Morgunblaðið - 20.05.1987, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987
Bændur mótmæla niðurskurði
Reuter
UM 15 þúsund bændur fóru í gær um götur
Bríissel til að mótmæla róttækum áætlunum um
að skera niður fjárframlög Evrópubandalagsins
niðurgreiðslna á landbúnaðarafurðum. Mótmæl-
in fóru fram á meðan landbúnaðarráðherrar
aðildarríkja bandalagsins ræddu tillögur um að
binda enda á offramleiðslu í landbúnaði. Mót-
mælendurnir báru áletruð spjöld og sprengdu
púðurkerlingar. Lögregla hafði mikinn viðbúnað
vegna þessa, en ekki kom til átaka. Á myndinni
sést hvar bóndi einn setur púðurkerlingu ofan
í tóman mjólkurbrúsa. Mótmælunum lauk með
því að leiðtogar bænda héldu ræður fyrir utan
fundarstað ráðherranna.
Nakasone kveður nið-
ur andóf í stjórninni
Vestur-Þjóðveijum stafar nú
aukin hætta af njósnurum frá
austantjaldsrikjum og öfga-
mönnum bæði til hægri og
vinstri, að því er Friedrich Zim-
mermann innanríkisráðherra
sagði í gær.
Zimmermann sagði í árlegri
skýrslu um störf gagnnjósnastofn-
Marchais
tilnefnir
eftirmann
París, Reuter.
GEORGES Marchais, aðalritari
franska kommúnistaflokksins,
lagði í gær til að Andre Lajoinie
yrði útnefndur eftirmaður sinn
á þingi flokksins í næsta mánuði.
Lajoinie er 57 ára og hefur verið
formaður þingflokks Kommúnista-
flokksins um skeið. Er hann af
bændafólki og þykir alúðlegur og
blíðmáll. Hann er sagður líklegastur
núverandi leiðtoga flokksins til að
geta snúið kjósendum til fylgis við
flokkinn, sem hefur skroppið saman
síðustu árin undirforystu Marchais.
Marchais stakk upp á Lajoinie á
þriggja daga miðstjómarfundi
flokksins, sem lýkur í dga í París.
Miðstjómin verður að samþykkja
tillögu Marchais áður en hægt verð-
ur að bera hana upp á landsfundi.
unarinnar að 43 menn hefðu verið
handteknir fyrir njósnir í þágu Var-
sjárbandalagsríkja á síðasta ári.
Arið 1985 voru 18 menn hand-
teknir.
Sagði ráðherrann að þetta væri
mikill missir fýrir Austur-Þjóðveija.
Að sögn Zimmermanns hefur
leyniþjónustu Vestur-Þýskalands
tekist að koma í veg fyrir að kom-
múnistar gætu komið sínum
mönnum að í kjölfarið á því að
Hans-Joachim Tiedge, einn af
helstu starfsmönnum gagnnjósna-
stofnunarinnar, flúði til Austur-
Þýskalands árið 1985.
Zimmermann sagði að öfgahópar
til vinstri hefðu framið fleiri hryðju-
verk á síðasta ári en árið áður.
Árásimar hefðu aðallega beinst
gegn herstöðvum Vestur-Þjóðveija
og Atlantshafsbandalagsins.
í skýrslunni kemur fram að helst
séu það Austur-Þjóðveijar, sem
sendi njósnara til Vestur-Þýska-
lands, en Pólveijar, Tékkar og
Sovétmenn stundi einnig njósnir.
Félagar í hægri öfgasamtökum
em um 22 þúsund og hefur lítið
fjölgað. Þar af er talið að fimmtán
hundmð manns taki þátt í starfi
samtaka nýnasista, sem vilji koma
á sams konar stjómarháttum og
vom við lýði í valdatíð Adolfs Hitl-
er, að því er segir í skýrslunni.
Yfirvöld hafa komist að því að sam-
vinna er milli slíkra fasistahópa í
Austurríki, Frakklandi og Belgíu.
Innanríkisráðheirann sagði að
uppreisnarsamtök írana, Palestínu-
manna og fólks frá Sri Lanka legðu
enn á ráðin um hryðjuverk innan
landamæra Vestur-Þýskalands.
Tókýó, Reuter.
YASUHIRO Nakasone, forsætis-
ráðherra, kvað niður andóf gegn
efnahagsstefnu sinni á ríkis-
stjórnarfundi í gær, að sögn
áreiðanlegra heimiida. Vegna
deilna um tillögur forsætisráð-
herrans stóð fundurinn hálfri
stundu lengur en venja er.
Hermt er að nokkrir af valda-
mestu ráðhermnum í stjóm
Nakasone hafi haft í frammi efa-
Cannes, Reuter.
FRANSKI leikstjórinn Maurice
Pialat vann í gærkvöldi Gullpál-
mann, helstu verðlaunin, sem
veitt eru á kvikmyndahátíðinni í
Cannes í Frakklandi, fyrir mynd
sína „Sous le Soleil de Satan“
(Undir sólu Satans). Ákvörðun
þessi er umdeUd og gerðu áhorf-
endur hróp að dómnefndinni.
