Morgunblaðið - 20.05.1987, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987
Kosningar í Hinu íslenska kennarafélagi:
Wincie Jóhannsdótt-
ir kjörin formaður
Bjarg-
langar
\ Lagt upp frá
, tPATREKSFIRÐI
ASVIFDREKA YFIR BREIBAFJORÐ
WINCIE Jóhannsdóttir hefur
verið kjörin formaður Hins
íslenska kennarafélags í at-
kvæðagreiðslu, sem nýverið fór
fram. Tekur hún við störfum á
þingi félagsins, sem haldið verð-
ur í nóvember í haust, en Kristján
Thorlacius, núverandi formaður
félagsins, sem gegnt hefur stöð-
unni í fimm ár, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs.
Þrír voru í framboði tii form-
anns. Wincie Jóhannsdóttir hlaut
213 atkvæði, Gunnlaugur Ástgeirs-
son 97 atkvæði og Gísli Olafur
Pétursson 87 atkvæði. Á lqörskrá
voru 1163, atkvæði greiddu 432 eða
37,1%.
Einnig var kosið í sjö manna
stjóm félagsins og fímm manna
varastjóm. Þessir voru kjörnir í
stjóm: Wincie Jóhannsdóttir, MH,
309 atkvæði; Ómar Ámason, MS,
274 atkvæði; María Gunnlaugs-
dóttir, Flensborg, 271 atkvæði;
Auður Haraldsdóttir, Flensborg,
229 atkvæði; Elna_ K. Jónsdóttir,
ME, 209 atkvæði; Ásmundur Páls-
son, Fjölbrautarskóla Suðurlands,
190 atkvæði og Gunnlaugur Ást-
geirsson, MH, 184 atkvæði.
I varastjóm voru þessir kjömir:
Gísli Ólafur Pétursson, MK, 174
atkvæði; Bjöm Búi Jónsson, MR,
Wincie Jóhannsdóttir
162 atkvæði; Gísli Þór Sigurþórs-
son, Æfíngaskóla KHI, 158
atkvæði; Stefán G. Jónsson, MA,
141 atkvæði og Ingi Bogi Bogason,
Fjölbrautarskóla Breiðholts, 137
atkvæði.
Fjármálaráðuneytið:
Ekkí við íslenzk lög að
sakast ef fatainnkaupa-
ferðir þykja borga sig
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá fjármálaráðu-
neytinu:
„í frétt í Morgunblaðinu þann
7. þ.m. um hugsanlegar aðgerðir
til lækkunar vöruverðs hér á landi
kemur fram það álit Félags
íslenskra stórkaupmanna að spoma
negi við verslunarferðum til Glas-
gow með því m.a. að lækka að-
flutningsgjöld. í leiðara blaðsins
oann 8. þ.m. eru hugmyndir Félags
íslenskra stórkaupmanna í þessum
efnum reifaðar og tekið undir þau
sjónarmið að háir tollar og vöru-
gjöld („hafnarbakkaverðbólga" eins
og það er nefnt) séu helstu ástæð-
umar fyrir umræddum verslunar-
ferðum til Glasgow og fleiri borga.
Af þessu tilefni þykir fjármála-
ráðuneytinu rétt að taka eftirfar-
andi fram: Ef marka má þær fréttir
sem fluttar hafa verið af umrædd-
um verslunarferðum, þá mun
fatnaður vera sú vara, sem einkum
heillar landann í verslunum erlend-
is. Þar sem skilja má umrædd skrif
þannig að háir tollar og vörugjöld
hvíli á þessari vöm við innflutning
verður ekki hjá því komist að geta
þess að á innfluttan fatnað frá að-
ildarríkjum EFTA og EBE er hvorki
lagður tollur né vörugjald. Á þenn-
an innflutning er aðeins lagt 3%
jöfnunargjald. Hvað svo sem um
löggjöf okkar um aðflutningsgjöld
má segja, er Ijóst að við hana er
ekki að sakast, ef hagkvæmt þykir
að kaupa farmiða til Glasgow eða
annarra borga til þess að gera þar
góð fatainnkaup. Skýringanna á
hagkvæmni þessara verslunarferða
er því að leita annars staðar.
