Morgunblaðið - 03.05.1987, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
B 19
Fjölskyldumynd frá árinu 1981, (frá hægri): Guðni, Ásdis Þóra,
Arnar Karl og Elín.
Islendingur
yfirlæknir
á Mayo Clinic
Guðni Þorsteinsson, sérfræðing-
ur í endurhæfingar- og orku-
lækningum, var nýlega ráðinn
yfirlæknir endurhæfingardeildar,
hinnar virtu stofnunar Mayo Medic-
al Center, í Rochester í Minnesota
í Bandaríkjunum. Mayo Medical
Center, sem er rótgróin og virt
stofnun og hefur stundum verið
nefnd „Mekka læknavísindanna",
rekur sjálfstæða menntastofnun
þar sem bæði er hægt að læra und-
ir almennt læknispróf og einnig að
stunda nám í sérgreinum og er
skólinn frægastur fyrir það. Kemur
þangað árlega mikill fjöldi lækna
frá öllum heimshomum til slks
náms. Guðni sem einnig gegnir pró-
fessorsstöðu við skólann sagði í
samtali við Morgunblaðið að lækna-
skólinn væri ekki lengur háður
háskóla Minnesota, heldur alger-
lega sjálfstæður. Hann sagði að
Eru stjórn-
mál slagsmál?
Legið hefur í loftinu um skeið
að ríkisstjóm íhaldsflokksins í
Bretlandi hafi hug á því að notfæra
sér vinsældir stjómarinnar og láta
fara fram þingkosningar á næst-
unni þ.e. einu ári fyrr en nauðsyn
krefur. Stjómmálaflokkamir hafa
því allir hafið undirbúning fyrir
hugsanlegar kosningar og foringjar
flokkanna hafa haft í nógu að snú-
ast. Breskt blað birti fyrir skömmu
þessar myndir af forystumönnunum
í stellingum hnefaleikara og má til
sanns vegar færa að stjómmálabar-
átta getur stundum líkst meira
hnefaleikakeppni, þar sem beita
má hinum lúalegustu brögðum, en
skoðanaskiptum skyni gæddra
mannvera.
Mayostofnunin ræki einnig tvö
sjúkrahús og þangað kæmu um
250.000 nýir sjúklingar árlega.
Starfsfólk væri um 14.000, þar af
væru fastráðnir læknar um 900 og
þeir sem væru þar við nám um 800.
Guðni Þorsteinsson, yfírlæknir,
sagði að á endurhæfingardeildinni
ynnu um 200 manns þar af væru
21 fastráðinn læknir og 20 læknar
við sémám. Sjúkrarúm væru ekki
mörg eða 58, enda byggði stofnun-
in mest á göngudeildum og kæmu
á sína deild að jafnaði 100 nýir
sjúklingar daglega. Hann sagði að
aðrar sjúkrastofnanir hefðu fetað í
fótspor Mayostofnunarinnar hvað
notkun á göngudeildum varðaði og
ef rétt væri að málum staðið þá
væri slíkt heppilegt bæði fyrir sjúkl-
ingana og stofnanimar. Legudög-
um hefði fækkað á sama tíma og
aðgerðum hefði fjölgað.
Guðni Þorsteinsson er 45 ára
gamall, sonur Þorsteins Einarsson-
ar, fyrrum íþróttafulltrúa ríkisins
og konu hans Ásdísar G. Jesdóttur.
Hann varð stúdent frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1961 og lauk
læknisprófí frá Háskóla Islands
1968. Hann hélt til Bandaríkjanna
árið 1971, var aðstoðarlæknir við
Pennsylvania Medical Center í eitt
ár, en hélt þá til Mayostofnunarinn-
ar og var þar við nám og störf til
ársins 1980. 1980-1981 var hann
yfírlæknir endurhæfingadeildar
Landspítalans, en hélt að því búnu
aftur til starfa við Mayostofnunina.
Guðni er kvæntur Elínu Klein, dótt-
ur Carls og Þóru Klein og eiga þau
tvö böm, Amar Karl sem er við
nám í Golgate University í New
York og Asdísi Þóru er stundar
framhaldsskólanám í Bandaríkjun-
um.
Guðni sagði við blaðamann
Morgunblaðsins að þróunin í endur-
hæfíngar- og orkulækningum væri
ör, miklar breytingar væru fyrirsjá-
anlegar á næstunni og hann liti
björtum augum til framtíðarinnar.
Royal Magaluf
Gislistaður í sérfiokki.
Ferðasknlstota, Hallveigarstíg 1 slmar 28388 og 28580
flfayigMtifrltafrift
Metsölublad á hverjum degi!
Utsala
40% afsláttur
Við rýmum fyrir vor- og sumarvör-
unum. Setjum þess vegna nokkrar
vörutegundir á rýmingarsölu.
ATH. Eigum til nokkuð lítið gallaðar
svampdýnur á hlægilegu verði eða
aðeins kr. 1.500.00 stk.
Tilvalið t.d. í sumarbústaði o.fl.
Notið tækifærið — verslið ódýrt.
Grensásvegi 12.
Símar: 688140 - 84660.
Pósthólf: 8812,128 R.
\- ■
g^HH ■1 ■ 'n<aar. : J
W k jgjjj
ÍL ■
1