Morgunblaðið - 20.05.1987, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAl 1987
TRJÁHLÍFAR
Nýjung í trjá- og skógrækt á Islandi
eftír Þorberg Hjalta
Jónsson
Áhugi á tijá- og skógrækt eykst
ár frá ári. Flestir vilja strax sjá
árangur ræktunarinnar. Flest tré á
íslandi vaxa hægt fyrstu árin eftir
gróðursetningu. Á þessum árum
er tijánum einnig hættast við
skakkaföllum. Nú eru framleiddar
tijáhlífar, sem í senn auka vöxt
tijánna og forða þeim frá skakka-
föllum. Þessar hlífar gera tijá- og
skógrækt öruggari. Auk þess nýtur
tijáræktarfólk ávaxta verka sinna
mun fyrr en ella.
Trjáhlífar á
Bretlandseyjum
Árið 1979 setti Graham upp til-
raun með eik í tijáhlífum á tveimur
stöðum á Englandi. Árangur varð
framar öllum vonum, einkum á
öðru ári. Á öðru ári óx eikin sex-
falt meira en sambærilegar eikur
utan hlífa. Á þriðja ári var vöxtur-
inn fimmfaldur í hlífunum saman-
borið við eik utan hlífa.
Sem dæmi um vöxtinn má nefna
eik í hlíf í Wiltshire á Englandi.
Tréð var 27 cm hátt við gróðursetn-
ingu. Á fyrsta ári óx eikin 64 cm
og á öðru ári um 84 cm. Eftir 28
mánuði var eikin rétt rúmir 2 metr-
ar á hæð og stóð hátt yfír hlífina.
Þorbergur Hjalti Jónsson
Jafngömul eikartré utan hlífa voru
aðeins um 50 cm.
Breska ríkisskógræktin hefur
reynt fjölda tegunda af hlífum.
Vöxtur hefur reynst fjór- til átt-
faldur eftir tegundum. Bæði lauftré
og barrtré sýna góðan vöxt í hlífun-
um.
Trjáhlífar á íslandi
íslenskir skógræktarmenn fréttu
fljótt af reynslu Breta af tijáhlífum.
Þó var það ekki fyrr en 1986 að
gróðursett var í hlífar á íslandi.
Þá var gróðursett í 2000 hlífar,
mest á Norðurlandi vestra.
Eftirtaldir aðilar reyndu tijá-
hlífar vorið 1986:
Höfundur fylgdist með árangri
af gróðursetningum á þremur stöð-
um, á Hólum í Hjaltadal, á Reykjar-
hóli við Varmahlíð og á Fjósum í
Svartárdal. Á þessum þremur stöð-
um var gróðursett í samtals 730
hlífar.
Hlífamar stóðu sig vel. Örfáar
hlífar hafa fokið um eða 2%
hlífanna á Hólum í Hjaltadal. í öll-
um tilfellum var illa gengið frá
vírbindingum. Til að hlífamar
standi vel þarf staurinn sem þær
eru bundnar við að vera beinn og
ekki má snúa svo upp á vírinn að
hann slitni eða veikist.
Afföll voru lítii í hlífunum. Á
Fjósum dóu örfáar plöntur í hlífum.
Aðili Fjöldi hlífa
Bændaskólinn á Hólum og Skógræktarfélag Skagfírðinga 500
Gísii Pálsson bóndi á Hofi í Vatnsdal 500
Skógræktarfélag Eyfirðinga 250
SkógræktarfélagReykjavíkur 250
Skógrækt ríkisins 230
Skógræktarsjóður Húnvatnssýslu 200
Bændur og áhugafólk á Norðurlandi vestra 50
Skógræktarfélag Vestur-Húnvetninga 20
Alls 2000
Trjáhlífar
Tijáhlífar em hólkar úr plasti,
sem settir eru utan um smáar tijá-
plöntur. Hlífamar vemda trén fyrir
beit, illgresi og skaðlegum veðmm.
í hlífunum em ákjósanleg skilyrði
til vaxtar. Þar er mun hlýrra og
rakara en utan hlífa. Auk þess er
logn í hlífunum. Vöxtur er því
margfaldur á við tré utan hlífa.