Þá vill ráðuneytið vekja athygli
á að í ályktun Félags íslenskra stór-
kaupmanna, sem frá er greint í
umræddri frétt, er því m.a. haldið
fram að aðföng til samkeppnisiðn-
aðar séu tollftjáls svo fremi að þau
séu ekki keypt af lager íslenskrar
innflutningsverslunar. Þetta er
rangt. í reglum þeim sem gilda um
toll- og söluskattsfríðindi sam-
keppnisiðnaðar er beinlínis kveðið
á um endurgreiðslu umræddra
gjalda séu aðföngin keypt af inn-
lendum birgðum, þ.e. af lager
innflutningsverslunar.
Ráðuneytið hefur lýst sig reiðu-
búið til viðræðna um framkvæmd
þessa atriðis ef hún skyldi mega
betur fara.“
Hér nauðlenti
svifdrekinn vegna
vélarbilunar
•EUióaeyjf' Cí
Höskukkcy. / • jtykkTshólmur H I
Afangastaðurinn^**
ÓLAFSVÍK^*
Grundarfjörðui
SNÆFELLSNES V
„Fékk afgreidda vit-
lausa olíu á mótorinn“
- segir Jóhann Valur Jóhannsson,
sem nauðlenti á svifdreka á Stagley
„ASTÆÐAN fyrir því að það
drapst á mótornum var sú að
ég fékk afgreidda vitlausa olíu
á Patreksfirði," sagði Jóhann
Valur Jóhannsson, sem nauð-
lenti á svifdreka á Stagley á
Breiðafirði um síðustu helgi.
„Mér var sagt að olían sem ég
fékk væri samskonar og sú sem
ég er vanur að nota, en svo
reyndist ekki vera,“ sagði hann
ennfremur.
Jóhann Valur sagði að umfjöll-
un sumra fjölmiðla um málið á
mánudag hefði verið mjög vill-
andi. „Það var ekki um neina
brotlendingu að ræða. Ég lenti
með eðlilegum hætti þama á eyj-
unni þótt þar hafí ekki verið neinn
sléttur flötur. Svona farartæki
dettur heldur ekki niður eins og
múrsteinn og mönnum gefst næg-
ur tími til að undirbúa lendingu
þegar svona kemur upp, enda
urðu engar skemdir á svifdrekan-
um í þessari lendingu. Eins vil ég
árétta það að í svona flugi yfír
sjó fer ég ávallt eftir ákveðnum
reglum og fer aldrei svo langt frá
landi að ekki sé unnt að lenda á
þurru ef eitthvað kemur upp á.
Þá hafði ðg talstöð meðferðis og
var í stöðugu sambandi við
frænda minn Hans Óla Hansson,
þannig að það var í raun aldrei
nein hætta á ferðum,“ sagði Jó-
hann Valur.
„Ég skal þó viðurkenna að ég
átti alls ekki von á þessari mótor-
bilun á leiðinni. Ég reyndi að
gangsetja hann aftur, en þegar
það tókst ekki bjó ég mig undir
lendingu á eyjunni. Ég lét Hans
Óla vita af mér og þeir voru komn-
ir út í eyjuna eftir rúma klukku-
stund frá því ég lenti. Þetta var
því alls ekki sú glæfraför sem
sumir vildu vera !áta,“ sagði hann
ennfremur. Aðspurður um hvers
vegna hann hefði ekki verið með
björgunarvesti sagði Jóhann Val-
ur að þess gerðist ekki þörf þegar
fylgt væri þeirri reglu að fara
aldrei of langt frá landi enda
kæmi þá ekki til þess að menn
lentu í sjónum undir svona kring-
umstæðum.
Úrtakskönnun Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins í Reykjavík:
Algengt að byggingar stand-
ist ekki jarðskjálftaálag
Eftirliti byggingaryfirvalda áfátt
NIÐURSTÖÐUR könnunar, sem
Rannsóknarstofnun bygginga-
riðnaðarins gekkst fyrir nýlega,
benda til þess að burðarþoli
margra bygginga á höfuðborgar-
svæðinu sé verulega ábótavant.
Af tíu byggingum sem voru at-
hugaðar, reyndist burðarþoli sex
þeirra vera áfátt, þijár voru ekki
athugaðar vegna þess að burðar-
þolsteikningar vantaði en burð-
arþol einnar var fullnægjandi.
