Morgunblaðið - 03.05.1987, Síða 5
MORGUNBLÁÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
B 5
Texti:
GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR
úti í Denver, þorpi í Colorado, þar
sem ég vann við bamagæslu hjá
ungum læknishjónum. Má þar
nefna að þegar fólk fer þar út að
skemmta sér smakkar það oft ekki
vín og er ekki eins lengi úti og hér
gerist, enda skemmtistaðir ekki
opnir eins lengi og hér. Fólk hittist
þar miklu oftar á kaffíhúsum en fer
sjaldnar heim hvert til annars. Hitt
fannst mér slæmt hve fólkið er ótta-
slegið. Það þarf að læsa öllu og
gæta bamanna mjög vel svo þeim
sé ekki rænt. Ég myndi ekki vilja
ala bömin mín upp við slíkar að-
stæður enda er ég eins og flestir
íslendingar, vön frjálsræði. Ég ólst
reyndar upp í vesturbæ Kópavogs.
Ég ferðaðist töluvert um Banda-
ríkin, fór m.a. til Utah, Nýju
Mexíkó, Houston og Dallas í Texas
og síðast en ekki síst til Las Veg-
as. Þar var ævintýralegt næturlíf.
Á daginn var þar allt dauflegt og
kyrrt en á kvöldin var borgin upp-
ljómuð í ljósadýrð og mikið að
gerast. Þar sá ég fólk í glæsilegum
fötum sem sist gefa því eftir sem
best gerist hér.
Ég tók með mér öll gömlu fötin
mín út og gekk þeim þar til húðar
en keypti mér ekkert, lagði þá pen-
inga sem ég hafði í ferðalög. Þegar
heim kom þurfti ég því að end-
umýja fataskápinn. Ég hef alltaf
„pælt í“ fötum og eftir að ég fór
að vinna fyrir mér 16 ára að aldri
hef ég varið sem svarar sjö þúsund
krónum á mánuði í föt. Ég hef
sloppið vel hvað það snertir, upp-
hæðin væri hærri hefði ég ekki
notið þess að mamma mín hefur
unnið í tískubúð árum saman og
hún því getað verslað fyrir mig með
afslætti. Eftir að ég fór sjálf að
vinna í tískuverslun nota ég mér
afsláttinn sem ég get fengið og
versla mikið þar. Eg versla auðvitað
líka í öðrum búðum en miklu minna.
Ég fer oftast út í hádeginu og
annan hvem laugardag til að skoða
hvað er til í verslununum. Vinkonur
mínar sem em ógiftar hafa þetta
svipað og ég, nema ein sem gerir
mikið af því að sauma á sig og
breyta gömlum fötum. Við hinar
höfum allar látið það eftir okkur
sem okkur hefur langað til á þessu
sviði, höfum keypt okkur það sem
hugurinn gimist þó það kostaði
kannski nokkuð mikið. Ég kaupi
að visu minna af fötum núna vegna
þess að ég er að kaupa mér bfl, ég
þarf heldur ekki að borga heim eins
og er vegna bflsins. En þó ég og
vinkonur mínar höfum hugsað mik-
ið um föt þá fínnst mér sextán ára
stelpur í dag hugsa enn meira um
föt en við gerðum á sínum tíma.
Þó konur á öllum aldri komi í versl-
unina sem ég vinn í eru það ungling-
ar í meirihluta sem kaupa."
Meðan við Jóna höfum talað sam-
an hefur illviðrinu slotað og sólin
skín á ný. Áður en ég fer út á göt-
una aftur spyr ég Jónu hvort hún
ætli sér að vinna í tískuverslun til
langframa. Hún svaraði mér á þessa
leið: „Þegar ég fór út kunni ég
mjög lítið í ensku. Nú er ég ágæt-
lega talandi en get lítið skrifað.
Enskunámið hefur vakið hjá mér
löngun til að læra eitthvað meira,
t.d. í sambandi við tölvur. Kannski
myndi ég þó helst vilja læra að
verða snyrtifræðingur."
Með það kveð ég Jónu og öll ljósu
sumarfötin, sem senn fara að vakna
til nýs lífs, utan á líkömum ungra
íslendinga, á löngum og hlýjum
dögum komandi sumars, sem við
skulum vona að verði sem flestir.
Skoðanakönnun Helgarpóstsins:
Flestir vilja Steingrím
sem forsætisráðherra
FLESTIR Reykvíkingar telja að
Steingrimur Hermannsson forsæt-
isráðherra „ætti að verða forsætis-
ráðherra", samkvæmt skoðana-
könnun sem SKÁÍS gerði fyrir
Helgarpóstinn síðastliðið þriðju-
dagskvöld. 49% þeirra sem afstöðu
tóku nefndu Steingrim, 7,7%
nefndu Þorstein Pálsson, 7,2% Jón
Baldvin Hannibalsson, 7,1% Guðr-
únu Agnarsdóttur, 3,1% Albert
Guðmundsson og tæplega 1%
nefndu Svavar Gestsson. Óákveðn-
ir voru 22,4% og 2,9% nefndu aðra
einstaklinga.
í skoðanakönnuninni var spurt
hvaða stjómarmynstur fólkið vildi
helst sjá. Flestir vildu samsteypu-
stjórn Framsóknarflokks, Sjálfstæð-
isflokks og Kvennalista, eða 16,2%
þeirra sem tóku afstöðu. 12,7% vildu
sjá stjóm Alþýðuflokks, Sjálfstæðis-
flokks og Kvennalista, 7,5% vildu
stjóm Framsóknarflokks, Sjálfstæð-
isflokks og Alþýðuflokks og 4,9%
vildu stjóm Framsóknarflokks, Sjálf-
stæðisflokks og Borgaraflokks. Mun
færri vildu sjá aðrar stjómir, þar á
meðal fjögurra flokka stjómir án
þátttöku Sjálfstæðisflokksins, eða um
1%.