Gagnrýnendur rökkuðu niður
mynd Pialats, sem byggð er á skáld-
sögu Georges Bemanos um prest,
sem lætur kölska freista sín, þegar
hún var fmmsýnd og var ekki gert
ráð fyrir að hún ynni til verðlauna.
TÉKKA tókst að flýja til Vestur-
Þýzkalands í fyrrakvöld á
heimasmíðaðri svifflugu. Komst
hann undan tveimur orrustuþot-
um, sem sendar voru á loft á
eftir honum.
Tékkinn hafði undirbúið flóttann
í tvö ár, að sögn vestur-þýzku lög-
reglunnar. Smíðaði hann svifflug-
una heima hjá sér. Setti hann á
hana mótor og lagði á flótta frá
bænum Domazlice um sólsetur í
semdir um ágæti tillagna forsætis-
ráðherrans og ekki talið þær koma
nógu mikið til móts við kröfur
Bandaríkjastjómar, sem gripið hef-
ur tii ráðstafana vegna gífurlegs
halla á viðskiptum við Japan. Naka-
sone vill m. a. auka útgjöid hins
opinbera og leggja á söluskatt.
Hyggst hann hins vegar lækka
tekjuskatt. Ágreiningur er í stjóm-
inni og flokk hans um þessar
Dómnefndin, sem Yves Montand
veitir forstöðu, útnefndi Italann
Marcello Maistroiani og Banda-
ríkjamanninn Barböru Hershey
fyrir bestan leik.
Leikstjórinn Tenguiz Abouladze
frá Grúsíu fékk sérstök verðlaun
gagnrýnenda fyrir myndina Pokay-
aniye (Iðrun).
Vestur-Þjóðveijinn Wim Wend-
ers fékk verðlaun fyrir leikstjóm á
mynd sinni Der Himmel iiber Berl-
in, en hann vann einnig til verð-
launa fyrir myndina Paris, Texas
fyrir þremur ámm.
fyrradag. Lenti hann klukkustund
síðar á akri 50 kílómetra handan
tékknesku landamæranna, skammt
frá bænum Roding í Vestur-Þýzka-
landi.
Flóttamaðurinn flaug eins lágt
og kostur var til að sjást ekki á
ratsjám tékkneska flughersins.
Hans varð þó fljótlega vart og voru
sendar tvær orrustuþotur á eftir
honum, en þær náðu ekki svifflug-
unni.
aðgerðir.
Nakasone hélt því fram að Ron-
ald Reagan, Bandaríkjaforseti,
hefði lagt blessun sína yfír tillögur
hans er þeir hittust fyrir skömmu
í Washington. Ráðstöfunum Naka-
sone er ætlað að blása þrótti í
efnahagsh'f Japana og opna landið
meira fyrir innflutningi.
Andófið í stjóminni em til marks
um að staða Nakasone sé að veikj-
ast, en hann hefur verið harðlega
gagnrýndur fyrir stuðning sinn við
umdeildan söluskatt. Hefur pólitísk-
ur orðstýr hans beðið hnekki af
þeim sökum.
Nakasone lætur af starfí forsæt-
isráðherra og formennsku í Frjáls-
lynda lýðræðisflokknum í október.
Eftir því sem nær dregur mæta
hugmyndir hans og tillögur öflugri
mótspymu. Á sama tíma harðnar
keppni þeirra, sem sækjast eftir því
að leysa hann af hólmi.
Susumu Nikaido, sem er einn af
áhrifamestu mönnum flokksins,
lýsti því yfir í síðustu viku að hann
mundi sækjast eftir formennsku í
flokknum og starfi forsætisráð-
herra. Framkvæmdastjóri flokks-
ins, Nobom Takeshita, vill einnig
leysa Nakasone af hólmi.
gjaldmiðla
Gengi
London, Reuter.
Sterlingspundið kostaði 1,6785
dollara á hádegi í London í gær.
Staða dollarans hafði styrkst
nokkuð einkum vegna frétta um
að vaxtahækkun kynni að vera í
vændum í Bandaríkjunum. Gengi
annarra helstu gjaldmiðla var
með þeim hætti að dollarinn kost-
aði:
1,3390 kanadíska dollara,
1,7820 vestur-þýsk mörk,
2,0087 hollensk gyllini,
1,4620 svissneska franka,
36,91 belgíska franka,
5,9525 franska franka,
1291,00 ítalskar lírur,
140,15 jen,
6,2350 sænskar krónur,
6,6150 norskar krónur,
6,6975 danskar krónur.
Gullúnsan kostaði 470,70 doll-
ara.
V estur-Þýskaland:
Aukin hætta af njósn-
urum og öfgahópum
Bonn, Reuter.
Frakki fékk Gull-
pálmann í Cannes
Tékkóslóvakía:
Flýði land á heima-
smíðaðri svifflugu
MUnchen, Reuter.