Tijáhlífar em ný bresk uppfínn-
ing. Fyrstu tilraunir með hlífar em
frá árinu 1979. Árin 1982 og 1983
komu þær á almennan markað á
Bretlandseyjum. Þá var strax gróð-
ursett í hálfa milljón hlífa á ári.
Hvatinn að þróun
hlífanna
Hvatinn að þróun hlífanna var
erfíð endumýjun laufskóga á Eng-
landi. Vistkerfí þessara skóga er
allt úr lagi gengið vegna áhrifa
mannsins. Flest rándýr em horfin.
Skógamir em aðeins smáteigar
umluktir ökmm og engjum á alla
vegu. Skógurinn veitir hjörtum og
kanínum skjól og akrar og engi em
ríkulegt beitiland. Skilyrði fyrir
grasbíta em því ákjósanleg.
Óðalseigendur vilja gjaman hafa
marga hirti fyrir veiðiskap. Auk
þess vill almenningur sjá hjartardýr
í skógunum. Af þessum sökum er
hjörtum ekki fækkað og fjöldi
þeirra er langtum meiri en skógam-
ir þola.
Kanínur em mýmargar á Bret-
landseyjum. Þótt reynt sé að fækka
þeim gengur það lítið. Fyrir nokkr-
um áratugum kom augnsjúkdómur
í kanínumar og fækkaði þeim mik-
ið. Kanínumar em nú að verða
ónæmar fyrir þessum sjúkdómi og
stofninn kominn í fyrra horf.
Kanínur og hirtir nauðnaga ný-
græðing og gróðursetningar.
Hægur vöxtur verðmætustu skóg-
artijánna í æsku veldur því að lengi
þarf að vemda trén fyrir beit. Til
dæmis vex eik ekkert árið sem hún
er gróðursett og aðeins um 15 cm
árið eftir gróðursetningu.
Mjög er erfitt að girða hirti og
kanínur úti. Kanínumar grafa und-
ir girðingamar og hirtimir stökkva
yfír hæstu girðingar. Oft er erfítt
að vera viss um að ekki sé verið
að girða dýrin inni en ekki halda
þeim úti.
Fyrir allmörgum ámm tóku
skóg- og tijáræktarmenn að setja
vímet utan um hveija plöntu til að
veija hana fyrir ágangi dýranna.
Vímetið var þá fest við staur og
haft svo hátt að hirtimir næðu
ekki í toppinn.
Rannsóknarmanni hjá Bresku
ríkisskógræktinni (Forestry
Commission) Graham Tuley að
nafni kom ráð í hug. Hann sá að
slá mætti tvær flugur í einu höggi
með því að nota gegnsæja plast-
hólka í stað vímetsins. Á þennan
hátt væm trén líkt og í gróðurhúsi
meðan þau væm að ná rótfestu.
Auk þess ver hólkurinn trén fyrir
biti kanína og hjarta. Illgresi nær
ekki að vaxa yfír trén og minni
hætta er á skrælnun á sumrin eða
á útmánuðum.
Þessum plöntum var plantað um
mánaðamótin júní/júlí í miklum
sólarhita. Á Hólum er ekki vitað
um nein afföll í hlífum.
Á Reykjarhóli við Varmahlíð dó
ein planta vegna þess að þröstur
féll ofan í hlífína og tvær aðrar
skemmdust. Hægt er að fá fugla-
net á hlífamar til að komast hjá
því að smáfuglar falli í þær.
Hlífamar vörðu sígræn tré fylli-
lega fyrir sól á útmánuðum 1987.
Á Hólum var stafafura á berangri
við Hjaltadalsá bæði í hlífum og
utan hlífa. í mars síðastliðnum var
furan utan hlífanna skrælnuð en
fummar í hlífunum vom grænar
og frísklegar.
Hraður vöxtur
Vöxtur lofar góðu. Þar sem
snemma var gróðursett uxu tré
mjög vel, en minna því seinna sem
gróðursett var. Á Norðurlandi er
mjög þurrt á summm og efstu lög
jarðvegsins þoma fljótt. Þurrkurinn
stöðvaði vöxtinn á þeim tijám, sem
seint vom gróðursett.
Gróðursett var 23. maí ’86 á
Reykjarhóli við Varmahlíð. Gróður-