Morgunblaðið - 03.05.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
B 9
Farfuglar án landamæra
Heimkynni farfuglanna er heimurinn all-
ur. Þeir virða ekki landamæri og ekki er
krafist af þeim vegabréfs. Enda þykir eða
þótti a.m.k. eftirsóknarvert að vera frjáls
sem fuglinn flúgandi. Háttemi þessara
furðufugla er í rauninni eitt af undrum ver-
aldar. Það er aðferð náttúrunnar til að
tryggja það að fuglategundir geti nýtt sér
náttúruauðlindir þær sem aðeins eru til reiðu
á vissum árstíma. Oftast er um að ræða
sumarskordýr eða aðra hryggleysingja á
norðlægum slóðum og fuglarnir eyða síðan
vetrinum í suðurrænum löndum. Leiðir far-
fuglanna eru þó margbrotnar. Geta líka
legið frá austri til vesturs eða öfugt. Sumum
tegundum nægir jafnvel að flytja sig upp
og niður eftir fjöllunum. Lifa þannig af í
mildara loftslagi að vetrinum í minni hæð
frá sjávarmáli. í Evrópulöndunum eru 80%
af 400 varpfuglategundum annað hvort al-
farið farfuglar eða hafa innan sinna vébanda
hópa sem flytja sig til. Það þýðir að hvert
einasta ár eru fuglaflotar á ferð fram og
aftur yfir allt meginland Evrópu. Leiðir
jjgggjpt«***"..
Skúföndin, sem hór er farfugl, prýðir
bœði forsíðu og baksíðu Naturopa, nátt-
úruverndartimarits Evrópuráðsins, sem
helgað er farfuglunum. Skúföndin er til-
tölulega nýr gestur hér, frá 1895. En
stofninn er þó líklega orðinn stœrstur á
íslandi og um helmingur hans við Mývatn.
þeirra hafa mótast með kynslóðunum og
hjá mörgum langleiðategundum gætir enn
greinilega áhrifa frá síðustu ísöld fyrir
18000 árum. Auðvitað eru varp- og vetur-
setustaðimir einir ekki þessum fuglum
hættulegir heldur eru reglulegir „stoppu-
staðir" þeirra á leiðinni ekki síður lífsnauð-
syn. Fjöldi þessara farfugla er ótrúlega
mikill. Sennilega leggja um 5.000.000.000
fuglar af 150 tegundum upp í flugið milli
Evrópu og Afríku sunnan Sahara einni sam-
an. Þar við bætast svo milljónimar sem
koma norðan úr Ishafi til vetursetu í Evróp-
ulöndum og milljarðar fljúga vestur yfir
meginlandið til að eyða hlýrri vetmm úti
við strendur Atlantshafsins. Og ekki em
það aðeins litlu mófuglarnir sem þama er
um að ræða heldur líka sjófuglar, vaðfugl-
ar, votlendisfulgar, ránfuglar og allskonar
tegundir, sem hver um sig hefur sína að-
ferð og sínar sérþarfir til að geta komist
leiðar sinnar.
Margir þessara fugla bytja að búa sig
undir hina erfiðu ferð löngu áður en lagt
er upp. Alveg eins og maðurinn verður að
taka bensín á bílinn áður en lagt er í lang-
ferð verður fuglinn að safna á sig eldsneyt-
inu sem hann brennir á leiðinni. Það getur
tekið margar vikur og iðulega verður fugl-
inn að tvöfalda þyngd sína til að hafa nægt
faramesti.
Fuglamir em alveg ótrúlega ferðafærir,
flugáætlanir þeirra furðulega nákvæmar og
rannsóknir hafa sýnt að litlir örsmáir spör-
fuglar eyða um 0,7% þyngdar sinnar á
hverri klukkustund sem þeir em á flugi.
Þeir geta flogið viðstöðulaust í fjóra daga
og nætur og lagt að baki 3.000 km í logni.