I júlí 1985 skipaði félagsmálaráð-
herra nefnd til þess að kanna ástand
þolhönnunar bygginga og koma
með tillögur til úrbóta. í áliti sem
nefndin skilaði í mars 1986 og gerð
var grein fyrir á sínum tíma, var
m. a. lagt til að gerð yrði könnun
á burðarþoli húsa og fól félagsmála-
ráðherra Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins að gera könn-
un á nokkrum nýlegum byggingum
í þessu tilliti.
Tilhögun könnunarinnar var
þannig, að óskað var eftir teikning-
um af tíu byggingum hjá viðkom-
andi byggingarfulltrúa, en að sögn
Hafsteins Pálssonar hjá Rannsókn-
arstofnun byggingariðnaðarins,
voru mikil brögð að því að ekki
lægju fyrir fullnægjandi gögn hjá
viðkomandi byggingaryfírvöldum,
sem þó ætti að vera nauðsynlegt,
til að ganga úr skugga um burðar-
þol bygginga.
Valin voru hús, sem við fyrstu
sýn virtust vafasöm hvað burðarþol
varðar, en að auki voru valin hús,
sem vonast var til að virtust í lagi
án frekari athugunar. Sannprófunin
fólst í því að kanna stöðugleika
bygginganna gegn jarðskjálftaálagi
samkvæmt lögformlegum stöðlum
byggingarreglugerða.
Af þessum sjö byggingum, þar
sem fyrir lágu teikningar og athug-
anir framkvæmdar, var ein skóla-
bygging, tvær iðnaðarhúsnæði og
aðrar skrifstofu- og verslunarhús-
næði. Viðkomandi skólabygging
reyndist standast jarðskjálftaálag
samkvæmt hinum opinbera staðli
(ÍST 13), en á það var hins vegar
bent í skýrslunni, að sérstakar kröf-
ur séu gerðar til skólabygginga að
þola aukaálag, þar eð Almanna-
vamir ríkisins beini fólki í -skóla-
byggingar ef það neyðist til að
yfirgefa hús sín í náttúruhamförum.
Af því iðnaðar- og verslunarhús-
næði, sem var kannað, reyndist það
ýmist ekki standast þá láréttu jarð-
skjálftakrafta, sem gerðar eru
kröfur um eða að burðargeta súlna
væri að öðru leyti of lítil. í einu
tilviki reyndist þak yfír opnanlegu
rými ekki standast vindálag.
Um þessar niðurstöður segir í
skýrslunni: „Athugun úrtaksins
staðfestir á ótvíræðan hátt að burð-
arþoli margra húsa er áfátt. Hitt
vekur þó sérstaka athygli, að ekk-
ert húsanna stenst að öllu leyti
settar kröfur, þótt nokkur húsanna
hafi verið valin í þeirri von að þau
stæðust kröfur. Áuk þess er und-
runarefni sá skortur á gögnum hjá
byggingarfulltrúanum í Reykjavík,
sem fram kom við þessa athugun."
Síðan segir: „Könnunin undirstrikar
að frekari athuganir þurfa að fara
fram. Tilhögun frekari athugana
gæti verið á þann veg, að byija á
öllum stærri húsum, sem eru í bygg-
ingu, til að unnt verði að leiðrétta
(lagfæra) burðarþol þeirra á bygg-
ingarstigi ef nauðsyn krefur. Síðan
þarf á kerfisbundinn hátt að kanna
ástand húsa, sem þegar hafa verið
tekin í notkun. Til þess að bæta
núverandi ástand I þessum málum,
er þörf á að bæta til muna þær
reglur sem gilda um löggildingu
hönnuða og auka verulega eftirlit
bæði með hönnuðum og fram-
kvæmdum. Jafnframt er brýnt að
gera verulegt átak í staðlamálum á
sviði þolhönnunar, þ. e. endurskoða
núgildandi staðla og gefa út þol-
hönnunarstaðla, sem ekki eru til.“
Aukið eftirlit
við Hvassa-
leitisskóla
Á FUNDI Borgarráðs
Reykjavíkurborgar í gær var
tekið fyrir bréf frá foreldrum
barna I Hvassleitisskóla. Á
fundinum var samþykkt að
beina þeim tilmælum til lög-
reglu að hafa eftirlit með
svæðinu umhverfis skólann,
vegna mannsins sem verið
hefur að angra böm þar að
undanförnu og að kannaðar
verði leiðir til þess að koma
til móts við óskir foreldra um
umbætur.