Morgunblaðið - 03.05.1987, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
B 13
Þjóðin horfist ekki íaugu við
vandann. Hún erbara að reyna
að svæfa sjáifa sig.
Sjá: TAPAÐ SPIL
MEGRUN
Átvög’lin
komast ekki
í feitt
ÞEIR, sem láta sig línumar
skipta og aukakílóin, munu
brátt fá uppfyllta sína heitustu ósk
— fitulausa fitu, sem komið getur
í staðinn fyrir smjör og smjörlíki.
Vísindamenn hjá bandaríska
matvælafyrirtækinu Proctor &
Gamble eru nú að leggja síðustu
hönd á þetta hitaeiningalausa við-
bit en það á einnig að verða fullboð-
legt í allan venjulegan bakstur.
Ifyrstu tilraunir með það á akfeitum
Bandaríkjamönnum hafa borið ein-
staklega góðan árangur. Sjálfboða-
liðamir, sem gáfu sig fram við
háskólann í Cincinnati, töpuðu að
meðaltali sjö pundum á 20 dögum
eftir að hafa látið í sig um 60
grömm af fitulíkinu daglega. Kem-
ur þetta fram í grein, sem birtist í
tímariti bandarísku læknasamtak-
anna.
Ekki em samt allir ánægðir með
þá framtíðarsýn, að fólk geti troðið
sig út og gefið græðginni lausan
tauminn án þess að þurfa að hafa
af því nokkrar áhyggjur. Dr. Micha-
el Jacobson, sem veitir forstöðu
neytendasamtökum í Washington,
er einn þeirra. „Reynum að ímynda
okkur gróða matvælaiðnaðarins ef
fólk getur leyft sér að tvöfalda kex-
og kökuátið án þess að fitna hið
minnsta," sagði hann.
Sumum vítamínanna, sem
finnast í náttúrulegri fitu, yrði að
bæta út í fitulíkið og dr. Jacobson
varaði við of mikilli neyslu þess.
Sagði hann, að hætt væri við, að
mönnum yrði stundum dálítið brátt
í brók af þessu klístri.
TISKA
Sjáðu hvað hún er fín!
Hún er í fangafötum
TLA mætti, að það væri
auðveldasta leiðin til að
lenda í klónum á laganna vörðum
að bijótast inn í fangelsi til að stela
en samt er það svo, að þetta uppá-
tæki má kallast „tískuglæpurinn"
nú um stundir.
Sú hlýtur a.m.k. að vera skýring-
in á því, sem gerðist í Sudbury-
fangelsinu í Derbyshire í Englandi
fyrir skömmu. Tveir ungir menn
brutust þá inn í fangelsið úr frels-
inu fyrir utan, ólíkt því, sem venjan
er, og það, sem fyrir þeim vakti,
var að komast yfir tískuklæðnaðinn
í ár.
Venjuleg fangaföt eru nú orðin
hæstmóðins meðal þeirra, sem vilja
tolla í tískunni. Ef þau virð-
ast vera ekta, komin beint
úr tugthúsinu, er leikur einn
að fá fyrir þau gott verð og
tískuhönnuðir eru jafnvel
famir að finna fyrir aukinni
eftirspum eftir þessum
klæðnaði.
„Fangafötin njóta greini-
lega mikilla vinsælda, jafnvel
éinfaldar skyrtur ganga út
eins og heitar lummur," sagði
Larry Stones, yfirmaður fang-
elsismála í Bretlandi,
en hátískan í þessum efnum
felst í því, að fötin séu úr
hvítri bómull með daufum,
bláum röndum.
Mennimir tveir, sem brut-
ust inn í Sudbury-fangelsið,
voru búnir að næla sér í sex
skyrtur þegar þeir voru
gripnir en fyrir hveija þeirra
töldu þeir sig geta fengið um
1.600 ísl. kr.
Það fór ekki svo, að þeir
tvímenningamir þyrftu sjálf-
ir að skrýðast þessum eftir-
sótta skrúða. Var öðrum
þeirra gert að vinna sveitinni
sinni kauplaustí 140 stundir
én hinum var sleppt með
skilorði.
Líklegt er, að mennimir
hafí nokkuð ofmetið verð-
mæti fatnaðarins. Barry
Mcmanus, sem stundar sölu-
mennsku á Petticoat Lane- og
Kensington-útimarkaðnum í Lon-
don, segir, að þótt fangafötin séu
vissulega vinsæl sé raunhæfara
verð fyrir fangaskyrtumar aðeins
300-400 kr. Auk þess eru fæstar
þeirra ættaðar úr fangelsunum.
„Sumir fatahönnuðir líkja eftir
fangafötunum og það er alltaf til
nóg af ungu fólki, sem hefur gaman
af því að hneyksla samborgara sína
með klæðaburðinum," sagði
McManus.
- ANDREW
MONCUR
HVR9 ÞRRF ÉG
RÐGERR TlL ÞFSS
er flutt í Borgartún 26.
Símar 681502 og 681510.
il
Borgartúni 26.
BRAIIT
I upphafi var þaö síminn og reikni
vélin. Svo birtist ritvélin,
Ijósritunarvélar, telex, tölvur og alls
kyns dót á skrifborðinu og
fleiri vélar og meira dót eiga eftir aö
safnast fyrir ásamt aragrúa
af leiöbeiningum og upplýsinga-
pésum.
Nema þú sláir í borðið og kynnir
þér WANG tölvur í eitt skipti
fyrir öll. Frá sama skjánum færöu
aðgang aö WANG ritvinnslukerfi,
bókhaldi,WANG-OFFICE, skýrr,
gagnabönkum ofl. ofl. eöa í stuttu
máli; þá opnast þér leið aö öllu því
sem fyrir finnst í tölvuheiminum
í dag. Allt á sama staö til
að þú getir einbeitt þér
aö því að stjórna þróuninni
sjálfur í staö þess
að elta hana....
ENDANLEG
NIÐURSTAÐA
<ð>
_ cætÚN 8 - SÍMl'- 27500