43% aðspurða sögðu að úrslit kosn-
inganna hefðu ekki komið þeim á
óvart, en 29% svörðu spumingu þessa
efnis játandi. 63% töldu ekki ástæðu
til að kjósa fljótlega aftur, en 17%
svömðu þeirri spumingu játandi.
Þjónusta fyrir fórnarlömb
kynferðislegs ofbeldis
SAMTÖK gegn kynferðislegu of-
beldi hafa nú opnað skrifstofu í
Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3, og
eru þau að hefja þjónustu við fólk
sem orðið hefur fyrir slíku of-
beldi. Fyllsta trúnaðar verður
gætt um öll þau mál sem samtök-
unum berast, segir i frétt sem
Morgunblaðinu hefur borist.
I fréttinni segir að markmið sam-
takanna sé að bjóða upp á vináttu
og stuðning til kvenna, karla og
bama, sem eiga í erfíðleikum, gegn-
um sjálfshjálpar- og stuðningshópa,
einnig til mæðra, feðra og aðstand-
enda bama sem orðið hafa fyrir
kynferðislegu ofbeldi. Þá safni sam-
tökin upplýsingum um kynferðislegt
ofbeldi og komi þeim á framfæri til
almennings, þrýsti á dóms- og heil-
brigðiskerfí um breytta meðhöndlun
þessara mála og ýti á meðvitaðri
umræðu um þessi mál. Þá muni sam-
tökin nú standa fyrir símaþjónustu
fyrir þá sem verða fyrir kynferðislegu
ofbeldi í hverskonar mynd. Skipta
megi kynferðislegu ofbeldi í fjóra
þætti, gagnvart bömum og ungling-
um innan heimilis, ofbeldi gagnvart
bömum og unglingum utan heimilis,
framkvæmt af ókunnum aðila, of-
beldi gagnvart fullorðnum konum eða
körlum, sem átt hefur sér stað í æsku
þeirra og annað kynferðislegt ofbeldi.
Samtök gegn kynferðislegu ofbeldi
leggja áherslu á að þau vinni ekki
meðferðarstarf, heldur hjálpi þeim,
sem snúa sér til samtakanna, að leita
sér sérhæfðrar hjálpar. Þá munu
samtökin í anda laga um bamavemd
beita sér fyrir því að bamavemdar-
nefnd taki á hveiju ofbeldistilfelli
fyrir sig, þegar um ræðir kynferðis-
legt ofbeldi gagnvart bömum innan
heimilis. Nú ætla samtökin að ráða
starfskraft hálfan daginn á skrifstofu
sína í Hlaðvarpanum, en þangað til
ætla aðilar innan samtakanna að
manna símann. Við símann mun einn-
ig verða tengdur símsvari. í frétt
samtakanna segir að símanúmer
þeirra sé 91- 62 35 45 og er fólki
bent á að fyllsta trúnaðar verður
gætt um öll mál er þangað berast.
VERKTAKAR -
BYGGINGAMEISTARAR
ALLUR BÚNAÐUR TIL
STEINSTEYPUFRAMLEIÐSLU
FRÁ CAR-MIX
STEYPUHRÆRIVÉLAR, 400-1000 lítra, vatnsmælir,
vikt, vibrator á skúffu, allt vökvadrifið.
6 ÁRA REYNSLA Á ÍSLANDI
SEMENTSÍLÓ OG SEMENTSNIGLAR
CARSISO, sementsíló á hjólum,
CARMIX 500-3000, selfloading mobile concrete mixer
MINI — steypustöðvar, 360-500 lítra.
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
VEGNA KYNNINGAR Á OFANGREINDUM BÚNAÐI
VERÐA NOKKRAR VÉLAR SELDAR Á SÉRSTÖKU
KYNNINGARVERÐI.
KAUPLEIGUSAMNINGAR, ENGIN ÚTBORGUN.
Mánudaginn 4. maí nk. verður staddur hér á landi sér-
fræðingur frá METALGALANTE og CAR-MIX verksmiðj-
unum á Ítalíu.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér verð og gæði
steypuhrærivéla frá CAR-MIX á Ítalíu og ræða um við-
skipti við sérfræðing verksmiðjunnar, eru vinsamlegast
beðnir að koma eða hafa samband við Hótel Esju c/o
Galante á mánudaginn kl. 9-15 og þriðjudaginn kl. 9-12.
Bergfell hf.
Eigi gler aó uppfylla
• •
þá komdutil okkar
Við framleíðum tvöfalt Thermopane gler og
Thermoplus comfort filmugler, sem einangrar
betur en þrefalt gler.
Við útvegum frá Thermopane verksmiðjunum
í Belgíu (Glaverbel), yfirleitt allar hugsanlegar
útgáfur af gleri.
Glerhurðir, glerklæðningar (facade), öryggisgler
og hert gler.
Einnig eldvarnargler (Pyrobell), sólvarnargler
(Stop-sol), skrautgler, vírgler og yfirleitt allar
þær glertegundir sem framleiddar eru í dag.
THERMOPANE GLERHURÐIR
í NÝBYGGINGU SEÐLABANKANS
THERMOPANE GLERKLÆÐNINGAR
í KRINGLUNNI, NÝJA HAGKAUPSHÚSINU
THERMOPANE GLER
í NÝJU FLUGSTÖÐVARBYGGINGUNNI
The/unofiane
Glerverksmiðjan Esja hf., Völuteig 3
270 Mosfellssveit, Sími 666160.