoðunar-
farðir á sjó og landi, kvöldvökur,
knattþrautir og margt fleira
skemmtilegt.
Eins og undanfarin ár verður
óhjákvæmilegt annað en takmarka
fjölda þeirra liða sem komast að i
ár. Félögum er því bent á að taka
nú fljótt við sér og tilkynna þátt-
töku í síma 98-1754 (Lárus) sem
allra fyrst.
Sjóður stof naður
til styrktar
landsliðsfólki
Grindavík.
NÝLEGA stofnuðu eigendur tíu
fiskvinnslustöðva sjóð til styrktar
íþróttafólki innan Ungmennafé-
lags Grindavíkur, sem valið er i
landslið innan sinnar íþróttar til
keppni erlendis.
I sjóðnum eru eitt hundrað þús-
und krónur. Eftirtaldin fyrirtæki eru
aðilar að þessum sjóði: Fiskanes
hf., Gjögur hf., Gullvík hf., Hrað-
frystihús Grindavíkur hf., Hrað-
frystihús Þórkötlustaða hf.,
Hópsnes hf., Hóp hf., Hælsvík sf.,
Mölvík sf. og Þorbjörn hf.
Helsta ástæðan fyrir stofnun
þessa sjóðs er sú staðreynd að
val á Grindvíkingum í landslið,
einkum í körfuknattleik, hefur auk-
ist til muna. Ungmennin, sem
verða fyrir valinu, verða að fjár-
magna þessar ferðir sjálf og
beinist fjáröflunin í fyrirtækin eftir
styrk. Forráðamönnum fyrirtækj-
anna þykja þessar heimsóknir
hvimleiðar í bland með öðru fjáröfl-
unarkvabbi ýmissa aðila og stofn-
ana í þjóðfélaginu, sem rignir yfir
fyrirtækin. Með þessari sjóða-
stofnun vilja þeir taka íþróttafólkið
út úr sérstaklega svo það líði ekki
fyrir fjáröflunarkvabbið í öðrum
aðilum.
Upp úr áramótunum samþykkti
bæjarstjórn Grindavíkur samskon-
ar fyrirkomulag varðandi styrk frá
bænum í sama tilgangi og hefur
þetta nýja fyrirkomulag þegar
mælst vel fyrir og komið íþrótta-
fólkinu til góða.
Kr.Ben.