Morgunblaðið - 20.05.1987, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987
Nýútskrifaðir einsöngrarar og söngkennarar úr Söngskólanum.
Skólaslit o g tónleik-
ar í Söngskólanum
FJÓRTÁNDA starfsári skólans er Píanóleikarar úr starfsliði skólans
nú að Ijúka, og hafa um 150 nem-
endur stundað nám við skólann í
vetur, 110 fullt nám, en um 40
sótt hlutanám i kvöldskóla. Próf-
dómari i vor var Margaret
Carthew. Um 100 nemendur luku
stigprófum i söng og/eða píanó-
leik.
Skólinn útskrifar að þessu sinni
þijá söngkennara: Dúfu S. Einars-
dóttur, Friðrik S. Kristinsson og
Theodóru Þorsteinsdóttur, og tvo
einsöngvara, Ásdísi Kristmundsdótt-
ur og Ingibjörgu Marteinsdóttur. Sex
nemendur luku VIII stigi, sem er
lokapróf úr almennri deild.
Vortónleikar á vegum skólans
verða sem hér segin
VIII stigs tónleikar: Miðvikudag-
inn 20. maí kl. 20.30 í Tónleikasal
Söngskólans á Hverfisgötu 45, Guð-
rún Jónsdóttir, Ásdís Benediktsdóttir
og Anna Sigríður Helgadóttir. Laug-
ardaginn 23. maí kl. 16.00 í Tón-
leikasal Söngskólans, Sigurbjörg Hv.
Magnúsdóttir, Ingunn Ósk Sturlu-
dóttir og Andrea Gylfadóttir. Út-
skriftartónleikar söngkennara:
Sunnudaginn 24. maí kl. 16.00 í
Tónleikasal Söngskólans, Theodóra
Þorsteinsdóttir, Friðrik S. Kristins-
son og Dúfa S. Einarsdóttir.
Útskriftartónleikar einsöngvara:
Mánudaginn 25. _maí kl. 20.30 í
Norræna húsinu, Ásdís Kristmunds-
dóttir, og þriðjudaginn 26. maí kl.
20.30 í Norræna húsinu, Ingibjörg
Marteinsdóttir.
GENGIS-
SKRANING
Nr. 89 - 19. maí 1987
Kr. Kr. ToU-
Eíd.KI. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 38,440 38,560 38,660
St.pund 64,570 64,771 64,176
Kan.dollari 28,664 28,754 29,905
Dönskkr. 5,7388 5,7567 5,7293
Norskkr. 5,8106 5,8287 5,8035
Sœnskkr. 6,1647 6,1839 6,1851
Fi.mark 8,8612 8,8889 8,7892
Fr.franki 6,4583 6,4785 6,4649
Belg. franki 1,0415 1,0447 1,0401
Sv.franki 26,2928 26,3748 26,4342
Holl. gyUini 19,1463 19,2061 19,1377
V-Þ. mark 21,5834 21,6508 21,5893
ÍLlíra 0,02977 0,02986 0,03018
Austurr.sch. 3,0687 3,0783 3,0713
Port. escudo 0,2774 0,2783 0,2771
Sp. peseti 0,3081 0,3091 0,3068
Jap.yen 0,27452 0,27538 0,27713
Irsktpund 57,750 57,931 57,702
SDR (Sérst.) 50,3073 50,4645 50,5947
ECU, Evrópum. 44,8210 44,9610 44,8282
sem fram koma með nemendunum á
þessum tónleikum eru Catherine
Williams, Guðrún A. Kristinsdóttir,
Hólmfríður Sigurðardóttir, Jórunn
Viðar, Kolbrún Sæmundsdóttir og
Lára Rafnsdóttir. Aðgangur er öllum
heimill og ókeypis, nema á tónleikana
í Norræna húsinu, þar er verð að-
göngumiða kr. 200.
Skólaslit og lokatónleikar Söng-
skólans í Reykjavík verða í íslensku
óperunni fimmtudaginn 28. maí,
skólaslitin kl. 15 og lokatónleikamir
kl. 16.00. Aðgöngumiðasala er við
innganginn, en styrktarfélögum hafa
þegar verið sendir miðar. Að tónleik-
unum loknum er boðið upp á kaffí-
veitingar í Söngskólanum í Reykjavík
á Hverfísgötu 45. Daginn eftir, 29.
maí, fara síðan fram inntökupróf í
skólann fyrir næsta vetur.