Þetta gildir þó ekki fyrir stærri fuglana, sem
ná vaxandi orkunýtingu með stærðinni. Af
þeim hefur maðurinn í aldanna rás margt
lært. Annað sem vakið hefur aðdáun hans-
er hárnákvæm flughæfni og tímasetning
fuglanna. Þeir rata með hjálp sólaráttavita,
notkun stjömukortsins og sjötta skilninga-
vitsins, sem gerir þeim fært að skynja og
rétta sig af með því að nota segulsvið jarð-
ar og frábært minni á kennileiti. Ekki nýta
allar tegundir alla þessa þætti og fleiri til
viðbótar, en allir farfuglar hafa gott tíma-
skyn.
Hættur við hvert vængjatak
Þrátt fyrir ferðahæfni fuglanna hallar
nú orðið á margar fuglategundir í Evrópu.
Kannski virðast menn hafa mestar áhyggjur
af fækkun storkanna af því að þeir em svo
stórir og næstum heimilisfuglar, verpa á
þökum. Allt frá Sahara og norður að Eystra-
salti, í Danmörku, Grikklandi, Elsass og
víðar fagna bömin þessum fugli sem svo
margar þjóðsögur hafa myndast um og sem
á að koma með bömin. En baráttan gegn
engisprettunum sem eyðileggja uppskemna
og þurrkamir fyrir sunnan Sahara em m.a.
þættir í því að svo margir storkar geta ekki
safnað nægilegri fæðu til ferðarinnar miklu
og farast á leiðinni yfir Sahara. Og þótt
aðgerðir séu hafnar í Evrópu til að vernda
storkinn, sem er orðinn fágætur, þá er enn
ekkert slíkt á ferðinni í Afríku. Mörgum
minni fuglum er ekki síður hætt við útrým-
ingu þótt storkurinn veki mesta athygli. Á
nokkmm undanförnum ámm hefur þessi
vandi sem teygir sig milli heimsálfa, hættan
á ójafnvægi lífríkisins á hnettinum, alvarleg
þurrkavandamál og hin öra jarðvegseyðing
á Sahel-svæðinu orðið til þess að tengja
löndin suðurfrá og norðurfrá og leitt til
upphafs á alþjóðlegri samvinnu um þennan
vanda milli landa og álfa.
Ekki yrði umhverfi okkar aðeins fátæk-
legra við að fuglarnir hættu að birtast,
heldur em þeir víða ómissandi hluti af
lífríkinu. Farfuglamir hafa áhrif á lífrfkið
þegar þeir fara á milli landa og heimsálfa
og breyttar aðstæður á stöðunum hafa aft-
ur áhrif á lífskilyrði þeirra. Engin keðja er
sterkari en veikasti hlekkurinn og til að
hamla gegn því að veikur hlekkur sem brest-
ur verði til þess að farfuglategund farist
hefur verið efnt til ráðstefna á vegum al-
þjóðasamtaka, Sameinuðu þjóðanna,
Evrópuráðsins og sérstofnananna og dregn-
ir upp alþjóðlegir samningar þar sem þjóðir
skuldbinda sig til að virða ákveðnar um-
gegnisreglur, sem ríkisstjómir taka ábyrgð
á. _
íslendingar hafa sem fyrr verið tregir til
að koma þar nokkurs staðar nærri sem um
skuldbindingar er að ræða og hafa ekki
fengist til að vera með í neinum af þeim
alþjóðlegu sáttmálum sem gerðir hafa verið,
stundum eina þjóðin í Evrópu. Næst kom-
umst við því í svonefndum Ramsarsáttmála
frá 1971 um vemdun votlendissvæða. íslend-
ingar hafa að vísu samþykkt hann, en ekki
komið í verk að fullgilda hann á alþingi,
einir Evrópuþjóða. En við höfum ekki sam-
þykkt svonefndan CITES sáttmála (
Convention on Intemational Trade in End-
angered Species) um eftirlit með verslun
með villt dýr og jurtir í útrýmingarhættu,
Krían lifir
í eilifu sumri
Kemur allt að 20 þús km leið
Krían okkar, af tegundinni Sterna paradisa-
ea, á lengsta leið fyrir höndum þegar hún
leggur í flugið til sumarstöðvanna norður við
heimskautsbaug. Þær fljúga eflaust margar um
20 þúsund kilómetra leið frá Suður-Afríkuströnd-
um og Ástralíu. Og ef þær kríur sem sést hafa
við ísröndina við Suðurskautið koma héðan, sem
ekki er vitað, þá bætast við 3000 km. Kríumar
vega þó ekki nema 100-120 grömm, þótt þær
sýnist stærri vegna langra vængja, stéls og mik-
ils fiðurs. En með því að flytja sig um svo langan
veg, þá nær krían því að sjá meiri sól og dags-
birtu yfir árið en nokkuð annað sem lífsanda
dregur. Kríumar sem verpa og dvelja t.d. norðan
við heimskautabaug í eilífri dagsbirtu yfir suma-
rið geta líka eytt vetrinum í eilífri dagsbirtu
suður undir Suðurskauti.
