Morgunblaðið - 03.05.1987, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
SVAÐILFOR SEVERINS
f KJÖLFAR SINDBAÐS
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Tim Severin: The Sindbad Voy-
age
Utg’.Hutchinson
Margir kannast við siglingakap-
pann Tim Severin. Hann sigldi yfir
Atlantsála 1976-77 til að sanna að
írski múnkurinn Brendan hefði
fundið Ameríku á undan öðrum.
Um þá för sína ritaði hann bók, sem
varð víða metsölubók og var gefin
út á mörgum tungumálum.
Nokkrum árum síðar, eða 1980
lagði Severin upp í aðra ævintýra-
ferð.út á Arabiuhaf og áleiðis til
Kína. í bát sem var eins nákvæm
eftirlíking af arabiskum farkosti til
forna og unnt var. Og sú ferð var
öldungis ekki farin undirbúnings-
laust né út í bláinn. Severin
rannsakaði heimildir og kynnti sér
sæfarir arabiskra ævintýramanna
af kostgæfni. Hann hafði eins og
fleiri skemmt sér drengur yfír sög-
unni af Sindbað sæfara og annarra
kappa frá þessum tímum og slóðum.
Báturinn var nefndur Sohar, eftir
bæ í norðurhluta Ómans, en þar
segir sagan að Sindbað hafi verið
fæddur.
Og Severin skrifaði einnig bók
um þessa för og því miður hef ég
ekki lesið hana fyrr en nú. Severin
segir frá aðdraganda þessa máls.
Áhugi hans hafði vaknað á sigling-
um Ömana til forna, en þeir sigldu
um öll heimsins höf og um tíma
náði veldi þeirra frá Zansibar, und-
an Afríkuströndum til Persíu.
Severin kynnti sér frásagnimar eins
nákvæmlega og hann gat og fékk
leyfí til að koma til Ómans og var
aðalerindi hans í það sinnið að
kynna sér bátsgerðina þess tíma.
í Óman fengu ráðamenn einnig
áhuga á þessu verkefni Severins
og tveimur vikum eftir að hann kom
heim til írlands, barst honum skeyti
frá menningarmálaráðherra lands-
ins, þar sem honum var sagt, að
Quaboos súltan hefði ákveðið að
hann fengi allan þann styrk til að
smíða skipið og sigla til Kína með
þeim aðferðum, sem hinir fomu
sækappar notuðu. Boltinn fór að
rúlla og Severin fór síðan ásamt
sérfróðum mönnum til Malabar á
Indlandi, þar sem þeir sérvöldu
HM
SEVERIN
hvert tré sem var notað við smíðina.
Eftir tveggja ára vinnu eða svo
var köppunum ekkert að vanbún-
aði. Með tuttugu manna áhöfn, þar
af átta Ómani, en hina af ýmsum
þjóðernum lagði Sohar af stað.
Þetta var um 6000 sjómílna leið,
yfir Arabiuhaf til Indlands og þaðan
til Sri Lanka og um Indlandshaf til
B 21
-------------------------------&
Sumatra og gegnum Malakkasund
og þaðan á Kínahaf alla leið til
Kanton.
Þetta var mikil svaðilför og Se-
verin er mikill og snjall sögumaður.
Hann segir frá á lifandi hátt og
ævintýrin eru á hverri báru. Áhafn-
armenn urðu að synda innan um
hákarla, þegar þeir vom að gefár
við, safna rigningarvatni til drykkj-
ar, er birgðir þraut um tíma, undan
ströndum Víetnam hrepptu þeir hið
ferlegasta veður og er fátt eitt
upptalið, en óhætt að lofa frásagn-
arhæfileika höfundar.
Sagan er öll furðuleg, og Severin
telur sig hafa sannað í The Sindbad
Voyage, að sagnir um fyrri svaðil-
farir eru meira og minna réttar.
En auðvelt er að skilja, að mörg
för hröktust stjórnlaus um hin úfnu
höf og n áðu aldrei landi. Tim Sever-
in er ekki ævintýramaður í þeinl
skilningi, að hann leggi upp í reisur
í glannaskap. Allt er þrautskipulagt
fyrir fram og um það allt er ánægju-
legt að lesa. Segja mætti mér að
þessi bók verði talin með skemmti-
legri og merkari bókum um sigl-
ingaævintýri á seinni tímum.
Stöð 2:
Nýr þáttur um
viðskipti og
efnahagsmál
NÝR þáttur um viðskipti og efna-
hagsmál hefur göngu sína á Stöð
2 næstkomandi miðvikudag.
Þátturinn verður í umsjá Sig-
hvatar Blöndal og verður á
dagskránni á liverju miðviku-
dagskvöldi eftir fréttir.
Þættir Jóns Óttars Ragnarssonar
„Sviðsljós" og „Eldlínan" verða
teknir út af dagskránni yfir
sumartí-
mann, en hefjast að nýju í haust.
í stað þeirra verður boðið upp á
létta spuminga- og samtalsþætti,
að sögn forráðamanna sjónvarps-
stöðvarinnar.
Tónleikar
í Háteigs-
kirkju
KÓR Tónlistarskólans í
Reykjavík heldur tónleika í Há-
teigskirkju í dag, sunnudaginn
3. maí, kl. 17.00.
Flutt verður Missa brevis KV.
194 eftir Wolfgang Amadeus Moz-
art fyrir ijóra einsöngvara, kór og
strengjasveit. Stjómandi verður
Marteinn H. Friðriksson, einnig
syngja og stjóma nemendur úr tón-
menntakennaradeild skólans.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Royal Jaixlin
del Mar
Gistislaður í sérflokki.
otuxvnt
Ferðaskrilstofa. Hallveigarslíg 1 slmar 28388 og 28560
' HIGH TECHNOLOGY '
IN SHOES MANUFACT
CAMPOS SKÓR FÁSTÍ
EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM
Skæði
Skósalan Adam
Skómagasín
Skóbúðin Keflavik
Skóhöllin Hafnaríiröi
Staöarfell Akranesi
Skóbúö Sauðárkróks
Perfect Akureyri.
EF ÞU LEITAR AÐ VORU SEM ER FREMST A
SVIÐITÆKNILEGRAR HÖNNUNAR, OG VILT
HÁGÆÐA FRAMLEIÐSLU OG HEFUR EINNIG
ÁHUGA Á TÍSKU SEM BYGGIR Á NOTKUN
FYRSTA FLOKKS HRÁEFNIS GERÐ AF
FRÆGUM HÖNNUÐI. ÞÁ ÓSKUM VIÐ ÞÉR
TIL HAMINGJU. CAMPOS ER ÞITT VAL. ÞU
VELUR CAMPOS.