Skólastjóri Söngskólans í
Reykjavík er Garðar Cortes.
(Fréttatilkynning.)
Hjólar
ÁSTRALÍUBÚINN Paul McMan-
us ætlar að hjóla í kringum
hnöttinn og safna fé fyrir hungr-
aða í heiminum. Hann hefur
verið á ferðinni i 14 mánuði og
hefur lagt að baki 26 þúsund
kílómetra. Hann reiknar með að
hafa lokið hringferðinni í nóvem-
ber í haust og verður þá búinn
að hjóla 40 þúsund kílórnetra.
ísland er 21. landið, sem hann
heimsækir og í vikunni lagði hann
af stað hringinn í kringum landið.
Hann ætlar að fara hringinn norður
um og bjóst við að vera hálfan
mánuði í ferðinni, en héðan heldur
hann til Bandaríkjanna viku af júní.
„Það fer allt eftir veðri og vegum,
en ég býst við að verða um tvær
vikur að fara hringinn. Hér eru
erfíðir vegir og þess vegna ætla ég
mér lengri tíma en annars," sagði
hann í samtali við Morgunblaðið.
McManus lagði upp frá Adelaide
í Ástralíu 16. mars 1986. í för með
honum var félagi hans, sem einnig
er frá Ástralíu. Hann gafst upp
fljótlega eftir að ferðin hófst, þar
sem honum þótti hitinn óbærilegur.
„Honum hefði líkað lofslagið hér,“
sagði hann og spurði hvort sólin
skini aldrei hér á landi.
Eftir að hafa hjólað þvert yfir
Ástralíu lá leiðin til Indónesíu, þar
Leiðrétting-
í Morgunblaðinu í gær þar sem
sagt var frá úrslitum á íþrótta-
móti unglinga í íþróttadeild Fáks
var rangt farið með úrslit í tölti
í eldri flokki. Hið rétta er að í
4. sæti varð Eyjólfur Pálmason
á Hörða. Eyjólfur var einnig í
1. sæti í fjórgangi I eldri flokki.
Hlutaðeigendur eru beðnir
velvirðingar á þessu.
INNLEN^T
Svíar gera sjónvarps-
mynd um íslenska hestinn
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
Þeir Moberg og Lehmann og aðstoðarstúlka þeirra í Víðidalnum
ásamt Hróðmari Bjarnasyni t.v. en hann stundar nám í Sviþjóð
og kom með þeim til landsins sem leiðsögumaður. Daginn áður
en myndin var tekin höfðu þeir myndað sýningu stóðhestastöðvar-
innar, en ræktunarstarfinu hérlendis verða gerð góð skil í
myndinni.
Fyrir skömmu voru staddir
hér á landi tveir Svíar í þeim
erindum að taka myndir af
islenskum hestum en þeir vinna
að gerð hálftima til þriggja
kortera langrar sjónvarpskvik-
myndar sem fjalla á um sögu
íslenska hestsins, eiginleika
hans og núverandi stöðu á ís-
landi og utan þess. Ætlunin er
að myndin verði með þeim
hætti að hún höfði til almenn-
ings en ekki eingöngu þeirra
er áhuga hafa á hestum.
Upphafíð að gerð myndarinnar
var að þessir Svíar, þeir Hans
Moberg og Anders Lehman, áttu
það tvennt sameiginlegt að starfa
við myndbandagerð og eiga
íslenska hesta og gældu þeir báð-
ir við þá hugmynd að gera mynd
um íslenska hestinn hvor í sínu
lagi. Það var svo seinna að sam-
eiginlegur kunningi þeirra vissi
að þeir gengu með sömu hug-
myndina í maganum án þess að
vita hvor af hinum og kom þeim
saman. Tóku þeir höndum saman
og var ákveðið að myndin skyldi
heita „Hestur guðanna".
Þeir Moberg og Lehman sögðu
að þótt þeir væru komnir á fullt
við töku myndarinnar væri ekki
búið að útvega allt það fjármagn
sem þyrfti til framleiðslu myndar-
innar en þeir hyggðust leita m.a.
eftir fjárstuðningi íslenskra aðila.