Fyrstu kríumar sem nú eru samkvæmt fregum
famar að sjást við ströndina á íslandi hljóta því
að koma örþreyttar og hafa miklu afrekað. Ekki
^ að furða þótt þær hvíli sig aðeins áður en þær
halda áfram til að koma í Tjamarhólmann 14.
maí. En þá þarf krían að drífa sig í að verpa
fyrri hluta júnímánaðar, til að geta komið upp
fleygum ungum ,því ekki hefur hún mikinn tíma.
Upp úr miðjum júlí og í ágúst verður hún að
leggja aftur í hann og fljúga löngu leiðina til
að halda í sitt eilífa sumar. _ pps
þar á meðal fálka, uglutegundir, stóru sjó-
skjaldbökuna, emi o. fl. 90 þjóðir eru aðilar
að þessum sáttmála sem þykir sjálfsagður
meðal menningarþjóða Evrópu. Það er sá
hinn sami sem hvalútflytjendur voru að reka
sig á í Hamborg nýlega. Sama er að segja
um Bemarsamninginn um vemdun villtra
dýra og plantna og umhverfi þeirra í Evr-
ópu og raunar alla aðra sáttmála til vemdar
lífríki og náttúm. Við eram hvergi með.
En nú era Afríkuþjóðirnar óðum að bætast
í hópinn.
Eða eins og forseti Senegals, vetrardval-
arstað máríuerlunnar og steindepilsins
okkar, Abdou Diouf, orðaði það:„ Hvernig
á að tryggja áframhaldandi tilveru gæsa,
vaðfugla og annarra farfugla Evrópu nema
þeir séu almennilega vemdaðir og aðstæðum
þeirra stjómað gegn um allan þeirra lífsfer-
il, þ.e. á leiðum þeirra til og frá varpstöðun-
um og meðan þeir hafa sumardvöl í norðri
og vetursetu í Afríkulöndum. Til þess er
Bemarsáttmálinn einstakt tæki til evro-
afrískrar samvinnu með nýjum umræðu-
grandvelli."
TEXTI: ELÍN PÁLMADÓTTIR
Creda
tauþurrkarar
Verð 4,5 kg.
19.900 kr. staðgr.
Creda
húshjálpin
Sóluaðilan
Viðja, Kópavogi, s. 44444
Rafbúðin, Hafnarfirði, s. 53020
Stapafell, Keflavik, s. 2300
Vörumarkaðurinn, Seltjamamesi,
s. 622200
Grimur og Ámi, Húsavik, s. 41600
Creda-umboðið, Raftækjaverslun
islands, Reykjavík.
Tónleikar
og
töfrabrögð
Þjóðlagatríóið „Bylina“
frá Rússlandi, söng-
konan Galina Borisova
og einn frægasti sjón-
hverfingamaðurSov-
étríkjanna, Arútjan
Akopjan, skemmta á
vegumMÍRííslensku
óperunni (Gamla bíói)
sunnudaginn3. maíkl.
15.00.
Aðgöngumiðar seldir
iaugardag í félagsheim-
iliMÍRkl. 13.30-18.00
og við innganginn á
sunnudag.
Missiðekkiaf
sérstæðri
skemmtun frá-
bærra iista-
manna.
MÍR
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!