Morgunblaðið - 03.05.1987, Síða 26
26 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1987
ÉE fiEIHI EVIEHyNEANN/4
Bræðurnir Ethan og Joel.
Höfundar „Blood Simple":
Coen-bræður gera mynd
um barnaræningja
Tveir tugthúslimir á flótta stela bil
en eru ekki komnir langt þegar þeir
uppgötva að upp. á bflþakinu situr
reifabarn ( bflstól sínum. Þar hafði því
veríð komið fyrír meðan foreldrarnir
röðuðu dóti (bflinn. Þjófarnir aka burt
eins og villtir menn, sjá barnið detta
f götuna, þeir snúa við og snarhemla
við höfuð barnsins þar sem það situr
( bamastólnum á hraðbrautinni, enn
brosandi eftir ævintýríð.
Þannig hefst nýja mynd Coen-bræör-
anna, Joels og Ethans, sem frægir urðu
fyrir tveimur árum þegar þeir gerðu
; Blood Simple, einhverja frumlegustu
spennumynd síðari ára. Þeim veittist
ekki erfitt að finna nýtt efni fyrir mynd,
hugmyndabanki þeirra er óþrjótandi.
Þeir ákváðu loks að spila á tilfinningar
fólks; reifabarn og örlög þess i frekar
gráglettnum tón.
Ræningjarnir fyrrnefndu eru par sem
lifir mjög borgaralegu og þar af leiðandi
heilbrigðu (!) lífi, en sá skuggi hvílir á
að þau geta ekki eignast barn saman.
Þau sætta sig ekki við ófrjósemina
meðan nágranninn, sem ber ættarnafn-
ið Arizona, eignast fimmbura, og ræna
því einum þeirra.
Joel er 32 ára, Ethan 29, báðir eru
frjálsir og konum óháðir og barnlausir.
Þeir skrifa handrit sín í sameiningu en
Joel er yfirleitt titlaöur leikstjórinn en
Ethan framleiðir. En slik verkaskipting
er þeim ekki geðfelld, þeir eru svo sam-
rýndir að heilabú þeirra eru nánast
alveg eins.
Þeir gerðu Blood Simple árið 1985,
skröpuöu saman 1,5 milljón dala sjálfir.
Hvað með þó okkur takist ekki að gera
listaverk? sögðu þeir, enginn tekur eft-
ir því. En þeir vöktu óhemju athygli
enda myndin stórskemmtileg, svo þeir
fengu samning við Fox-myndaverið sem
ber kostnaöinn af nýju myndinni. Hún
er fjórfalt dýrari. „Og því erum við fjór-
falt taugaóstyrkari," segja þeir bræður.
Svo taugaveiklaðir að þeir ráku meira
að segja ungabörnin heim með skömm
ef þau hlýddu ekki skipunum þeirra
möglunarlaust. Þeir skipuleggja alla
vinnuna út í æsar og leyfa sér lítið frjáls-
ræði þegar að tökum kemur. „Það er
ekki hægt meðan við höfum svo litla
peninga," segja þeir bræður.
% Með Raising Arizona vildu þeir gera
mynd sem væri eins langt í burtu frá
Blood Simple og kostur var; hraöa og
Ijúfa en ekki hæga og þunga, fyndna
og fráleita en ekki blóði drifna og kald-
hæðna.
Frances McDermond, sem lék eitt
aðalhlutverkið í Blood Simple, þekkir
þá bræður betur en flestir aörir. Hún
segir að í raun hafi þeir aðeins eina
ástríðu í lífinu; að búa til myndir. Þeir
liggi mánuðum saman yfir handritinu,
síðan taki viö langur tími til aö elta
uppi fjármagnið; allt er það þó ekki
nema aödragandinn að meginatriöi
númer eitt; tökunum sjálfum, sem taka
frekar stuttan tíma. Þegar þeim lýkur
' er loks komið að meginatriöi númer
tvö: klippingunni. Þá geta þeir hagað
sér eins og sannir rithöfundar, skoðað
myndina á klippiboröinu, og velt fyrir
sér öllum möguleikum. Þeir reykja of
mikið og borða of lítið, segir Frances,
en þannig vilja þeir hafa það.
Nicolas Cage og Holly Hunter leika unga parið sem girnist barn ná-
grannans.
Coen-bræður taka fátt hátíðlega,
allra síst sjálfa sig. Ethan stúderaði
heimspeki við háskóla; „aö gamni
rnínu," útskýrir hann. Þeir kæra sig
ekki um hástemmdar ræður né greinar
um myndir sínar, þeir ræða sjaldan við
blaðamenn (bjóöa þeim aö vísu sæti
en segja síðan ekki orö). Ef þeim finnst
spurningar blaðamanna fáviskulegar þá
vitha þeir í vitringa eins og Karl Marx
eða þylja upp löng samtöl úr gömlum
bíómyndum. Það er yfirlýstur ásetning-
ur þeirra aö gleðja enga með myndum
sínum nema sjálfa sig; aðrir skipta þá
nákvæmlega engu. Það er ef til vill
þess vegna sem myndir þeirra eru svo
frumlegar og ferskar sem raun ber vitni,
þeir eru ekki háðir markaðnum og duttl-
ungum almennings.
