Morgunblaðið - 03.05.1987, Side 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
aukaskilding með því að selja smá-
teikningar. Mikkelsen vann þá hjá
teiknimyndakvikmyndafélagi í
Englandi og fékk þv-f-i föður sinn
til þess að reyna að selja PIB,
Blaðateiknifélaginu í Kaupmanna-
höfn, teikningar sínar.
Framkvæmdstjóri PIB, sem þá
var Hjálmar Carlsen, varð svo hrif-
inn af teikningunum að hann spurði
hinn unga Mikkelsen hvort hann
gæti ekki gert stuttar teiknimynda-
sögur sem þá voru að verða
vinsælar. Dahl Mikkelsen sló til og
kom fljótlega til Danmerkur með
teiknimyndasögu sem hann nefndi
Ferdinand og merkti sér með „mik“.
Það er ekki að orðlengja það að
Ferdinand sló í gegn í Evrópu á
augabragði en þegar seinni heim-
styijöldin braust út þá batt hún
Árið 1947 braust Ferdinand til
nýrra landvinninga í hinum geysi-
stóra blaðaheimi Bandaríkjanna.
Dahl Mikkelsen fylgdi sjálfur í kjöl-
far Ferdinands og settist að í
Califomíu, þar sem hann bjó svo
til dauðadags. Hann andaðist árið
1982, sextíu og sjö ára gamall.
Hann teiknaði Ferdinand fram til
síðasta dags, en fékk þó aðstoð frá
hinum reynda ameríska teiknara
A1 Plastino síðustu árin. Eftir dauða
Dahl Mikkelsen hefur Plastino hald-
ið áfram að teikna Ferdinand.
Ferdinand er ein meðal þeirra tíu
elstu teiknimyndasagna sem enn
eru framleiddar.
Til þess að minnast afmælis
Ferdinands birtum við hér sex
fyrstu sögumar sem um hann birt-
ust.
FIMMTUGUR
Teiknimyndasöguhetjan Ferdin-
and er líklega frægastur Dana,
næst á eftir sjálfum H.C. Andersen,
Hann hefur verið yndi og eftir-
læti fjölmargra blaðalesenda um
allann heim, allt frá því hann kom
fyrst fyrir augu almennings fyrir
réttum fimmtíu árum, þann þriðja
maí 1937.
Saga Ferdinands hófst með því
að ungur teiknari, Henning Dahl
Mikkelsen ákvað að vinna sér inn
enda á sigurgöngu Ferdinands utan
Danmerkur. Eftir að styijöldinni
lauk var þó þráðurinn tekinn upp á
ný, gömlu viðskiptavinirnir fóm
aftur að birta teiknimyndasögumar
um Ferdinand á nýir slógust í hóp-
inn.