Töldu þeir að myndin yrði mjög
góð landkynning fyrir ísland og
íslenska hestinn. Þá sögðu þeir
að þijú fyrirtæki hefðu nú þegar
ákveðið að styrkja þá en þau eru
Flugleiðir hf., Veltir hf. og Sony-
umboðið. Þá munu þeir leita eftir
aðstoð íslendinga við samningu
texta við myndina og e.t.v. fá
aðstoð hjá íslenskum myndbanda-
gerðarfyrirtækjum.
Þegar blaðamaður hitti þá fé-
laga að máli í Víðidalnum voru
þeir í þann mund að hefja tökur
á tamningu trippis sem síðan átti
að mynda seinna í sumar þegar
tamning verður vel á veg komin
en þeir eru væntanlegir í sumar
og síðan aftur í haust. Fara þeir
væntanlega í ferð yfír hálendið
með einhveijum ferðahópi í sum-
ar.
Þá verða teknar myndir af öll-
um gangtegundum og verða til
þess fengnir þekktir hestar.
Aðspurðir um það hvort myndin
yrði sett á myndbönd til sölu á
almennum markaði sögðu þeir
Moberg og Lehmann að það gæti
komið til greina eftir sýningu hjá
þeim sjónvarpsstöðvum, sem
væntanlega myndu kaupa mynd-
ina, en þeir hyggjast selja hana
sjónvarpsstöðvum á Norðurlönd-
um og annarsstaðar í Evrópu, en
hinsvegar ætluðu þeir að leyfa
sýningu myndarinnar hérlendis
án þess að greiðsla kæmi fyrir
og bæri að skoða það sem þakk-
lætisvott frá þeim til íslendinga
fyrir veitta aðstoð við gerð mynd-
arinnar, sem á að verða tilbúin í
desember á þessu ári. Að endingu
vildu þeir koma á framfæri þakk-
læti fyrir góðar móttökur þau tvö
skipti sem þeir hefðu komið hing-
að til lands og sögðu þeir að þeim
hefði opnast nýr heimur þegar
þeir hefðu komið hingað og einnig
hefðu þeir kynnst mörgu góðu
fólki. v.K.
í kríngum hnöttínn
Morgunblaðið/Bjami
Paul McManus með fararskjótann í Fógetagarðinum í Reykjavík áður en hann lagði upp í ferðina hring-
inn í kringum landið.
sem félagi hans gafst upp. Hann
fékk ekki að fara um Thailand
vegna ótryggs ástands við landa-
mæri landsins og varð því að taka
þann kost að fljúga til Bangla Desh.
Þetta er eini hluti leiðarinnar, sem
hann hefur ekki hjólað um. Frá
Bangla Desh fór hann þvert yfír
Indland og um Punjab, Pakistan,
íran, Tyrkland og til Grikklands.
Síðan sem leið liggur um Evrópu
til Englands, en hingað kom hann
fljúgandi frá London.
„Erfíðasti hluti ferðarinnai var
um Pakistan og Iran. Þar eru veg-
imir mjög erfiðir, hitinn mikill,
eyðimerkurnar víðfemar og ein-
mannaleikinn þrúgandi. Það fylgir
því mikið öryggisleysi að vera einn
í þessum löndum, því það er á eng-
an að treysta og enginn til þess að
leysa vandamálin, nema maður
sjálfur," sagði hann. í Pakistan létu
stjómvöld honum í té sex lífverði
til þess að tryggja að hann yrði
ekki fómarlamb mannræningja.
Eins og iýrr segir er tilgangur
ferðarinnar meðfram sá að safna
fé handa hungruðum heimi. Til
þessa hefur McManus tekist að
safna um einni milljón íslenskra
króna og rennur það fé til Austral-
ian Freedom From Hunger
Campaign, en þau samtök einbeita
sér að langtíma þróunarhjálp í
Þriðja heiminum. Flugleiðir styrkja
ferð hans hingað og áfram til
Bandaríkjanna.
McManus á eftir að fara þvert
yfír Bandaríkin til Los Angeles.
Þaðan flýgur hann til Ástralíu og
lýkur ferðinni með því að hjóla í
kringum hálfa Ástralíu til Adelaide,
þar sem ferðin hóft fyrir 14 mánuð-
um.