HJÓ
Regnboginn:
ÞRIR VINIR
OGLANDIS
í Mexíkó árið 1916 verða þorpsbúar Santa Poco fyr-
ir árásum og yfirgangi útlaga undir stjórn El Guapo
(Alfonso Arau). Carmen (Patrice Martinez), ung og fal-
leg þorpskona, sendir neyðarboð til þeirra þriggja
manna sem hún hefur sóð að berjist gegn kúgun og
vinni gegn óréttlæti, en að vísu aðeins í bíó. Það eru
stjörnur þöglu myndanna, „Vinirnir þrír“.
Á hvíta tjaldinu eru þeir Lucky
Day (Steve Martin), Dusty Bottoms
(Chevy Chase) og IMed Nederland-
er (Martin Short), óttalausar,
glæsilegar og rómantískar hetjur.
I raunveruleikanum eru þeir sak-
leysislegir hrakfallabálkar. Kvik-
myndamógullinn Harry Flugelman
(Joe Mantegna) rekur þá alla þegar
Lucky Day gerist svo djarfur að
heimta kauphækkun svo þeir vinda
sér í að kom Carmen til hjálpar.
Þeir vaða að vísu í þeirri villu að
þeir eigi að koma fram sem hluti
af skemmtidagskrá fyrir 100.000
pesósa og þegar þeir koma til
Santa Poco halda þeir að útlagarn-
ir illræmdu séu kollegar úr leikara-
AlexCox
gerir „Walker"
í INlicaragua
Wiiliam Walker hét Ameríkani og ævintýramaður sem uppi
var á 19. öld, fæddur í Tennessee. Hann var foringi fyrir liði
Bandaríkjamanna sem hélt inn í Nicaragua, sölsaði undir sig
stjórn landsins og Walker sór forsetaeið áður en hann var
leiddur fyrir aftökusveit og skotinn. Þótt Walker sé ekki stórt
nafn í sögubókum í Bandaríkjunum er hann það í Suður-
Ameríku. I Nicaragua stendur hann fyrir hið hugsunarlausa
ofbeldi Kanans sem engu eirir, haldinn þeirri villu að hann
sé að breiða út lýðræði.
Breski leikstjórinn Alex Cox,
sem frægur er fyrir myndir eins
og Repo Man og Sid and Nancy,
er nú staddur í Nicaragua að gera
mynd um Walker þennan. Ed Harr-
is (The Right Stuff) fer með titil-
hlutverkið en myndin á einfaldlega
að heita Walker. Líkt og leikstjór-
inn, og margir aðrir sem vinna við
myndina, þiggur Harris minni laun
fyrir en ella vegna þess að hann
er samþykkur pólitískum meining-
um myndarinnar og hún er því mun
ódýrari fyrir bragðið.
Cox segir í viðtali við The New
York Times að hann sé kominn til
Nicaragua í þeim tilgangi að mót-
mæla stefnu Bandaríkjastjórnar í
málefnum Mið-Ameríku og sér-
staklega stuðning hennar við
Contraskæruliðana. „Bandaríkja-
stjórn, með stuðningi minnar eigin
stjórnar, aðstoðar við heimskulegt
og tilgangslaust fjöldamorð á fólki
sem vill henni ekkert illt, sagði Cox
í blaðaviðtali.
Embættismenn Nicaragua-
stjórnar fóru yfir handritið að
myndinni áður en þeir gáfu heimild
fyrir gerð hennar í landinu. Og hin
ríkisrekna kvikmyndastofnun Nic-
aragua vinnur náið með kvik-
myndagerðarmönnunum. Allir,
sem þátt taka í myndinni, eiga þá
sannfæringu sameiginlega að
stefna Bandaríkjanna gagnvart
Nicaragua sé siðlaus og myndin
er gerð að hluta til í þeim tilgangi
að koma því sjónarmiði á framfæri.
Áætlað er að myndin verði frum-
sýnd seint á þessu ári, jafnvel um
sama leyti og þingið í Washington
tekur fyrir nýja beiðni stjórnarinnar
um aðstoð til Contra-skærulið-
anna. Framleiðandi myndarinnar
Alex Cox (til vinstri) og Ed Harris við tökur á myndinni Walker, sem
gerist í Nicaragua.
Vinirnir þrír í mynd John Landis: Martin Short, Chevy Chase og Steve
Martin. Þeir eru þar sem þú finnur þá.(l)
stéttinni.
Þetta er aðeins upphafið á nýj-
ustu gaman/ævintýramynd John
Landis (Trading Places), sem heit-
ir Þrír vinir (Three migos), og
verður sýnd í Regnboganum.
Steve Martin leikur Lucky Day,
leiðtoga vinanna og forsvarsmann
í kvikmyndaborginni, Chevy Chase
leikur hinn rómantíska, gítarleik-
andi Dusty Bottoms, sem helst
vildi hverfa aftur til þess yndis að
vera kvikmyndastjarna, og Martin
Short (í sinni fyrstu mynd) leikur
Ned Nederlander, fyrrum barna-
stjörnu tveggja-spólu myndanna.
Þetta er tíunda mýnd hins 35
ára gamla John Landis en höfund-